Tíminn - 20.09.1959, Qupperneq 8
T IM I N N, sunnudagur 20. september 1959.
«Sei
Þáttur kirkjunnar
Lindir í auoninni
í 'biblíunni er sagt frá því,
að Móse hinn mikli leiðtogi
ísraelsmanna hafi slegið sprota
síniim á Mett i eyðimörkinni, og
samstundis spratt þar upp sí-
streymandi lind af hreinu, sval-
andi vatni.
Hér í borginni er hvarvetna
verið að bora eftir heitum upp-
sprettum, sem veitt geta varma
inn á heimili fólksins. Og bor-
anir minna helzt á „óskasprot-
ann1' í ævintýrunum eða staf
Móse.
Eitt þessara ævintýra .segir
frá manni, sem var beðinn að
koma á bæ, sem nýlega hafði
verið stofnað barnaheimili, en
alít í einu hvarf vatnið úr göml-
um brunni, sem þar hafði dugað
íbúunum öldum saman.
|p Maðurinn kom og leitaði með
y óskasprotanum, sem reyndar
||| leit ekki út fyrir að vera ann-
H að en hrískvistur í hönd hans.
.Hann reikaði um landareignina
imeð barnahópinn á hælum sér.
En hvergi varð hann vatnsæðar
var. Að síðustu kom hann að
fornu brunnstæði, sem ekki
'hafði fengizt vatn áratugum
saman.
Hann gekk þar um með sprot-
ann, eló honnm íhugull á svip á
jörðina við uppþorrnaðan og
grasi gróinn, brunninn og sagði
að lokum: „Hér er nóg vatn.
„Nei“, sagði eigandinn. „Vatn
ið úr þessari lind var horfið, áð-
ur en ég kom hingað.
„Grafið dýpra‘“, svaraði töfra-
maðurinn. Það var gjört, og þar
fékkst nóg af tæru og svölu
vatni fyrir börnin, það streymdi
fram þvi meira sem dýpra var
grafið.
Þetta er yndislega táknrænt
fyrir það, sem víða er að gjör-
ast í hinu andlega lífi, ekki sízt
í trúarlífi einstaklinga og þjóða.
Víða sýnast allar lindir þorrn
aðar, og þeir brunnar þurrir,
sem áður var ausið af til gnægð-
ar hinu andlega lífi mannanna.
Og isumir sitja í kuldanum, af
því að heitar uppsprettur vonar
og kærleika eru lika uppþorrn-
aðar í andlegri auðn mannlegrar
efnishyggju og styrjaldarótta
aldarinnar.
En þarna á vel við kenning
ævintýrisins, stutt og ákveðin
fyrirskipun mannsins með
„töfrakvistinn“. „Grafið dýpra.“
Lindirnar, sem áður veittu
svalandi veigar eða heitar bylgj
ur, eru ekki horfnar, nema af
yfirborðinu. Þar geta þær allar
hulizt og þorrnað ur dir gjalli og
hrauni eigingirni, hroka og
valdastreitu mannanna.
En grafið dýpra, lind guðstrú
ar og guðsástar, uppspretta trú-
ar og vonar, eru enn til, aðeins
ef skyggnzt er undir yfirborð
sjálfbyrgingsskapar og sýnd-
armenknsu aldarfarsins.
Það kostar stundum mikið
erfiði, vonbrigði og jafnvel ör-
væni, að komast dýpra, þar er
margan stein að kljúfa, marga
'klöpp að sprengja. En með staf
Móse, tákni þolinmæði og guðs-
trausts, tekst að slá vatn af
ikletti efnishyggjunnar og tóm-
lætisins, ög töfrakvistur bænar-
innar, runninn upp, þar sem
Kaldakvísl kemur úr Vonar-
skarði íslenzkrar bænrækni við
móðurhjarta, mun finna þá lind
Guðs náðar að lokum, sem veit-
ir svölun eða yl eftir óskum og
atvikum. Engin auðn er svo al-
gjör, engin klöpp svo þykk, að
töfrasproti bænarinnar rjúfi
hana ekki.
Og hugljúfustu lindir mann-
legrar hamingju eru við hjarta-
stað hins algóða Guðs.
Þar streymir hin eilífa lind
kærleikans.
„AIls hins góða er hún rót,
lind er heilsu lífsins geymir,
lind er rík af blessun streymir
lindin allra eymda bót.
Lind, er heillum lýði vefur,
lind, er helgan veitir auð,
lind, er fegurð lífi gefur,
lind, er vekur hjörtun dauð.“
Árelíus Níelsson.
fsbr jóturinn Lenin
NTB—Moskvu 15. sept. —
Kjarnorkuísbrjóturinn Lenin
létti í dag akkerum og bélt í
reynsluferð sína.
Lenin er fyrsta skipið, sem flýt-
ur ofansjávar og knú ð er kjarn-
orku. Skipið er útbúið þremur
Námskeiði íþrótta
kennara Iokið
Með leyfi Menntamálaráðuneyt-
isins éfndi íþróttakennaraskóli ís-
lands til námskeiðs fyrir íþrótta-
kennara, 24. ágúst til 3. sept. s.l
Námskeigið fór fram í Reykja-
vík og var kennt í íþróttahúsum
Barnaskóla Austurbæjar og Gagn
fræðaskóla Austurbæjar íþrótta-
kennaraskóla íslands skortir mjög
húsnæði svo ekki var unnt að halda
námskeiðið a ðLaugarvatni.
