Tíminn - 25.03.1956, Side 6

Tíminn - 25.03.1956, Side 6
6 T í MI N N, sunnudaginn 25. marz 1958 $_______<? Útgefandi: Framsóknarflokkurinn. Ritstjórar: Haukur Snorrason Þórarinn Þórarinsson (áb.). Skrifstofur I Edduhúsi við Lindargötu. Símar: 81300, 81301, 81302 (ritstj. og blaðamenn), auglýsingar 82523, afgreiðsla 2323. Prentsmiðjan Edda h.f. \k geter mig.. íí r'RÆG ER SAGAN um manninn, er ' .aö í> l' konu með milligöngu íjály rmanns, sem hann vissi ið kunni betur að haga orðum :n hann sjálfur. Þegar biðlinum skildist, að ijálparmanninum hafði tekist að ná samkomulagi, gekk hann fram og sagði borginmannlegur; ,,Nú getur mig“. Þessi bónorðssaga hefir mörg- um skemmt. FLESTAR SÖGUR eiga sér hliðstæður. Sjálfstæðisflokkurinn eða heir, sem þar ráða mestu. hafa öft minnt á biðilinn. Engan háðfugl þart til að sjá það. Vinnubrögðin eru svo lík og öinir borginmannlegu tilburðir á vissum augnablikum. Lítum til ársins 1942. Þá var kornið sæmilegt fjárhagsástand hjá íslenzku þjóðinni. „Nú get- ur mig“, sagði Sjálfstæðisflokk- urinn. Samþykkti að breyta kjördæmaskipun og hugðist með því fjölga þingmönnum sínum. „Nú getur mig stjórnað landinu“, sagði hann, stjórnaði nokkra mánuði með keyptri að- stoð Kommúnista, jók dýrtíð um B9%, tvöfaldáði tölu kommún- ista á Alþingi, blés lífsanda í nasir þeim, — og hrökklaðist síðan frá völdum með fullkom- inni háðung. EFTIR AÐ utanþingsstjórn hafði hreinsað húsið eftir stjórn Sjálfstæðisflokksins, lcomið fjár málunum á réttari kjöl; inn- stæður höfðu safnast erlendis að upphæð einn miljarður og tvö huudruð miljónum króna betur með núverandi gengi — en það sr margfalt meira en þjóðin hef- ir nokkurntíma fyrr eða síðar átt í erlendum gjaldeyri — þá gengu ráðamenn Sjálfstæðis- flokksins aftur fram og voru miklir á lofti. „Nú getur mig“, sögðu þeir. Þeim sýndist að nú hlyti að vera auðvelt að fara með landsstjórnina, enda eng- inn vafi á því, að svo var. Sjálfstæðisflokkurinn tók kommúnista í ríkisstjórnina með sér. „Mig“ setti það ekki fyrir sig. Þeir notuðu tækifærið og gerðu sér og sínum hér og þar í ríkisstofnunum hreiður, þar sem enn er legið á eggjum og ungað út. Menn höfðu haldið, að rík- isstjórn gæti ekki endað skeið sitt með meiri hóðung en stjórn tn frá 1942. En þessi sló metið, því að þegar hún valt frá völd- am hafði hún étið upp allan gjaldeyrisauðinn, komið sjávar- útveginum á ríkisstyrk — stýrt pjóðarskútunni upp á sker í góða veðrinu. Og þar sat hún er brima tók. Enn var stjórnin tekin af Sjálfstæðinu ,enda varð hún strax krókloppin, þegar veðrið oreyttist. Enn tókst að rétta nokkuð /ið, þótt tjónið af glapstjórn pessari undir forustu Sjálfstæð- ■sflokksins væri óbætanlegt. ÁRIÐ 1953 var fjárhagslegt jafnvægi að skapazt og sparifé ;afnaðist meira en nokkru sinni. En það slys henti þjóðina það ár í alþingiskosningum, að tjölga þingmönnum Sjálfstæð- isflokksins. Hann tapaði að vísu í heildaratkvæðatölu, svo sem jafnan hefir verið í seinni tíð, en slysaðist samt til að vinna á í þingmannatölu. Þetta, samfara sæmilegu ástandi í fjárhagsmál tim þjóðarinnar, hleypti móði í Sjálfstæðisflokkinn. Harm hreykti sér og sagði digurbarka- lega: „Nú getur mig“. Enn tók hann forsæti í