Tíminn - 24.08.1958, Blaðsíða 4

Tíminn - 24.08.1958, Blaðsíða 4
4 TÍMINN, sunnudaginn 24. ágúst 1958 Fyrrverandi eiginkona Peter Townsend hafnaði TÍU MILLJÚNA TILBODI Bókaútgefendur og kvikmyndajöf.rar buðu offjór fyrir sögu hennar Enn eru Margrét prins- fessa og Peter Townsend að clraga sig saman. Sagt var, að þau myndu hittast um áíðustu helgi 1 Englandi og var Peter kominn þangað Ærá Briissel, en Margrét j.nun hafa beðið þess eins, að drottningin, systir henn- ar, legði nú loks blessun sína á samband þeirra Pet- ers. Bæði eru þau ákveðin að láta ekki slíka fjölskyldu ráðstefnu um málið, sem kölluð var saman í maí, éndurtaka sig. Prinsessan mun vera þeirrar skoðunar. að með Peter sér við hlið, geti hún tekið að sér eitt eða annað opinbert starf í einhverju samveldisland anna. Útgefendur hafa ekiki látið Jjetta umræddasta ástarævintýri .síðari tíma fara framhjá sér, því að blaðamaðurinn Norman Barrymaine hefir ritað bókina ..Saga Peters Townsends“ sem .jallar mjög um málið, og verður bráðlega gefin út. Út- gefendurnir hafa líka reynt að íá konu Peters, Rosemarí de Laszlo til að segja sína sögu, og l’joðið henni að sögn 100 þúsund öterlingspund fyrir vikið, en Úað jafngildir líklega 10 millj- ónum íslenzra króna. l'ilboð frá Hollywood Rosemary hefir einnig fengið (ilboð frá kvikmyndaframleið- endum, en hafnar öllum slíkurn hoðum einarðlega, jafnframt fjví sem hún lætur í Ijós andúð sína á útkomu „Sögu Peters 'Jownsend“. Hún sagði við enskt blað fyrir viku síðan: ,'Þrátt fyrir gríðarleg tilboð sem mér hafa borizt, og jafn vel þótt ég viti, að bókin, sem að miklu levti íjallar um okkur Peter, muni bráðlega koma á markaðinn, vil ég taka þaö skýrt fram, að mér hefir aldrei komið til hugar að semja um fíkriftir eða umræður um hluti, ;em aðeins koma Margréti prins ;3ssu, Peter og mér við. Ég hefi íengið mörg tilboð frá Holly- wood um að aðstoða við kvik- myndun sögunnar um Margréti MARGRÉT oa TOWSEND — Gefast ekki upp og Peter, en harðneitað .ölluir.. Ég vil halda virðingu minni. á sama hátt og mér viröist, að . vernda beri virðingu Margrétar og konungsfjölskyldunnar.1/ Margrét sama sinnis Margrét hefir látið svipuð orð fallá um útkomu bókarinn ar, sem ljóstrar einkamálum Ihennar upp — en ekkert hefir verið gert til að stöðva útkomu bókarinnar, sem kemur innan skamms og marga fýsir væntan lega að hnýsast í. Bragð er að þa . . . Walter Ulbricht, „hinn sterki maður Austur-Þýzkalands", hef- ur nú fyrirskipað þarlendum rithöfundum að skrifa sósíalist iskar ástarsögur í stórum stíl nú á næstunni til þess að fyrh- byggja það að ungdómurinn lesi „óþverrarit" frá V-Þýzka- landi, eins og hann orðaði það „Kvenfólkið vill fá ástarsög- ur,“ upplýsti Ulbricht, „og úr því að þag heldur því fram að hinar stjórnmálalegu ástarsog ur okkar hafi verið með öllu ólesandi til þessa, er tími til kominn að ræða þetta vanda- mál opinberlega og ráða bót á. En rifchöfundar okkar verða að skrifa góðar sögur en ekki klám!“ „Syngjandi vindlakassi“ Fiðlusmiður nokkur í London var svo einstaklega heppinn, að komast yfir 60 vindlakassa, tóma sjálfsögðu, og maður- inn sem reykt hafði úr þeim er enginn annar en Winston Ohurchill í eigin persónu. Þar eð vindlakassar þessir eru að sjálfsögðu merkilegri en aðrir kassar, þótti smiðnum einsýnt að hér yrði að grípa gæsina úr því hún hafði gefist, og ný- lega lauk hann við að smíða forláta fiðlu úr þessum mjög svo merku vindlakössum. — Brezka útvarpið keypti síðan fiðluna fyrir of fjár, og færði hana fiðlusnillingnum Yehudi Menuhin að gjöf. Menuhin mun í framtíðinni leika á þennan grip sem hlotið hefur nafnið „syngjandi vindla- kassinn hans Churchills" en ekki er þess getið hvort fiðlan taki öðrum slíkum hljóðfærum fram, þrátfc fyrir sérstæðan efnivið. Innlifun Það getur í sumum tilfelhun verið slæmt, þegar leikarar lifa sig um of inn í hlutverk sín. Þannig er það t. d. með ensku leikkonuna Joy Webster, sem um þessar mundir leikur í leik riti, sem sýnt er í London, „A I SPEGLI