Tíminn - 24.12.1954, Page 11

Tíminn - 24.12.1954, Page 11
JÓLABLAÐ TÍMA^S 1954 11 JÓN HARALDSSON: O/fat Akýjutm vq ajjtur hiiur á jöti TiSeinkað pósfinum sem dansaði fram í dagrenningu, — siúikurnar komu út á hóiinn til að horfa á hann af miklu fjöri, þsim gekk illa a3 K Hann gekk um gólf meðan hann ' talaði, orðinn stuttstígur og ofur- lítið reikull í spori við og við, enda kominn nokkuð á níræðis aldur. Þó var hann enn beinn í baki og hnakkakertur, en orðinn sköllótt- ur, aðeins hvítur hárkragi aftan í hnakkanum og bak við eyrun. And- litið var góðmannlegt og hetjulegt í senn og svo skrítnar hýrur við augun, sem þó voru oft hálf lukt. í munnvikjunum vottaði fyrir brosi. Margt höfðum við átt saman að sælda, enda löng kynning og vart svo fundum borið saman, að hann ekki skildi eftir eitthvað í hug mín- um sem blossaði upp aftur og aftur sem leiftur eða bjartur logi. Sjálfur var hann alvarlegur og stundum jafnvel hálf ergilegur í róm, þegar hann var að fara með mestu kýmnissögurnar, honum stökk ekki bros þó aðrir engdust af hlátri. Ekki dró hann sjálfan sig undan því sem broslegt var í frásögninni. En alvöru- og örlagastundir lífsins voru honum einnig minnisstæðar og þeirra minntist hann einnig og sagði þannig frá, að ógjarnan gleymdist. „Já, það eru öðruvísi hættir nú en þegar ég var í uppvexti. Þá var unnið hvern dag, myrkranna á milli — og alla vökuna — alltaf kapp um það hver skilað gæti mestu verki, metnaðurinn í því fólginn að vinna sér dugnaðarorð, koma fyrir sig fótum efnalega, á aldrinum milli fermingar og tvítugs og geta þá máske rétt einhverri fallegri stúlku höndina og leitt hana út í lífið, og baráttuna, snauður gat maður bað ekki. Fermingarveturinn minn fannst mér eitthvað nýtt vakna hjá mér. Við glímdum mikið, drengirnir, og eftir því sem á leið gekk mér betur að ná yfirhönd í hópnum. Ég var þó hvorki stór né sterkur, en ég lærði nokkur góð brögð og glímdi leggja mig. Oft komu ungu stúlkurnar út á hólinn til þess að horfa á. Aihaf voru það sömu augun, sem mættu mér, þegar ég bar sigur af hólmi og leit upp, hvrleg, örvandi ung- meyjaraugu. Við töluðum þó lítið saman, — hún var frá góðu heim- ili — ég var fátækur. Um voriö réðst ég burtu, fór vi tferlum í aðra sveit sem vinnumaður. Þar var stórbúskapur á mörgum jörðum og efna bændur. Ég fór gangandi, næstum tvær dagleiðir, með lítinn fatapinkil á baki — það var aleig- an. Á fyrsta bænum í nýju sveit- inni hitti ég tvo stráka sunnan viö tún, þeir buðu mér strax í glímu og ekki stóð á mér. En þeir féllu báðir. Hvaðan ertu? spurðu þeir. Ég nefndi sveitina. Eru þeir allir svona góðir þar? O — ég er nú ekki talinn með glímumönnum heima sagði ég. Þeir stóðu í sömu spor- um og störðu á eftir mér síðast þegar ég sá. Var þetta bending? Var hún máske nær mér en ég vissi af, sú sem hafði gefið mér glímu- styrkinn heima? Ekki skyldi ég valda henni vonbrigðum í átökun- um sem framundan voru. Nýja vistin var á margan hátt góð. Ég eignaðist strax fyrsta árið tvær kindur, mér var gefið stekkjar- lamb og gömul kona gaf mér haust- lamb fyrir að sækja kindur sem hún átti eftir göngur í annari sveit. „Ég er óðum að hleypa upp sauð- fénu“ skrifaði ég heim fyrir jólin. Ég var staðráðinn í því að verða ríkur! Koma aftur heim í sveitina mína sem fulitíða maður, reka stór- an fjárhóp á undan mér og stansa á brúninni ofan við dalinn og lofa lagðprúðum hópnum að dreifa sér um brekkuna. Það yrði þokkaleg „gónan“ á þeim niðri í dalnum þegar þeir færu að telja! Árin liðu, engin óhöpp hentu. Reyndar fjölgaði ekki fénu eins ört og fyrstu áætlanir höfðu ráðgjört, en þó vel í