Tíminn - 25.02.1960, Side 5
TlHIWW, flmmtndagfam 25. febrúar 1960.
5
Úfgetandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN
Ritstjófi og ábm.: Þórarinn Þórarinsson.
Skrifstofur t Edduhúsinu við Lindargötu
Símar 18 300. 18 301. 18 302. 18 303 18305 og
18 306 (skrifst ritstjómin og blaðamenn).
Auglýsingasimt 19 523 Afgreiðslan 12 323
Prentsm. Edda hf.
------------------------------------------------------/
Gríman tekin ofan
í þingkosningunum 1927 beið íhaldsflokkurinn. sem
þá fór með stjórn, mikinn og eftirminnilegan ósigur. For-
ingjar flokksins drógu þá ályktun af honum. að þeir
myndu halda áfram að tapa, ef þeir gengju eftirleiðis
hreint til verks, kölluðu flokk sinn réttu nafni og héldu
fram stefnu sinni undanbragðalaust. I framhaldi af þessu
breyttu þeir um nafn á flokknum. Hann var skýrður upp
og kallaður Sjálfstæðisflokkurinn, enda þótt aðalforingjar
fiokksins hefðu áður fyllt hóp þeirra, sem voru áhuga-
minnstir í sjálfstæðisbaráttunni við Dani. Stefnuskrá
í'lokksins var jafnframt samin upp að nýju og hún færð í
þann búning, að flokkurmn væri ekki lengur íhaldsflokk-
ur og sérstakur fulltrúi auðstéttarinnar í landinu heldur
væri hann alhliða umbótaflokkur og fulltrúi allra stétta.
Síðan þetta gerðist, hefur flokkurinn starfað að veru-
legu leyti í samræmi við þetta nýja gerfi sitt. Þegar hann
hefur verið í stjórnarandstöðu, hefur hann þótzt hafa
áhuga fyrir alhliða umbótum og lagt mikla stund á yfir-
boð, jafnvel gerzt hinn hatramasti kaupkröfu og verk-
fallsflokkur. Þegar hann hefur verið í stjórn, hefur íhalds-
eðli hans að vísu komið i ljós, en þess þó gætt minna en
ella vegna þess, að hann hefur fram að þessu þurft að
hafa samstarf við flokka, sem voru frjálslyndari og um-
bótasinnaðri en hann, og orðið að taka tillit til þess.
Þetta hefur orðið til þess, að margir hafa hætt að trúa
því, að Sjálfstæðisflokkurinn væri sami íhaldsflokkurinn
og hann var, þegar hann gekk hreiniega til verks undir
því nafni og fór ekki dult með afturhaldseðli sitt.
Með hinum svokölluðu efnahagsráðstöfunum. sem nú
er verið að framkvæma, hefur sá sögulegi atburður gerzt,
að Sjálfstæðisflokkurinn hefur kastað umbótagrímunni og
gengur til verks í fyrsta sinn síðan 1927 sem hreinn
ihaldsflokkur. Æðsti prestur hans Ólafur Thors. fer ekki
heldur dult með það, að það sé megintilgangur þessara
ráðstafana að fá aftur „hina góðu, gömlu tíma“, er voru
hér fyrir 1927.
Með þessu hafa línurnar í íslenzkum stjórnmálum
vissulega skýrzt stórlega frá því, sem var meðan Sjálf-
stæðisflokkurinn lék umbótaflokk og flokk allra stétta.
Hann er búinn að kasta grímunni. I fyrsta sinn síðan 1927
starfar hann í samræmi við innsta eðli sitt. Hér eftir
þarf enginn að efast um hvers konar flokkur hann er.
Stefnunni varpað
fyrir borð
Ástæðan til þess, að Sjálfstæðisflokkurinn hefur kast-
að grímunni, eins og rakið er hér á undan, er ekki
sízt sú, að hann hefur nú í fyrsta sinn síðan 1927 fund-
ið til samstarfs flokk, sem er fús til að framfylgja íhalds-
stefnu 1 félagi við hann.
Það hefur nefnilega gerzt samtímis og Sjálfstæðis-
flokkurinn varpar af sér grímunni, að foringjar Alþýðu-
flokksins hafa varpað fyrir borð þeirn umbótastefnu, sem
flokkurinn fylgdi í upphafi og hefur talið sig fylgja.