TÍMANS JOY — ekki svoleiðis stúlka Hatful Of Rain“, er það kallað. Joy hefir sem sé með höndum hlutverk gleðikonu af ruddaleg ustu gerð, sem hangir á gatna mótum í karlmannsleit og not- ar eiturlyf,- Ilún hefir lifað sig heldur mikið inn í hlutverkið, eftir því sem hún sjálf segir:' „Eftir nokkrar sýningar var hlutverkið farið að vera mér svo eðlilegt.. að eitt sinn, er ég kom frá sýningu, vissi ég ekki fyrr en ég var búin að flauta á eftir karlmanni úti á götu. Og ég er alls ekki svoleiðis stúlka. Ég fékk mér meira að segja reyk af eitursígarettu, svona til að vita hvernig það væri og geta leikið það betur. Nú er ég svo gagntekin af hlut verkinu, að ég á jafnvei erfitt með að klæða mig.í alniennileg föt og nota fegrunarlyf eða greiða mér sómasamlega. Þetta allt íhefir orðið til þess, að ég er mikið til hætt að íara út í frístundum, og á eigiulega eng ■an karlmann að kunniugja leng ur.“ Það er alls ekki hajttulaust að lifa sig svo gjörsamiega inn í hlutverkin. Nútima mannkynssaga Borgarstjórinn í Brisiol í Eng landi, Fitzroy Chamberlain var fyrir nokkru á ferð í Banda- ríkjunum og klæddist að sjálf sögðu viðhafnarklæðnaði sín-1 um, eldrauðum að lit og bar | þrístrendan hatfc á höfði. Vakti! þessi klæðaburður borgarstjór-; ans fádæma afchygli en þó kast! aði fyrst tólfunum er hann íhugðist leggja skerf til sögu i Bandaríkjanna. Fitzroy lýsti í því nefnilega yfir að Ameríka sé ekki kennd við ítalska korta teiknarann og kaupmanninn Amerigo Vespucci heldur Eng- lending einn mætann, Richard Amerycke. Ameryeke þessi á að hafa verið tollvörður í Brist ol og gert John Cabot, sem fann Cape Breton eyjuna árið 1497, að sjá til þess að hann fengi verðlaun frá þáverandi -kóngi í Englandi fyrir að finna eyjuna. í þakklætisskyni skírði Cabot þessi Ameríku í höfuðið á velgerðarmanni' sínum Ame- rycke! „Hver einasti Bristol- búi veit að þetta er rétt með farið“, bætti borgarstjórinn al- varlegur við! Starfsamur öldungur Enda þótt svo eigi að heita að Herbert Hoover fyrrverandi Bandaríkjaforseti hafi tekið sér hvíld frá störfum vegna aldurs en hann er „aðeins" 84 ára gam all, er ekki annað að sjá en hana vinni enn fulla vinnu. Á siðastliðnu ári hélt hann 30 ræður, svaraði hvorki meira né minna en 55.952 bréfum og ferðaðist' sem samsvarar 30 þús. 1 kílómetra ýmist akandi, fljúg- andi eða með lest! Auk þess reit hann eina bók (The Ordeal of Woodrow Wilson) og kom hún út á árinu. Hann hefur fjóra einkarit- ara og vinnur að meðaltali 10 —12 klst. á dag, jafnf sunnu- daga sem aðra. Einstaka sinn um gefur hann sér þó tíma til að skreppa til Flórída og veiöa þar á stöng. „Maður get- ur þó alltaf lesið stjórnartil- kynningar á milli þess sem bitið er á“, segir Hnover. — Afköst „öldungsins" hefðu senniiega orðið meiri á árinu ef ekki hefði til komið upp- skurður, sem hann þurfti að CHURCHILL — maöurinn með vindilinn gangast undir. Eftir tvær vikur var gamli maðurinn kominn að ski'ifborðmu á nýjan leik og ekki er hægt að segja annað en hér sé vel að vcrki verið. Tennis og holdarfar Judy Garland er vel þekkt hér á landi sem kvikmyndaleik kona, en feri.ll hennar á þvi sviði hefir ekki verið allur slétt ur ög felldur. Hún er sögð hafa fengið geðveikisköst fyrir nokkrum árum, þá lokuð á hressingarhælum um tíma og eitthvað var nafn hennar bendl að við drykkjuæði. Ilún hefir talsvert fengizt við söng upp á síðkastið, líklega orðin full þrekvaxin fyrir kvikmvndatjald ið, og var nvlega ráðin til að syngja í Coconut Grove í Holly wood. Blaðamenn þyrptust urn hana. en eins og sannri konu sómdi, ncitaði hún að svara hve gömul hún væri, live þung og hvað hún gevjndi í handtösk- unni sinni. Hins vegar kvaðst hún eiga í sífelldri baráttu við holdarfarið og leika tennis á hverjum degi, til að halda því í skefjum. Þetta sést greinilega á myndinni, sem birtist bér á síðunni, þar sem Judy faðmar hina gömlu vinkonu sína, Lönu Turner að sér. JUDY on LANA — breiddarmunur

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.