Tíminn - 07.03.1957, Qupperneq 3

Tíminn - 07.03.1957, Qupperneq 3
TÍMINN, fimmtudaginn 7. marz 1957. 3 Nýverið hefir verið lagt fram á Alþingi frumvarp til umferðarlaga. Frumvarp þetta er samið af fimm I rr.anna nefnd, er skipuð var öndvert ár 1955. Lauk nefnd- in störfum síðla sumars 1956. Frumvarpið er all rækilegt, ef til viil um of, því að bæði er þar um lítfr þarfar endur- tekningar að ræða, svo og eru tekin upp í það mörg á- kvæði, sem tíðkanlegt er að geyma í reglugerðum og sam þykktum. Það er alltaf hætta ná því að aðalatriðunum verði drekkt í aukaatriðum, ef aukaatriðin fá að leika um of lausum hala í lögum. Lög eiga einvörðungu að geyma kjarna hvers máls, þ.e. aðalatrið- in, vera skýr og stuttorð, svo sem kostur er ,en reglugerðir og sam- þykktir eru til íyllingar og nán- ari útfærslu á lögunum. Það er þó visst hagræði að hafa ýtarleg- ar umferðareglur í einum og sömu lögum, auk þess sem það stuðlar að meira samræmi í umferðarregl- um um land allt. Nýmæli Frumvarpið geymir mörg ný- mæli, svo sem akvæði um um- ferð, búnað ökutækja,. tryggingar, ölvun við akstur, viðurtög o.fl. — Hafa nefndarmenn auðsjáanlega kappkostað að leysa þau viðfangs- efni, sem aukinn bílakostur lands manna hefir skapaö hin síðari ár. Má í þessu sambandi drepa t. d. á ákvæði, er lúta að því að gera umferð alla greiðari og öruggari, svo sem ákvæðin um akstur á ak- brautum, sem skiptar eru í svokall- aða akreiti, heimild til að aka ýmiet hægra eða vinstra megin fram úr ökutækjum á slíkum mörkuðum akbrautum, svo og á- kvæðin um hámarksökuhraða, sem gert er ráð fyrir að verði 45 km. í þéttbýli og' 70 km. í strjál- býli. Er það mikil bót frá því, sem nú gildir, en sem kunnugt er, er hámarkshraði 60 km. í strjál- býli og yfirleitt 25—30 km í þétt- býli. Þessi ákvæði eru löngu úr- elt. Allir brutu þessi lög, löggæzlu menn sem aðrir. Slík úrelt lög eru verri en engin .Þau stuðla að virð ingarleysi fyrir lögunum, virð- ingarleysi, sem yfirfærist yfir á önnur lög, sem eiga fyllsta rétt á sér eða með öðrum orðum, þau leiða til slævðrar vitundar úm þýðing og helgi laga almennt. Heildarsvipur frumvarpsins er með ágætum og yröi hin mesta bót að, ef það yrði að lögum. Þó eru nokkur mikilvæg atriði, sem ég vildi leyfa mér að gera athuga semd við og koma með eins kon- ar breytingatillögur við. Er þá komið að því, sem er hin raun- verulega kveikja þessarar grein- ar. Ölvun við akstur, ákvæði frv. Atriði þessi eru ákvæði frum- varpsins um ölvun við akstur, refs ingar og réttarfar í málum vegna ölvunar við akstur. Mál vegna ölvunar við akstur ökutækis hafa oft og tíðum reynzt dómstólum óþjál viðfangs. Sönn- un fyrir ölvun manns, er grun- aður um að hafa v.erið með áfeng- isáhrifum við akstur, byggist, ef eigi kemur einnig til játning söku nauts, á vætti vitna, aðallega lög- reglumanna, og rannsókn á áfeng ismagni í blóði sakbornings. Menn bera vín all misjafnlega vel, svo sem kunnugt er ,og vitni all mis- jafnlega glögg á að greina áfengis áhrif í fari manna. Það heyrir til hreinna undantekninga, að sér- fróðir menn (læknar) séu kvadd- ir til að sannreyna, hvort sak- borningurinn sé með áfengisáhrif um eða ekki. Niðurstaða blóðrann sóknar er aðeins eitt sönnunar- gagnið af fleirum, er afla verður, en ræður aldrei ein sér úrslitum um það, að