Morgunblaðið - 17.01.1986, Blaðsíða 1
64SIÐUR B
STOFNAÐ1913
13. tbl. 72. árg.
FÖSTUDAGUR17. JANÍJAR1986
Prentsmidja Morgunblaðsins
Líbanon:
Lið Gemayels
hratt sókninni
Beirút, 16. janúar. AP.
HERMENN hollir Amin Gemayel, Líbanonsforseta, hafa hrundið sókn
múhameðstrúarmanna inn á svæði, sem eingöngu eru byggð kristnum
mönnum. í gær báru þeir sigur af trúbræðrum sínum, sem hlynntir
eru Sýrlendingum, og féllu um 300 manns í þeim átökum.
AP/S!mamynd
Kristnir hermenn úr flokki Gemayels, forseta Líbanons, flytja skotfæri inn i stöðvar Elie Hobeika en
þær féllu þeim í hendur í gær eftir blóðug átök. Féllu i þeim 300 manns og rúmlega 600 særðust.
Liðsmenn Falangistaflokks
Gemayels og sérsveitir kristinna
manna hrundu í nótt tangarsókn
múhameðstrúarmanna í miðhálend-
inu og í Batroun-héraði en þegar
dagaði urðu stöðvar kristinna
manna fyrir miklum stórskotaliðs-
árásum. Útvarpsstöðvar múham-
eðstrúarmanna sögðu í dag, að
drúsar, shítar og flokkar á bandi
Sýrlendinga væru nú að kveðja til
alla vopnfæra menn og óttast
margir, að borgarastyrjöldin kunni
að breytast í allsheijarstríð.
Um 300 manns féllu í gær þegar
hermenn trúir Gemayel réðust á
stöðvar Elie Hobeika, fyrrum yfir-
manns sérsveita kristinna manna.
Hobeika undirritaði samninginn,
sem gerður var að undirlagi Sýr-
lendinga, en á hann hefur Gemayel
ekki viljað failast enn. Hobeika
hefur nú verið fluttur til Kýpur og
er búist við, að hann fari til Parísar.
Bretland:
Fór Brittan með
rangt mál á þingi?
London, 16. janúar. AP.
FRAMKVÆMDASTJÓRI breska
fyrirtækisins British Aerospace
lýsti þvi yfir i dag, að Leon Britt-
an, innanríkisráðherra, væri
ósannindamaður og hafa þau
ummæli hans aukið enn á deil-
urnar um sölu Westland-þyrlu-
fyrirtækisins og á stjórnarkrepp-
una, sem málið hefur valdið.
Sir Raymond Lygo, fram-
kvæmdastjóri British Aerospace,
fyrirtækisins, sem vildi kaupa
Afvopnunarmál:
Tillögnm Sovét-
manna vel tekið
Washington, Genf, 16. janúar. AP.
RONALD Reagan, Bandarikjaforseti, fagnaði í dag nýjum afvopnun-
artillögum Sovétmanna og sagði, að þær væru „ólíkar fyrri tillögum"
þeirra. Fn" sem fyrr setja Sovétmenn það skilyrði, að Bandarikja-
menn hætti rannsóknum sinum á geimvömum. Afvopnunarviðræð-
urnar í Genf hófust aftur í dag með því, að Sovétmenn lögðu tíllög-
umar formlega fram.
Reagan, Bandaríkjaforseti,
kvaðst í dag fagna tillögum Sovét-
manna og væri það sérstakt fagnað-
arefni, að með þeim væri gert ráð
fyrir algerri útrýmingu kjamorku-
vopna. „Tillögumar em ólíkar fyrri
tillögum sovéskra ráðamanna og
þær verða athugaðar mjög vel,“
sagði Reagan.
I tillögunum er lagt til, að hvort
stórveldanna fækki um helming
þeim kjamorkuvopnum, sem unnt
er að skjóta á hitt, og að eytt verði
öllum meðaldrægum eldflaugum í
Evrópu á átta árum. Þvi á síðan
að fylgja bann um allan heim við
smíði nýrra vopna og loks alger
uppræting þeirra. Sovétmenn kre§-
ast þess hins vegar enn sem fyrr,
að Bandaríkjamenn hætti öllum
rannsóknum á geimvömum. Á því
hefur Bandaríkjastjóm ekki viljað
Ijá máls.
Bretar og Vestur-Þjóðveijar
kváðust í dag mundu kynna sér
tillögur Sovétmanna og kom það
fram hjá talsmönnum ríkisstjóm-
anna, að þeim litist vel á þær um
margt. Ýmsir hafa þó látið þá
skoðun í ljós, að tillögur Sovét-
manna séu í raun alls ekki tillögur,
heldur óútfærðar hugmyndir.
