Tíminn - 12.09.1957, Page 5

Tíminn - 12.09.1957, Page 5
T í MIN N, fimmtudaginn 12. september 1957. 5 þjóðernisleg hugsjón Agúst Þorvaldsson bóndi og alþingismaður flutti þetta ávarp á móíi Framsóknarmanna í Þrastarskógi fyrir skemmstu Ví.Ý V V^s v •wíaíafts Mér verður hugsað til þess, að í sumar eru liðin 50 ár síðan ungmennafélögin hófu göngu sína hér á landi. Þau hafa haldið veglegt mót og hátíð til þess að minnast þeirra tímamóta. Um starf þeirra og áhrif í þjóðlífinu hafa verið haldnar ræð ur og skrifaðar ritgerðir og ætla ég ekki að bæta við það. En þar sem við erum hér stödd í þeirra landareign með góðu leyfi, þa verður mér hugsað til þess, að mikill er sá arfur, sem þessi félags málahreyfing hefir skilað til þeirr- ar kynslóðar, sem nú er að taka við ábyrgðinni í þjóðlífi voru. j Ungmennafélögin voru stofnuð til þess að glæða hinar beztu kcnndir og hugsjónir. Þau ætluðu að bæta og fegra landið og gera fólkið að meiri og betri mönnum. Ræktun lýðs og lands og íslandi allt voru og eru þeirra kjörorð. Sáning og uppskera Þetta voru fögur fyrirheit og margir voru í upphafi svo bjart- sýnir að halda, að bróðurlegar hug- sjónir af þessu tagi myndu alls stað ar falla í frjóan jarðveg, og vissu- lega var hann víða frjór. Upp af þessum hugsjónum og fyrirheitum spruttu góðir ávextir, sem þjóðin og landið hafa nærzt af. En hver sá, sem gengur út að sá, skyldi jafnan hafa það hugfast, að aldrei koma öll fræin upp, því að eins og hjá sáðmanninum forðum, þá falla sum fræin í grýtta jörð, og af þeim spretta engin aldin. Svo hefir einnig farið hjá okkur íslendingum. Ef allir íslendingar ynnu í ein- um anda að ræktun lýðs og lands og ynnu íslandi allt, sem þeir gætu, þá væri hér nú eins konar Edens garður. En því miður hafa of margir asklok fyrir sinn himinn, og sjá ekki þjóðina og landið fyrir sínum gróðahvötum. Þann hugsunarhátt kallaði Grímur Thomsen „fjóstrú“ og fór um þá trú svofelldum orðum: „Verst er af öllu villan sú/von- ar og kærleiksbandið / á engu að hafa æðri trú, / en allt í heimi traust, / fyrir sálina að setja lás/ en safna magakeis, / og á vel tyrfð um bundinn bás / baula eftir töðu- meis“. Við íslendingar búum í góðu landi. Hér er mikið matarbúr. Fiskimiðin auðug og moldin frjó. Það hefir sýnt sig, að íslenzka gróðurmoldin gefur feiknamikla uppskeru. Skýrslur sýna, að framleiðslu- magn, miðað við íbúafjölda, er meira hér á landi en víðast annars staðar. En mitt í öllum þessum allsnægtum eru verðmætin og framleiðslan gerð æ verðminni með hverju árinu sem líður vegna þess, að ýmsir þeir þegnar þjóð- félagsins, sem fengið hafa góða hlutdeild í aðri uppskerunnar, „setja lás fyrir sálina", eins og Grimur Thomsen sagði, binda sjálfa sig á bás, og baula þar í gríð og erg „á töðumeis". Þetta sífellda baul er svo há- vært og tíðum rekið upp, að það lamar allt athafnalíf í landinu og er óðum að hrekja þjóðina úr bú- sæld í bjargarskort. Deilur um auð og völd Baulið á töðumeisinn er ekki af því, að fóður og aðhlynningu vanti heldur er það sprottið af því, nú upp á síðkastið, að þeir, sem