Fréttablaðið - 02.04.2009, Síða 72

Fréttablaðið - 02.04.2009, Síða 72
48 2. apríl 2009 FIMMTUDAGUR sport@frettabladid.is HAUKAR-KR 69-64 Stig Hauka: Slavica Dimovska 27 (8 frák.), Moneka Knight 15 (8 stoðs.), Kristrún Sigurjónsdóttir 11, Ragna Margrét Brynjarsdóttir 6 (9 frák., 6 varin), Guðbjörg Sverrisdóttir 4, Telma Fjalarsdóttir 4 , Sara Pálmadóttir 2 Stig KR: Margrét Kara Sturludóttir 18, Hildur Sigurðardóttir 16 (6 stoðs.), Sigrún Ámundadóttir 13 (10 frák.), Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir 7 (10 frák.), Guðrún Ámundadóttir 4, Helga Einarsdóttir 2, Heiðrún Kristmunds- dóttir 2, Guðrún Sigurðardóttir 2. > Leikdagar klárir hjá strákunum Það styttist í að draumaúrslitaviðureign margra körfu- boltaáhugamanna hefjist. Þá mætast KR og Grindavík í úrslitum Iceland Express-deildar karla en þessi félög hafa verið í nokkrum sérflokki í vetur. Fyrsti leikur liðanna fer fram í Vesturbænum á laugardaginn og hefst leikurinn kl. 16.00. Á mánudagskvöldið verður svo farið yfir í Röstina í Grindavík. Sá leikur hefst kl. 19.15. Þriðji leikurinn er fimmtudaginn 9. apríl í Vesturbænum. Þurfi að spila fjóra eða fimm leiki fara þeir leikir fram laugardaginn 11. apríl og mánudaginn 13. apríl. SENDU SMS EST GFV Á NÚMERIÐ 1900 - ÞÚ GÆTIR UNNIÐ BÍÓMIÐA EÐA TÖLVULEIK! 9. HVER VINNUR! 199 kr/skeytið. Vinningar afhendir í ELKO Lindum. Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb. FRUMSÝND 3. APRÍL SJÁÐU MYNDINA · SPILAÐU LEIKINN! FULLT AF AUKAVINNINGUM! IPOD VÖGGUR, INNISKÓR MEÐ LJÓSI, HOPPUBLÖÐRUR, TÖLVULEIKIR, DVD MYNDIR, GOS OG MARGT FLEIRA! KOMIN N Í ELKO! SÝND Í 3D Í VÖLDUM KVIKMYNDAHÚSUM Yngvi Gunnlaugsson, þjálfari Hauka, var glaður í leikslok alveg eins og Slavica Dimovska sem skoraði 27 stig í gær og var kosin besti leikmaður úrslitakeppninnar. „Þetta er búin að vera ótrúleg sería. Þetta KR-lið er svo seigt, ég hélt að við værum komin með þetta þegar við komin níu stigum yfir en þær komu aftur. Mínar stelpur sýndu samt karakter að klára þetta eins og við gerðum. Þetta var erfitt en það hafðist og er þeim mun sætara fyrir vikið,” sagði Yngvi Gunnlaugs- son, þjálfari Hauka. „Ég er rosalega stoltur af stelp- unum og þetta er alveg æðislegur hópur til að vinna með. Ég vil sérstaklega hrósa Kristrúnu og Telmu. Kristrún þraukaði og hafði trú á klúbbnum og Telma kom þegar aðrir voru að fara því hún hafði trú á þjálfaranum. Það er meiri háttar að hafa þessa atvinnumenn sem við höfum og þessar ungu stelpur,” sagði Yngvi en hann átti líka nægt hrós eftir handa manni leiksins. „Við vissum að Slavica og Kristrún þurftu að eiga góðan leik. Þær eru búnar að bera þetta lið í allan vetur. Slavica svaraði kallinu og ætlaði ekki að láta Guðrún Gróu fara illa með sig í kvöld. Ég er ekkert smá ánægður fyrir hennar hönd,” sagði Yngvi og ekki var minni gleðin hjá Slavicu sem hopp- aði um í fagnaðarlátunum. Þetta er í fyrsta sinn sem hún verður meistari á ferlinum. „Ég er svo ánægð. Ég kom til Hauka til að vinna titilinn og þetta er frábært,” sagði Slavica. Hún sagði að það hefði skipt miklu máli að hún vissi að foreldrar hennar voru að horfa á leikinn á KRTV. „Ég náði að hvíla mig vel fyrir leikinn og ég talaði við foreldra mína og það gaf mér kraft í leikinn,” sagði Slavica. YNGVI GUNNLAUGSSON OG SLAVICA DIMOVSKA: HRÓSUÐU LIÐSHEILDINNI HJÁ HAUKALIÐINU Þetta var erfitt en þeim mun sætara fyrir vikið KÖRFUBOLTI Jóhannes Árnason, þjálfari KR, tilkynnti eftir