Tíminn - 26.03.1959, Page 7

Tíminn - 26.03.1959, Page 7
T í M IN N, fimmtudaginn 26. marz 1959. 7 y,Ekki óraði mig fyrir v »1 .* JtT • st* £ .• a liesti, ao 1 ryggvi yroi rorsætisraoherra iví, er við bjuggum Fyrir kemur að finnst húsgögn persónuleika eftir langa notkun — finnst ekki fjarri lagi að ávarpa þau og spyrja frétfa af hinu íiðna. í stof- unni bar sem ég sit þessa stundina eru margir gripir með þessu eðli. Píanóið gæti sagf frá því þegar það var borið út úr brennandi sýslu- mannshúsinu á Akureyri ár- ið 1901, eða flutt á ísi yfir Hvtfá á leið upp að Hesti, röskum áratug síðar. Háa dragkistan — chiffonieren — sfóð um hálfa öld á heim- ili Fínns Jónssonar, prófess- ors. Fötnuðu blómsturmynd- ina á veggnum saumaði sýsiumannsfrúin Þorbjörg Stefánsdóttir og listahand- bragðið nýtur stn enn, þó að litirnir séu teknir að dofna. Sem feetur fer er hér greiðari svör aí fá cn þessir fögru munir gefa. Hésfreyjan, sem af alúð og virðinga fyrir goðum gripum hefir varðveitt marga sérstæða muni um tange ævi á fjölmennu heimili, írú Anna Klemensdóttir Jónsson- ar, landritara, ekkja Tryggva Þór- liallssonar, leysir greiðlega úr spurningum. Frú Anna hefir ætíð talið heim ilið fyrst og fremst sinn vettvang, enda hai't þar ærið verkefni. Hún vill sem minnst tala um eiginn hag, segir helzt frá æsku sinni og bernsku. Foretdrar riiínir voru gefin sam- an árið 1889 á Stokkseyri, því að afi minn. Stefán Bjarnason, var sýslumaður í Árnessýslu. Af hinni dönsku konu hans, Karen Emilíu, fóru ýmsar sögur þar eystra. Hún var mikil búkona og skörungur og þótti fara sínu fram. Ein sagan er, að húa hafi sézt bera tvö stórgripa læri sitt í hvorri hendi og ekki verið íaust við að þau næmu við jörðu. Mun hafa þótt óvenjulegt að sjá sýslumannsfrú annast að- drætti á þann hátt. Dætur sínar settu þau hjón til mennta meira en almennt gerðist þá. Mun Cam- illa dóttir þeirra hafa verið fyrsti íslenzki lcvenstúdentinn, en hún tók stúdentspróf í Kaupmanna- höfn árið 1889 og árið eftir varð hún cand. phil. við Hafnarháskóla. Önnur dóttir þeirra varð hjúkrun- arkona eg starfaði lengi í París, þar sem hún átti heima um fimm- tíu ára skeið og þar dó hún á styrjaldarórunum. Móðir mín menntaðíst líka erlendis, var mik- il hansyrðakona og hafði yndi af garðrækt. Stundaði hún hvort tveggja mikið, þrátt fyrir það að hún var fttltaf mjög heilsuveil. Svo fluttu foreldrar mínir til Kaupmennahafnar. Faðir minn starfaSi þar í íslenzku stjórnar- deiidinHÍ órin 1889—91, en þá varð ha«R sýslumaður í Eyjaíjarð arsýslu. Fór hann tii Akureyrar þá sti’aK cn móðir mín kom með mig þaagað tveggja ára gamla. Ég veit ekki hvort það fær stað- izt, en niér íinnst ég muna eftir þvi að faðir minn leiddi mig upp bryggjuaa að gamla apóekinu, þar sem við vorum til húsa þangað til Við fluttum í hús Júlíusar Hav- steens, amtmanns, sem faðir minn k.eypti þogar Havsteen lét af emb- ætti og flutti suður. Það hús stóð sunnarlega í tungunni milli gatn- anna, sem þá voru kallaðar efri og neðri gata. hafi hbtis segir frú Anna KÍemensdóttir, ekkja Tryggva ÞórSialIssonar, í eftirfarandi viðtali við frú Sigríði Thorlacins Fró Anna Klemensdóttir í litlu stofunni í baSstofustíl í Laufási. Yndislega Akureyri Enginn staður finnst mér eins yndislegur og Akureyri. Það gríp- Br mig einhver