áttina. Ég missti aldrei kind, tók kaup mitt nær allt í fóðr- um og tímdi naumast að fata mig. Ég vissi að brúðkaupsfötin mundu verða dýr, þegar þar að kæmi, til þeirra átti ekkert að spara, það áttu að vera kambgarnsföt, eins og spariföt prófastssonarins. Ég glímdi við strákana í sveitinni, glimdi á kirkjustaðnum, í göngum og hrædd ist engan mann. Ég dansaði á böll- um alla nóttina fram í dagrenn- ingu, gerði mín verk daginn eftir og festi ekki blund fyrr en næsta kvöld. Ég söng svo að undir tók í fjöllunum, ég gat ekki þagað. Það var lífið sem krafðist þessa alls. Og svo kom ballið í Ási. Ég var nýlega orðinn 21 árs — þetta var á yngismanna daginn. — Öllu ungu fólki í sveitinni var boð- ið. Ég skoðaði fatagarmana mína, náttúrlega voru þeir ekki til þess að fara í þeim- á ball og það heim á sjálft prófastssetrið. Nei, nei. Líklega hafði ég einblínt um of á það að fjölga sauðfénu, en þá hefði nú verið nokkrum kindum færra í hópnum mínum. Ég fór til skólapilts sem þennan vetur dvaldi heima í sveitinni og bað hann að lána mér föt. Ja, ég á treyju og vesti, sem þú gætir kannske notað — en engar bux- ur. — Ég bar mig í þetta, það stóð mér á beini, var snjáð og blettótt en það var einhver heldrimanna lykt af því og fyrir henni gekkst ég. Nú ég verð þá bara að vera í seglbuxunum mínum brúnu við þetta, þær voru hreinar og nýlegar, hér varð að láta slag standa. Aldrei gleymi ég ballinu því! Vorloftið var að ná yfirhöndinni og í vestrinu syntu gullroðin ský. Fær- ið var gott, alls staðar sáust smá hópar af fólki á ferð. Það lét ekki ganga eftir sér til slíks fagnaðar í þá daga. Við sem samferða vorum stönzuðum á auðum hól að bæjar- baki, baðstofugluggarnir voru beint fram undan. Ókunnugur maður kom heiman frá bænum og heils- aði fólkinu sem með mér var. Hann gaut til mín auga og sagði: Hvers- lags fígúra er nú þetta! Félagi minn sem hann ávarpaði sagði: Vertu ekki að abbast upp á hann, Það er óvíst að þú bærir af honum, þó stærðarmunur ykkar sé mikill, ef þið tækjuð saman í glímu. Að- komu maðurinn hló og sagði: Þá er að prufa það. Hann snaraði sér úr treyjunni. Ég var til í tuskið og fór úr minni. Ertu kannske baun- verji sagði ég þú talar hálfgerða útlenzku. O, það ragar ekki sagði hann og sveiflaði mér til og ég fann a að hér átti ekki að verða langt úr- slita að bíða, en ég kom á hann leggjarbragði og hann byltist niður á hólinn. Mér varð litið upp og heim að baðstofunni, í glugganum sá ég andlit prófastsdótturinnar, sem allir ungir menn dáðu og til- báðu, Hún hló svo að skein í hvít- ar tennurnar og kinkaði til mín kolli. Ég eldroðnaði. En á næsta augnabliki var baunverjinn uppris- inn og heimtaði að við héldum á- fram. Nú náði ég klofbragði á hon- um strax og aftur lá hann. Ég held að buxurnar þínar fari ekki að verða neitt álitlegri en mínar sagði ég, hann hafði lent í kúahlessu, sem var að koma undan snjónum. Þið hættið þessu sagði félagi. minn og gekk á milli okkar, við förum að dansa. Okkur varð báðum litið heim í gluggann, enn var hún þar og enn hló hún. — Nei við höldum áfram sagði baunverjinn ákafur. Ég held að ég nenni því ekki sagði ég og tók treyjuna mína. Þú þorir þá ekki sagði hann. Það er von að þú haldir það, tetrið, við hittumst kannske seinna og getum þá gripið saman ef þetta nægir ekki. Ég leit ekki við. Dansinn var í algleymingi strax og byrjað var. Stofan var rúmgóð og harmonikan þagnaði aldrei. Allt í einu stóð hún hjá mér prófastsdóttirin. Slíka dásemd í konumynd hafði ég aldrei augum litið! Hárið glóbjart og fagurliðað, Framh. á síðu 39.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.