Tíminn - 19.09.1956, Page 1
Jylgizt með tímanum og lesiS
TÍMANN. Askriftarsímar 2323 og
61300. Tíminn flytur mest og fjöl-
breyttast almennt lesefni.
10. árgangur
Reykjavík, miðvikudaginn 19. september 1956.
síður
Frá Napóleon Frakkakeisara, bls. 4
íþróttir, bls. 4.
Grein um Siglufjörð, bls. 5.
Horfurnar í Súezdeilunni, bls. 6.
Dúnkonan á Miðhúsum, bls. 7.
211. blað.
KlenÍEni Kristjánsson tilraunastjóri á Sámsstö£.jm með kornbindi
Samkvœmt nýlegum manntals-
skýrslum frá Grænlandi skýra!
dönsk blöð frá því að íbúar lands j
ins séu nú um 26 þúsund að tölu.
Flestir þeirra búa á Vestur-Græn
landi, eða 23 þúsund. Á Austur
Grænlandi búa 1863 og 421 á
Thule. Konur eru nokkru fleiri, en
karlmenn ,eða 1093 konur á móti
hverjum 1000 karlmönnum.
Rætt vi<5 Klemenz Kristjánsson tilraunastjóra
— Kornið mun ná sæmilegum þroska á þessu ári og nýtast
vel, ef við fáum svo sem vikugóðviðri enn, sagði Klemenz
Kristjánsson á Sámsstöðum, er blaðið átti tal við hann í gær.
Vegna kulda um mitt sumarið mun vaxtartíminn þó verða um
10 dögum lengri en í meðalári. Sólskin í ágúst og mild veður
í september bættu upp kalda júní- og júlímánuði.
á köfnunarefnisá-
burði hefir áttfaldast á fimmtán árum
Áburðarnotkun landbúnaðarins hér á landi hefir vaxið svo
geysilega síðustu árin, að tölurnar vekja furðu manns, og eru
þær talandi tákn um hinar stórtæku ræktunarframkvæmdir
síðustu ára. Aukningin ein síðasta ár var töluvert meiri en
allur tilbúinn áburður, sem notaður var hér árið 1939. Blaðið
fékk nokkrar upplýsingar uin þetta hjá stjórn Áburðarverk-
smiðjunnar í fyrradag.
Arið 1939 keyptu bændur og
notuðu alls 1950, smálestir af til
búnum, erlendum köfnunarefns-
áburði, sem svarar til Kjarna-
áburðar. Tíu árum síðar, eða 1949
er þessi áburðarnotkun komin upp
í 7008 smálestir og vex þetta magn
síðan jafnt og þétt. Árið 1954 var
notkun köfnunarefnisáburðar
12687 smálestir, árið 1955 urðu
það 14200 smálestir og á þessu ári
16500 smálestir. Aukning síðustu
fjögurra ára einna er því um 9300
smálestir, og árleg meðalaukning
þessi ár 2325 smálestir.
að líkindum um 22 þús. lestir á
ári, ef raímagnsskortur tefur hana
ekki, en það munu varla líða nema
2—3 ár þangað til landbúnaðurinn
þarfnast þess magns árlega. Það er
því mjög skynsamleg ráðstöfun
hjá, verksmiðjustjórninni að hætta
nú útflutningi áburðar en taka að
safna birgðum til þess að geta
nú á næstunni átt á hverju ári
nokkrar birgðir til næsta árs og
þannig lengt þann tíma, sem verk-
smiðjan fullnægir þörfinni.
| Eg er búinn að slá og stakka
j nokkuð af korni hér heima á Sáms
: stöðum og er það vel þroskað. Ég
! mun hins vegar ekki slá kornakr-
ana á Rangársandi og á Hvolsvelli
i fyrr en í næstu viku. Kornið þar
i er einmitt að verða íullþroska
þessa dagana, sagði Klemenz enn-
^ fremur.
Kaldir júní og júlí.
j Korninu var sáð síðustu dagana
í apríl og fyrstu dagana í maí. All-
gott var í maí, en júní varð mjög
kaldur, meðalhiti hans 7,G gráður
og er það um 2 gráðum minna en
meðallag. Júlí varð einnig kaldari
en í meðaliugi.'Köfnið þroskaðist
því seinr'ög" leit illa út í ágúst-
byrjun. En þegar leið á ágúst batn-
aði útlitið. Ágúst varð mjög sól-
ríkur, einkum síðari hluti hans, og
það sem af er september hefir ver-
ið milt veður. Það sem einkennt
„Eins mig fýsir ailiaf þó, aftur að fara í göngur“
hefir septemberveðrið og gert það
óvenjulegt eru hin miklu lognviðri,
oftast hæg gola og aldrei komið
hvassviðri. Kornið stendur því
mjög vel og er nú að ná fullum
þroska. En vegna kuldanna framan
af er það um 10 dögum síðar full-
þroska en í meðalári.
Kartöfluuppskeran misjöfn.