helgitiifinning þeg átr ég kem inn á Moldhaugnaháls- ínn og sé inn fjörðinn, enda á ég þaðan yndislegar bernskuminning ar, sem og frá Möðruvöllum, því höfðingsheimili. Þar dvaldi ég oft tíma og tíma hjá Stefáni skóla- meistara og frú Steinunni. Og mikið voru melarnir ofan við Ak- ureyri fallegir á sumrin — bláir I af blásóleyjum, en svo voru 'fjól- I urnar þá nefndar. Það var líka há- I tíðlegt að fara til kirkju á aðfanga I dagskvöld, þegar kertaljós logaði í hverjum glugga í húsunum í Fjör unni. I kring um húsið okkar var rifs berja-, blóma- og matjurlagarður og upp á Brekku höfðitm við kart- öflugarða. Svo var stór ytri garður framan við húsið og þar var stund um slegið upp palli og fóru þar fram kosningar til Alþingis og ýmsir fundir, en kosningar fóru þá fram með nafnakalli. Þá var margt um manninn. Auk garðræktarinnar höfðu for eldrar minir kýr, kindur, gæsir og hænsni. Heyjað var handa skepn- unum í hólma í Eyjafjarðará og var það oft minn starfi um, hey- skapart'ímann að færa fólkinu mat fram í hólma. Það var drjúgur spölur, því auðvitað fór ég gang- andi. Þér hafið þá snemma verið látin vinna? já, ég var látin vinna ýmis störf, t. d. 'í görðunum og hjálpa til við mótekju. Ég man líka eftir því að ég hjálpaði móður minni að tína baunir úr belgjum, en sennilega hefir verið heldur fátítt að rækta baunir hérlendis á þeim tíma. Já, eitt man ég — gassinn okkar, sem alltaf var kallaður sýslumannsgass inn, var óskaplega grimmur og fólk var hrætt við hann. Einu sinni kom hann hvæsandi á móti móður minni, en hún gerð'i sér Iít- ið fyrir, greip um hálsinn á hon- um og sveiflaði honum í kring um sig. Eftir það var hann lafhrædd- ur við hana og spektist mikið. En þó að ég væri yanin á að vinna, þá naut ég margs umfram það, sem venjulogt var, einkumi fékk ég snemma að ferðast mikið. Átta ára gömul fékk ég að fara með Guðrúnu Borgfjörð, íöðursyst ur minni, til Stykkishólms og að Sauðafelli í Dölum. Var hað ferða- lag mikið ævintýri og þegar viö sigldum út fjörðinn, var krökkt af selum, sem skutu upp kollinum allt í kring um bátinn. Er mér enn í minni hve augun i þeim voru vinaleg. Svo fékk ég að fara með íöður mínum til Reykjavíkur, þeg ar hann fór á þing, bæði 1901 og 1903. Þá kom ég daglega niður í Alþingishús og kvnntist vel þing- mönnunt. en þá sátu margir skör- ungar og merkismenn á þingi. Bjartar berrtskuminningar En þó að margar bernskuminn- ingar séu bjartar, ])á brá einnig skuggum á bann. hluta ævinnar. 19. desember 1901 brann húsið okkar og voru foreldrar mínir bá erlendis. Móðir mín var að leita sér.lækninga. en kom ekki aftur úr beírri för, andaðist 30. janúar 1902. Bruninn varð nrsð þéim hætti, að það kviknaði í hótelinu, sem stóð hinum megin við götuna. í fyrstu var engin hætta talin á að kvikna myndi í ökkar húsi, en lít- ið skipulag var á slökkvistarfi og tæki engin, og svo fór að okkar hús1 brann. Guðrún föðursystir mín, sem alltaf var í heimili for- eldra minna og var mikill skörung ur, tók til sinna ráða. þegar sást hvert stefndi, greip nokkur sæng- urver, íckk karlmenn í lið með sér og bað þá að láta öll embættis skjöl í sængurverin og bera út. Miklu var bjargað af húsgögnum, til dæmis var buffetið, sem þarna stendur, borið út með öllu í, án þess að svo mikið sem einn bolli brotnaði. Og