sakborinn maður telj- ist með áfengisáhrifum. Hefir þetta allt saman leitt til þess, að jnargur maðurinn hefir sloppið við réttmæta refsingu fyrir ölvun við akstur ökutækis, þrá.tt fyrir mikið áfengismagn í blóði. Nú eru lippi ráðagerðir um að setja ræki- Guðm. Ingi Sigurðsson, sakadómarafullírúi: Orðið er frjálst Frumvarp tii umferðalaga lega undir þenna leka. Hefði það mátt vera fyrr. Um þetta segir í frumvarpinu, að ef vínandamagn í blóði manns reynist 0,60Ko til 1.30%c, telst hann eigi hafa getað stjórnað ökutæki örugglega. Ef vínandamagnið í blóði manns nem ur 1.30%« eða meira telst hann hafa verið óhæfur til að stjórna ökutæki. Hér er því verið að inn- leiða hina svokölluðu tækinlegu eða vísindalegu sönnun fyrir ölv- un manns, sem grunaður er um ölvunarakstur. Er þetta í samræmi við það, sem tíðkast víða erlendis. Ef regla þessi verður að lögum, verða mál vegna ölvunar við akst ur, í ílestum tilvikum barnaleikur einn. Þá er búið svo um hnútana, að hafi ökumaður neytt áfengis við akstur eða fyrir hann, þannig að vínandamagn í blóði hækkar eftir að akstri lauk, skal litið svo á, að hið aukna vínandamagn hafi verið í blóði hans við aksturinn. Með öðrum orðum, að dráttur á því að taka ökumanni blóð, getur iðulega leitt til þess, að hann nái 0,60%„ eða l,30yc löngu eftir að akstri lauk, jafnvel eftir að hann hafi ætlað að ljúka akstri. Getur þetta valdið ósanngjarnri niður- stöðu, sérstaklega þegar haft er í huga, að viðurlögin við því að hafa l,30((o.í blóðinu en meira eru að mun þyngri en ef mann hafa undir 1,30Zc, samanber nánar hér á eftir, er rætt verður um refsing- ar. Við hvað á að miða? Segja má að 0,60%o markið sé nokkuð lágt. Það mun láta nærri að maður, meðalþungur ,reynist hafa þetta mark (ca. 0.60%) tveimur klst. eftir að hann neytti tveggja-þriggja snafsa (40 gr.) af sterku áfangi með mat, en eftir 2 klst. nær áfengismagnið í blóð- inu hámarki. Hitt er alveg eins sennilegt, að maðurinn komi til með að hafa að mun minna áfeng- ismagn í blóði sínu. Eins og þeir vita gerzt, sem reynt hafa, þola menn mjög misjafnlega áfengi, og eru misjafnlega vel fyrirlcallaðir til að mæta áhrifum þess. Lík- lega er heppilegra að miða við 0.80;(o markið, eins og t.d. Svíar gera, og telja alla, er séu með þetta áfengismagn í blóðinu eða meira, með áfengisáhrifum, en halda jafnframt opinni leið til sakfellingar þeim, sem reynzt hafa haft minna áfengismagn í blóðinu, ef það sannast með öðrum ráðum, t.d. framburðum vitna og játningu brotamanns, að þeir hafi verið með áfengisáhrifum við akstur ökutækis. Með þessu móti yrði minni hætta á ranglæti í þessum efnum og auk þess minna mála- þras. Virðist almennu umferða- öryggi nógsamlega borgið með þessu móti. Brennivínsdrykkja og bílkeyrsla fer aldrei vel saman og er ástæðulaust að gera gælur við þá, er slíkt athæfi fremja, en hér sem ella verður að gæta hófs og sýna ekki óbilgirni. Sem fyrr getur er pro-mille reglan, eins og hún hefir verið kölluð, mjög handhæg til sönn- unar fyrir áfengisáhrifum öku- manns. Er sjálfsagt að leiða hana í lög. Að vísu er það reynsla þeirra er til þekkja, að mistök hafi á stundum átt sér stað með blóð, er tekið hefir verið til rannsókn- ar í þessu skyni. En okkur ætti ekki að vera vandara en öðrum um töku, meðferð og rannsókn slíkra blóðsýnishorna. Það