Emil Jónsson, Gylfi Þ Gíslason og Guðmundur í. Guð-
mundsson hafa nú gerzt liðsmenn íhaldsins til að endur-
reisa þá þjóðfélagsstefnu, sem Jón Baldvinsson, Héðinn
Valdimarsson og Sigurjón A. Ólafsson hjálpuðu til að
brjóta á bak aftur í kringum 1927
Þessi gerbreytta afstaða Alþýðuílokksins mun ekki
síður hjálpa til að skýra línur íslenzkra stjórnmála en það,
að Sjálfstæðisflokkurinn hefur varpað af sér grímunni.
Pétur Sigfússon:
Þetta þarf að muna
„Viðreisnarfrumvarpitr“ esr oröið
3ð lögum, um það verður ekki
deilt JBlmu er veirt að velta fyrir sér,
á hvern hátt það varð til og með
hvaða hætti það náði fram að
ganga. —
Öll munum við „réttlætiskröf-
urnar“ um breytta kjördæmaskip-
an og meira „mannsæmandi“
stjórnarfar og baráttuaðferðir, í
anda hins sanna lýðræðis. Þessar
kröfur voru mjög háværar á s. 1.
ári og báru sinn glæsta árangur
eins og sagan mun geyma. —
Ekki vantaði það, að þjóðin væri
aðvöruð, bæði í ræðu og riti um
þann háska, sem í uppsiglingu væri
með afnámi einmenningskjördæm-
anna og þar með eflingu flokka-
valds í anda hnefaréttar og ein-
ræðis. Bent var á að fjölgun þing-
manna væri óþörf, og nánasrt
hneykslanleg. Krafa flokkanna um
fieiri hendur til uppréttingar með
flokkaforingjunum skaðleg og þeg-
ar vel væri athugað, fullkomlega
ólýðræðisleg, þvi vitanlega er það
þjóðfélagið í heild, en ekki nein
íélagssamtök innan þess, hinn eini
rétti aðfli, sem þingræðið og lýð-
ræðið á að þjóna. Stór meirihluti
þjóðarinnar svaf á verðinum, •—
það má ekki gleymast, — og má
því kannske segja, að það sem nú
er fram komið sé aðeins „réttlát
refsing". og þó líklega ekki nema
byrjun þess er koma skal. — Öll
munum vði valdatíð hinnar svo-
nefndu vinstri stjórnar, og háttu
hins stóra Sjálfstæðisflokks í
stjórnarandstöðu þá. Slíka „mann-
sæmandi" stjórnarandstöðu þyrfti
þjóðin að muna vel og lengi. Þá
I heyrðust engin hróp frá Sjálfstæð-
j isflokknum um brýna þörf fyrir
j samúð með viðreisnartillögum
' stjórnarinnar eða um stillingu, ró
né skilning þjóðarinnar. meðan
j áhrif viðreisnarstarfsins væru að
: koma í ljós, eða minnist þess nokk
ur maður á íslandi? — Þá var
hneykslast mjög á því athæfi for-
j sætisráðherrans, að leitast við að
J hafa „samráð" — fyrir fram, við
hinar vinnandi stéttir landsins, til
þess að freista að koma málum í
höfn á friðsamlegan hátt og með
; gagnkvæmum skflningi fleiri aðila,
og fyrirbyggja þannig vinnustöðv-
anir og kaupkröfur, á meðan við-
reisninni pokaði fram. hægt og
hægt. Nei, Sjálfstæðisflokkurinn
krafðist ekki friðar og samúðar
fyrir þá stjórn. Hann gekk hins
vegar svo langt í hinni „mannsæm-
a;idi“ andstöðu, að hvetja og æsa
til verkfalla og launahækkana
hvar sem hann gat því við komið,
því slíkt var hið eina, örugga ráð
til að eyðileggja viðreisnartflraunir
stjórnarinnar og koma henni á
kné. Það tókst, og þetta man hver
sæmilega hugsandi og minnugur
íslendingur í dag, en — það er
ekki nóg. Þessi vinnubrögð þurfa
menn að muna lengi og vel, því
hér var stráksskapur flokks-
j mennskunnar og vansæmandi á-
byrgðarleysi gagnvart þjóðfélaginu
i sinni nöktustu og fullkomnustu
mynd.
Og öll munum við svo hina
miklu kraftaverkastjórn Alþýðu-
flokksins, sem — að sögn hennar
siálfrar í útvarpsumræðum s. 1.
haust, kæfði og kaffærði verðbólg-
una svo rækilega á einu ári — og
það algerlega hjálparlaust — að
hún mundi ekki láta á sér bóla
framar, enda ríkissjóður og út-
flutningssjóður svo vel á vegi
staddir. að ágætt mætti telja. Þetta
heyrði öll bjóðin og þarf að muna
vel, það er fullkomlega þess virði.
