Tíminn - 22.12.1954, Page 3
290. blað.
TÍMINN, miðvikudaginn 22.__desember_1954.__ ^
í slendingaþættir
Dánarminning: María Sigurðardóttir
— Svo mun sumum þykja,
að ekki sé ástæða til að eyða
blaðarúmi fyrir minhingarorð
um alþýðukonu,- sem látizt
hefir á elliheimili í hárri elli
og eftir lengri aðdraganda en
við mátti búast.
En þar til vil ég því svara,
að það lýsir lítilli ræktarsemi
við góða samtíðarmenn, ef
þeirra er að engu getið að leið
arlokum og af engum þakkaö
langt og gifturíkt ævistarf.
— Guðrún María hét hún
fullu nafni, en var jafnan
nefnd seinna nafninu, enda
ein systir hennar, sem aðeins
hét Guðrún, og önnur einnig
Gnðrún að fyrra nafni.
María var fædd i Holtakot
um í Biskupstungum 17. apríl
1868, en fluttist barn að aldri
með foreldrum sínum að Gröf
í Mosfellssveit og ólst þar upp.
Foreldrar hennar voru Sigurð
ur Guðmundssön og Guðrún
Þorláksdóttir alkunn heiðurs
hjón, sém mikill ættbogi er af
kominn. María var ein af 17
systkinum og er nú aðeins eitt
þeirra eftir á lífi, Guðmund-
ur bóndi á Lækjarbotnum
(Lögbergi). — Árið 1893 giít
ist María Páli Gestssyni, þá
til heimilis í Miðdal. Páll var
Skaftfellingur- að ætt.
Þau Páir og'María bjuggu
fyrsta búskaparár sitt i Hafn
arfirði, en síðan á nokkrum
býlum hér i grenndinni, m. a.
nokkur ár á Lækjarbotnum,
en síðast og lengst að Eiði í
Mosfellssveit. Um 1920 flutt-
ust þau til Reykjavíkur og þar
lézt Páll 13. des. 1953, en
María ári síðar, 17. des. 1954.
Og í dag fer jarðarför henn
ar fram að Lágafelli. —
Þau eignuðust 3 syni, en
þeir eru Vígmundur bóndi aö
Efrá-Hvol i í Mosfellssveit,
Karl Guðmundur bifreiðar-
stjóri t Reykjavík og Einar,
starfsmaður hjá Mjólkursam
sölunni, Einnig ólu þau upp
fósturson, Aðalstein, sem
eining er starfsmaður hjá
Mjólkursamsölunni. Reyndist
hann þeim eins og bezti son-
ur, eða öllu heldur eins og
hinir synir þeirra, svo vel, að
til fyrirmyndar mætti vera.
María var vel gerð kona,
bæði til sálar og likama. Hún
var fríð kona og sviphrein,
og hélt útliti sínu vel til eili,
þrátt fyrir langvarandi las-
leika á seinni hluta ævinnar.
María þurfti oft á miklu að
taka, ekki sízt meðan þau
hjónin bjuggu á Lækjarbotn
um, því þá var þar gestakoma
mikil og örtröð, en öllum veitt
sú fyrirgreiðsla, sem unnt
var. Mun María þá oft hafa
lagzt þrevtt til hvílu, en hvild
in á stundum orðið skammæ.
Skapgerð Maríu var heil-
steypt og rólyndi hennar við-
brugðið. Ég sem þetta rita,
var svo lánsamur á uppvaxtar
árum mínum, að eiga þau
Maríu og Pál að næstu ná-
grönnum og vera þar dagleg
ur heimagangur langtímum
saman. Síðan var mér María
jafnan minnisstæð og kær.
Aldrei minnist ég þess, að hún
hafi skipt um skap á hverju
sem gekk. Mundi hún þó
hafa kosið að eiga betri kosta
völ en á stundum var.