veitir og aukna tryggingu fyrir því, að áfengi hafi raunverulega verið í blóði ökumanns, að lögreglan hef- ir tæki til að láta ökumenn, sem hún hefir ástæðu til að gruna um áfengisáhrif, anda í. Á tæki þetta að sýna, svo ekki leiki vafi á, hvort ökumaður hafi neytt áfengis eða ekki. Þetta ,ásamt niðurstöðu blóðrannsóknar, er sýndi t.d. 0,80 pro. mill eða meira, sbr. það, sem að framan greinir um neðri mörk in, ætti að vera næg sönnun fyrir áfengisneyzlu og því leiða til sak- fellingar. Skylt er að geta þess, að rang-. lega er hei-mt, er segir í athuga- semdum við frumvarpiö, að ekki muni hafa verið ákært í málum vegna ölvunar við akstur, ef sak- borningur hefði undir 0.80%c í blóð inu. Nokkrir menn hafa verið dóm felldir með minna magn. Eftirför lögreglu Rétt þykir að vekja athygli á einu atriði, sem frumvarpið geym ir ekki ákvæði um, en væri vissu- lega mikil þörf á, að tekin væri af staða til. Á ég við þau tilvik, sem eru nokkuð tíð, að ökumenn skjóta sér undan eftirför lögregl- unnar, sem grunar þá um ölvun við akstur, og aka í loftköstum heim til sín, eins og þeir væru með fjandann sjálfan á hælunum, loka að sér og hella í sig áfengi, eða þykjast hafa gert það, sem er sennilega algengara, og segja síðan, er lögreglan nær sambandi við þá eftir drykklanga stund, og ef til vill að fengnum húsleitar- úrskurði, að þeir hafi hafið drykkju eftir að akstri lauk. Hef- ir margur ökumaðurinn sloppið með þetta og máli hans lyktað með einhevrri smásekt fyrir of hraðan akstur og það, að hann sinnti ekki stöðvunarmerki lög- reglunnar. Mætti auðveldlega girða fyrir þetta með því að taka upp í frumvarpið ákvæði, er segði að viðurlög við slíku athæfi sem þessu skyldu a.m.k. vera þau sömu og fyrir ölvun við akstur. Refsiákvæði Þá er komið að öðru því atriði, sem var tilefni greinarkorns þessa. Mál vegna ölvunar við akstur munu vera nokkuð tíð hér á landi. Lágmarksrefsing sú, sem nú er tíðkanlegt að beita vegna ölvunar við akstur fyrsta sinn, er kr. 1500.00 í sekt og 6 mánaða öku- Ieyfissvipting, ef ekkert sérstaks eykur saknæmi brotsins. Þykir morgum sem ekki sé nógu strang- lega farið í sakirnar. Það vill svo verða um refsingar fyrir brot, sem algeng eru, eins og ölvun við akst- ur, að þær verða nokkuð fast- bundnar, taxtakenndar, ef svo má að orði kveða, og þegar svo er komið lialdast refsingar óbreytt- ar langa hríð. Þykir réttlætinu víst bezt þjónað með því móti í frumvarpinu er gert ráð fyrir að herða viðurlögin. Ef ökumaður er með 1.30%c eða meira í blóðinu skal hann skilyrðislaust dæmdur í refsivist, þ.e. varðhald eða fang elsi. Þeir, sem eru svo „lánsamir" að hafa undir 1.30%c, segjum t.d. 1,29%q, sleppa með sektarrefsingu, meðan meðbræður þeirra með 1.30%c og þar yfir, mega dúsa í tukthúsinu ákveðinn tíma, jafn- vel þótt þeir hafi, að öllu leyti, verið betur á sig komnir við akst- urinn. Það er sjálfsagt, að því drukknari menn eru við akstur, því þyngri regsingu eiga þeir að hljóta, en slík tilbúin skil sak- næmis brots, sem hér á að inn- leiða, slík skil tukthúss og sekta sem þessi, eru mjög óheppileg og munu reynast oft og tíðum rang- lát, eins og dæmið hér að ofan sýnir. Stuttar varðhalds- og fang- elsis-refsingar, en það gæti aldrei orðið um annað að ræða, hafa ekki gefið góða raun. Er þróunin, bæði hér og