píanóið mitt var líka borið út tir eldinum. Foreldrar mínir höfðu verið búnir /að senda ýmislegt góðgæti til jólanna, svo sem vínberjakút, tvær kókoshnotir o. fl. Skelina af annarri hnotinni á ég cnn. Þegar þetta gerðist, þá vorum við tvær systurnar á lífi, en bróð- ir okkar, Agnar Stefán, dó fjög- urra ára gamall aldamótaárið og eftir það leit móðir mín aldrei glaðan dag. Faðir minn kvæntist öðru sinni árið 1903 Önnu Schiöth, ekkju Jóhanns Vigfússonar, sem reyndist honum hin ágætasta kona. Lifir hún enn og býr hjá Agnari hálfbróður mínum, sendiherra í París. Erum við Agnar ein á lífi af systkinum okkar, því að systir mín dó átján ára gömul. Eftir húsbrunann þá fluttum við aftur í gamla apótekið. Var þessi vetur önnirlegur fvrir okkur. Fað- ir minn fór til Noregs að kaupa efni í nýtt hús. Þegar hann var á beimleið lenti skipiþ í miklum ís cg komst ekki norður fyrir land. í aprílmánuði komst það loksins til Reykjavíkur og þaðan fór fað- ir minn landveg norður. Svo var byggt á ný, en ekki vorum við nema eitt ár í þvi húsi, þá flutt- um við til Reykjavíkur. Eins og að líkunn lætur konni margir gestir til okkar á Akur- eyri. Séra Matthías kom oft og hafði sérlega gaman af að tala við ir.óður mina. Einu sinni sátu þau við kaffiborð og vofu að ræða um dulræna hluti. Fullyrti móðir mín að hún skyidi geta lesið úr huga hans, ef hann hugsaði sér ein- hvern ákveðinn hlut. Séra Matthías var vantrúaður á það, en féllst á að revna. Móðir mín stóð á fætur, tók í hönd hans, leiddi hann gegn um tvær stofur, þar sem stytta af Jóni Sigurðssyni stóð uppi á skáp. Móðir mín var lítil vexti og man ég hvernig hún teygði sig upp og lagði hönd séra Matthíasar á nef- ið á stvttunni. Þá varð hann alveg undrandi —• einmitt það hafði hann hugsað um. Vísur frá Matthíasi Þegar víð fluttúm alfarin frá Akureyri, sendi séra Matthías okk ur systrunum nokkrar fallegar vísur og voru mínar svona: Allir með þér, Anna mín, englar góðir fari, eins og þegar unga sín eltir fuglaskari. Síðla muntu, barnið blítt, bæniun þínum gleyma, þótt þú yfir Frónið frí.tt farir um alla heima. Allar sálir unna þér yngismærin þýða, hrein og skýr sem skauta-gler skreytir Pollinn fríða. Hræðstu aldrei heimsins tál hvar seni náir sveima. Gæfan býr í góðri sál og Guð er ávallt heima. Á sumrin voru farnar maxgar skemmtiferðir frá Ákureýri. Það var farið í lautatúra út og suður, þvi að alls staðar var gróðurlend- ið kring um bæinn. Það var farið norður í Skóg cg einu sinni fór ég fram að Skriðu í Hörgárdal að sjá tién, sem danska landbúnaðarfé- lagið veitti Þorláki Hallgrimssyni \erðlaun fvrir að rækta fyrst trjáa á íslandi. Svo skemmtilega vill til, að ég á silfurbikarinn, sem ' vei-ttur var í verðlaun, hann var til sölu hjá gullsmið á Akureyri. Frú Anna sýnir mér stóran silf urbikar, sem á er letrað annars vegar: Til Dannebrogsmand Tor- Jak Halgrimsson af Skrede paa Island for udvist Flid ved Have- dyrkning. Hve 'gömul voruð ]iér, þegar þiíJ fluttuð frá Akureyri? Fjórtán ára. Við fluttum hingáð árið 1904 og tvö fyrs'tu árin bjugg- um við í Miðstræti, þar til búið' var að. byggja húsið í Tjarnar- götii 22. Árið 1906 flaut ég mcð í skemmtileg.t ferðalag með Hanriesi Hafstein og frú Ragnheiði, ásamt föður mínum og fleirum. Var þetta könnunarferð vegna væntan legrar konungskomu árið eftir. Ég var líka með í konungsfylgd- inni og var það ógleymanleg ferð. Til Kaupmannahafnar Til útlanda fór ég í fyrsta -sinni. 