Tíminn - 30.11.1954, Qupperneq 2

Tíminn - 30.11.1954, Qupperneq 2
2 TÍMINN, þriðjudaginn 29. nóvember 1954. 271. blaS, Þar ríkir gáski i viðskiptunum og þykir sjálfsagt að „prútta Samræðurnar við borðin á Petticoat Lane eru oft fjörugar, enda stundum talsvert í húfi. Það er misjafnt hvað ferðamenn, sem heimsækja London, taka sér fyrir hendur. Sumir þræða söfnin og gamlar hallir, aðrir láta enga tónleika eða sjónleiki fara framhjá sér, og enn aðrir fara á krárnar og smærri veitingastaðina, sem eru margir þar í borg. En hvergi kynnast menn þó eins vel fólkinu, sem í borginni býr, og á markaðstorgunum. í London lifir sá siður enn þann dag í dag, að halda markaði á götum úti, og sá siður mun tæplega deyja þar út í ná- inni framtíð. Það er varla á færi eins manns að vera viðstaddur alla þá mark- aði, sem háðir eru í London á einni viku. En þrír eða fjórir þeirra hafa þó orðið svo þekktir, að fáir eða engir ferðamenn fara svo frá borginni að hafa ekki heimsótt a. m. k. einn þeirra. Og frægastur ailra markaðanna, er silfurmark- aðurinn á Petticoat Lane. Á gang- stéttunum meðfram allri götunni standa lítil borð í þéttum röðum, hlaðin silfri og skartgripu'm. Þeg- ar maður gengur meðfram borðun um og lítur yfir það, sem þar er á boðstólnum, fær maðuír góða hugmynd um hið víðáttumikla brezka heimsveldi, og hið geysilega fjármagn þess. Risastórir kerta- stjakar frá tímum Georganna, úr hömruðu silfri,, indverskir vasar, Útvarpið Utvarpið í dag. Fastir liðir eins og venjulega. 20.30 Erindi: Upphaf kvenréttinda- hreyfingar á íslandi (Rann- veig Þorsteinsdóttir lögfræð- ingur). 21.00 Tónleikar (plötur). 21.35 Lestur fornrita: Sverris saga; V. (Lárus H. Blöndal bókavörð ur). 22.10 Úr heimi myndlistarinnar Björn Th. Björnsson listfræð- ingur). 22.30 Daglegt mál (Árni Böðvars- son cand. mag.). 22.35 Léttir tónar (Jónas Jónasson sér um þáttinn). 23.15 Dagskrárlok. Árnað heilla Trúlofun. S. 1. sunnudag opinberuðu trúlof un sína Björg Hjálmarsdóttir Vil- hiálmssonar skrifstofustjóra, Drápu hlíð 7, og Bergur Óskarsson, erind- reki, Meðalholti 7. Hjónaband. 26. þ. m. voru gefin saman í hjóna band af séra Jakob Jónssyni ung- frú Erla Jónsdóttir, Ægissíðu 68 og örn Geirsson, vélvirki, sama stað. Heimili ungu hjónanna verður að Kvisthaga 23. skrítnar guðamyndir úr silfri og fílabeini. Hringir og hálsmen, körf ur fullar af allskyns skarti og pappaöskjur með eyrnahringjum og armböndum. Ferðamenn verða að fara varlega. En eins og gefur að skilja eru margir þessara gripa ekki úr hrein um málmi, því að svo má fægja stál að það líti út sem silfur, óg stimplar og merki geta verið föls- uð. Það er því ráðlegra fyrir þann, sem ekki hefir vit á hlutunum, að fara varlega, ef kaupmönnum göt- unnar á ekki að takast að plata inn á hann verðlausum vörum fyrir mikið fé. En þetta gildir þó ekki um alla kaupmenn götunnar, því að sumir þeirra, sem staöið hafa þarna bak við söluborðiö