Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.03.1995, Blaðsíða 54

Læknablaðið - 15.03.1995, Blaðsíða 54
260 LÆKNABLAÐIÐ 1995; 81 Aðgæslu er þörf þegar brómókriptín er gefið eftir síðkomið fósturlát eða fæðingu Á síðustu árum hefur verið lýst nokkrum tilvikum af væg- um og stöku sinnum alvarlegri aukaáhrifum/fylgikvillum af lyf- inu brómókriptín (Parlodel®) þegar það er gefið til að draga úr mjólkurmyndun eftir síðkomið fósturlát eða eftir fæðingu. Ekki er vafi á að þetta lyf er það besta sem völ er á nú til að minnka mjólkurframleiðslu. Það hefur alltaf verið gefiö í heldur styttri tíma hér á Islandi (10 daga) en framleiðandinn mælir með (15 daga). Venjulega er gefin ein 2,5 mg tafla tvisvar á dag með mat. Hugsanlegt er að gefa aðeins eina töflu á dag eða hálfa töflu (1,25 mg) tvisvar á dag og í sumum tilvikum þarf ekki að gefa lyfið lengur en í viku. Hag- stætt getur verið að gefa lyfið í vaxandi skömmtum, það er fyrsta daginn 1,25 mg x 1, annan daginn 1,25 mg x 2 og þá hækka í 1,25 mg á morgni og 2,5 mg á kvöldi næstu tvo daga, að því tilskyldu að aukaverkanir hafi ekki komið fram. Þeim aukaverkunum hefur verið lýst að lyfið auki tilhneig- ingu til lágs blóðþrýstings ef það er gefið samfara blóðþrýstings- lyfjum, höfuðverkur og svimi geta komið fram og einnig ógleði, en með tilliti til þess síð- asta er vaninn að gefa lyfið með mat. Alvarleg aukaáhrif hafa verið sjaldgæf, en krömpum, háum blóðþrýstingi og blæðing- um úr maga hefur verið lýst í fáeinum tilvikum. Til eru tvö til- vik þar sem kransæðasjúkdóm- ur var rakinn til lyfsins og í einu tilviki alvarleg geðræn áhrif (toxic encephalopathy). I þess- um síðustu tilvikum hafa tengsl við brómókriptín ekki verið sönnuð en rétt þykir þó að hvetja til aðgæslu þegar bró- mókriptín er gefið. Ef um væg óþægindi frá brjóstum er að ræða, til dæmis eftir síðkomið fósturlát, getur nægt að ráð- leggja brjóstahaldara sem held- ur vel að brjóstum eða að nota þétt bindi um brjóstin og gefa svo venjuleg verkjalyf þar til mjólkurframleiðsla hættir af sjálfu sér. Þvagræsilyf koma ekki að miklu gagni. Notkun samsettrar getnaðarvarnarpillu dregur úr mjólkurmyndun og eftir síðkomið fósturlát eða fóstureyðingu er oft ástæða til að byrja fljótlega á slíku lyfi. Reynir Tómas Geirsson prófessor Kvennadeild Landspítalans Imigran Glaxo,900125 STUNGULYF sc; N 02 C X 04 1 ml inniheldur: Sumatriptanum INN, súkkínat, 16,8 mg, samsvarandi Sumatriptanum INN 12 mg, Natrii chloridum 7 mg. Aqua ad iniectabilia ad 1 ml. TÖFLUR; N 02 C X 04 Hver tafla inniheldur: Sumatriptanum INN, súkkínat, 140 mg. samsvarandi Sumatriptanum INN 100 mg. Eiglnleikar: Súmatriptan virkjar sórhæft serótónínviðtaka af undirflokki 5-HT,01 heilaæðum. Lyfið veldur þannig samdrætti í heilaæðum, einkum greinum a. carotis. Vikkun þessara æða er talin orsök verkjanna við mígreni. Verkun lyfsins hefst 10-15 mínútum eftir gjöf undir húð og um 30 mlnútum eftir inntöku. Aðgengi eftir gjöf undir húð er nánast 100%, en aö meöaltali 14% eftir inntöku. Blóðþéttni nær hámarki innan 25 min. eftir gjöf undir húð, en oftast innan 45 min. eftir inntðku. Dreifingarrúmmál er 2,7 1/kg. Binding við plasmaprótein er 20-30%. Lyfið umbrotnar aö miklu leyti (80%) f óvirk umbrotsefni i lifur og skilst út f nýrum. Ábendingar: Erfið mígreniköst, þar sem ekki hefur náðst viðunandi árangur með öðrum lyfjum. Cluster (Hortons) höfuðverkur. Lyfið á einungis að nota. þegar greiningin migreni eða Cluster-hðfuðverkur er vel staðfest. Frábendingar: Kransæðasjúkdómur, alvarlegur háþrýstingur, blóðrásartruflanir f útlimum, nýrnabilun, lifrarbilun. Ofnæmi fyrir innihaldsefnum lyfsins. Ekki má nota samtímis lyf, sem innihalda ergótamin. Imigran má ekki gefa fyrr en 24 klst. eftir gjöf ergótamíns og ergótamfn má ekki gefa fyrr en 6 klst. eftir gjðf Imigran. Moöganga og brjóstagjöf: Ekki er vitaó hvort lyfið geti skaðað fóstur en dýratilraunir benda ekki til þess. Ekki er vitað hvort lyfið skilst út ú móðurmjólk. Aukaverkanlr: Allt að 50% sjúklinganna fá einhverjar aukaverkanir. Ýmis þessara óþæginda hverfa eftir 30-60 min. og gætu sum þeirra verið hluti af mígrenikastinu. Algengar(> 1%): Óþægindi á stungustað. Þreyta, sljóleiki. Tímabundin blóðþrýstingshækkun og húðroði. Ógleði og uppköst. Máttleysi og spenna I vöðvum. Náladofi og hitatilfinning. Svimi. Þrýstingstilfinning með mismunandi staðsetningu, oftast fyrir brjósti. Sjaldgæfar (0,1% -1%): Hækkun lifrarenzýma í blóði. Mllllverkanlr: Ekki má nota samtimis lyf sem innihalda ergótamín. Engar sérstakar milliverkanir hafa fundist við própranólól, díhýdróergótamín, pizótlfen eða alkóhól. Varúð: Vara ber sjúklinga við stjórnun vélknúinna ökutækja samtimis notkun lyfsins. Við notkun lyfsins geta komið fram tímabundin einkenni eins og brjóstverkur og þrýstingstilfinning, sem getur orðið töluverð og getur leitt upp I háls. Þó þessi einkenni líkist hjartaöng, heyrir til undantekninga að þau séu af völdum samdráttar i kransæðum. Herpingur i kransæðum getur leitt til hjartsláttartruflanna, blóðþurrðar og hjartavððvadreps. Sjúklinga, sem verða fyrir slæmum eða langvarandi einkennum, sem líkjast hjartaöng, ber að rannsaka meö tilliti til blóðþurrðar. Sjúklinga, sem verða fyrir slæmum eða langvarandi einkennum, sem likjast hjartaöng, svo og þá sem hafa aukna áhættu á kransæðasjúkdómum. ber að rannsaka með tilliti til blóóþurröar. Athugið: Stungulyfið má ekki gefa i æð vegna herpings i kransæöum og mikillar blóðþrýstingshækkunar, sem getur átt sér stað. Vegna takmarkaðrar klíniskrar reynslu er ekki mælt með notkun lyfsins handa sjúklingum eldri en 65 ára. Skammtastærölr handa fullorðnum: Lyfið á ekki að nota i fyrirbyggjandi augnamiði. Lyfið á að gefa við fyrstu merki um mígrenikast en getur verkað vel þó það sé gefið siðar. Imigran er ekki ætlað til vamandi meðferðar. Töflur: Venjulegur upphafsskammtur er ein 100 mg tafla. Ef ekki fæst fullnægjandi árangur má gefa aðra töflu að minnst tveimur klst. liönum og ekki er mælt með hærri sólarhringsskammti en 300 mg. Tðflumar á að gleypa heilar með vatni. Stungutyf: Venjulegur upphafsskammtur er 6 mg (ein sprauta) undir húð. Ef ekki fæst fullnægjandi árangur má gefa aðra sprautu (6 mg) innan 24 klst., en minnst ein kist. verður að liða á milli lyfjagjafa. Takmörkuð reynsla er af gjöf fleiri en fjögurra skammta (24 mg) á mánuói. Skammtastærðir handa börnum: Lyfið er ekki ætlað bömum. Pakknlngar: Stungulyf 12 mg/ml: einnota dæla 0,5 ml (= 6 mg virkt efni) x 2; einnota dæla 0,5 mg (= 6 mg virkt efni) x 2 + lyfjapenni (autoinjector). Töflur 100 mg: 6 stk. (þynnupakkað). Skránlng lyfsins f forml stungulyfs er bundin því skllyrðl, að notkunarlelðbeinlngar á íslenzku um meðfylgjandi lyfjapenna (autolnjector) fylgi hverrl pakknlngu þess. Skránlng lyfslns er bundln því skllyrðl að ávísanlr takmarklst vlð mest elna pakkningastærð hvors lyfjaforms. Glaxo t»»*rholn 14 Pottholf 54*9 I 25 Rcykiavik S-rv. il 69 10 Fai:41 4* ]]
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.