17 ára gömul og var ,eitt ár hjá Finni föðurbróðúr mínúm í'Kaup mannahöfn. Það vár 'ýndislegur tírni. Á heimili hans komn' a!l • helztu horræriufræðingar beirra tíma, svo sem Wimmer, ; Gertz, Kaalund og fleiri. Finnur. var starfsmaður með eindæmum og svo reglusamur, að nágrannarnir settu klukkur sínar eftir því hve- nær hann kom og fór. 'Næsþ fór ég utan 1910. Fór ég þá til ’að læra að símrita og um leið tólc ég-söng tíma. Eftir að heim kom fór 'ég að vinna á símstöðinni, að vísu meira við skrifstofustóri en sím- í'itun, og þar vann ég í. tvö'ár, eða þangað til ég gifti mig árið 1913 Fluttuð þið þá að Hesti? • / Fyrsta veturinn vorúöí'Við á Hvanneyri hjá Svövu mágkonu minni og Halldóri Viihjálmssyni, skólastjóra, þvi verið var að gera við húsið á Hesti. Ég vpr.óvÖD. sveitabúskap, en ekki viídi' ég vera án áranna. þriggja, sém við bjuggum á Hesti. Þá kýrintist ég af eigin raun högum fólks' í’ sveit- inni og komst að raun um það, að þótt við hefðum ágætt fóik, þá. þýðir ekki að ætla að búa, án þess að ganga sjálfur í öll verlc. Á Hesti er fagurt og mikið. vjðsýni. — þaðan sjást á annað hundrað bæir ofan af hálsinum. Vérst var hve vatnsból var lélegt, súndum varð að sækja vatn í brúsá' niður i Grímsá. Frá Hesti hefðum við sérinilega aldrei farið, ef örlögin héfðu ekki hagað því svo, að þegar tengdafað- ir minn, Þórhallur biskup, andaðist í desember 1916, var enginn; tii að taka við búi í Laufási, því að. Björn sonur hans, sem það hlutverlc hafði verið ætlað, andaðist úti í Noregi sumarið áður, þar sem hahri stund aði búnaðarnám. Maðurinn' minm fór til Reykjavíkur nokkl’ú' áður en faðir hans andaðist, en hringdi til mín að kvöldi dánardagsibisknps ins og bað mig að koma, þar sem svo stóð á að skipsferð félli frá Borgarnesi. Eg man að ég geíck um. stofurnar á Hesti með iírthpa i hendi klukkan fjögur um 'nottina, tii að líta eftir að allt vairiLf'lagi. Það átti ekki fvrir mér að jiggja að' koma þangað aftur. . . Forsætisráðherrafrú 1930 oa, við tókum við alístóru, búi hér í Laufási. Svo var ma^úrinn ininn settur dósent við gu'ðfræði- deild Háskólans. Óþarft er aðrekja tildrög þess, að hann var ekki skip aður í þá stöðu, en þegar það’ brást, þá gerðist hann ritstjóri Titnans. Stóð Guðbrandur Magnússon úpp úr því sæti fvrir hann. Cg. þannig báru atvikin hann út á sljórnrnála- brautina. En ekki óraði riiíg‘'fyrir því þegar við bjuggum á HeSti að hann yrði forsætisráðherrai'Og að í okkar hlut félli að standa ‘i þeirri stöðu á Alþingishátíðinni 1930. Var það ekki annasamur tími? Jú, en allt gekk vel. Þá bjugg- um við í ráðhcrrabústaðnmn við Tjarnargötu og fyrsta hátfðisdag- inn höfðum við konungshjónin og fleira stórmenni, alls fjörutíu og fjóra gesti í hádegisverðarboði, en. á milli klukkan íjögur og sex. komu 250 manns í kaíii, en við veittum aldrei vín. Maðurinn minn var alla tíð strangur bindindismaður, en hins vegar hafði hann ekkert á móti því að ég notaði vín til matar gerðar. Ferðuðust þið ekki mikið í ráð- herratíð manns yðar? IEg fór fjórum sinnum með hon- um til útlanda á þeim tíma og (Framhald á 9. siðu)

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.