á hverj- um laugardegi í mörg ár, setja stolt sitt í að pretta ekki kaupend- ur, jafnvel þótt þeir séu útlending- ar, sem ekki kunna verzlunarað- ferðir markaðanna. Ef að þessir kaupmenn segja að hluturinn sé úr silfri, getur maður verið nokk- uð viss um að þeir segja satt, enda þótt silfurmagnið sé ef til vill ekki svo mikið sem þeir halda fram. SiSur að „prútta“. Á öllum mörkuðum í heiminum er það siður að „prútta" við kaup- mennina um verð vörunnar. Sá, sem borgar umyrðalaust þá upp- hæð, sem fyrst er nefnd, fellur þegar í áliti hjá kaupmanninum. Venjan er, að þegar kaupmaðurinn hefir nefnt fyrstu upphæð sína, (Framhald á 11. síðu). ■imijn. dir Skug’gi fortíðarinnar (Au delá des grilles) í Tjarnarbíói er nú til sýnis frönsk -ítölsk mynd með þeim Jean Gabin og Isu Miröndu í aðalhlutverkum. Fjallar myndin um Fransmann, er drýgt hefir morð og lögreglan er á hnotskógum eftir. Hann er laumu- farþegi um borð í skipi, er leitar hafnar í Genúa, og neyðist hann til að skreppa í land sökum óbærilegr- ar tannpínu. Lendir hann í ævin- týri nokkru, sem lýkur á snubbótt- an hátt, eins og við mátti búast. Mynd þessi er hárealistísk og gjör sneydd öilu, sem nefnist væmni og rómantík; efnið er ekki mikið, en vel með það farið í alla staði. Enda er Jean Gabin i tölu færustu kvik myndaleikara Frakka og er þá mik ið sagt, því að Gallía lætur ekki að sér hæða í þeim efnum. — Höfund- ur prógrammsins hefir misskilið endi myndarinnar og heldur því fram, sennilega í huggunarskyni við áhorfendur, að maðurinn sé „stað- ráðinn í því að snúa aftur, eftir að hafa afplánað refsinguna." í fyrsta lagi gefur maðurinn slíkt síður en svo í skyn og í öðru lagi liggur tvenns konar viðurlag við morði: Dauðarefsing eða ævilangt fangelsi. Hér er þvi ekki um lukku- legan endi að ræða. — V. A. Rakið yður eins og milijóneri Jafnvel milljónerar geta ekki keypt betri rakstur en þessi Gillette rakvél No. 24 veitir ★ Handhæg plastic askja ★ Rakvélin er hárnákvæm Gillette framleiðsla. ★ Tvö Blá Gillette blöð fylgja ★ Rakvélin og blöðin gerð hvort fyrir annað ★ Notið það sameiginlega til að öðlast bezta raksturinn. Gillette No. 24 Rakvélar Innilegar þakkir fyrir auðsýndan hlýhug við and- lát og jarðarför VALGERÐAR NÍELSDÓTTUR, Hvammstanga. Vandamenn. Maðurinn minn, EYIÓLFUR Ó. ÁSBERG, Hafnargötu 26, Keflavík, kvöldi þess 27. þ. m. lézt að heimili sínu að Guðný Ásberg. DAÐI HJORVAR, útvarpsmaður lézt að heimili foreldra sinna 26. nóv- ember, tuttugu og sex ára gamall. Útförin hefir farið fram í kyrrþey, eftir ósk hans sjálfs. Ástvinir hans senda hjartans kveðju öllum vinum hans og félögwm, nær og fjær. Sjöfn Hjörvar, Ari og Helgi. Rósa og Helgi Hjörvar. IV AR HLÚJÁRN.Saga eftir Walter Scott. Myndir eftir Peter Jacksonll4 aðu m!{* ckkí Ilúnbo^a.In t (S réua tiafa mítt nuut vafa* liafa bori/.t bci* tit : i ói höttur ljcítl c-V •Vf

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.