Westland-þyrlufyrirtækið ásamt
evrópskum fyrirtækjum, Iýsti því
yfir í dag, að Leon Brittan, innan-
ríkisráðherra, hefði farið með rangt
mál á þingi þegar hann sagði, að
ekki hefði verið lagt að British
Aerospace að falla frá kauptilboði.
Væri þessu þveröfugt farið. Brittan
hefði á fundi með Lygo 8. janúar
sl. sagt, að vegna „þjóðarhags-
muna“ væri betra, að British Aero-
space hætti við. Brittan neitar
þessum fullyrðingum Lygos og
heldur því fram, að hann hafí sagt,
að þjóðarhagsmunir krefðust þess,
að óvissunni um Westland-fyrirtæk-
ið lyki sem fyrst.
Yfirlýsingar Sir Raymond Lygos
hafa enn aukið á deilumar um
Leon Brittan
Westland-fyrirtækið og er stjómin
augljóslega ekki búin að bíta úr
nálinni með það mál. Evrópuþingið
samþykkti í dag með 180 atkvæðum
gegn 21 að skora á hluthafa í
Westland-fyrirtækinu að taka boði
evrópskra fyrirtækja en hluthafa-
fundurinn verður á morgun, föstu-
dag. Gallup-könnun, sem birt var {
Bretlandi í dag, sýnir, að íhalds-
flokkurinn hefur nú minna fylgi en
hinir flokkamir tveir. Er kosninga-
bandalagið með 35%, Verkamanna-
flokkurinn með 34% og íhaldsflokk-
urinn 29,5%.
Búlgaría:
Poppmúsík
bönnuð á
diskótekum
Belgrað, Júgfóslavíu, 16. janúar. AP.
YFIRVÖLD I Búlgaríu hafa
tílkynnt, að bannað - sé að
flytja „poppmúsík og aðra
úrkynjaða tónlist“ ( diskótek-
um f landinu en þau eru 450
talsins. Júgóslavneska frétta-
stofan Tanjug flutti f dag
þessar fréttir frá Sofiu.
Búlgarskir embættismenn
segja, að þessi ákvörðun hafi
verið tekin til að leggja áherslu
á, að diskótek í Búlgaríu hafi
samfélagslegu hiutverki að
gegna, þau eigi að „miðla upp-
lýsingum um stjómmál, félags-
mál og menningarmál". Hér
eftir verður litið á vestur-
evrópska, bandaríska, júgóslav-
neska og gríska tónlist og
sfgaunamúsik sem „úrkynjaða
og óholla búlgörskum æskulýð*
og hafa forstöðumenn diskótek
anna verið varaðir við að láta
plötur með slíkri tónlist sjást á
stöðunum.
Í haust var hafin herferð fyrir
auknum aga meðal ungs fólks
í Búlgaríu. Hefur það verið
varað við að eiga kynmök nema
hjónaband sé á næsta leiti, við
því að fara of seint í háttinn,
við leti og skólaskrópi og við
því að klæðast lufsulegum fatn
aði.
Reynt að koma á vopna-
hléi og sátt í S-Jemen
Manama, Bahrain, 16. janúar. AP.
HARÐIR bardagar geisuðu enn í dag milli andstæðra fylkinga
hersins i Suður-Jemen en fréttír eru um, að fuUtrúar fylkinganna
hafi í dag setíð sáttafund f sovéska sendiráðinu í Aden.
Fréttastofan í Kuwait sagði í
dag, að fulltrúi forsetans, Ali Nass-
er Mohammeds, og andstæðinga
hans hafi í morgun hist á fundi í
sovéska sendiráðinu í Aden og hafi
þar verið rætt um sættir og vopna-
hlé. Ekkert var sagt um árangur
þeirra viðræðna.
Ákafir bardagar standa enn í
landinu en flestar fréttir benda til,
að herflokkar hollir forsetanum
hafi náð yfirhöndinni þegar í gær.
Talið er, að uppreisnarmenn séu
andvígir þeirri stefnu forsetans að
lina tök ríkisins á efnahagslifinu
og koma á vinsamlegum samskipt-
um við nágrannaríkin, sem eru
vinsamleg Bandaríkjamönnum.
Stjómin í Suður-Jemen hefur hallað
sér að Sovétmönnum allt frá því
landið losnaði undan Bretum árið
1967.