Tíminn - 12.09.1957, Síða 8
8
T f MIN N, fimmtudaginn 12. september 1957.
Minning: Haukur Magnússon,
Oddgeirshólum
Hann var fæddur 25. janúar
1925 og andaðist 2. september,
hann var því ekki nema 32 ára
þegar engill dauðans kvaddi dyra
og kallaði sál hans til æðra lífs.
Haukur var ungur tekinn í fóst-
ur að Oddgeirshólum í Hraungerð
ishreppi til föðurbróður síns Árna
Árnasonar bónda og konu hans
Elínar St. Briem. Móður sína
missti hann í æsku og föður sinn
fyrir fáum árum, fósturfaðir hans
andaðist er Haukur var barn að
aldri. Þannig var hvert skarðið á
fætur öðru höggvið í ástvinahóp-
inn hans, en hann varð þó aldrei
neinn munaðarleysingi því ekki
veit ég nokkurt fósturbarn hafa
notið slíkrar elsku og ástúðar
fóstru sinnar, sem hann naut hjá
Elínu og hið sama var um börn
hennar, að þau voru honum sem
bræður og systur.
Haukur var óvenju geðþekkt
barn, ljúfur og hæglátur og svo
prúður að af bar. Hann var
gæddur góðum gáfum og einstakri
trúmensku og dyggð, og naut
hvers manns hylli. Væntu allir er
þekktu þennan góða dreng mikils
af honum vegna þeirra mann-
kosta, sem hann var búinn og áð-
ur er lýst. Hann stundaði nám í
Flensborgarskóla í Hafnarfirði, en
sigldi síðan til náms í Danmörku
og lagði stund á verkfræði. Meðan
á því námi- stóð veiktist hann af
sjúkdómi þeim er nú hefur leitt
hann til bana — þrálátri heila-
blæðingu. Sjúkdómurinn tafði
hann um heilt ár við námið, en
hann lauk því þó með góðum
vitnisburði. Hann naut mikillar
vináttu og umhyggju skólastjóra
síns í Danmörku og mun fágætt,
að útlendur námspiltur hafi á-
unnið sér svo skjótt traust og vin-
áttu lærimeistara sins.
Eftir að Haukur hafði lokið
námi réðist hann til verkfræði-
starfa hér á landi og stundaði þau
við góðan orðstír þar til heilsa
bilaði að fullu.
Þetta er í stuttu máli ævisaga
Hauks Magnússonar. Hitt, sem
hann var ástvinum sínum og kunn
ingjum, ljóminn sem stafaði af
hreinni og flekklausri sál hans,
trúmenska og dyggð er saga sem
geymist í minningunni um hann
og þó lengst og bezt hjá þeim
er voru honum stoð og styrkur
í uppvexti, við nám og síðast í
veikindum hans.
Fjölskyldan í Oddgeirshólum á
um sárt að binda við fráfall hug-
ljúfans góða, sem hafin er frá
dufti jarðarinnar svo ungur og
fagrar vonir voru bundnar við.
Fóstra hans Elín St. Briem hef-
ur enn einu sinni orðið að taka
á móti harmaskúr en hetjulund
hennar er söm og fyrr,'því ekki
brestur hana stillingu og æðru-
leysi þótt hart muni henni hafa
hnotið við hjarta að sjá þennan
fósturson sem hún elskaði sem sitt
eigið barn missa heilsuna og
hníga að velli ungan að aldri. Ég
votta henni og öllum ástvinum
Hauks samúð mína, og ég veit,
að minningin um góða drenginn
verður henni og þeim öllum eins
og ljós sem skín yfir rökkur horf
inna daga.
Ágúst Þorvaldsson.
Aflahæsti Akranesbáturinn kom meú
170 tunnur af síld í gær
Frá fréttaritara Tímans,
Akranesi í gær.
f dag voru tíu bátar á sjó héð-
an frá Akranesi og fengu þeir
allgóða síldveiði, eða allt upp í
170 tunnur á bát.
Sá er minnst veiddi, kom heim
með tuttugu og fimm tunnur.
Hæstur var Skipaskagi með 170
tunnur, en annar bátur, Sigurvon
fékk 150 tunnur. Síldin er góð
og fitumagn hennar er 14—16%.
Akurnesingar keppa
í knattspyrnu á Ak-
ureyri um helgina
AKUREYRI I gær. — Knatt-
spyrnuflokkur Akurnesinga, nú-
verandi íslandsmeistarar í 1.
deild, koma hingað til Akureyrar
um helgina og keppa hér tvo
leiki við akureyrska knattspyrnu-
menn; kl. 5 á Iaugardag og kl. 2
á sunnudag. Verður þetta senni-
lega síðasti stórleikur sumarsins
hér í bæ. ED.