töðu- gjöfinni stjórna, eru ekki þeim að skapi, sem úr meisnum eiga að torga. Þeir hafa ekki sömu vel- þóknun á þeim, sem nú ráða gjöf- inni og þeim, sem gerðu það áður. Þetta sannar sig sjálft með því að liðskostur þeirra sem baula eft- ir töðumeisnum, er þaðan kominn, sem skyldleiki er um hugsunar- háttinn hvað viðvikur meðferð hinna efnislegu verðmæta. Hér er kominn sami skaðvaldur- inn í þjóðlíf vort og sá, sem steypti þjóðinni í örbirgð og ánauð í forn- öld. Deilur um auð og völd voru það, sem ollu ófrelsi þjóðarinnar á Sturlungaöld, og sviptu hana frama og frægð. Jónas Hallgrímsson sagði: „Veit þá enginn, / að oss íyrir löngu / aldir stofnuðu / bölið kalda, frægðinni sviptu, / framann heftu / svo föðurláð vort / er orð- ið að háði“. Hvernig er það nú? Er ekki þjóðin að verða „að háði“? Þessi litla þjóð, sem er um aldir búin að berjast fyrir lífi sínu við ör- birgð og ánauð, og er risin úr ösku stónni vegna hugsjóna um frelsi og nýja velmegun, hagar sér nú eins og hún eigi ekkert föðurland og engan þjóðfélagsgrundvöll. Þetta er hið kalda böl í þjóðlífi voru nú um stundir. Þessa meinsemd er ekki hægt að lækna til fulls með neinum aðgerðum fyrr en í brjóstum fólks- ins sem byggir landið sprettur sú þrá, að vinna föðurlandinu fyrst og hafa hag þess og frelsi sem æðstu hugsjón. Upp af slíkri þrá og starfi mun rísa nýtt ísland, land stórra at- hafna og sterkrar sjálfstæðiskennd ar._ Á meðan til eru hópar manna í landinu, sem öðru hvoru seíja lás fyrir sálina og hrópa á meiri gjöf í meisinn sinn, enda þótt þeir hafi varla torgað því, sem áður var í hann látið, á meðan slíku fer fram þorna rætur þess lífsmeiðs, sem einstaklingar þjóðfélagsins hafa hingað til fengið þrótt sinn og þrek frá, og brumhnappar hugsjóna um fagra framtíð landsins visna og deyja að lokum. Aldrei hefir land vort haft upp á jafn mikla og góða lífsmöguleika að bjóða og nú á öld tækninnar. Viðhorf fjölskyldunnar Möguleikarnir blasa alls staðar við augum til þess að gera landið og þjóðina auðuga. Verkefnin eru fyrir hendi, ef hugsjónir, þrek og vilji eru til staðar hjá þjóðinni og ef hún getur eignazt eina sá um sigurmarkið: sífrjálsa og farsæla þjóð í hinu fagra landi. Hugsum okkur fjölskyldu á góðri jörð. Húsbændurnir vilja bæta og fegra jörðina, svo að hún geti veitt þeim, sem þar búa, traust öryggi um lífsafkomu. Við skulum hugsa okkur að þetta verk sé svo vel á veg komið, að fjölskyldunni sé farið að líða vel. En allt í einu fara sumir fjöl- skyldumeðlimirnir að heimta handa sér stærri hlut en fram- leiðsla fjölskyldunnar þolir. I Húsbændurnir segja af lífs- reynslu sinni og viti, að þetta sé ekki hægt, því að þá raskist grund- völlur sá, sem heimilið sé byggt á, og hafi til þessa veitt viðunanlega lífshamingju og fullnægt þörfum þeirra, sem í hlut áttu. Þá bregðast vissir meðlimir fjöl- skyldunnar þannig við, að þeir gera hlé á störfum þangað til ósk- um þeirra er fullnægt. Þá eru hafin fyrir alvöru harm- saga slíkrar fjölskyldu, ormurinn er farinn að naga rætur trésins. Lánsmöguleikar eru nýttir út í æsar. Næst