ríkis- stjórn. Þingmannafjölgunin veitti honum einskonar ,.rétt“ til þess. AHt skal frjálst, kvað hann, innílutningur eins cg hver vill og framkvæmdir eftir gcð- þótta livers og eins. ðleS bíla- innflutningi skal bæta hag tog- araúfgeroarinnar o.s.frv., o.s.frv. Margt var að vísu gert til nyíja. Engum er alls varnað. Sterkir umbótamenn frá Fram- sóknarflokknum áttu líka sæti með' Sjálfstæðisflokknum í þessari stjórn. Á þeirra starfs- sviðum voru afrek unnin, sem þakka ber, og áhrifa frá þeim mönnum hefir óneitanlega gætt til mikilla bóta í starfsemi stjórnarinnar í heild. En svo óhæfur er „Nú getur mig“ — flokkurinn til þess að fara með stjórn landsmálanna, að þrátt fyrir það, sem stjórnm hefir vel gert, þá endurtekur sig hin óviðráðanlega saga þess flokks: hann stýrir út í ófærur. Hans stjórnarsaga hefir alltaf verið sú að grípa góð tækifæri sem gefist hafa þjóðinni og aðr- ir skapað, — og glata þeim fyrir henni að því leyti, sem öðrum hefir ekki tekizt að forða frá því. AÐ ÞESSU SINNI er enn svo komið að samstarfsflokkur- inn hlýtur að hætta að taka þátt í stjórn með honum, — og stofna til kosninga, svo þjóð- inni gefist kostur á að leysa Alþingi úr þeim álögum, að það geti ekki myndað ríkisstjórn, neina í henni sé anr.ar hvor eða báðir: Sjálfstæðisflokkurinn og Kommúnistaflokkurinn. Kosningabandalag Framsókn- arflokksins og Alþýðuflokksins gefur betra tækifæri en nokkru sinni áður hefir til þess gefist. Þar er þriðja aflið, sem þjóðin á auðvelt með að gera ofjarl hinna ógiftusamlegu aflanna tveggja. FORSJÁRMENN Sjálfstæð isflokksins hafa verið daufir í dálkinn undar.farna daga. Þeir vilja ekki stjórnarslit, þingrof og kosningar. Svo mikil er trú þcirp'a á Framsóknarflokíánn, að þeir halda, að hann gæti, of harn túui, rennt fyrir þá sköp- un þenra sjálfra, og bjargað málunum, héldi hann áfram í ríkissíjórninni með þeim. En þeirra sköpum er ekki hægt að renna. Þegar Sjálfstæðisflokkurinn stendur aleinn segir hann ekki, frekar en biðillinn, „Nú getur mig“. Sjálfstæðismenn létu Ingólf Jónsson, viðskiptamálaráðherra, að vísu bera fram tillögur, sem þeir kölluðu „bjargráð“, en þau „bjargráð“ voru svo vesæl, að í þeim fólst ekki „Nú getur mig“, heldur bara aumkunar- vert: „Mér langar“! Framsóknarmenn spurðu þingflokk Kommúnista, hvort það væri meiningin að þeir hugsuðu sér að veita stjórn Framsóknar- og Alþýðuflokks- ins, ef til kæmi, hlutleysi fram yfir kosningar, eins og fjöldi flokksbræðra þeirra víðsvegar um land, segði að þeir vildu gera, til þess að greiða fyrir myndun vinstri samvinnu og eyða áhrifum íhaldsins. Komm- ar neituðu þvi, nerna borgun kæmi fyrir. Þá hýrnaði yfir Sjálfstæðís- forkólfunum. Þeirn datt urn Teistan ÍSLENZKA TEISTAN er stranda- og grunnsævisfugl all- an ársins hring. Hún gerir því ekki eins víðreist og margir aðr ir sjófuglar íslenzkir, sem hverfa til nafs eða leita suður á stund í hug að gera kaup á kommúnistum. Og þeir ínundu vissulega gera þau, of þeim væri ekki að verða ljóst, að á- standið er orðið þannig í fjár- hagsmálum þjóðarinnar og at- vinnumálum, a'ð „Nú getur mig“ — ekkert. í GÆR SAGÐI Morgun- blaðið: „Eina leiðin. . er að fá Sjálfstæðisflokknum lireinan þingmeirihluta“. En blaðið gleymir því, sem biðilinum