Nú læt ég kornið bíða þessa
viku og treysti á góðviðri næstu
I daga. Við erum að taka upp kart-
öflurnar. Uppskeran er mjög mis-
jöfn. Grasið féll í ágústfrostunum
1 og stytti það vaxtartímann. Tölu-
verð uppskera mun þó fást, sagði
Klemenz. Kartöflur eru í þrem'
! dagsláttum.
I
Kornsláttur í næstu viku.
— Eftir helgina mun ég svo
hefja kornsláttinn aftur og lýk
honum á fáum dögum, ef góð-
viðrið helzt. Heima er mest bygg,
og það er að mestu búið að slá.
Á Rangársandi er frærækt, aðal-
lega vallarfoxgras, rúgur, bygg
og hafrar. Það slæ ég næst. Þetta
eru akrar tilraunastöðvarinnar. Á
Hvolsvelli Iief ég svo sjálfur 6
hektara undir korni, mest hafra.
Það slæ ég síðast. Ef vel gengur,
munu fást hátt á annað hundrað
tunnur af korni. Mikið af því fer
í útsæði.
20 lestir af heymjöli.
Þá hafa verið framleiddar á
Sámsstöðum í sumar um 20 smá-
lestir af heymjöli. Það fer mest til
Reykjavíkur og er notað í hænsna-
fóður og þykir mjög gott. Hér
vantar þó fullkomnari vélar til
heymjölsgerðar. Heymjöl hefir ver
ið unnið á Sámsstöðum á hverju
ári síðan 1948 nema í fyrra, þar
sem það var ekki hægt vegna vot-
viðra.
Umferðaráðstefna
í London
i
London, 18. sept. — Yfir 100
fulltrúar frá brezku samveldislönd-
unum og mörgum öðrum ríkjum,
þar á meðal Sovétríkjunum og
Egyptalandi, eru mættir á ráð-
stefnu í London til að fjalla um
umferðamál stórborganna. Forseti
ráðstefnunnar, brezkur lávarður,
sagði, að allar stórborgir væru í
hinum mestu vandræðum vegna
umferðaöngþveitis. Það væru of-
mörg vélknúin farartæki og of-
margt fótgangandi fólk. Helzta
ráðið við þessu er talið að gera
umferðaæðar sem eingöngu eru
ætlaðar fyrir hverja tegund öku-
tækja fyrir sig. Mætti þannig
tryggja örari umferð og öruggari.
Samhliða aukning fosfór-áburðar.
Árið 1939 notuðu bændur aðeins
584 lestir af þrífosfati, en það hef
ir einnig farið jafnt og þétt
andi, var árið 1949 orðið 2197
lestir, árið 1955 fimm þúsund smá
lestir og á þessu ári 6000
Mun þó notkun fosfór-áburðar vera
minni en þörf er á. Sést á þessu,
að þörfin á því að byggja sem allra
fyrst verksmiðju, er framleiði fos
for-áburð, er mjög brýn og þarf
að hefjast handa á því verki þeg
ar í stað, eins og stjórn Áburðar
verksmiðjunnar áformar nú og
skýrt var frá hér í blaðinu í gær.
Áburðarþörfin enn vaxandi.
Hin geysilega aukning á notkun
köfnunarefnisáburðar sýnir og, að
við erum ekki lengur aflögufærir
með hann. Verksmiðjan framleiðir
Háskóíafyrirlestur um
æðri skóla í Rússlandi
Vararektor háskólans í Moskvu,
prófessor Ivanov, flytur fyrirlestur
í I. kennslustofu háskólans í dag,
miðvikudaginn 19. sept. kl. 6 e. h.
um æðri S.kóla í Sovétríkjunum.
Fyrirlesturinn verður fluttur á ís
lenzku og er öllum heimill aðgang
ur.
Margir eru þeir íslendingar, sem hafa a barns- og unglingsárum beð'ið þess með logandi eftirvæntingu að sjá
safnið koma niður hiiðina á leið til réttar. Og þessi eftirvænting dvín ekki með árunum og þessi sýn vekur sömu
kenndir, þótt menn hætti að búa í sveit og eigi enga kind í safninu. Menn hætta með árunum að hlakka til jóla
°g tyllidaga, en tilhlökkun barnsáranna eftir að sjá fjársafnið og fara í réttir dvín ekki. Og nú eru göngur og
réttir um alit land, og fólkið streymir í réttirnar engu síður en féð. Þetta er alkunn gangnamynd. Hún hefir birit
í mörgum myndabókum frá íslandi, og hún er víða til. Hún hangir til dæmis mjög stækkuð á einum' vegg her-
bergis í Búnaðarbankanum, og þar á hún vel heima. Hún á að minna ykkur á gleði réttardaganna, einkum ykk-
ur, sem ekki komiit í réttirnar sjálfir.
Kornið þroskast vel þrátt fyrir
mjög kaldan júní- og júlímánuð
26 þús. íbúar
á Grænlandi
Þurfti þó tíu dögum lengri vaxtartíma en í
meðalári. Kornsláttur hafinn á Sámsstöð-
um en fer þó aðallega fram í næstu viku