er gengið á undirstöðu framleiðslunnar þar til hún minnk- ar svo, að lánardrottnar fá ekki sitt að fullu. Þá gera þeir sína kröfur í búið, hirða staðfestu fjölskyldunnar og Ágúst Þorvaldsson annað hvort gera hana að leigu- þrælum á hinni fornu eign eða vísa henni út á hjarn lífsins. Þessi mynd er ekki fögur, en er ekki eitthvað svipað að gerast hjá hinni íslenzku þjóð? Er ekki þjóðin eins og fjöl- skylda og landið hennar er sam- eiginleg staðfesta og eign? Er ekki ormur sjálfselsku og síngirni að naga rætur lífsmeiðs hinnar íslenzku þjóðar? Er ekki velsældin að gera okk- ur vesæla? Auðurinn ágjarna um of. Valdagræðgi vissra hagsniuna- hópa spinnur vélræðin á bak við, og notar í sínar þarfir lása síngirn- innar til þess að setja fyrir sálir þeirra, sem vilja fá meiri gjöf í meisana sína. Lærdómur sögurtnar Þjóðir, sem orðið hafa að verja frelsi sitt og fjármuni með blóði sona sinna, og margsinnis að end- urreisa lönd sín eftir styrjaldir, horfa á slíkar aðfarir smáþjóðar- innar með háði. Og það er heldur engin furða. Saga okkar íslendinga ætti þó að kenna okkur að fara öðru vísi að. Þjóðin á hér öll mikið í hættu, en þó er hættan mest hjá þeim, sem fátækir eru og verða að vinna með eríiði fyrir brauði sínu. Á þeim hvílir nú ábyrgðin mest að taka höndum sarr.an, endur- reisa hugsjónina um rsekíun lýðs og lands, og að vinr.a íslandi allt. Efnahagsmúl þjóðar verða ekki leyst nema síngirnin sé sett til hliðar. Þjóðfélagið verður aldrei öfl- ugt, nema þjóðernislegar hugsjón ir ráði gerðum þegnanna. Pen- ingahugsjónin er fúin í rótina og færir enga varanlega hamingju.- Það er hugsjónin uia frjálsa, glaða og hrausta menn. Táp- mikla frjálsa þjóð. Ræktaðar lendur, skógi klæddar ‘hlíðar. brúaðar torfærur, uppgræddar auðnir og ótalmargt fleira slíkt sem getur gert þjóðina hamingju sama. Einhugur um þetta og hin þjóðlegu menningarverðmæti fela í sjálfum sér lækninguna á þeim meinsemdum efnahagslegum og hugarfarsiegum, sem nú þjá þjóð lífið. Þeir sem skapa auðæfi þjóð- anna það eru þeir sem vinna, hvort sem þeir gera það með huga eða hönd. En þó hör.din vinni þá er mik- ils um vert að hugurinn, sem hönd inni stýrir, sé trúr og tryggur þeim sem verksins eiga að njóta hvort sem verkið á að standa lengur eða skemur. Að vinna íslandi allt er marg shmgin og fjalskrúðug hugsjón, og það er svo merkilegt, að það er hægt að vinna þeirri hugsjón gagn í hvaða heiðarlgu verki sem er. Sá hófsami vinnur henni gagn með hófsemi sinni, sá sparsami með sparsemi sinni, hinn iðju- sami með iðju sinni, sá framtaks- sami með framtaki sínu, sá lærði með lærdómi sínum og svo mætti lengi telja. Á sama hátt vinnur það gegn ís landi að eyða og sóa fjármunum ,Hæringuru enn á dagskrá Norska blaðið „Fiskaren“ birtir ! eftirfarandi frétt: „Nú er helzt talið, að Hæringur, síldarbræðslan j fljótandi, sem nýlega var seldur j útgerðarfymtækinu Presthus og Hestnes a. s., verði tekinn til gagn gerðrar viðgerðar, og síðan látinn sigla í flutningum við slrönd Kína. Skipið verður afhcnt frá fyrri eig endum, Síldarbræðslunni í