Tíminn - 04.02.1960, Page 10
10
i IMIN N, fiauntudaginn 4. febráar 1960.
í dag er fimmtudagurinn
4. febrúar.
Tungl er í suðri kl. 18.36.
Árdegisflæði er kl. 10.30.
Síðdegisflæði er kl 22.35.
MORGUN-
SPJALL
Fjórði febrúar er dagur Ver-
óníku, þeirrar sem fylgdi Kristi
á þrautagöngu hans upp Gol-
gatahæð með krossinn. Hún tók
höfuðklút sinn og þerraði
svita og blóð frelsarans.
Kannske á sú helgisögn lítið
skylt við atburði þá. sem ger-
ast á íslandi í dag, en þó munu
landsmenn sjá það á blöðunum
í morgun, að til nokkurra stór-
tíðinda hefur dregið, þar sem
ríkisstjórnin hefur bundið
bagga bá, sem hún ætlar þjóð-
inni að bera næsta árið, og
ýmsum munu sýnast þeir svo
þungir. að vel gæti bað orðið
þegið. að einhver miskunnsam-
ur þerraði svita af enni á þeirri
göngu, og sumr munu jafnvel
telja gengislækkunina og aðrar
ráðstafanir við hlið hennar
kross bungan. Er það óneitan-
lega kaldhæðni nokkur, að
þessi kross ríkisstjórnarinnar
skuli lagður á herðar þjóðar-
innar á degi hins heilaga dýr-
lings líknsemdarinnar.
Og raunar er ekki þörf að
ræða fleira i þessu morgun-
spjalli, bví að annað mun varla
komast að í hugum manna i
dag. Það er guðs boð, a? jafnan
skuli leggja Iíkn með þraut, og
þar sem þrautin er fram komin.
ættu menn að mega fara að
huga að því, hvar líknin sé.
GLETTUR
/mn.
í bjórstofunni.
Bréfaskipti
Jeg er en norsk (gutt) dreng pá
14 ár som gjerne vil' ha brevbytte
med drenger eller piger fra Island.
Jeg vil derfor bede dem om a sette
mit n. 'n og adresse i dette islandske
bladet. Hvis den setter inn navnet
og adressen vil den ikke ogsá sette
inn at jeg satnler pá frimerker.
Hilsen.
Hans Ivar Storvik,
Box 72,
Vágámo,
Norge.
Heillaósk
Skeiðar til eg hefi og hnífs
en hvergi má við fórninm.
Af öllu hjarta annars lífs
óska eg ríkisstjórninni.
Piparsveinn nokkur heimsótti
gifta systur sína til þess að sjá
nýfætt barn hennar. Hann athug-
aði barnið gaumgæfilega og
lengi! Þegar hann kom heim, var
hann spurður, hvernig barnið
væri. Piparsveinninn hugsaði
■sig um nokfcra stund, en sagði
svo:
— Ja. Þetta er ósköp lítið kríli,
nauðrakaður, eldrauður í andliti
og drekkur eins og svoli.
Ungur maður varð harla undr-
andi, þegar ókunn en myndarleg
kona stöðvaði hann á götu og
sagði: — Góðan daginn. Hún sá
þó fljótt, að hér var um mistök að
ræða og afsakaði sig með þessum
orðum:
— Ó, afsakið. Þegar ég sá yður,
sýndist mér þér vera faðir tveggja
barnanna minna.
Svo hélt hún áfram göngunni,
en ungi maðurinn horfi á eftir
henni furðu lostinn. Hann hafði
auðvitað ekki hugmynd um, að
konan var kennslukona.
Húsráð
— Af hverju heldur hún á vasan-
um? ... nú af því hún heldur að þú
brjótir hann annars..........
DENNI
DÆMALAUSI
Það er eins gott að sjá grand í
mat sínum.
Úr kvölddagskránni
I kvöld kl. 20,30 flytur Lúðvik
Kristjánsson, ritetjóri, erindi sem
hann nefnir: Missti Jón Sigurðs-
son embætti vegna Þjóðfundar-
atburðanna?
Þetta er annag erindi Lúðvíks
í erindaflokki
hams um Jón
Sigurðsson, for
setá, og fjalla
þau Ö31 um við
skipti forsetans
við Dani og ís-
lendinga á ár-
unum 1851—
1855. Fyrsta er
indið í flokkn-
um flutti hann
s.l. fimmtudag og hét það: Lá tví-
vegis við að Jón Sigurðsson yrði
gjaldþrota.
Lúðvík hefur kynnit sér sögu
Jóns Sigurðssonar mjög vel, eink
um bi'éf hans og heimOdir þær,
sem ekki er að finna í Alþingis-
bókum eða hinni sfcráðu íslend-
ingasögu. Lúðvík er afburðagóð-
ur fyrirlesari, ritar fagurt mál
og þróttmikið. Bækur hans hafa
sýnt, hve geysifróður hann er um
sögu forsetans, og þessi erindi
eru mikill fengur sem ásitæða er
til að hvetja fólk til ag láta ekki
fram hjá sér fara.
Kiddi Kaldi
Saga og teikningar:
Jose Luis Salinas
APTER PANCHO HAS SNOOZEP FOZHAl.FAN' UOUP.
— Kiddi sagði, að ég ætti að hitta
hann hérna á þessum tíma. Nú, ég er
víst heldur snemma á ferðinni.
— Það er bezt að fá sér blund meðan
maður bíður. Það ætti að vera hættu-
'laust að sofna hérna.
Pankó sofnaði brátt og hraut hátt.
Að hálfri stundu liðinni vaknaði hann.
— Nú ætti vinurinn að fara að koma.
Dreki
Saga: Lee Falk
Myndin Wilson Mc Coy
Axel laknir segir sögu sína: — Fyrir þrjátíu árum reið ég
asna gegnum frumskóginn. Hvert hann bar mig vissi ég ekki.
■ Við komum með Axel lækni, segir blámaðurinn lafmóður.
Axel læknir, ég sendi eftir þér, segir Dreki-