Skemmtiferð sjúkl-
inga á Vífilsstöðum
Þriðjudaginn 3. sept. buðu bíl-
stjórar á Hreyfli sjúklingum á Víf-
ilsstöðum í skemmtiferð, sem þeir
og hafa gert undanfarin ár. Að
þessu sinni var farið austur fyrir
fjall, með viðkomu í Hveragerði,
við Sogsvirkjun og farið var heim
um Grafning. — Almenn ána;gja
ríkti með förina og hafa sjúkling-
ar beðið blaðið að færa Hreyfils-
bílstjórum og öðrum, er að ferð-
inni stóðu, þakkir sínar. Eftirtalin
fyrirtæki gáfu nesti í förina: Síld
og Fiskur; Ölgerðin Egill Skalla-
grímsson; Sanitas; Clausensbúð,
Coca-Cola, Vífilfell; Kexverksm.
Esja; Kexverksm. Frón; Brjóstsyk-
ursgerðin Nói, Sælgætisgerðirnar
Freyja; Opal; Póló og Krummi;
Björnsbakari; G. Ólafsson & Sand-
holt; Sveinsbakarí; Harðfisksalan.
Eiríkur veitingamaður í Hvera-
gerði sá um gos úr borholu án þess
að gjald kæmi fyrir, eins og venja
mun vera.
Nær öll síldin mun hafa farið
í salt. — í kvöld fara þrettán
bátar á síld og fleiri eru vænt-
anlegir, en á nokkra vantar
menn. G.B.
Á víðavangi _______________
(Framhald af 7. síðu).
flokknum, sem þá var stjórnar-
flokkur. Að þeim samtökum um
pólitíska misbeitingu stóð Bjarni
Benediktsson, núverandi aðalrit-
stjóri Mbl. og varaformaður Sjáif
stæðisflokksins, annars vegar, og
kommúnistaleiðtogarnir hins veg
ar. Verkalýðsbarátta Bjarna í
dag, er því ekki annað en upp-
rifjun gamallar sögu, þótt tækn
in sé nú fullkomnari cn var í
gamla daga. Ræðuhöld Rafnars
í Húsavík og á Akureyri gefa til
kynna, að palladómurinn hafi
verið nokkuð réttlátur. Gustur
staðreyndanna getur farið illa
með veikbyggð stofublóm.
Knattspyrnufélag Akur-
eyrar varð NortSurlands-
meistari í knattspyrnu
AKUREYRI í gær. — Knatt-
spyrnumót Norðurlands var háð
á Siglufirði um s.l. helgi. Þrjú
félög tóku þátt í mótinu: Knatt-
spyrnufélag Akureyrar, Knatt-
spyrnufélag Siglufjarðar og íþrótta
félagið Þór á Akureyri. — Úrslit
urðu þau, að KA (Knattspyrnu-
félag Akureyrar) bar sigur úr být
um.
KA sigraði KSA með 10 mörk-
um gegn 6, en KS og Þór gerðu
jafntefli. Þór gaf leikinn við KA.
Hannes Sigurðsson dæmdi leikina.
Hús i smíðum*
aiHI)Hlllllll!lll!IIIIII[IIIIIIllIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIII||l|l|[|||ll||||||||||||||||||||Illll||II|l!l||l||||||l|llll|lllllliIIIIIII!!ll
Tilkynning I
1 NR. 24/1957 |
= s
Innflutningsskrifstofan hefir ákveðið eftirfarandi I
1 hámarksverð á brenndu og möluðu kaffi frá innlend- 1
I um kaffibrennslum: §
í heildsölu .............................. Kr. 38,60 pr. kg.
| í smásölu ......................................... — 44,40 pr. kg.
i nu (ftnan löenenanni»
AbidJb (Teyktavíkur. truna
•rvxclurrv«i& meft filnum
HUmllmTv
Reykjavík, 11. sept. 1957.
Verðlagsstjórinn
i[iiiiiiiiiDiflinimmiiiii[niuiimiiniininnn.iiimuiniiiiiHUiiniiiiiiiiiiinuiiiiiiinitiiiiiiiiiniiuiiiimmmawv
eS&
a*i cj r/ / ,
t
íiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiinii
Nú eru tæpir tveir mánuðir, þar til dregið
verður í happdrætti S.U.F. Vinningar eru
Ópelbifreið 6 manna og ferðalag umhverfis
hnöttinn. — Útsölumenn eru hvattir til að
herða söluna og gera skil til skrifstofu
happdrættisins, Lindargötu 9 A, hið fyrsta.
HAPPDRÆTTI S.U.F.
imiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiMiiiiiiiiiiiiiiiiu
1 LJUFFENGUR MORGUNVERÐUR, SEM I
| FLJÓTT OG AUÐVELT ER AÐ MATBÚA |
Biðjið um hið pekkta Scott’s haframjöl, sem framleitt er úr beztu, fáanlegum, 1
skozkum höfrum Framleitt og pakkað samkvæmt ítrustu hreinlætiskröfum.
| Fyrirliggjandi í handhægum pökkum, lokuðum með cellofanpappir.
( BI-DJI-Ð UM SCOtt’S BORÐI® SCOtt’S (
imiimmiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiimiiiiimiimiiimmiimmiiiiitmiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii!iimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii)iiiiu