Tíminn - 30.11.1954, Blaðsíða 9

Tíminn - 30.11.1954, Blaðsíða 9
271. blað. TÍMINN, ln-iðjudaginn 29. nóvember 1954. Séð heim aö Fagradal. Magnús Finnhotfason: Ljósmynd: Vigfús Sigurgeirsson. í r ausíarvea'i I. Miklar framfarir setja svip á Mýrdalinn Magnús Finnbogason fyrrum bóndi í Reynisdal ferðaðist allmi'kið um Vestur-Skaftafellssýslu í sumar, og mun hann rita nokkra þætti í Tímann úr þeirri för og drepa á það, sem fyrir augu bar. Eru fáir gagnkunnugri á þessum slóð- um en hann. Birtist hér fyrsti þátturinn um Mýrdal. Að undanförnu hefi ég feng ist við skrásetningu örnefna í Mýrdalnum. Hafði ég hugsað mér, að heimsækja bændur þar eystra í sláttulokin til að fá hjá þeirn upplýsingar um örnefni í löndum þeirra. í þá ferð lagði ég þann 9. septem- ber s.l. Slóst ég í för með kvikmyndaleiðangri Vigfúsar Sigurgeirssonar. Þegar í Mýr- dalinn kom tók ég fyrir að halda áfram austur yfir Mýr- dalssand og komst alla leið að Rauðabergi í Fljótshverfi. Reyndi ég á þessu ferðalagi að kynna mér af eigin sjón og reynd búskap og afkomu fólksins fyrir austan Fúlalæk (Jökulsá á Sólheimasandi). Miklar framkvæmdir. Það, sem setur mestan svip á Mýrdalinn í dag, eru hinar geysimiklu framkvæmdir sið- ustu ára, einkum í skurð- greftri og öðrum ræktunar- framkvæmdum og enda húsbyggingum. Má því segja, að Mýrdælir standi á tíma- mótum á sviði efnahagsmála. Við gleðjumst allir yfir fram- kvæmdunum og framförun- um, þó eftir sé að sjá hvernig tekst að standa undir þeim gífurlega kostnaði, sem af þessum stórstígu framkvæmd um leiðir. Um það skal hér engu spáð, en áreiðanlega fer það mest eftir því hvernig bændum tekst að standa sam an um samvinnufélög sín, sláturfélag, mjólkurbú og síð- ast en ekki sízt kaupfélögin. Þessi samtök hafa verið lyfti- stöngin um framfarir sveit- anna og munu áfram verða grundvöllurinn, sem afkoman byggist á, hvað sem hver segir. Annað, sem maður veitir eftirtekt á fex-ð um Mýrdalinn, fremur en í mörgum öðrum sveitum, að óvíða sjást kýr á úthögum, flestir hafa þær á ræktuðu landi, mestan hluta sumarsins, og sumir allt sum- arið, og telja sér af mikinn ávinning. Af þessum ástæðum er ekki eins mikið um háar- slátt þar eins og fyrir austan Mýrdalssand. Þar hafa menn fáar kýr og enga mj ólkursölu. Slcgu flestir því mest öll tún sín tvisvar í sumar og sumir þrisvar. Gott kúakyn. Mýrdælir hafa nokkra sér- stöðu í búskap sínum vegna mjólkursölu og niðurskurðar sauðfjársins, og hefir bústofn þeirra færzt í það horf að byggjast nær eingöngu á naut griparækt. Kýrnar í Mýrdahi- um gefa góðan arð, en þar hefir starfaö nautgripafélag í rúm 50 ár, og hefir tekizt að koma upp góðu kúakyni. sem er orðið eftirsótt í öðrum sveitum. Nú er sauðféð að koma upp aftur svo bráðlega mun komast aftur á jafixvægi milli þessara búgreina. Garðrækt var mikil síðast- liðið ár, en vegna hiirs al- kunna sleifarlags á sölu garð- ávaxta hefir allmikill aftur- kippur komið í þá starfsemi. Byggingaframkvæmdir eru allmiklar, einlcum þó fénaðar- hús og heyhlöður. En mest ber á hinni stórmyndarlegu slát- urhúsbyggingu í Vík, sem Kaupfélag Skaftfellinga og Sláturfél. Suðui'lands standa að sameiningu, þannig, að sláturfélagið byggir sláturhús ið, en kaupfélagið frystihús. Þarf ekki lengur að tvískipta slátruninni vegna skorts á full nægjandi húsakosti. MikiII skurðgröftur. Skortur á þurrkuðu landi hefir staðið mjög í vegi fyrir ræktunarframkvæmdum á mörgum jörðum. En nú er kominn mikill skriður á skurð gröftinn eins og áður getur, svo úr þessu er nú að rætast. En þrátt