Umhyggjusemi og snyrti-
mennska í allri umgengni var
henni í blóð borin og hún var
gædd þeim eiginleikum að
láta ekki ásjá, þótt móti blési
og tilefni væri til. Hún reyndi
jafnan að færa flest til betri
vegar og gera gott úr því sem
sumum vill verða til angurs
og ásteytingar. Öllum, sem
nokkuð kynntust Maríu hlutu
því að bera til hennar hlýhug
og virða hana að verðleikum.
Hér er löngu ævistarfi lokið
en minningin lifir hugþekk og
kær.
Þakka þér fyrir gömlu og
góðu kynnin vinkona mín og
frænka! Þín mun ég jafnan
minnast með virðingu og
þökk og svo mun ég jafnan
þökk og svo mun um alla þá,
sem af þér höfðu nokkur
kynni.
.... Guðm. Þorláksson.
Enska knattspyrnan
Úrslit s. 1. laugardag:
1. deild.
Blackpool—Huddersfield 1—1
Cardiff—Burnley 0—3
Charlton—Bolton 2—0
Chelsea—Leicester 3—1
Everton—Sheff. Utd. 2—3
Manch. City—Preston 3—1
Newcastle—Arsenal 5—1
Portsmouth—Manch. Utd. 0—0
Sheff. Wed.—Wolves 2—2
Tottenham—Aston Villa 1—1
West Bromw.—Sunderland 2—2
2. deild.
Birmingham—Stoke City 2—0
Blackburn—Fulham 3—1
Bury—Lincoln City 3—1
Derby County—Not-ts County 1—1
Doncaster—Liverpool 4—1
Ipswich-—Rotherham 2—2
Leeds Utd.—Hull City 3—0
Middlesbro—Plymouth 4—1
Nottm. Forest—Luton Town 1-—5
Port Vale—Bristol Rov. 1—0
West Ham—Swansea Town 3—3
Á miðvikudaginn í síðustu
viku lék Chelsea við liðið
Rauða fánann, sem varð ung
verskur meistari s. 1. ár og
hefir á að skipa níu mönnum,
sem leikið hafa í ungverska
landsliðinu, þar á meðal Hid-
egkuti, Palotas, Lantos og
Sandor, og auk þess tvo menn
úr B-landsliðinu. Leikurinn
var einn sá skemmtilegasti,
sem háður hefir verið í Eng-
landi, þótt mikil og margvís-
leg mistök ættu sér staö Jafn
tefli varð 2-2, en þrjár víta-
spyrnur voru dæmdar í leikn
um, sem allar misheppnuðust.
Chelsea fékk tvær þeirra, sem
Ilarris spyrnti framhjá. Chel-
sea hafði yfir í hálfleik 2-1.
Keppnin í deildunum er nú
rúmlega hálfnuð hjá flestum
liðum, en leiknir eru 42 leikir.
Úlfarnir hafa forustuna í 1.
deild, eitt stig fram yfir Sund
erland og Manch. Utd., en
Chelsea er komið í fjórða
sæti. Þrátt fyrir, að Úlfarnir
hafi sigrað Spartak og Hon-
ved nú síðustu vikurnar, tókst
þeim ekki að vinna neðsta lið
ið í deildinni, Sheff. Wed. á
laugardaginn. Sýnir það bezt,
hvað enska knattspyrnan bíð
ur oft upp á óvænt úrslit.
í 2. deild er Leeds Utd., með
bezta leikmann Englands í
broddi fylkingar, John
Charles, komið í efsta sætið,
en keppnin er ekki síður tví-
sýn þar en í 1. deildinni.
Staðan er nú þannig:
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiniiMHniiiiniiini'ff'iTrtnici
1. deild.