var ljóst fyrir sitt leyti. Það gleymir því — eða læst ekki muna — að Sjálfstæð- isflokkurinn hefir aldrei getað neitt í ríkisstjórn, nema aðrir hafi búið í haginn fyrir hann. Þá hefir hann borginmannlegur sagt „Nú getur mig“. Og í hvert skipti, sem hann ’nefir tekið við stjórnarforustu hefir hann sett allt í hundana. Hann er orðinn svo margreyndur að þessu, en aldrei á aðra leið, að óhætt er að slá því föstu, að hann gelur ekki annað. Á honum hvilir sá for- lagadómur. Þjóðin hlýtur nú að hafa gert sér þetta ljóst og muna það. „Eina leiðin“, sem Morgun- blaðið talar um í gær, — leið Sjálfstæðisflokksins — liggur út í ófæruna nú sem áður. bóginn þegar vetur gengur í garð. Enn sem komið er hefir lítið verið merkt af teistu hér á landi, og við vitum því ekki, að hve miklu levti hún kann að flytja sig til milli landshluta, en margt bendir til þess, að hún sé gædd óvenju mikilli átthaga- tryggð, og öruggt má teljast, að hún hverfi aldrei frá ströndum landsins. Hins vegar er ekki óhugsandi, að sumt af þeim teistum, sem lilda sig' á fjörðum norðanlands og austan á veturnar, séu að- komufuglar norðan úr höfum. íshafsteistan er nokkru stærri en íslenzka teistan og teist vera sérstök deiiitegund. Með söfnun vetrarfugla á þessum slóðum ætti því að vera hægt aS fá úr því skorið, hvort íshafsteistan kemur upp að landinu á vet- urna, en því miður hefir þetta ekki verið athugað enn sem komið er. ALLIR, SEM ÞEKK-JA teistuna aí eigin raun, munu samrnála um það, að hún sé ó- venju snotur og aðlaðandi fugl. Hún er spengilega vaxin og sam svarar sér vel. í varpbúningi er liún svört á lit með grænleitri slikju og stórum hvítum skell- um á vængjunum. Nefið er svart, en gómar og tunga hvort tveggja blóðrautt. Fæturnir eru fagurrauðir. Þegar hausta tek- ur klæðist teistan vetrarbún- ingnum og verður þá hvít- og gráflekkótt. Ungfuglar ó fyrsta vetri eru svipaðir á lit, en þekkj- ast þó ávallt frá fullorðnum fuglum á því, að livítu speglarn ]||||||l!lllllllllllllll||||||||||||||||||||||||||||||||m|mmm||r ir á vængjunum eru með mó- | leitum dílum, en á fullorðnum § fuglum eru þeir hreinhvítir. | VARPHEIMKYNNI teist- 1 nnnar eru klettóttar og grýttar 1 strendur, bæði á annesjum og | innfjarða, þar sem völ er á = h'éntugum hreiðurholum eða 1 smugum, því að hún verpur I aidrei á bersvæði. Varptími | teistunnar er fyrri hluti júní- | mánaðar. Hún á tvö egg og er að 1 því leyti frábrugðin öllum öðr- | um svartfuglum, sem aðeins 1 eiga eitt egg. Eggjunum er orp- | ið á bert berg eða möl. Um | hreiðurgerð er því ekki að § ræða, en þó er smásteinvölum | eða skeljabrotum oft hagrætt I undir eggjunum eða í kingum | þau. | TEISTAN er að jafnaði 1 hæglát og prúður fugl og kröf- í ur hennar til lífsins eru hvorki | miklar né margþættar. Sæmileg 1 aflabrögð og hentug smuga í | urð eða bjargi, þar sem hún | (Framh. á 8. síðu.) | aiiiiiiiii(iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiuum||||iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii|||||||iii||imi MUNIR OG MINJAR: LENG HEFUR ÞAÐ verið á vitorði manna, að í bænum í Flatatungu í Skagafirði geymd- ust leifar af útskornum þiljum, sem taldar voru úr afarfornum skála, er eigðnaður var frægasta smið