Vísbending


Vísbending - 19.12.1995, Blaðsíða 5

Vísbending - 19.12.1995, Blaðsíða 5
Eftir Ólaf Hannibalsson Olíukaup íslendinga urðu grundvöllur traustra jafnkeypisviðskipta um áratugaskeið með freðfisk og saltsíld. Á tíma „Viðreisnar" lögðu Sovétmenn til að viðskiptin yrðu framvegis á grundvelli frjáls gjaldeyris - en íslendingar voru Hjótir að neita. Nýr áfangi í viðskiptum Islands og Sovét- ríkjanna hófst ekki fyrr en eftir dauða Stalíns í byrjun mars 1953. Um mitt ár 1952 var sett löndunarbann á íslenskan fisk í breskum höfn- um. Um fjórðungur botnfiskafla landsmanna hafði farið til Bretlands. Við missi þess mark- aðar jókst framleiðsla á saltfiski, skreið og frystum fiski, en jafnframt jukust erfiðleikar á sölu þeirra afurða. Hingað til hafði framleiðsla frystihúsanna svo til eingöngu verið unnin úr bátafiski af dagróðrabátum. Nú bættist togara- fiskurinn við. Framleiðsla á frystum fiski árið 1952 hafði verið meiri en nokkru sinni fyrr eða nálega 35 þúsund tonn og um þriðjungur þess magns átti ekki að afskipast fyrr en á fyrri hluta árs 1953, en þetta torveldaði mjög sölu á framleiðslu ársins 1953. Birgðir í árslok 1952 voru 12.160 tonn. Um þessar mundir hófu togararnir einnig karfaveiðar í stórum stíl. Erfitt reyndist hins vegar að finna markað fyrir karfann. Á árinu 1952 hófu íslendingar að senda fulllrúa á árlegan fund viðskiplanefndar Efna- hagsnefndar Evrópu (ECE) í Genf (Kristján Albertsson). ECE er ein af undirnefndum Fjárhags- og félagsmálaráðs Sameinuðu þjóð- anna, sett á stofn 1947. Undir forystu fram- kvæmdastjórans, sænska hagfræðingsins Gunnars Myrdals, var reynt að gera nefndina að vettvangi samskipta Vestur- og Austur- Evrópuríkja, einkum á sviði viðskipta. íslendingar bregðast skjótt við Við andlát Stalíns 4. mars 1953 voru ýmis teikn á lofti um að Sovétmenn hefðu nú aukinn áhuga á viðskiptum við Vesturlönd og brást Myrdal skjótt við og boðaði til sérstaks fundar í nefndinni um viðskipti þessara ríkja 13.-25. apríl. Var Þórhallur Ásgeirsson fulltrúi á þessum fundi fyrir Islands hönd. Þórhallur fór vel undirbúinn á fundinn. Ríkisstjórn Sleingríms Steinþórssonar var mjög áfram um að hann kannaði endurupptöku viðskipta við Sovétríkin, ekki síst ráðherrar Sjálfstæðis- l'lokksins, Bjami Benediktsson, sem fór með utanríkismál og Ólafur Thors, sem var at- vinnuráðherra. Sovéski sendifulltrúinn í Reykjavfk var beðinn að konia því á framfæri við stjórn sína að óskað væri eftir sérstökum viðræðum við fulltrúa Sovétríkjanna á fundin- um um þessi mál. Lagði Þórhallur strax í upp- hafi fram lista yfir þær vörur, sem Islendingar óskuðu eftir að selja Sovétmönnum, og einnig yfir þær vörur, sem til greina kæmi að kaupa þaðan. Sovésku fulltrúarnir lofuðu að senda svör til Reykjavíkur. Þrem vikum síðar, hinn 14. maí, flutti sovéski sendiherrann Þórhalli Ásgeirssyni þau skilaboð að áhugi væri á kaupum á þvf magni af frystum þorskllökum og saltsíld, sem hann hefði nefnt í Genf og var íslenskri sendinelnd boðið til Moskvu til viðræðna. Var nú skipuð samninganefnd undir formennsku Péturs Thorsteinssonar sendiherra. Aðrir nefndar- menn voru Ólafur Jónsson frá Sandgerði, full- trúi S.H., Helgi Pétursson hjá SIS og Bergur G. Gíslason stórkaupmaður, fyrir hönd inn- flytjenda. Komu nefndarmenn til Moskvu 2. júní og dvöldu þar í tvo mánuði. Sovétmenn tregðast við Formaður sovésku sendinefndarinnar og aðrir nefndarmenn komu frá einkasölunni Prodin- torg, sem annaðist út- og innflutning á mat- vælum. Enginn þeirra talaði erlend tungumál, en túlkur þeirra talaði sæmilega ensku. Kom sér nú vel að Pétur Thorsteinsson var ágætur rússneskumaður. íslenska nefndin lagði megináherslu á sölu frystra fískflaka, en Sovétmenn kváðust ekki geta keypt frystan fisk. Kom fram að þeir voru alls ekki sammála Islendingunum um hvað hefði gerst þangað til, bæði í viðræðunum við Þórhall í Genf og viðræðum Þórhalls og Pét- urs Thorsteinssonar við sendifulltrúa sovét- stjórnarinnar í Reykjavík sem og í skeyta- skiptum Prodintorgs og Síldarútvegsnefndar. Sovétmennirnir héldu því fram að þeir hefðu einungis fallist á að ræða kaup á saltsíld í vöruskiptum fyrir kornvöru og sement. Þeim var bent á að Prodintorg hefði í símskeyti til Síldarútvegsnefndar samþykkt að greiða 50 þúsund tunnur af Norðurlandssíld í frjálsum sterlingspundum, þeim var fengin í hendur ensk þýðing á skýrslu Þórhalls Ásgeirssonar og Pétur Thorsteinsson rakti fyrir þeim um- mæli sovéska sendiherrans í Reykjavík. VÍSBENDING 5

x

Vísbending

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.