Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.1985, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.1985, Blaðsíða 2
2 DV. MÁNUDAGUR 23. SEPTEMBER1985. Spánverjar og Hollendingar vita meira um Isiendinga Hollandsheimsókn forseta Islands, Vigdísar Finnbogadóttur, lauk í hádeginu á laugardag. Hollensk fyrirmenni kvöddu Vigdísi á Schiphol-flugvelli við Amsterdam áður en hún steig um borð í SAS-þotu sem flaug til Kaupmannahafnar. Fyrr um morguninn hafði Vigdís heimsótt Frans Hals-safnið en dag- inn áður sjóminjasafniö í Amster- dam og miklar flóðgarðafram- kvæmdir í ósum ánna Rínar og Maas. Ennfremur var farið í siglingu um síkin í Amsterdam. Heimsókn forseta Islands var ekki eins áberandi í Hollandi eins og hún hafði verið á Spáni. Vart gat farið framhjá neinum Spánverja að for- seti Islands var í heimsókn. Helstu götur í miöborg höfuðborgarinnar, Madrid, höfðu til dæmis verið prýdd- ar íslenska fánanum í heila viku áður en Vigdís kom. Höföu menn orð á því að Madrid væri betur skreytt islenska fánanum en Reykjavík er á þjóöhátíðardaginn 17. júni. Bæði hollenskir og spænskir fjöl- miölar vörðu miklu rúmi og tíma til að greina frá Islandi og íslenska for- setanum í kringum heimsóknimar. Ef sú mikla umfjöllun væri fram- reiknuö til auglýsingaverðs er trú- legt aö út kæmu háar fjárhæðir, miklu hærri en þær sem íslenska rík- ið þarf að leggja út vegna for- setaheimsóknanna. Islensk fyrirtæki notfærðu sér þennan meðbyr með því að halda fjögurra daga Islandskynningu í Hol- landi. Útflutningsmiöstöö iönaöarins undirbjó kynninguna í samvinnu við utanríkisráöuneytið og þátttöku- aðila sem voru um tuttugu talsins. Vigdís forseti dvelur þessa dag- ana í Kaupmannahöfn. Á miðviku- dag heldur hún til Björgvinjar í Noregi þar sem hún mun flytja loka- ræðu á málþingi um menntir og menningu á vegum háskólans þar í borg. Til Islands kemur forsetinn næstkomandi sunnudag. -KMU. m----------------► I sjóminjasafninu i Amsterdam skoðaði forsetinn meðal annars likan af skipi sem smíðað var um svipað leyti og Het Wapen van Amsterdam, „gullskipið" i Skeiðarársandi. Skoðunarferð i Escorial-klausturhöllina stórkostlegu, sem er skammt utan við Madrid, var einn eftirminnilegasti þáttur Spánarheimsóknar forseta islands. DV-myndir Kristján Már Unnarsson. JAKOBÍNA Listahátíö kvenna hefur sannar- lega hleypt fjöri í menningarlífiö í borginni svo að þessa dagana er í mörghom aðlíta. Eins og kynnt hefur verið hér í blaðinu er framlag Leikfélags Reykjavíkur til hátíðarinnar dag- skrá úr verkum Jakobínu Sigurðar- dóttur í S£unantekt Bríetar Héðins- dóttur. Frumflutningur var í gær- kvöldi í Gerðubergi. Jakobina Sigurðardóttir er löngu þjóðkunn fyrir ritstörf sín. Sjálfsagt hefur verið vanci að velja efni til flutnings í dagskrá sem þessa því af miklu er að taka. Valin var sú leið að gefa sem breiðasta yfirsýn með því að flytja kafla úr