— Og þessi stjórn gerði ýmislegt
fleira. Hún gekk í órofa bandalag
við höfuðfjanda alþýðustéttanna á
íslandi um breytta kjördæmaskip-
an. Sú breyttag var þó hugsuð,
fynsft og fremst, sem leið að því
marki að Sjálfstæðisflokkurinn
gæti náð hreinum meiri hluta á
Islandi. Það fór ekkert dult, og
muna það margir. Og lrtla, sterka
rikisstjórnin Alþýðuflokksins fs-
lenzka gerði enn fleira. Hún gaf
út „kaupbindingarlög" á eigin
ábyrgð, — já, lög um bindmgu
kaups og kjara einnar stéttar á
Íslandi, bændanna. — Tók bara í
s/nar eigin hendur — á tímabili —
fjárráð þeirra og sjálfstjórn. —
Sko þá stuttu! En, jafnframt þessu
taldi þessi blessaða stjórn sig svo
hreina og óspjallaða alþýðuflokks-
stiórn og þá auðvitað með vakandi
virðingu og viðurkenningu á full-
komnu frelsi einstaklinga og
siétta. Mun „Emilía sáluga" lengi
höfð í annálum, af stórbrotnum og
sérkennilegum verkum sínum, en
niargir hefðu sennilega illa trúað
því — hér fyrr á árum — að úr
þessari átt kæmi gróðavaldinu á
Islandi, einræðinu og dulbúnum
nazisma, þarfasta þjónkunin. Sú
staðreynd verður nú ekki dulin.
Hún má heldur ekki gleymast. —
Tvennar kosningar fóru fram s.
1. ár eins og við vitum og munum
enn. Yfirlýst var, af staksteina höf-
undi Morgunblaðsins að allt væri
fvrir fram ráðið „allt klappað og
klárt“ — fyrir kosningar hvernig
sem þvi gat nú verið varið. Ýmsir
veittu þessu athygli, en þjóðin
vaknaði elcki, nema að litlu leytí
og virtist ekki sjá hinar nazistisku
enræðistenr.ur, sem glytti í á bak
við þessi svigurmæli og margt
fieira af svipuðu tagi. Og svo tók
óiafur við, þó raunar sé nú nokkru
risminni en stundum áður. Ólafur
sá það nú fyrst og fremst óum-
flýjanlegt að fjölga ráðherrum upp
í 7 — sjö! — Já — gerið svo bara
grín að Emmu sál. með sína fjóra.
Næst lætur Ólafur sína atkvæða-
nienn samþykkja með sér að allt
hið réttlætisþrungna þinglið skuli
bara fara-heim — nú þegar — af
nýbyrjuðu þingi og bíða. þar til
atkvæða þeirra sé þörf, einhvern
tíma seinna. Jú, ekki stóð á því,
því ekki virtist hugsjónum, eða
brennandi áhuga fyrir að fara hjá
atkvæðamönnum réttlætisins. —
Og svo leggst stjórnin undir feld
— eins og Þorgeir — og þaðan
leggur svása geisla vona og trúar
r.orður um alla sanda. En hvað
skyldi svo koma upp úr dúrnum
þegar feldinum var lyft?
1. Stjórnin er búin að bauka „ut-
an þingsalanna * í einn og hálfan
mánuð, með „fjöregg þjóðarinnar"
sljórnmálin, „án samráðs" við al-
þingismenn eða aðra atkvæða-
menn. Á þetta er nú bent hér að-
eins td'l að fríska upp á — kannske
eitthvað sljófgað minni þeirra úr
Sjálfstæðisflokknum, sem mest
hneyksluðust á utan-þingsala
vmnubrögðum Hermanns Jónas-
sonar', sællar minningar
2. Stjórnm hefur skflið mjög
mjög leiðinlega við Emmu sálugu,
fiett ofan af henni, og skín nú, all-
mjög, í hana bera jafnvel þar, sem
sízt skildi, og augljóst er nú líka að
hún hefur, í lifanda lífi, sagt mjög
ósatt, en sleppum því. Það vissu
og skildu svo margir, strax í haust!