leik- inn í gær að hann væri hættur þjálfun KR-liðsins en hann hefur náð fínum árangri með liðið. - bb Þjálfari KR-liðsins: Er hættur KÖRFUBOLTI Haukastúlkur hafa endurheimt Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta kvenna eftir baráttu- sigur á KR í oddaleik í lokaúrslit- um Iceland Express-deildarinnar í gær. Haukaliðið hafði lengst af frumkvæðið í leiknum en baráttu- glaðar KR-stúlkur gáfust þó ekki upp fyrr en í fulla hnefana. Það var deginum ljósara að mikið var í húfi strax í byrjun leiks í gær. Slavica Dimovska opnaði leikinn með þriggja stiga skoti á hlaupum og kom Haukaliðinu yfir, en það sem eftir lifði hálfleiksins var það baráttan sem var í for- grunni. Haukakonur voru skref- inu á undan framan af og höfðu yfir 14-12 eftir fyrsta leikhlut- ann. Liðin skiptust svo á að taka litlar rispur í öðrum leikhlutanum en þar fór Hildur Sigurðardóttir í gang hjá KR og hélt gestunum inni í leiknum. Staðan var jöfn í hálfleik 30-30. Sama baráttan var uppi á ten- ingnum í síðari hálfleik og það var ekki fyrr en undir lok þriðja leikhluta sem fyrst dró í sundur með liðunum af einhverju ráði. Varnarleikur Haukaliðsins var þá mjög grimmur og á sama tíma gekk KR illa í sóknaraðgerðum sínum. Haukar voru yfir 48-41 eftir þriðja leikhluta eftir að hafa haldið KR í aðeins 11 stigum í leik- hlutanum. Í fjórða og síðasta leikhluta gerðu Haukastúlkur svo tvær góðar tilraunir til að stinga KR af, en seigla gestanna kom í veg fyrir að það tækist. Margrét Kara Sturludóttir skaut KR inn í leik- inn í upphafi fjórða leikhlutans þegar hún setti þrjá þrista í röð á skömmum tíma. Haukaliðið bætti þá aftur í forskotið undir stjórn Slavicu Dimovsku, en taugatitring- ur Haukastúlkna í blálokin varð til þess að þær köstuðu næstum því frá sér sigrinum. Haukaliðið var þó vel að titlinum komið. Slavica Dimovska dró sem fyrr segir vagninn hjá Haukum allan tímann og skoraði 27 stig og hirti 8 fráköst og sýndi stáltaugar á vítalínunni. Þá átti Kristrún Sig- urjónsdóttir fína spretti og sýndi mikla hugdirfsku, enda spilaði hún meidd alla úrslitakeppnina. Margrét Kara, Hildur og Sigrún Ámundadóttir voru atkvæðamest- ar hjá liði KR. baldur@frettabladid.is Dimovska tryggði titilinn Haukastúlkur tryggðu sér í gær Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta kvenna eftir sigur á KR í æsilegum oddaleik að Ásvöllum. MEISTARI Yngvi Gunnlaugsson, þjálfari Hauka, var sáttur. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI SIGURHRINGURINN Haukastúlkur hlaupa hér hinn hefðbundna sigurhring með bikarinn eftirsótta. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI KÖRFUBOLTI „Þetta munaði mjög litlu en við vorum alltaf að lenda aðeins undir, vorum að elta og það er erfitt,” sagði Hildur Sigurðar- dóttir, fyrirliði KR. „Slavica átti stórleik og þar er góður atvinnumaður á ferð og við þurftum að leggja allt í að reyna að stoppa hana. Haukar eru með gott lið og þegar þær eru með hana í stuði þá er erfitt að stöðva þær,“ sagði Hildur sem er ánægð með tímabilið. „Við getum verið ágætlega sátt- ir með þetta tímabil, við unnum einn titil og komumst þetta langt án þess að styrkja liðið okkar eitt- hvað frekar. Maður er ósáttur núna en liðið okkar er ungt ennþá og við erum með meistaralið í höndunum,“ sagði Hildur. - óój Hildur Sigurðardóttir: Með meistara- lið í höndunum BROS OG GLEÐI Haukastúlkur fögnuðu vel og lengi í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.