fyrir þetta hafa tún- in bæði stækkað og batnað og það svo, að mestur hluti heyskaparins er nú tekinn á túnum og sums staðar allur. Allar hlöður eru nú fullar af ágætu heyi og víða eru hey úti eins og í gamla daga. Veld- ur þar nokkru um miklar fyrningar frá fjárleysisárun- um. Sandurinn ræktaður. Mesta athygli vekur rækt- unin, sem er nú aö færast út á vestur jaðar Mýrdalssands. í Fagradal hefir verið tvíbýli í allmörg undanfarin ár, en þar eru engjar sáralitlar, og túnstæði til útfærslu nær ekkert svo heitið geti. Fyrir nokkrum árum byrj- uðu bændurnir í Fagradal að rækta sandinn fyrir neðan túnið fyrir vestan þjóðveginn út með fjallinu, og er þar nú komið fimm til sex hundruð hestatún, sem allt var sjegið gerir hún allt auðveldara fyr- ir framkvæmdir þeirra feðga. með tveimur síbreiðum s. 1. sumar. Eftir þessa reynslu munu Fágradalsbændur halda áfram að klæða sandinn, en að þetta myndi möguleg.t hefðu fáír trúað fyrir 20—30 árum. Vel haldið á spilunum. Nýbýlí. Þegar fór að rakna úr fyrir Ragnari, börnin að komast upp, og aðstaða að batna, girti hann stórt svæði norður við þjóðveginn í svokölluðum .Tjaldabúðum, og er nú að Fyrir nokkrum árum flutt- I 'v0ma ÞV1 1 rækt. Gaf það af ist að Höfðabrekku skipstjóri I s®r 1 sumar allt að fimm vertan af fjörðum og reisti: úundruð hesta. Taldi Ragnar þar bú. Heitir hann Ragnar heyskap sinn í sumar allt að Þorsteinsson, og hefir reynzt1 þúsund hesta, og er það að duglegur og áhugasamur j bkindum meiri heyskapur. en bóndi. en átti xiokkuð erfitt a®ur hefir fengizt að Höfða- uppdráttar, nieö stóran barna úrekku, fyrr eða síðar, og svo hóp, en fremur litil efni. Neyddist hann til að selja nokkurn hluta jarðarinnar, hinn svokallaða Höfðabrekku háls, en þar voru-mest allar út slægjurnar. Sá, sem keypti þetta land, var ungur maður, Jón Bárðarson úr Vík, einn af þeim, sem stökkt var af Reyn- isfjalli, sællar minningar. Síð an hefir faðir hans nytjað þetta land frá Vík, en Jón heíir starfað á Keflavíkur- flugvelli til að afla sér fjár til stofnunar nýbýlis á Höfða- brekkuhálsi. Eru feðgar nú að undirbúa byggingar og rækt- un. í vor sáðu þeir í fimm hektara á sandinum fyrir framan hálsinn, og var þar orðið hvanngrænt í haust. Eru þarna óþrjótandi mögu- leikar til stórfelldrar ræktun- ar, því maður vonar, að Katla láti sér nægja að fara í Múla- kvíslaraura næst, er hún kann að láta á sér bera. En taki hún túnið hans Jóns Bárðarsonar er hætt við, að hún verði fleir um nærgöngul. Nú er brúin komin á Kerlingardalsá og kemur Hálsinn bráðlega með annað eins. Má.því sem sanni segja, að hér hafi vel verið haldið á spilunum og gæfu- samlega tiltekizt. Margt mætti fleira segja um Mýrdalinn og framkvæmdir einstakra bænda þar, en hér verður látið staðar numið að sinni, og skyggnzt um fyrir austan Mýrdalssand. Fundor í Jöklarann- sóknarfélaíinu Jöklarannsóknafélag ís- lands heldur fund í Tjarnar- kaffi uppi næstkomandi þidðjudag 30. nóv. kl. 8,30 síðd. Jón Eyþórsson veðurfræðing- ur segir frá Vatnajökulsferð í vor sem leið og sýnir litskugga myndir eftir Árna Kjartans- son og Hauk Hafliðason og loks litfilmu, stutta frá Vatna jökli eftir Árna Kjartansson. Aít milliþinganefndar í heilbrigðismálum m staðsetningu sjúkrahösa og endurbætur Að unúaníörnu hefir starf að milliþinganefnd í heilbrigð ismálum og skilað áliti fyrir skemmstu. Er álitið allýtar- legt og fjallað um flest helztu vandamál líðandi stundar hér á landi í þessum efnum. í prentaðri álitsgerð er greint frá störfum nefndarinnar og tillögum. Er þar