erlendis, sú, við á- kvörðun refsinga, að beita í æ ríkara mæli sektum í stað stuttrar refsivistar. Ákvæðið gengur því gegn þróuninni. í þeim tilvikum, sem beitt hefir verið stuttum refsi vistarrefsingum hér á landi, svo sem við ítrekuð brot vegna ölvun- ar við akstur, hefir raunin orðið sú, að refsingum hefir oftast verið breytt, með náðun, í sektir, bæði vegna skorts á fangarými og svo sökum þess, að mönnum hefir þótt lögin of ströng að þessu leyti, sbr. það, að árið 1951 varð sú breyting á bifreiðalögum, að menn skyldu sæta sektum fyrir ölvun við akst- ur fyrsta skipti, sem þeir hlytu dóm, en ekki refsivist, sem var áður skilyrðislaust. Þá hefir það ekki þótt góð regla, | að binda hendur dómara um of við ákvörðun refsinga. Lög eru samin með hin almennu tilvik í huga, en sakir margbreytni mann legs lífs skjóta undantekningar- tilvikin oftlega upp kollinum og mundi þá niðurstaða refsimáls geta orðið ósanngjörn, ef ekki beinlínis ranglát, ef dómari þyrfti að mæla refsingu eftir þröngum mælikvarða, sem löggjafinn hafði í huga við hin almennu tilvik. Refsirammarnir eiga, með öðrum orðum, að vera víðir. Samkvæmt gildandi lögum er ekkert því til fyrirstöðu að dæma í hærri sekt- ir én nú er gert fyrir ölvun við akstur, og er trúlegt að svo muni verða m.a. vegna minnkandi verð- gildis peninga. Það er skoðun mín, að þetta ákvæði um skilyrðislausa refsivist vegna ölvunar við akstur, er áfengisákvörðun í blóði brota- manns sýnir 1.30%c eða meira, eigi að afnemast úr frumvarpinu og gefa dómstólum frjálsar hendur að þessu leyti, svo sem nú gildir. Hið sama ætti og að gilda um önn- ur þau brot, þar sem frumvarpið gerir ráð fyrir skilyrðislausri refsi vist, svo sem akstur ökutækis eftir að menn hafa verið sviptir öku- leyfi. Dómur — dómsátt Að lokum vildi ég minnast á eitt atriði enn, sem er í nánum tengslum við það, sem nú hefir verið sagt um refsingar, og leitar raunar jafnframt af því. í 81. gr. frumvarpsins segir, að „svipting ökuleyfis eða réttar til að öðlast ökuleyfi skal gerð með dómi" (undirstrikun mín). Er þetta í samræmi við það, sem hefir gilt og gildir enn. Tvær eru leiðir réttarfarsins til að koma refsingu yfir brotamenn .Önnur er dóm- sátt, sem er fljótvirk, og beitt er við brot, er varða sektum. Verður sökunautur að hafa játað sök og að öðru leyti má eigi vera vafi um atriði, er kunna að hafa áhrif á refsinguna (sektina). Hin leiðin er að láta ganga dóm um sökina. Er sú leið seinfarin, krefst mikill- ar skriffinnsku og oft óþarfar. Dómstólum hefir oft, og á stund- um með réttu, verið legið á hálsi seinagangur um afgreiðslu mála. Margt er það, sem veldur slíkum drætti. Vcldur, hver á heldur, en réttarfarsreglur eru og þar þung- ar á metunum, enda sjálfsagt að búa svo um hnútana, að mál séu eigi dæmd fyrr en aflað hefir ver ið allra nauðsynlegra gagna, málið sótt og varið, ef því er að skipta, vegið ög virt. Með hinni teknisku sönnun í málum manna vegna ölv- unar við akstur er öflun sönnunar fyrir áfengisáhrifum brotamanns gerð einföld og all-örugg, þannig að mál þessi verða ekki marg- brotnari en hin smæstu og ein- földustu mál, svo sem t.d. mál vegna ólöglegrar stöðu bifreiðar, en þeim hefir jafnan verið skipað á bekk með hinum allra óbrotn- ustu málum. Ef nú liggur fyrir I máli, er risið hefur af grun um