Tíminn - 24.12.1954, Síða 21

Tíminn - 24.12.1954, Síða 21
JÓLABLAÐ TÍMANS 1954 21 Guhmundur ÞorsteirLsson frá Lundi: LITLI Sénn saga frá síðystu öEd um imanaðarEausan dreng, serra Beitaði einn yfir fJölB og iieiðar Sveinn Guðjónsson er fæddur í Helgugerði á Húsavík 4. apríl 1885. Foreldrar: Sigurbjörg Daviðsdóttir og Guðjón Guðlaugsson. Föður sinn missti Sveinn þegar hann var á 1. ári. Guðjón heitinn hrapaði í Lundaey, þar sem hann var að heyskap ásamt fleirum, lemstrað- ist hroðalega, og lézt af því. Dreng- urinn fór þá þegar til vanda- lausra; lenti hann fyrst hjá roskn- um hjónum í Heiðarbót cg var þar 111 fjögra ára aldurs. Móðir hans var áfram á Húsavík, og hafði hjá sér einn dreng af þrem börnum sínum, sem liföu eftir fyrra hjóna- band hennar. Frá Heiðarbót fór Sveinn að Kvíslarhól á Tjörnesi og var þar þangað til hann fór að Jarlsstöðum i Bárðardal, 7 ára gamall. Þar var hann eitt sumar sem léttadrengur og undi sér hið bezta. Þá var móðir hans gift í annað sinn, og bjó í Holti á Húsa- vlk; tók hún þvi Svein til sin um haustið. Næst réðst hann norður í Ey- víndarstaði í Kelduhverfi til Fló- vents bónda þar. Bóndi sá var ekkjumaður og átti eina dóttur litlu yngri en Svein, en bjó með ráðskonu, sem hét Emilía Björns- dóttír. Hún hafði um tíma verið þerna á Hólastaö, og þótti það íremur vegtylla. Við húsbóndann líkaði Sveini vel, en öil aðbúð mátti ekki lakari vera. Eins og venja var þá, vakti drengurinn yfir túninu um vorið, en oft varð lítið um svefn eða hvíld aðra tíma sólarhringsins. Eftir fráfærur tók við að gæta kvíaánna, sem voru um 70; var það ærið starf að gæta þeirra allan sól- arhringinn. Drengurinn,’ sem þá mun hafa verið á tíunda ári, átti þvi ærið örðugt. Stöku sinnum fékk hann að hafa ærnar heima við tún, og fleygja sér niður um stund heima; gáfu þá piltarnir ánum auga á meðan, en fremur var sjaldan það gengi. Flesta daga sat hann hjörð sína í heiðinni milli Eyvindarstaða og Fjalla, og þar inn af. Var þá aðal hvíldin að dotta við og við í hjáset- unni — en stuttir voru þeir dúrar og óværir, því aldrei var tekið mildum höndum á því að „svíkjast um“, sem þá var kallað, og týna af ánum. Svona liðu dagarnir, örðuglega, cn slysalaust; til slysa taldist það þá m. a. að missa ær úr kvium. Ðrengnum tókst að verjast því, og þótt aðbúð væri bág, er ekki víst, að hún hafi verið langt neðan við meðallag þess, sem þá gerðist um íátæk tökubörn. Sá kapítuli í sögu þjóðarinnar yrði vafalaust, - ef skráður væri, svo dökkur, að marg- ír munu telja, að gleymskan geymi l'.ann bezt. Skal hann því ekki tak- inn hér, umfram það sem sagan heimtar. — Hjón voru á Eyvindarstöðum, lik- iega í húsmennsku, meö ein tvö 1. örn; hét sá bóndi ísak. Barnaveiki gekk þá í Kelduhverfi, en engar sóttvarnir voru um hönd haföar hennar vegna, og daglegt líf geklc sinn vanagang. Börn ísaks fengu barnaveikina og dó annað þeirra, sem síðar skal að vikið. Þegar þetta var, mun hafa verið komið fram í ágúst og farið að skyggja um nætur. Var Sveinn þvi farinn að reka ærnar á kvöldin og smala þeim á morgnana; gafst þá venjulega ró fyrri hluta nætur, en snemma var tírengur vakinn til að srnala. Sveinn hafði flet sitt í framhýsi, alllangt frá baðstofu, í hálfdimmu horni: lítið var þar annað til skjóls en íataleppar hans, sem oft voru þá blautir eftir vosbúð dagsins — og svo hinn ómissantíi félagi smal- ans um allar aldir, hinn tryggi vin- ur, hundurinn, sem hann lét sofa til fóta sinna, og höfðu þeir ylinn hvcr af öðrum, andlega og líkam- lega. Eitt kvöld, sem fvrr segir, í ágúst voru þeir félagar komnir í fletið sitt, eftir að' hafa rekið ærn- ar. Krollur var i þeim og sofnaði drengurinn þvi ekki þegar í stað, sem hann annars var vanur. Þegar honum fór að birta fyrir augum, tók hann eftir einhverju óvæntu í horninu innan við sig, á ská yfir skemmuna. Þetta dró með einhverj- um geig að sér athyglina, svo að hann gat ekki látiö vera að athuga það nánar. Þetta var þá likkista barnsins, sem dáið hafði, svartmál- uð að þeirrar tí'ðar sið; en það, sem vakti a-thyglina fyrst, voru skrúf- urnar, sem glampaði ofurlítið á. Barnið hafði verið kistulagt og bor- ið þarna fram, og fóikið síðan geng- ið til náða, en þess ekki verið gætt að minnast á þetta við smalann, livað þá meira. Drengurinn varð ofsahræddur við þessa uppgötvun og datt ekki til hugar annað en flótii frá þessari skelfingu, sem kom þarna alveg ó- vænt og rak smiðshöggið á lang- varandi örðugleika munaðarleys- ingjans. ,En hann var þó