íornaldar, Þórði hreðu. Sá góði maður er þó nánast þjóð- sagnapersóna og vissast að blanda honum varlega í þetta mál. Jónas Hallgrímsson hefir fyrstur manna lýst þessum út- skurði og dregið upp nokkrar myndir af honum. Síðar ber hann hvað eftir annað á góma hjá fornfræðingum 19. aldar, en útskornu fjalirnar héldu áfram að týna tölunni við nýjar og nýj ar endurbyggingar og nokkrar þeirra toríimdust í eldi, er búrið brann í Flatatungu 1893, skömmu eítir að þáverandi bóndi þar hafði loíað að gefa F orngripasafninu f j alirnar. Gamli failegi bærinn í Flata- tungu var loks rifinn og jafn- aður við jörðu 1952. Hjónin í Tungu, Sígríður Gunnarsdóttir og Oddur Einarsson, sýndu þá þann þegnskap ao gefa Þjóð- minjasafninu þá fjóra útskorna fjalarstúfa, sem til voru í bæn- um ,enda var ekki meira eftir skilið, þegar bruninn varð. Á þessa fjóra fjalarstúfa eru grafnar elztu kristilegar mynd- ir, sem til eru meðal íslenzkra minja. EF EKKI HEFÐI varð- veitzt nema sú fjöl ein, sem myndin er af væri óhægt að segja, hversu gamall þessi út- skurður er. En á hinum fjölun- um þremur er einnig mikið og sérkennilegt skrautverk, sem tekur af tvímæli um, að allur útskurðurinn er í svonefndum Hringaríkisstíl, sem mjög yar í hávegum hafður á Norðurlönd- um og Englandi á 11. öld. Þar liefur hann einkum varðveilzt á rúna- og myndsteinum, en Flata- tungufjalirnar eru einu þekktu tréskurðarminjar hans og því ó- smátt búsílag fyrir rannsókn stílsins. Hringaríkisstíll er tal- inn síðasta af'brigði fornnor- rænnar skreytilistar, hinn síð- asti víkingaaldarstíll, en manna- Helgir menn írá Flatatnngu myndir hans eru þó sýnilega með nokkrum frumrómönskum blæ og' benda til koiúandi tíoar. LÍTUM Á HINN helgn mann frá Flaíatungu. Hann er dreginn með einföldum línum, verkið líkist meira teikningu, sem rist er með hnífsoddi, en venjulegum útskurði. Andlitið er markað með einum sporbaug, hár og geislabaugur hringar, hvor utan yfir öðrum. Maðurinn er í víðum kyrtii eða skikkju, sem fellur yfir arma hans. Hend ur eru upplyftar á brjósti, og blessar maðurinn hægri hendi, með uppréttum þremur fingr- um. Til hiiðar við þennan mann, sem mest sést af, stendur annar af sama tagi og drepur hendi á öxl honum e.ins og til aö vekja athygli hans á einhverju. Á hin- um fjöiunum öllum liafa verið sams konar menn. ENGINN EFI ER Á, a'ð á þiljunum á Flatatungu hefir ver ið samfelld röð af þessum helgu mönnum, en fyrir ofan þá frá- bærlega vel gert laufskrúð í Hringaríkisstíl, sem tímasetur verkið til miðrar 11. aldar. Ef til vill sýna þessar myndir Krist og postulana. Munnmæli herma, að þiljur þessar hafi frá upphafi verið í skála, en ekki virðist þó ósennilegt, að þær hafi í önd- verðu verið gerðar fyrir kirkju, því að kirkja var í Tungu á mið- öldum og bænhús stóð þar langt fram yfir siðaskipti. En hvað sem því líður má telja víst, að þessar merkilegu myndir séu góð sýnishorn dýrlingmynda þeirra, sem tíðkazt hafa í ís- lenzkri frumkristni, á 11. öld, á dögum ísleifs biskups, Sæmund ar prests og Ara fróða, svo að nefndir séu nokkrir menn, sem umgengizt hafa slíkar myndir sem lifandi samtíðarlist í kirkj- um sínum. Kristján Eldjárn.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.