skáldsögum, ljóð voru lesin og sungin og leikinn einþáttungur. Þau fimm lög, sem kynnt voru við ljóð skáldkonunnar, eru öll eftir kon- ur. Hanna María Karlsdóttir söng tvö falleg lög við eigin gítarundir- leik: Fimm böm eftir Olgu Guðrúnu Árnadóttur og Móöir mín í kví kví eftir Fjólu Olafsdóttur. Seinna í dag- skránni söng Ingibjörg Marteinsdótt- ir þrjú lög eftir Jórunni Viðar við undirleik höfundar, hvert öðru betra. Annars var smásagan Móðir, kona, meyja fyrst á dagskrá. Þessi saga er í formi ræðu og flutti Mar- grét Olafsdóttir hana. Staöa konunn- ar og afstaöa til makans er hér til umræðu á gamansaman hátt. Þessi saga birtist fyrir rúmum tuttugu árum, en furðu margt er enn óbreytt af því sem skeyti fær í sögunni. Sama þema kemur fram í einþáttungnum Nei sem fluttur var síðar í dagskránni. Sögusviöið er tii sveita eins og í smásögunni en tími frásagnarinnar er nær deginum í dag. Hér er fjallað um vandamál sem ósjaldan kemur upp í nútíma- hjónabandi. Hvort hjónanna á aö gæta bús og barna, þegar bæði vilja sinna sinum áhugamálum? Þau Valgerður Dan og Þorsteinn Gunnarsson brugðu hér upp ágætri mynd af hjónum þessum, einkan- lega er eiginmaðurinn skilningssljói minnisverður. Kaflar úr fjórum skáldsögum Jakobinu voru fluttir ýmist sem ein- ræða, brot úr Snörunni (Þorsteinn Gunnarsson) ogsvipmynd úr Dægur- vísu (Valgerður Dan), eða í samtais- formi, kaflar úr Lifandi vatninu (Margrét Olafsdóttir og Vaigerður Dan) og I sama klefa (Margrét Olafsdóttir og Bríet Héðinsdóttir). Flutningur allra var með ágætum. Minnisstæð verður Margrét Olafs- dóttir sem Salóme í sögunni I sama klefa en í þessari litlu svipmynd tókst henni að sýna brot úr ævisögu þjakaðrar konu á eftirminnilegan hátt. Dagskráin í heild var vönduð og bar merki þess að alúð hafði verið lögð í undirbúning hennar. Ekki er verra að hún var líka bráðskemmti- leg. En mest er þó um vert að hún gefur okkur innsýn í fjölbreytilegan skáldskap eins af okkar fremstu rithöfundum Ætlunin er að flytja dagskrá þessa síöar í vikunni á Kjarvalsstööum og svo aftur í Gerðubergi. Mér sýnist líka aö hér sé komin kjörin dagskrá fyrir skólana þó ekki sé mér kunnugt um hvort fyrirhugað er að gefa kost á slíku. Auður Eydal. Sjöunda einvígisskákin í Moskvu: Spennandi jafnteflisskák Stórmeistarar, sem fylgdust með 7. einvígisskák Karpovs og Kaspar- ovs, sem tefld var í gær, áttu í erfið- leikum með að sjá fyrir næstu leiki og vissu heldur ekki um tíma hvor átti betra tafl. Skákinni lauk með jafntefli eftir 31 leik en hún var ið- andi í flækjum og möguleikarnir nánast ótæmandi. Kasparov þótti tefla djarft og aö vanda léku peðs- fómir aðalhlutverkið. Karpov átti innan við fimm mínútur eftir af um- hugsunartímanum en var að snúa vöm í sókn, þegar Kasparov tók til bragös að fórna skiptamun og ná þráskák. Karpov lét drottningarbragöið liggja milli hluta að þessu sinni og tefldi Nimzo-indverska