Tíminn - 23.12.1951, Side 12
35. árgangur.
Reykjavík,
desember 1951.
Reykjavík,
Jólaheimsókn í pósthúsið
(Framhald af 1. síðu).
og þannig mætti lengi telja.
Niður í kjallara er bögglapóst
stofan, þar sem kassar af mis
munandi stærðum setja svip
sinn á tilveruna og eiga mis-
munandi langa ferð fyrir
höndum. Oft eru mörg bíl-
hlöss borin út á bakinu á
flutningabílana í lögregluport
inu, því ekki dugir annað en
nota til þess bakið. En þeir
póstmenn, sem bjartsýnastir
greinilega eru merkt, en nafn
bótin er gripin úr lausu lofti,
eða að minnsta kosti ekki vel
þegin af viðtakenda. Stund-
um er þetta saklaust grín og
jstundum eiga jafnvel þjóð-
skáldin það til að koma fram-
leiðslu sinni á framfæri með
því að bæta henni við utaná-
skrift á sendibréf.
Nú leysir aukin bókaútgáfa
vel allar hinar bókmennta-
legu þarfir, en þó hvað þetta
A efri inyndinni sésl, þegar verið er að láta póstinn í pokana
til hinna ýmsu póstafgreiðslustöðva úti á Iandi. — Neðri myndin
er úr bögglapóststofunni. Þar sem bak póstmannsins er ennþá
traustasta hjálpartækið.
eru á tilveruna trúa hverjum
öðrum fyrir því, að einhvern
tíma kunni þessir pokar að
renna á færiböndum, og þá
sé bakið orðið óþarft í stofn-
uninni, líka fyrir poka með
venjulegum pósti. Fróðir
menn segja oss líka að þann-
ig sé það viða í útlöndum og
þurfi kannske ekki mjög
langt að fara.
En hvað sem um þaö má
segja, hlýtur annars í alvöru
að því að lcoma, að tæknin
haldi líka innreið sína inn
fyrir póst'veggina, úr því hún
er komin í loftið, á landið og i
sjóinn með póstinn, þegar
kemur út fyrir veggi gulu
byggingarinnar við pósthús-
stræti.
Við skulum hugsa okkur aö. I
lúðurinn, sem málaöur er ut- |
an á pósthúsið við strætið,
sem ber nafn þess, fari einn
góðan veðurdag að blása og
tilkynni okkur um það, að nú
sé pósturinn kominn. Saga
póstsins er skemmtileg og
heillandi, en við látum hana
fara um lönd og leið að sinni
og snúum okkur aftur að
skyndiheimsókninni í póst-
húsið.
Póstmennirnir lenda oft í'
sérkennilegum og skemmtileg
um ævintýrum viö starf sitt.
Þeir fá stundum bréf, sem
hægt er að koma til skila og
stundum koma fyrir um efni,
sem ekki rúmast í bókunum,
sem gefnar eru út fyrir jólin.
Jón glænefur og
gott hangikjöt.
Stundum koma einkenni-
legar sendingar frá erlendum
verzlunarhúsum, eins og þeg-
ar Jón Glænefur á Fávita-
götu nr. 15 í Reykjavík fékk í
póstkröfu talsvert af góðri
vöru frá þekktu erlendu verzl-
unarfyrirtæki, og eitt sinn
fengu Skagfiröingar marga
póstpoka frá einu og sama
danska vöruhúsinu, meö ó-
kennilegum nöfnum heimilis-
fólks.
Var þetta heljarmikill ,kata-
log‘ með myndum og verð-
listum, þar sem Skagfiröingar
áttu að sjá og kynnast öllum
heimsins lystisemdum og
og panta þær síðan í póst-
kröfu undan koparþökum
Kaupmannahafnar norður að
Dumshafi.
Vonandi komust þessar
bækur til Skagfiröinganna,
svo þeir hafa getaö kynnst og
gert upp við sig hvað þeim
fannst eftirsóknarverðast í
veröldinni og vissulega gátu
póstmennirnir ekki að því
gert, að fyrir ofan rétt bæj-
arnöfn stóð í mannanafna-
línu torkennilegar setningar
til að lesa sundur eftir póst-
sendingar, svo sem „Gott
hangikjöt", „Guðrún býr til
sterkt kaffi“, „Jón tekur í
nefið“, „Vakri skjóni er vilj-
ugur“ og svo framvegis.
Starfsemi póstsins hefir
breytzt mikið á allra síðustu
árum, með auknum hraða og
tíðari póstsamgöngum, þótt
pósthúsið í Reykjavík hafi
lítið breytzt, þá eru gerðar
vaxandi kröfur til þeirra, sem
þar leysa hin daglegu störf af
hendi:
Laun heimsins eru
vanþakklæti.
Flugfeýðir með póst eru nú
rninnst vikulegar milli landa
og stundum oftar og skipa-
ferðir tíðar. Póstur fer nú
nokkuð víða daglega um
landið, en þó er víða miklu
■ lengra á milli póstferða en
mönnum finnst að hægt væri
með góðu móti, en allt horfir
| það einnig til bóta.
\ Á pósthúsafgreiðslunni er
daglega mikill gestagangur.
Menn koma þar með.áhyggj-
ur sínar og góðar fréttir inn-
an í bréfum, sem bera utaná-
skrift og póstmanninum er
falið að koma bréfinu til skila,
hvort sem viðtakandinn er
austur í Kína, í Flóanum eða
við Laugaveginn. Oftast tekst
þetta fljótt og vel, en við
i skulum ekki vera allt of hvat-
vís að dæma vini okkar póst-
mennina, ef eitthvað fer af-
laga, því það eru alltaf nógir
til að vanþakka þeim, sem
gera sitt bezta og eru að
hjálna okkur við aö koma
skilaboðum heimsálfanna í
niilli, eða frómum óskum um
gleöileg jól milli húsa í höf-
uöstaðnum. gþ.
GLEÐILEG JÓL!
S. Árnason & Co.
GLEÐILEG JOL! j
i
Fœðiskauþendafélag Reykjavíkur. |
GLEÐILEG JOL!
Reykhúsið.
\
\
! GLEÐILEG JÓL!
Herðubreið. |
í
í
GLEÐILEG JÓL!
Lífstykkjabúðin.
GLEÐILEG JÓL!
Raforka, Vesturgötu 2.
GLEÐILEG JÓL!
Verzlun Sigurðar Halldórssonar,
Öldugötu 29.
GLEÐILEG JOL!
Ferðaskrifstofa ríkisins.
GLEÐILEG JÓL!
1
Verzlun Árna J. Sigurðssonar,
Langholtsvegi 174.
GLEÐILEG JOL!
Hótel Vtk.
GLEÐILEG JÓL!
J arðhúsin.
_ -