fjallað um læknaskipun á landsbyggð- inni, reynsluna í spítalamál- um, sjúkrarúmaþörf, stærð sjúkrahúsa, staðsetningu sjúki-ahúsa, sjúkraskýli o. fl. Að lokum eru tillögur um al- mennar ráðstafanir tl efling ar heilsuvernd og heilbrigði þjóðarinnar. í nefndinni áttu sæti lækn- arnir Páll V. G. Kolka, Esra Pétursson og Alfreð Gíslason. Hér fara á eftir nokkrir kafl ar úr nefndaráliti þessu, aðal lega um staðsetningu sjúkra húsa og ástandið í sjúkrahús málum: í Reykjavík er þegar hafin bygging bæjarspítala og við- bótar við Landsspítalann. Auk þess er gert ráð fyi’ir, að hjúkrunardeild Heilsuvernd- arstöðvar Reykjavíkur geti tekið til starfa á komandi vetri. Einnig mun ný sjúkra- deild í Elliheimilinu Grund verða tekin í notkun innan skamms. Á siðari árum hafa myndazt nokkrar samgöngumiðstöðvar nálægt fjölbýlum sveitum, þar sem flutningaleiðum er hald ið opnum flesta tíma árs, aðal lega vegna mjólkurflutninga. Á þeim stöðum er sveitafólki tiltölulega auðvelt að leita sér læknis. Slíkar samgöngumið- stöðvar eru nú á Selfossi, í Borgai’nesi, á Blönduósi, Sauð árkróki og Húsavík. Á engum þessara staða er þörf fyrir spítala af þeirri stærð, sem talin er hentugust miðað við sjúklinga með bráða sjúk- dóma, með 30—50 legurúm- um, en ber frekar að vista á þessum stöðum króniska sjúk lingá og gamalmenni. Bo7‘gariies hefir sérstöðu meðal þessara staða, því að þaðan er bæði stutt til Reykj a víkur og spítalar á næstu grös um, á Akranesi og í Stykkis- hólrni. Á Selfossi hagar svo til, að þar er þegar risið upp elliheimili í Hveragerði og nokkur vísir að baðhæli. Þess ar stofnanir gæti komið til mála að stækka og búa svo tækjum að þær bættu nokkuð úr spítalaþörf Suðurlandsund irlendisins. Á Blönduósi er risin upp myndarleg spítalabygging, sem getur sennilega tekið til starfa innan eins árs. Gamla sjúkrahúsið á Sauð árkróki er orðið mesta skrifli, en Skagfirðingar eru nú að láta gera uppdrætti að nýjum spítala, sem verður með nokk uð öðru sniði en Blönduós- spítali, en óvissa ríkir um það hvar honum verði valinn stað ur. Á Húsavík er nýlegur spítali sem er allgott hús, en mætti bæta að mun með nokurri við byggingu. smíðum spítali í 6—7 ár, og hefir ófullnægjandi undirbún ingur og fjárskortur hamlað verkinu. Sjálfsagt þykir að leggja áhei’zlu á að ljúka þeirri byggingu. Keflavíkurspítalinn hefir verið í smíðum á áhnan ára tug og er enn ekki tekinn til starfa. Hann er af mjög óhentugri stærð, og er senni legt að brátt komi fram kröf ur um stækkun hans. Akranesspítalinn nýi er vandað hús, en hefir reynzt of litiíl. Honum hefir þurft að breyta til að koma þar fyrir yfirlæknisíbúð til bráoa- birgða. ísaf jarðarspítali er mjög myntíarlegt hús, en vinnuskil yrði þar erfið. Á Akureyri hamlar starfs- liðsskortur fullkomnum not- um hins nýja spitala. Hafa komið fram raddir í blöðum bæjarins um að byggja verði þar starfsmannahús, ásamt bvottahúsi. Nokkrar breytingar hafa verið gerðar á Vestmannaeyja spítala, en annars eru starfs skilyrði þar mjög erfið. Loks má geta þess, að á Patreksfirði hefir nýlega ver ið byggður spítali fyrir um 20 sjúklinga, sem er að mörgu leyti ágætt hús, en skortur á sjúkralyftu veldur þar nokkr um erfiðleikum. Ennfremur skal þess getið, að gerð hefir verið áætlun um að byggja Um þá kaupstaðai’spítala, viðbót við Seyðisfjarðai’spit- sem þegar eru komnir upp, ala fyrir gamalmenni, og gera skal þessa getið: jnokkrar breytingar á húsinu Á Norðfirði hefir verið í I í sambandi við það

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.