Wolves 22 11 7 4 51-31 29
Sunderland 22 9 10 3 39-29 28
Manch. Utd. 22 12 4 6 50-40 28
Chelsea 23 10 7 6 45-35 27
Charlton 22 12 2 8 49-37 26
Huddersfield 22 10 6 6 41-34 26
Portsmouth 22 10 5 7 41-31 25
Manch. C 22 10 5 7 41-42 25
Everton 22 10 4 8 34-33 24
Preston 21 10 3 8 54-32 23
W. Bromw. 22 9 5 8 44-47 23
Newcastle 22 9 4 9 52-47 22
Bolton 21 7 8 6 33-31 22
Cardiff 22 8 6 8 38-43 22
Burnley 22 8 5 9 26-33 21
Blackpool 22 7 5 10 32-35 19
Sheff. U. 23 8 2 13 35-55 18
Tottenham 22 6 5 11 35-47 17
Aston Villa 22 6 5 11 33-49 17
Arsenal 22 6 4 12 38-43 16
Leicester 22 4 6 12 39-56 14
Sheff. Wed. 22 4 4 14 35-57 12
2. deild. -—
Leeds Utd. 22 13 3 6 41-35 29
Blackburn 22 13 2 7 67-41 28
Luton Tow 22 13 2 7 50-33 28
Rotherham 22 12 3 7 52-38 27
Stoke City 22 11 5 6 34-23 27
Fulham 22 11 5 6 51-43 27
Bristol Rov. 22 10 4 8 48-37 24
Bury 22 9 6 7 46-41 24
W. Ham 22 9 6 7 44-43 24
Notts Count 22 10 4 8 33-36 24
Biringh. 21 9 5 7 44-25 23
Swansea 22 9 5 8 45-43 23
Hull City 22 8 6 8 26-26 22
Lincoln City 22 8 4 10 39-45 20
Liverpool 22 8 4 10 45-53 20
Middiesbro 22 9 2 11 34-46 20
Doncaster 20 8 2 10 30-46 18
Nottm. For. 22 7 3 12 28-34 17
Port Vale 22 5 7 10 23-41 17
Derby Count 22 5 5 12 35-49 15
Plymouth 22 4 5 13 31-47 13
Ipswich T. 23 5 2 16 34-55 12
| Mýkdiníiar
[ ENSKAR,
I DANSKAR,
og AMERÍSKAR
| BÆKUR.
| Bókabúð NORÐRA
I Hafnarstr. 4. Sími 4281.
llllll■lll■lllllllllllllllllllllllllllll■lllllllllllllllllllllllllllllJ
Stjórn Norrænafélagsins
hefir ákveðið að ráða framkvæmdastjóra til félagsins.
Umsóknir sendist fyrir 7. janúar 1955 til gjaldkera fé-
lagsins, Arnheiðar Jónsdóttur, Tjarnargötu 10 C, sími
4768, sem gefur nánari upplýsingar.
STJORNIN.
SS5SS55JSS3S5W.3S5SÍS
rinn eftir Svönu Dún
er sérlega skemmtileg sveita- og ástar-
saga handa ungu fólki, konum og körl-
um. — Bókin segir frá baráttu og sigri
og einum eiginleika töfrastafsins.
Kynnið ykkur bókina
.v. Guðmundur
er til sölu. Upplýsingar gefur Sigurður Olason, Fjár-
málaráðuneytinu. — Tilboðum sé skilað í ráðuneytið
fyrir 30. þ. m. ...... _ ^ .
F$ármáluráðtinetgtið,
22. desember 1954.
r1
.XOTUS^GOmK
D.10 HOLLOW GROUND 010
' pim VELIOW BLftDE mm r.
J
Nýja matreiðsiubókin
Halldóra Eggertsdóttir og Sólveig Benediktsdóttir
tóku saman.
EFNI :
Reglur um meöferð matvæla.
Fyrirsagnir um tilbúning rétta.
Brauðgerö.
Geymsla og meðferð á berjum og grænmeti.
Sú nýjung er í bókinni, að margar uppskriftir eru
birtar í töfluformi.
ÍSékaverzlim
Stgfiisar Eyimmdssoiiai*