Tíminn - 04.02.1960, Blaðsíða 6
T f M IN N, fimmtudaginn 4. febrúar 1960.
Fimmtugur í dag:
Árni Bjarnarson útg., Akureyri
í dag á fimmtugsafmæli Árni
Bjarnarson, útgefandi á Akureyri.
Ámi er fæddur að Kálfsgerði í
Höfðahverfi og eru foreldrar hans
Guðrún Torfadóttfr og Björn Árna
son.
Árni er þjóðkunnur maður, þótt
ekki sé hann nema fimmtugur.
Veldur því hinn mikli áhugi hans
á margvíslegum málum. Það er
ekki haegt að segja að hann hafi
verið við_ eina fjölina felldur um
dagana. Áímgamál hans eru ótelj-
andi, og að hverju sem hann hefur
starfað, hefur undan honum geng
ið og árangur starfanna orðið
mikill og góður. Hann hefur verið
bifreiðakennari, rekið flugskóla.
bóksölu, bókaútgáfu og fleira,
sem of langt er upp að telja.
Um margra ára skeið hefur
hann verið einn mesti áhugamað-
ur hér um samskipti íslendinga
hér heima og í Vesturheimi og hef
ur farið vestur um haf oftar en
einu sinni í þeim ermdum að
efla samstarfið milli íslendinga
vestan hafs og austan.
Nú er verið að vinna að útgáfu
að æviskrám Vestur-íslendinga
fyrir forgöngu Árna og verður það
mikið verk og merkilegt, og ómet
anlegt innlegg í ættfræði, sem er
hér vinsæ-lli og merkilegri fræði-
grein en nokkurs staðar annars
staðar.
Gegnum hin margbreytOegu
áhugamál og lífsstörf hefur Árni
eignazt fjölda vina, sem úr ná-
lægð og fjarlægð bæði hér heima
og í Vesturheimi munu senda hon
um þakkir fyrir góða kynningu og
árnaðaróskir á fimmtugsafmælinu.
Sjálfur vil ég með þessum lín-
um senda honum þakkir fyrir
langa vináttu og samstarf og
sendi honum hjartanlegustu heilla
óskir á afmælisdaginn. E.B.
BREF TIL BLAÐSINS
Samtal við embættismann
Mér varð á að leita á náðir þessa
háttsetta manns, til að fá togara-
lifeyrissjóð minn greiddan nokkrum
dögum fyrirfram, vegna vondra
ástæðna heima, og tók hann vel í
það, hann kvaðst mundi tala við
stofnunina og gaf mér góðar vonir.
Þrem stundum seinna hringdi ég í
stofnunina, en þá var hann ekki far-
inn að láta í sér heyra. Gat ég svo
ekki náð tali af honum aftur þennan
dag, en daginn eftir fyrir hádegi
náði ég tali af honum og sagðist
hann vera búinn að biðja Gunnlaug
Briem að ganga frá þessu fyrir sig
og að ég skyldi snúa mér algjörlega
að honum. Sneri ég mér þá að Gunn-
laugi, sagðist hann ekkert hafa með
þessi mál að gera, vísaði hann mér
svo til hins næsta og sá visaði mér
til Gylfa félagsmálaráðherra og þá
gafst ég alveg upp, og býzt ég við að
þeir hafi ekki síður verið famir að
þreytast á að vísa mér frá einum til
annars. Eftir þetta allt hringi ég upp
í lífeyrissjóðinn, og hafði verið litils-
háttar minnzt á þetta við þá, en þeir
harðneita að greiða þetta fyrr en á
gjalddaga. En ég veit af konu sem
hringdi til skrifstofustjóra stofnun-
arinnar fyrir nokkru siðan bað
um undanþágu fyrir mann sinn og
var vel tekið í það. Sótti hún svo
lífeyrissjóðinn samdægurs og var þá
vika eða meira til gjalddaga. Nú hef
ég verið að hugsa um þetta óréttlæti
og hef komizt að þeirri niðurstöðu
að togarasjómenn fari í land á vorin
og vinna þessa níu mánuði sem biðin
eftir lífeyrissjóðnum er, því hætti
þeir einn eða tvo túra og fari svo á
sjóinn aftur, þá lengist biðtíminn níu
mánuði aftur itímann.
