Tíminn - 23.12.1951, Side 1
! Ritstjóri:
Þórarinn Þórarinsson
Fréttaritstjóri:
Jón Helgason
Útgefandi:
Framsóknarflokkurinn
Skrifstofur 1 Edduhúsi
Fréttasímar:
81302 og 81303
Afgreiðslt ími 2323
Auglýsingasími 81300
Prentsmiðjan Edda
35. árgangur.
Reykjavík, sunnudaginn 23. desember 1951.
293. blað
JÓLAHEIMSÓKN Á PÓSTHÚSIÐ:
Um 10 millj. póstsendinga fara árlega um hendur póstmanna I Reykjavík
i
Þaö er ekki víst aö fólk geri
sér almennt grein fyrir því,
hvað pósturinn á mikinn þátt
í jólagleðinni. En það er á-
reiðanlegt að engir nema þeir
sem til þekkja gerá sér grein
fyrir því, hvað póstmennirn-
ir þurfa mikið að hafa fyrir
því að koma/ hundruðum
þúsunda af góðum jólaóskum
til fólks í borgum og byggð-
um landsins. Þess vegna er
ekki úr vegi, að skyggnast
svolítið inn i yeröld póststarf
seminnar, serr| er svo ótrúlega
mikilvægur ttáttur í okkar
daglega lífi o$ störfum.
Jólasvipur á pósthúsinu.
Jólaannríkið er nú komið í
algleyming á pósthúsum um
víða veröld. Alls staðar eru
póstmenn önniim kafnir viö
aö lesa á bréf, taka við bréf-
um og koma þeim til skila.
Á pósthúsinu í Reykjavík er Pósthólfin eru 782 að tölu muna að gæta, þeir eiga þar
jólaannríkið fyrir löngu haf- og þyrftu þau að vera marg-[ sendingar af pokum og böggl-
ið, en þó er haröasta hriðin fallt fleiri, ef fullnægja ætti um í næstum því hvert ein-
með jólapóst Reykvíkinga eft þör-f-inni í höfuðstaðnum, en asta skipti, sem þeir verða að
ir í dag og á morgun, alveg þau létta aftur á móti starfikoma fljótt og vel til skila og
þar til hátíðin sjálf gengur í póstburðarmannanna út um ! gera það miklu betur, en hægt
garð. | bæinn. í fyrra voru látin í, er að búast við, þar sem unn-
En pósthúsið í Reykjavík pósthólfin hálf önnur milljón
hefir talsverða sérstöðu gagn póstsendinga ,en á sama tíma
vart öðrum pósthúsum, því báru póstarnir út um bæinn
Jólaösin í afgreiðslusalnum. Mannfjöldinn út úr dyrum. ÍMyndirtiar tók Guðni Þórðarson.)
þar má heita að sé stanzlaust
jólaannríki, eða svo virðist að
minnsta kosti þeim, sem ekki
er póstmaður og kemur þang-
að fyrir forvitnissakir. Þar
vinna um 80 starfsmenn við
póstþjónustu, í erfiðum og
alls ófullnægjandi húsakynn-
um, sem byggð voru fyrir
fyrra stríð fyrir póststarfsem-
ina þá, en nú er hún sjö sinn-
um meiri.
Póststarfsemin hefir
margfaldazt.
Þegar pósthúsið tók til
starfa í núverandi húsakynn-
um 1914, var pósturinn ekki
nema lítill hluti af því sem
hann er nú. Árið 1920 voru
ábyrgðarbréfin, sem fóru í
gegnum hendur póstmanna í
Reykjavík 51 þúsund að tölu,
tvær milljónir bréfa og póst-
sendinga.
Er þá ótalinn sá póstur, sem
látinn er inn til útsendingar
í pósthúsið og póstur, sem að-
eins fer hér í gegn til ann-
arra landshluta. Alls eru póst-
stöðvarnar á landinu 327, svo
það er í mörg horn að líta
fyrir póstmennina í áðal-
pósthúsinu á landinu, þar sem
miðstöð allrar póststarfsem-
innar er samankomin.
í fyrra sendu póstmenn-
irnir póstafgreiðslur, sem
urðu 16. 882 að tölu og til út-
landa fóru 1685 póstsending-
ar. —
Þegar skip kemur
að landi.