ölvun manns við akstur ökutækis, að áfengismagnið í blóði hans reyndist vera t.d. 0.807, eða meira, sbr. það, sem áður segir um neðri mörkin, því þá ekki einfaldlega leiða mál þetta til lykta með dómsátt. Brotamaður samþykkir að greiða t. d. kr. 5000, 00 í sekt og að hann sé sviptur ökuleyfi sínu 6 mánuði. Nefndar- menn tala um það í athugasemd- um sínum, að, með mörgu öðru, velti það á um umbætur í umferða málum, hvernig aðstöðu þeirri, sem þeim, er um framkvæmd laganna eiga að sjá, sé farið. Hér undir falla dómstólar. Hér er því leikur á borði að bæta aðstöðu dómstóla, bæta réttarfarið í einum af stærstu flokkum sakamála, hraða af- greiðslu þessara mála, án þess að í nokkru sé skert það réttaröryggi, sem réttarfarsreglum er ætlað að tryggja. Dómsmálaráðuneytinu er innan handar að hafa sama eftirlit með afgreiðslu mála með þessum hætti eins og þegar mál eru af- greidd með dómi, sbr. ákvæði 112. gr. 1. nr. 27/1951 um meðferð op- inberra rnála, er mælir fyrir um skyldu dómara til að senda dóm's- málaráðherra skrá um mál, sem lokið er með dómsáttum. Af- greiðsla annarra sakamála mundi og njóta góðs af þessarri reglu, ef að lögum yrði. Minni tími mundi fara í málin út af ölvun við akstur og dómararnir því geta sinnt meir og fyrr afgreiðslu annarra mála. Það virðist og skjóta nokkuð skökku við, að eigi er heimilt að ljúka með dómsátt máli vegna ölv- unar við akstur, eins óbrotin og frumvarpið gerir þessi mál, meðan. heimilt er að afgreiða mál með I dómsátt, þar sem sektin getur ! numið fleiri tugum þúsunda kr. ' og upptækur varningur getur veri'ð mörg þúsund króna virði, eins og ,'mjög algengt er. Það væri hlægí- ;legur „formalismi", en ósköp lög- fræðilegur, og ríghalda í ríkjandl skipulag í þessum efnum. Megin niðurstaða hugleið- inga þessara verður þvl þessi: Fellum 1,30%C markiS úr frumvarpinu. Höldum gildl andi skipan um rúman refsi- ramma. Veitum dómstólurw heimild til dómsátta í öku° leyfissviptingarmálum. ■; Skákmót Hafnarfjarðar stendur yfir Skákmót Hafnarfjarðar stendur nú yfir og er teflt í tveimur flokk- um, meistaraflokki og 2. flokki. í meistaraflokki eru sex keppendur, þar af tveir frá Reykjavík: Eggert Gilfer og Björn Jóhannesson, skák meistari Taflfélags Reykjavíkur. Tefld Verður tvöföld umferð. Eftir fjórar umferðir í meist- araflokki er staðan þannig: Efst- ur er Eggert Gilfer með 2Vz vinn- ing og eina biðskák. Björn Jó- hannesson hefir 2Vz vinning, Stíg- ur Herlufsen og Ólafur Sigurðs- son 2 vinninga, Ólafur Stephensen einn vinning og biðskák og Jóm Kristjánsson einn vinning. í 2. flokki er Hilmar Ágústsson efstur með 3V2 vinning og bið- skák, en þar hafa verið tefldar fimm umferðir. Næstur er Ólafur Magnússon með 3Vi vinning. Næsta umferð verður tefld á föstudagskvöld í Góðtemplarahús- inu. | injiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiuiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiiitiiiimiiiiuiiiiiii H I Efnaverkfræðingur Samband ísl. samvinnufélaga óskar eftir efnaverk- | | fræSingi til starfa. Nánari upplýsingar hjá STARFSMANNAHALDI S.Í.S. Sambandshúsinu, sími 7080. luiinuuiiuiiiiaiinniuuiiimtiiiiiuiuiiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiuiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiim

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.