Gang- stövika nú í september. Útgerðar- fyrirtækið í Bergen gaf 1,6 millj. kr. (norskar) fyrir skipið. Brennivín úr síldarlýsi Sama blað flytur eftirfarandi frétt: Vísindin eru í stöðugri sókn. Og ekki sízt í síldarvinnslu og rannsóknum, en síldin er nú til margra hluta nytsamleg. Nú er frá því skýrt, að vísindamenn í rann sóknarstofnunni í Halifax í Kan- ada, hafi uppgötvað, að viss efni í síldarlýsi — sem hingað til hafa ekki verið talin merkileg — séu nothæf til að framleiða alkóhól, ásamt frumefnum í málningu og fernis. Þá er enn sagt, að vísinda menn í sömu fiskirannsóknarstöð hafi nýlega stórbætt aðferð til að til óþarfa, að eyða tímanum í iðju leysi, að efla áfrið og erjur í land inu o. s. frv. ískyggilegir atburðir Á þessum síðustu árum er ekki um annað meira talað en efna- hagslega eríiðleika mitt í þeim allsnægtum, sem þjóðin býr við. Næstum allir þessir erfiðleikar eru frá þjóðinni sjálfri komnir. Ýmsir staríshópar innan þjóð- félagsins hafa sett kröfur um hlut sinn af sameiginiegum arði of hátt. Og fylgt þeim kröfum eftir með ofmikilli hörku. Síðustu atburðir af þessu tagi eru í fersku minni og voru cinir hinir geigvænlegustu, sem að höndum hafa borið af hliðstæðri tegund. Ef slíkum atburðum heldur á- fram enn og aftur, og stéttirnar hamast þannig í ímyndaðri hags- munabai’áttu við atvinnuvegi og þjóðfélag, hlýtur efnahagslegt sjálf stæði þjóðarinnar að líða undir lok og það fljótlega, og fer þá ekki hið stjórnarfarslega brátt á eftir? Fyrir hálfri öld hljómuðu í fyrsta sinni út um byggðir lands ins orðin „ræktun lýðs og lands, og íslandi allt“. Þá var ísland enn ekki crðið fullvalda ríki og hug sjónin um fullt frelsi knúði menn til átaka. Nú hefur það takmark náðst góðu hcilli, en þá er eins og þjóðin hafi gleymt því, að frels ið ér fjöregg sem vandi er að varðveita. í stað þess er svo að. skilja á mörgum að ríkið — þjóð- félagið sjálft sé óvinur og þess- vegna sé í rauninni sjáífsagt að vera í sífelldum bardaga við stjórnvöld þess. Heilbrigð gagnrýni er að vísu sjálfsögð en aðgerðir sem miða að því að steypa stjórnum án tillits til þess þótt slíkt geti skaðað þjóðfélagið, er hættulegur leikur og ættu þeir sem slíkt fremja ekki að hagnast á slíku. Vakningartíð Ég vil vona að nú eítir marga ískyggilcga atburði í þjóðlífi voru á síðustu árum, sem veikt hafa og hrist þjóðfélagsgrundvöllinn þá vakni þjóðin upp og taki höndum =aman. Nýir og gamlir vormenn gangi fram og vinni íslandi allt bannig tryggja þeir bezt hagsmuni allrar þjóðarinnar og framtíð sina og barna sinna, frelsi, frið og hagsæld lands og þjóðar. Ég treysti þar með og bezt á fólkið, sem uppsker fæði og klæði af vinnu eigin handa. Ég vona að þetta fólk, sem er ullur fjöldi þjóðarinnar, láti sín- girni, sjálfselsku og sérvizku víkja fyrir heill alþjóðar og vinni ís- lnndi allt þá vinnur hver maður sjálfum sér bezt um leið. Ef fólk- ið þorir þetta, hlýði réttu og kann góðs að luta, þá mun eyjan kalda eiga sér enn vor. vinna próteinauðugt mjöl úr fiski- úrgangi. Portúgalar aíla minna Danska fiskveiðablaðið „Fikerit