Kærir sig nú margur ekki um að
eiga þessa peninga rentulausa þama
inni i niu mánuði, fyrir utan það,
að margur þarf nauðsynlega á þess-
um peningum að halda á þessum
tíma árs, að ég tali ekki um fjöl-
skyldufólk, og langar mig til að
spyrja ykkur um hvað þið álitið að
5—6 manna fjölskylda þurfi til lífs-
viðurværis og annarra þarfa á mán-
uði, t. d. húsaleiga, rafmagn, hiti,
sjúkrasamlag, útsvar, skattar og svo
þessi lífeyrissjóður sjómanna, fæði
og fatnaður og sjóklæði. — Það væri
gaman að fá þetta sundurliðað, því
það eru ekki það fáir stærðfræðing-
pp f háxni ríV*'’1*'" ***<•<•«
að verða skotaskuld að sundurliða
þetta. Einnig langar mig til að spyrja
ykkur hvað 20 ára maður, sem er í
sjómannafél., verði búinn að borga
mikið i lífeyrissjóð 60 ára að aldri,
reiknað með 12 túmm á ári og meðal
tölu af aflamagni. En það sem brýt-
ur í bága við lög þessi, er meðalald-
ur sjómanna, sem vísindalega er
rannsakað að sé ekki nema 61—62 ár.
En þeir ætla að greiða þeim lifeyris-
sjóinn 65 ára gömlum, sem sagt dauð
um. Nú skuluð þið hugsa um rétt-
lætið i þessu, og láta skoðanir ykk-
ar í ljós. Guðveigur Þorláksson.
Hey til sölu
Um það til 120 hestburðir
af töðu frá 1957. Uppl. í
síma 14 c. Akranesi.
Kaupendur geta valið um þrjú af vorum ágætu
R-F-T-tækjum, en þau eru þessi:
Hið stóra „Stradivari“-viötæki með 10
iampa,
viðtækið „Juwel“ með 8 lampa
og 7 lampa ferðatækið „Stern 1“, sem
gert er fyrir stuttbvlgjur, miðbylgjur og
langbylgjjur og getur gengið bæði fyrir
rafhlöðustraumi og venulegum ljósa-
straumi.
Biðjið um hin fróðlegu auglýsingarit
vor hjá
Handelsvertretung der Kammer fur Auss
enhandel der Deutschen Demokratischen
Republik in Island,
Austurstræti 10A II, Reykjjavík
P.O.B. 582
eða Radíó, Veltusundi 1, Reykavík
Heim-Electric
Deutsche Export- und Importgesellschaft M.B.H.
Berlin C2 — Liebknechtstrasse 14
Deutsche Demokratlsche Republlk
/
t
'/
'/
/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
/
/
/
i
/
/
i
í
i
/
/
i
/
i
/
/
i
(
í
)
/
<
<
/
\
<
/
.•v*v*v*v*
Kennsla
í þýzku, ensku, frönsku,
sænsku, dönsku, bókfærslu
og reikningi.
Harry Vilhelmsson
Kjartansgötu 5. Sími 18128
Ný gíæsileg
6 herbergja íbúðarhæð með
hitun við Rauðalæk til sölu.
NÝJA FASTEIGNASALAN,
sérinngangi og ser
Bankastræti 7.
Sími 24300 og kl. 7,30—8,30 18546.
Sambandsþing
íslenzkra Grænlandsáhugamanna verður háð n. k.
sunnudag 7. febr. 1960, í fundarsal Slysavarnafél.
íslands, Grófin 1 og hefst kl. 17 stundvíslega.
Dagskrá samkvæmt sambandslögum.
Enn íremur fræðsluerindi og kvikmyndasýning
Sambandsstjórnin.
ÚTBOÐ
Vatnsveita Reykjavíkur óskar tilboða í fyllingar-
efni. Tilboðin miðist við það, að efninu sé skilaC í
skurð þann sem Vatnsveitan er að grafa á svæðinu
austan Háskólalóðarinnar.
Tilgreint skal einingarverð pr. rúmmetra, miðað
við mælingu á bíl. Nánari uppJýsingar verða veittar
á skrifstofu Vatnsveitunnar, og munu tilboðin
verða opnuð þar, föstud. 5. febr kl. 11 árdegis.
VATNSVEITA REYKJAVÍKUR..
•V* V* w* vv v«v«v»v»v*v*v*v»v
Oss vantar nú þegar:
Verzlunarstjóra í matvörubúð og nokkrar vanar
afgreiðslustúlkur í matvörubúðir.
Upplýsingar á skrifstofunni ki. 4—6 og á morgun
kl. 10—12.
Kaupfélag Reykjavíkur og nágrennis