vöm, eins og í 1. skákinni, sem Kasparov vann. Nú hafði Karpov endurbót á reiðum höndum og taflið þróaðist i aðra átt. Kasparov blés til sóknar kóngsmegin og í fyrsta sinn í einvíginu hrókaði hann á drottningarvæng. Er Karpov lék ögrandi kóngsleik, var Kasparov ekki seinn á sér að fórna peði. Hann fékk hættuleg sóknarfæri en missti þráðinn og Karpov náði að styrkja stöðu sína. Er skákmeistararnir tók- ust í hendur að bardaga loknum var þeim kiappað lof í lófa og þakkað fyr- ir spennandi skák. Staöan í einvíginu er þá 4—3 Karp- ov í vil. Þeir tefla mest 24 skákir og sá vinnur sem hlýtur 12,5 v. eða vinn- ur sex skákir. Karpov heimsmeistari heldur titlinum á jöfnu. Hvítt: Garri Kasparov Svart: Anatoly Karpov Nimzo-indversk vöm. 1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rc3 Bb4 4. Rf3 0-0 1 stað 4. — c5, eins og hann lék í 1. skákinni. Karpov tefldi byrjunina hægt. Notaði 4 mínútur á 1. leikinn og þaö tók hann 6 mínútur að hróka. 5. Bg5 d6 6. e3 Rbd7 7. Dc2 b6 8. Bd3 Bxc3 9. bxc3 Sterkara en 9. Dxc3 sem gefur svörtum betra tækifæri að ráðast að miðborðinu með framrásum c- og d- peðanna. 9. — h6 10. Bh4Bb7 ll.Rd2! g5!? Peðiðerbragðvont: 11.—Bxg2 12. Hgl Bb7 13. f4 og hvítur hefur sókn- arfæri cftir g-línunni. Leikur Karp- ovs ber vott um baráttuskap. Honum er yfirleitt meinilla við svona peðs- leiki sem veikja stöðuna, enda hugs- aðihanní26mín. 12. Bg3Rh5 13. Ddl Rg7 Eftir 13. — Rxg3 14. hxg3 fær hvít- ur h-línuna. 14. h4 f5 15. hxg5 hxg5 16. Í3 De7 17. Db3Kf7!? Þessi kom stórmeisturunum í blaðamannaherberginu á óvart. Traustara er 17. — c5 og t.d. 18. 0— 0—0 Rf6 19. Bf2 e5 með tvísýnni stööu. 18.0—0—0 Hh8 Ef nú 18. — c5, virðist 19. f4!? g4 20. Bh4 Rf6 21. e4 gefa hvítum betra tafl. Skák Jón L. Árnason 19. c5! Þaö tók Kasparov ekki nema tvær mínútur að senda peðið í dauðann. Ef taflið opnast á miðborðinu lendir svarti kóngurinn í vanda. 19. — dxc5 20. Rc4 cxd4 Leikiö eftir 12 mínútna umhugsun. Einnig kom 20. — Bd5 til greina. 21. cxd4 f4 Hindrar 22. Re5+ Rxe5 23. Bxe5, sem tryggir hvítt frumkvæði. örugg- ara er 21. — Rh5, því að nú hefði hvít- ur getað með 22. exf4 Rh5 23. Hxh5! ? Hxh5 24. f5 náð hættulegum færum gegn kónginum. „Það er erfitt að sjá af hverju Kasparov drap ekki á f4”, sagði stórmastarinn Tajmanov. 22. Bf2 Rh5 23. Bc2 Eftir þennan lina leik nær Karpov að treysta varnirnar. Betra er 23. e4 og enn er staöan óljós. 23. — fxe3 24. Bexe3 Bd5 25. Dd3 Hag8 26. Re5 Rxe5 27. dxe5 Rf4 Karpov átti aðeins 5 mínútur eftir (Kasparov 17) og afræður að stýra skákinni í jafnteflishöfn. Með meiri tíma heföi hann áreiöanlega leikið 27. — c6 og teflt til vinnings. 28. Bxf4 gxf4 29. Hxh8 Hxh8 30. Dg6+ Kf8 31. Hxd5! Og jafntefli því að eftir 31. — exd5 (31. — Da3+ 32. Kbl kemur engu til leiöar) 32. Df5+ sleppur svarti kóng- urinn ekki úr þráskákinni. JLA.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.