3. Og svo nú þetta síðasta og
s;ærsta: „Gamlar lummur“ frá
vinstri stjórninni sálugu, hafa
fundizt í svo stórum haugum í
mynd erlendra lána og öðrum
hryllingsverkum, að hvergi sér út
úr. Allt er að sökkva — það sem
eKki er bara áður sokkið — og nú
er ekkert urc að gera, — eitt ráð
aðeins — og það er að herða á
,.cultarólinni“ þ. e. a. s. — á al-
menningi! - „Þetta er allt saman
atfur frá vinstri stjórninni, góðir
fslendmgar", sagt berum orðum á
n.áli hins „mannsæmandi" stjórn-
málasannleika. — Saklaus er
Emma — og ég! — Og — Ólaf
grunar ekki neitt fyrr en þarna, á
næturnar. undir feldinum að hann
sá allt eins og það var — já „miklu
geigvæplegra en nokkurn gat grun-
að“. Ótrúlegt en satt, að elzti
stjórnmálaiexðtogi þingsins og
stærsta stjórnmálaflokks landsins,
fylgist ekki betur með gangi
stiórnmálavélarinnar en þetta —
og verður bara aldeilis hissa, en
hins vegar ekki aldeilis ráðalaus,
sá gamli. Auðvitað verðið þið nú
að herða mittisólina piltar. Þið
hafið lifað langt um efni fram um
mörg undanfarin ár, og nú verður
E.ð stoppa. Viðreisnarfrumvarpið
okkar — undan feldinum — látum
við atkvæðamennina okkar sam-
þykkja, þó umboðslausir séum
raunar, frá þjóðinni, — það gerir
ekkert til, — þetta er þegar ákveð-
ið — af flokknum, og nú þurfum
við bara þögn, hlýðni og samúð —
í langan tíma, þó slökum við kann-
ske á ólinni aftur — þegar henta
þykir. —
Hér verður ekki farið út í ein-
staka liði viðreisnarfrumvarpsins.
AHt þarf þaS ekki endilega að vera
fordæmanlcgt, þó óskemmtilega sé
til komið, enda er þetta skrifað í
þeim tilgangi, aðallega. að benda
á hversu varhugaverða braut kjör-
dæmabreytingin leggur handa ein-
ræðisöflum landsins og hversu
háskaleg tæki eru falin í hinum
mörgu uppbótar-þingmönnum
flokkanna, oft atkvæðalitlum en
einsýnum flokksmönnum aðeins,
mönnum sem ekkert kjördæmi
hefði nokkru sinni óskað eftir eða
látið sér til hugar koma að kalla á
til framboðs. Slíkir gerfi-þingmenn
þurfa að hverfa úr þingsölunum
bið allra fyrsta, — það er þjóðfé-
lagsleg nauðsyn. —
Loksins færði „réttlætið“ Aust-
firðingum 1 — einn — sjálfstæðis-
þingmann. Mikið held ég að þeir
Austfirðingar hafi nú verið stoltir
af honum I viðreisnarstarfinu. „Við
sáum til þín“, stendur einhvers
staðar, og munum minnast þín
seinna. Og aðrir munu minnast
lengi þingeyska bóndans frá Sandi,
sem talandi tákns um atkvæða-
þingmann. Hann hefur tfleinkað
sér hina gullvægu kenningu um
fnð og sanxúð, viðreisnartillögun-
um til handa, og muni þær þá bera
góða ávexti. Látum svo vera. En
var viðhorf hans svona „fallegt“
þegar vinstri stjórnin var með sín-
ar tilraunir við sama vanda? Ég
veit það ekki, en ömurlegt finnst
mér, að heyra stjómarmeðlim
Kaupfélags Þingeyinga lýsa yfir,
að hann veit ekki greinarmun á
Sparisjóðum og Innlánsdeildum
K'aupfélaga. Veit þó nálega hver
kaupfélagsmaður á landinu að í
sparisjóði leggja einstaklingar inn
fé sitt, án annars nxarkmiðs en að
geyma það og ávaxta og skiptir þá
— sem slíka — ekki máli þó spari-
sjóðurinn feli aftur einhverri ann-
arri tryggri peningastofnun ein-
hvern hluta sjóðsins, til geymslu,
en innlánsdeildir kaupfélaga eru
niyndaðar af iánsfé frá einstakling-
uin kaupfélaganna sjálfra og ávaxt-
ast eingöngu og varðveítist hjá
koupfélaginu sjálfu, fyrirtækjum
þess og í daglegum rekstri Hér er
á reginmunur. sem Bjartmar þyrfti
að átta sig á ef hann vill vera heill
og hollur kaupfélögunx landsins, og
hæfur til að sitja í stjórn beirra. —-
íslenzka þjóðin þarf að gæta sín
vel fyris einræðisöflum fiokkanna,
og gerfi þingmönuum innan þing
salanna. — má ekki sofna á verð
iitum. —
Pétur Sigfússon.