Samvinnan


Samvinnan - 01.08.1957, Blaðsíða 2

Samvinnan - 01.08.1957, Blaðsíða 2
Útgefandi: Samband ísl. samvinnufélaga. Ritstjóri: Benedikt Gröndal. Ritstjórn og afgreiðsla í Sambandshúsinu, Reykjavík. Ritstjórnarsími: 17080. Kemur út mánaðarlega. Verð árgangsins kr. 90.00 Verð í lausasölu kr. 9.00 Prentsmiðjan Edda. Efni: Kaupfélögin og atvinnulífið 3 Hofsós, merkur verzlunar- staður að fomu og nýju . . 4 Minning. — Jón Konráðsson í Bæ ...................... 6 Kirkjan í Gröf á Höfðaströnd 8 Gæði jarðarinnar takmarka- laus. Frá alþjóðlegri sam- vinnuráðstefnu í Stokk- hólmi ................... 9 Myndarleg iðnstefna sam- vinnumanna á Akureyri . . 10 Gamalt og nýtt á Hólum . . 11 Þankar um tíundasvik og sitthvað fleira, eftir Sigurð Jónsson frá Brún ....... 12 Fljótandi fiskiðjuver þýzkra samvinnumanna ........... 13 Islenzk húsgögn í nútímastil 14 Ný Gefjunaráklæði......... 14 Eldhúsdraumar verða að veruleika. Homfirzk hús- móðir skrifar um ferðalag í boði kf. A.-Skaftfellinga . . 16 Bláa skykkjan, ný framhalds- saga eftir Isak Dinesen .. 19 ÁGÚST 1957 Ll. árgangur 8. BÓKAÚTGÁFA samvinnumanna hefur nýlega sent frá sér þrjú bindi af konungasögum, útgefnum af Guðna Jónssyni, og eru útkomin hjá íslend- ingasagnaútgáfunni 42 bindi alls. Hef- ur verið nokkuð hlé á útkomu nýrra binda í þessu mikla verki, þar sem fyrri bindi höfðu selzt upp og þurfti útgáfan að taka sér nokkurra ára hlé til að endurprenta þau. Var sú endur- prentun ein eitt af umfagnsmeiri verkum íslenzkrar bókaútgáfu á þess- um árum. íslendingasagnaútgáfan og Norðri, sem báðar lúta forstöðu Gunn- ars Steindórssonar, voru upprunalega hlutafélög, sem SÍS festi kaup á til að koma fótum undir bókaútgáfu í stór- um stíl. Nú hafa þessi hlutafélög ver- ið leyst upp og bókaútgáfan er deild innan SÍS, en notar þó hin gömlu nöfn sín til að einkenna bækurnar. EIN ATH Y GLIS VERÐ ASTA BÓK, sem Norðri sendir frá sér á þessu ári, og koma mun út fyrir jól, fjallar um brautryðjendastarf Guðjóns Samúels- sonar, húsameistara. Mun þetta verða fyrsta bók íslenzk, sem helguð er hús- gerðarlist eins íslendings, og verða í bókinni um 100 myndir og 100 teikn- ingar af húsum Guðjóns. Mun óhætt að fullyrða, að bókin muni opna lands- mönnum nýja sýn inn í heim þann, er þessi merki og sérkennilegi lista- maður skapaði. Hann var uppi á þeim einstöku tímamótum, er íslendingar byrjuðu að byggja í stórum stíl á nú- tíma vísu. Því fékk hann tækifæri, sem sennilegt er að enginn íslenzkur húsameistari muni síðar fá. Bókin mun leiða í ljós, hvernig hann notaði þetta tækifæri. AFKÖST GUÐJÓNS voru gífurleg. Hver áttar sig til dæmis á því, hvernig Reykjavík mundi líta út, ef öll hús hans hyrfu í einni svipan? Þá mundi vanta Eimskipafélagshúsið, Lands- bankann, Reykjavíkur Apótek, Hótel Borg, fótstall að styttu Jóns Sigurðs- sonar, Landssímahúsin, kaþólsku kirkjuna, Háskólann, Landsspítalann, Gagnfræðaskóla Austurbæjar, Þjóð- leikhúsið, Arnarhvol, Laugarneskirkju, Kleppsspítala og fjölda smærri bygg- inga. Sömu sögu er að segja um Akur- eyri og fjölmarga staði aðra um land allt. GUÐJÓN SAMÚELSSON er einstak- ur meðal íslenzkra húsameistara að því leyti, að hann gerði tilraunir til að finna byggingastíl, er sérstaklega hæfði íslenzku umhverfi. Homrm fannst íslenzk náttúra svo ólík öðrum löndum, að byggingar nytu sín öðru vísi hér en annars staðar. Hér eru þær yfirleitt á bersvæði, ekki umvafðar trjágróðri, og víðast blasa við nakin og tignarleg fjöll. Árangurinn varð svonefndur „hamrastíH" í byggingum, þar sem stuðlaberg er endurskapað sem húsaskraut. Allt þetta verður nán- ar skýrt í bókinni og jafnvel sýndar myndir, er gefa hugmynd um, hvaðan Guðjón fékk þessar hugmyndir sínar. Auk þessara hamrabygginga reyndi Guðjón að endurskapa gamla torf- bæjastílinn í nútímaefni, en sú til- raun heppnaðist ekki eins vel, þótt ýmsar slíkar byggingar hafi unnið ástfóstur landsmanna. Allt mun þetta vera umdeilanlegt frá listrænu hús- gerðarsjónarmiði, en fróðlegt er engu síður fyrir þjóðina að fá bók, þar sem hún getur kynnzt Guðjóni Samúels- syni ítarlega. JÓNAS JÓNSSON, fyrrverandi ráð- herra, skrifar texta bókarinnar um Guðjón Samúelsson, en hann var ná- inn samstarfsmaður Guðjóns um margar byggingar og hvatamaður til myndarlegra átaka á því sviði. Bene- dikt Gröndal ritstjóri hefur aðstoðað Jónas við að safna saman myndum og teikningum af verkum Guðjóns og raða þeim saman í bókina. 2 SAMVINNAN

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.