tidende“ flytur þá fregn frá Port- úgal, að fiskveiðar Portúgala á fjarlægum miðum, hafi gengið mjög illa upp á síðkastið. Portúgal ar eiga nokkra góða togara, sem sækja á fjærlæg mið, stundum til íslands, en þeim gengur illa. En einkum stunda Portúgals- menn þó fiskveiðar frá skútum, fara fiskimenn þeirra á smábátum (doríum) frá skútunum, og fiska á handfæri. Þessi veiðiaðferð hef ir reynst mjög illa í ár. Má ætla, að Portúgalar kaupi meiri fisk af útlendingum í ár en áður. Færeyingar láta smíða togara í Portúgal Sama blað skýrir svo frá, að færeyska landstjórnin hafi nú loks | ins getað gert samninga við | danska þjóðbankann, sem geri ! mögulegt að ganga frá samning- | um um smíði 3 nýtízku togara í portúgölskum skipasmíðastöðvum. Skipin eru sögð kosta 15 millj. danskra króna. Allmikinn hluta fjármagnsins þurfa Færeyingar sjálfir að legggja fram. Danski þjóðbankinn hefir gert það að skil yrði fyrir lánveitingunni, að bank inn hafi hönd í bagga með því, hvei’jir fá togarana afhenta til út gerðar. Bretar selja Rússum síld Herring Industry Board í Bret- landi hefur tilkynnt, að gerðir hafi verið samningar við Rússa um síldarsölu; er lágmark 60000 tunnur „hard cure“ síld. Síldin verður flutt út í haust og innkaupa stofnun rússneska ríkisins ann- ast móttöku. Danir framleitSa kavíar Dansk Fiskerittidende“ telur Dani hafa stórendurbætt kavír- framleiðslu sína. Sé nú unninn ágætis kvaíar úr nokkrum fisk- tegundum (einkum rognkjeks). Smakkast þessi kavíar alveg eins vel og rússneskur kavíar, en verðið er ekki nema brot af því, sem Rússar krefjast fyrir sína vöru. Danir lita hrognin, sem eru að eðlisfari rauð, og fá þeim græn litan lit. Blaðið segir, að Danir selji nú kavíar til margra landa; s.l. ár nam útflutningurinn 142 lestum, og andvirðið var 1,5 millj. danskra króna. Góður markaður er í Afríku, segir blaðið, þar sem efnafólk kaupir gjarnan kavíar og kann vel að meta þetta lostæti. Þess má geta hér, að íslendingar hafa um skeið framleitt kavíar úr grásleppuhrognum, og tekizt all- vel. Danska blaðið heldur því fram, að danska aðferðin við vinnsluna sé ný, og taki gömlu aðferðunum langt frarn. Nýr bergmálsmælir „The Fishing News“ skýrir frá nýjum bergmálsmælir, sem Pye I Radio Ltd. hefur framleitt og reynt á togurum frá Humber-höfn- um með góðum árangri. Mælirinn er einkum ætlaður til að finna fiskitorfur, og segja til um nálægð i þeirra og stærð. Skipstjórinn á ! togaranum „Boston Fury“ lofar ; mjög tæki þetta, segir það mikla | endurbót. Það sýnir fiskigöngur ! með svipuðum hætti og eldri tæki, I en þegar torfur eru undir eða í grennd, segir það til með sérstöku hljóði. Er því ekki þörf að rýna 1 sífellt á tækið, þá siglt er. I Smábátaútgerft Nor'ð- manna vií Grænland Sunnmöre Arbeideravis skýrir frá því, að smábátaútgerð Norð- manna við Grænland hafi gengið vel í sumar . Það er útgerðarfyrir tækið Utrustnings sem gerir út bát ana. Bátarnir leggja upp í Fær- eyingahöfn. Fiskimennirnir eru flestir færeyskir, nokkrir danskir og norskir.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.