Kennarar námskeiðsins voru
Klas Thoresson, kennari við Det
Kunglige Gymnatiska Cantral-
Institut í Stokkhólmi, er kenndi
leikfimi drengja. Ungfrú Mínei-va
Jónsdóttir, frú Sigríður Þ. Val-
geirsdóttir og ungfrú Þórey Guð-
mundsdóttir kenndu leikfimi
kevnna. Ásgeir Guðmundsson
kenndi körfuknattleik og Karl Guð
mundsson kenndi knattspyrnu. —
Þjóðdansar voru stignir fjögur
kvöld undir stjórn ungfrú Mínervu
Jónsdóttir og frú Sigríðar Þ. Val-
geirsdóttur. Frú Unnur Eyfells
annaðist píanóundirleik. Sýndar
voru kvikmyndir og fundir haldn-
ir í íþróttakennarafélagi íslands,
og deild kveníþróttakennara. —
íþróttafulltrúi herra Þorsteinn Ein
arsson flutti frásögn af fundi, er
hann sat nýlega í Helsingfors og
haldinn var á vegum Menningar-
og fræðslustofnunnar Sameinuðu
þjóðanna og fjallaði um íþróttir
og vinnuíþróttir og menning,
íþróttir sem liðum í alþjóðasam
starfi.
Námskeiðið sóttu alls 72 íþrótta
kennarar. En 44 íþróttakennarar
sótu námskeiðig daglega allan
námskeiðsímann.
Klas Thoresson var mjög ánæ'gð
ur með dvölina hér og kynni af
íslenzkum íþróttakennurum.
Þetía var sjötta námskeiðið fyrir
íþrótakennara, en íþrótakennara-
skóli íslands efnir til.
Námskeiiðnu var sli-tiS í hófi
íþróttakennara í Framsóknárhús-
inu í Reykjavík 3. sept. s.l.
Íþróítakennaraskóli íslands.
kjarnaofnum sem framleiða 44
þúsund hestcfl. Það er 16 þús.
lestir að stærð og er kröftugasti
ísbrjóturinn, sem enn hefur verið
smíðaður.
Skipið verður reynt í Eystra-
salti. Sovézkir vísindamenn hafa
staðhæft, að Lenin gæti brotið
sér leið að Norðurpólnum. Skipið
getur verið förum í mörg ár án
þess að taka eldsneyti.
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦*♦♦♦<...
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦•
Skrifað og skrafað
(Framhald at uou,
fjarstæðu þarf ekki að ræða í,
pólitískum umræðum og skrifum. |
Vitanlega stjórnar Guðmundur í.
Guðmundsson varnarmálunum og
allir embættismenn, sem vinna ag ;
þeim málum, hlíta fyrirmælum,
hans. Er engu líkara en Sjálfstæðis '
flokkurinn vilji koma á hinu gamla I
stjórnleysi þessara mála. Reynslan j
talar skýrara máli en reiðiköst að '
alritstjórans. Hún segir að fram
kvæmd varnarmálanna hafi farið
vel úr hendi mörg undanfarin ár,
þar til liðið fer að færa sig upp á
skaptið á þessu ári.
En hvers vegna færist varnarlið
ið í aukana og virðir minna nú í
ár óskir íslenzkra stjórnarvalcla
um framkvæmd mála og landslög
en áður fyrr? Það er krossgáta,
sem aðalritstjóri Mbl. verðui' að
ráða fyrir kosningar og birta svo
lausnina í blaði sínu.
Lesiö
Tímann
Allt
a sama
stað
Nýkomið úrval varahluta
Willys — jeppann
og flestar aðrar tegundir bifreiða
Fjaðrir
Fjaðrablöð
og hengsli
Flest í rafkerfið
Svissarar
Platínur
Kveikjuhamrar
Straumbreytar
KveikjuloK
Háspennukerfi
Rafgeymar
Rafmagnsvír
Ljósasamlokur
Perur
Timken legur
Vifturéiínar
Vatns- og miðstöðvarliosur
Vatnslásar
Vatnskassaelement
Vatnskassar
Vatnskassahreinsir
og þéttir
FERODO
Bremsubcrðar
Hjóladælur
Höfúðdælur
Bremsugúmmí
Bremsuvökvi
Bremsurör
Kúplingsdiskar
CARTER-blöndungar
Blöndungasett
Benzíndælur
Gruggkúlur
Benzínbarkar
Benzinbarkar
Benzinlok
Loftdælur (handdælur
Véla- Ioftdælur
Áklæði (tau)
Plastáklæði
Toppadúkur
Brettalöber
Þéttikantnr
Tríco-þunkur
Pakkningar
Pakkdósir
Hljóðkútai og
bein púströr
Teinar og blöð
Sendum gegn póstkröfu hvert á land sem er.
Efíaust eigum við það, sem vantar í bil yðar.
Egill Vilhjálmsson hf.
Laugavegi 118. — Sími 22240.
PILTAR, =
EFÞIÐ EIGIÐ UNNUSTUNA
Þ> Á ÉG HRIN&ANA /
Skrlfstofur vorar og vörugeymslur
eru fluttar að VATNSSTÍG 3
ARNI GESTSSON
Vatnsstíg 3 — Sími 17930
?m::::mtmm«mm:f««
y