furðu stilltur, því hann tók saman lepp- ana sína og bar þá með sér út, en þá voru hans jarðnesku auðæfi upp talin að mestu. En þá kom skyldu- ræknin til sögunnar. Honum hafði verið trúað fyrir ánum, og þeim trúnaði fann hann sig ekki geta brugðizt, þótt mörgu hefði veriö á- fátt í aðbúð og viðurgjörningi. Fólk var allt í fastasvefni, en litli hnokk- inn rölti einn af stað undir nótt- ina, sótti ærnar allar, sem hann var nýskilinn við, og rak þær heim undir tún. Síðan tók hann fata- pinkilinn sinn og gekk frá bænum, alfarinn, með tryggðavininn sinn, smalahundinn, einan til fjdgdar sem fyrr. Þegar hann fluttist norður, kom hann í fylgd meö Sveinunga í Byrgi, og þá yfir Tunguheiði, en hann var ákveðinn í því að fara ekki þá leið, því hann vildi ekki verða stöðv aður. Hann vissi, aö til var önnur leið heldur beinni, en löng milli bæja, um Bláskóga- og Reylcja- heiði; vissi deili þar á stefnu og hæstu fjöllum, en hafði aldrei far- ið hana. Þessa stefnu tók hann og komst um nóttina yfir Bláskóga- heiði og upp á Reykjaheiði sem leið lá, langt innan við Fjöll. Með degi gerði svartaþoku og týndi hann þá, á svokölluöum Hellum, troðningum þeim, sem yfir heiðina lágu og hann hafði fylgt. En hann var rólegur enn. í stað þess aö æða eða æðrast, hélt hann að mestu kyrru fyrir, nema hvað hann leitaði lítt þroskaðra berja og át þau við ásæknum sulti. Ein- hverju þurfti hann að nærast, því ekkert var nestið, en biti hafði að venju beðið hans, þegar hann kom frá ánum um kvöldið áður. Ekki sá til sólar; var þetta því dauflegur dagur, með dapurlegri nótt á eftir, en þó lagðist sú likn með þraut, að veðrið var stillt og milt. Daginn eftir sá snemma til sólar. Áttaði hann sig þá þegar, og má nærri geta, að hann varð sólskin- inu feginn eins og fleiri, sem í raun- ir rata. Sjóndeildarhringurinn víkk- aði óðum, og brátt þóttist hann viss um, að hann væri nokkru innar en vera bar; breytti stefnu eftir því og kom þá áður en langt leið á götuslóða, sem hann fylgdi síðan alla leið aö Heiðarbót (I Reykja- hverfi) og kom þar litlu eftir há- degi. Þar bjuggu þá ung hjón. Þegar drengurinn kvaddi dyra, kom kon- an út og baö fyrir sér,.þegar hún sá útganginn á barninu. M. a. var hann búinn að ganga af sér bæði skó og sokka og hafði rifið lyng til þess að troða i skóna og hlífa svo fótunum, en það var þrautaráð margra göngumanna, meðan hinir óhentugu og haldlitlu íslenzku skór voru það eina, sem þjóðin hafði á fæturna. Drengurinn sagði í sem stytztu máli sögu sína, en vegna barnaveik- innar bað hún hann innilega af- sökunar á, að hún þyröi ekki að bjóða honum. En hún bað hann að bíða sín og kom að vörmu spori aft- ur með ágætis mat, nógan og nota- legan og færði litla ferðalangnum út í góðviðrið. Má nærri geta, að maturinn var með þökkum þeginn; síðan sótti hún bæði sokka og skó, sem hún gaf honum. Var þá þreyt- an horfin og allt andstreymi gleymt í bráð. Visaði hún honum síðan á leið til Húsavikur og kvaddi hann með þeirri alúð og hlýju, sem er og verður aðalsmerki íslenzkra hús- mæðra. Harmar Sveinn það enn í dag að muna ekki nafn þessarar gæðakonu, þvi fáar velgjörðir hafa honum orðið minnisstæðari en al- úðlegar viðtökur hennar. Frá Heiðarbót hélt Sveinn litli hress í lund og léttur í spcri. Þegar dró út undir Laxamýri fór hann að kannast við landslagiö og hugur- inn að bera hann hálfa leiö, til fyr- irheitna landsins út með flóanum; náði hann heim til móður sinnar, síðla dags. Sem nærri má geta þótt- ist hún heimta hann úr helju, vegna þess að Flóvent, fyrrv. húsbóndi hans, var kominn til Ilúsavíkur að leita hans, en þar hafði enginn orð- ið hans var. Þegar komiö var á fæt- ur á Eyvindarstöðum eftir hina skyndilegu brottför Sveins, þótti undarlega við bregða, að ærnar voru allar heima við, en smalinn horfinn. P'yrst var sent út að Keldu- nesi og síðan á aðra næstu bæi, en þegar ekkert spurðist um drenginn, var safnaö mönnum og leitað skipulega inn yfir Tunguheiði, án árangurs. Þaöan var svo Flóvent. bóndi kominn að tilkynna hvarfið, sem fyrr segir. Það fréttist nú brátt, að drengur- inn var kominn fram, og kvaddi hreppsnefndin hann þegar um kvöltíið á fund sinn. Þar var Fló- vent lika stefndur, og hafði þegar látið í ljós ósk um að fá drenginn aftur heim með sér. Sveinn litli var ekkert upplitsbrattur, þegar hann gekk fyrir þessa höfðingja einn síns liðs. Þórður Guðjohnsen, sem tal- inn var allharður í horn að taka, Framh. á bls. 26.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.