Þegar skip kemur að landi,
eða flugvél lendir, eiga póst-
en í fyrra voru þau 295 þús- I mennirnir í gulasteinhúsinu
und. I við Pósthússtræti þar hags-
Bréf og blöff Iesin í sundur.
ið er við jafn frumstæðar og
erfiðar aðstæður og eru í póst
húsinu í Reykjavík. Þar er
engin loftbrú, þar sem engu
hefir verið til sparað til að
bæta þjónustuna. Því miður
fyrir póstmennina og okkur
borgarana, sem njótum góðs
af og eigum mikið undir starfi
þeirra. En vonandi horfir
þetta líka til bóta, og að sjálf-
sögðu hlýtur það að gera það.
En hvað gerist þá er flug-
vél, skip, eða langferðabill
kemur með póst? — Jú, þá
eru fimar hendur og snör
augu fljótlega komin að verki.
Sundúrlesturinn hafinn og
hann hættir ekki fyrr en allt
er komið á sinn stað, tilbúið
fyrir póstburðarmenn og póst
hólf, eða aðra pósta, sem
lengra ætla að halda.
Eftir settum reglum, en
ekkert hamingju hjól.
Pósturinn er lesinn sundur
á fyrstu hæðinni. Þeir, sem
hafa pósthólf á leigu fá sinn
póst strax í hólfið sitt, en ann
ar innanbæjarpóstur er flutt-
ur upp á næstu hæð, þar sem
langt tréborð er á milli
tveggja sundurhólfaðra hring
laga borða með númerum
póstanná, sem bera út um bæ
inn. Ókunnugir gætu haldið,
að þeir væru komnir inn í
einhverja spilastofu fjár-
hættu manna suður í Monte
Carlo, en slíkt skyldi engin
halda, því póstborðið það er
vettvangur nákvæmninnar,
þar sem ekkert hamingjuhjól
snýst, en hver hlutur fyrir
fram ákveðinn, eftir köldum
bókstafnum utan á blöðum og
bréfum, hvort heldur þau
flytja hjartnæmar tilfinning-
ar elskenda, eða gráar og ljót-1
ar tilkynningar um reikninga
og víxla, sem eru að því komn
ir að falla. Póstmaðurinn hef-
ir þá sérstöðu í lífinu, að hann
þarf ekki að gera upp á milli
manna, ekki að gera upp á
milli hamingjunnar og sorg-
arinnar.
Þegar einhver talar illa
um póstinn.
Svo eru ýmsar aðrar deildir.
Herbergi, þar sem ótal opnir
pokar bíða eftir innleggi sínu
og nöfn staða eru fest á tré-
spjöldin og sýna hvert pok-
arnir eiga að fara. Þetta er
pósturinn út á land, sá sem
til fellur í Reykjavík, kominn
þar inn á pósthúsið, eða öðr-
um stöðum á landinu, eða úr
fjarlægum löndum og heims-
álfum.
Það er nákvæmt og vanda-
samt verk, jafnvel að láta í
svona poka póstsendingar,
bréf og blöð, sitt úr hvorri átt
inni, því ef eitthvað fellur inn
um op, sem vísar því andstæða
leið, er voðinn vís og einhver
segir þá eitthvað ljótt um
póstinn, sem líka oft kvað
koma fyrir.
Ábyrgðarpóstur, peninga-
og annað slíkt nýtur sér-
stakrar umönnunar og marg-
faldrar skráningarskyldu. All
ar slíkar sendingar eru færðar
inn í bók við móttöku í af-
greiðslusalnum, þar sem frí-
merkin eru líka seld, gefnar
unnlýsingar og leiðbeiningar
þeim, sem ókunnugir eru og
rata ekki í veröld póstembætt
isins.og einnig t.ekið við venju
legum pósti. Ábyrgðarpóstur
er svo einnig skráður í öðru
herbergi að salarbaki.
Þes-ar bakiff verffur óþarft
í Pósthúsinu.
Ef maður hættir annars á
það að fara upp á aðra hæð
stofnunarinnar með lyftu
skriflinu, sem stundum hvað
stanza á miðri leið og stund-
um detta niður í kjallara, er
þar svo sem ýmislegt að sjá,
sem venjulegan mann hafði
ekki órað fyrir. Þar eru á ein-
um stað öll bréf út á land og
til útlanda lesin sundur og
stimpluð, þau sem þess þurfa
(Framhald á bls. 12).
Raðaff í pósthólfin.