Tíminn - 25.02.1960, Síða 7
TlMINN, (tamntadagbm 25. febrúar 1960.
7
KVÖDDU ÞORRA
HEILSUÐU GÖU
Fréttamaður frá blaSinu
komst á snoSir um það á
laugardaginn að Unghjóna-
klúbburinn væri að kveðja
Þorrann suður á Álftanesi
þá um kvöldið. Unghjóna-
klúbburinn var stofnaður á
s. I. hausti og sögðum við
frá þv( á sínum tima. Var
gleðin haldin í samkomu-
húsi Garðahrepps, sem ný-
lega hata verið gerðar end-
urbætur á og er það nú
hinn vistlegasti samkomu-
staður.
Þar sem mtkiB hefur yerið
rætt um starfsemi Unghjóna-
klúbbsins og eflaust fýsir marga
til að vita hvemig það fólk
skemmtir sér, þá iðgðum við
land undir fót og fórum út á
Nes. Eftir talsverðar krókaleið-
ir og eftir að hafa ónáðað hvern
einasta íbúa á Álftanesi, fund-
um við loksins staðinn. Auð-
séð var er við ókum í hlað, að
margt var um manninn, enda
stóðu þarna þrír .stórir áætlun-
arbflar auk nokkurra einkabíla.
Hafið þið félagsskírteini
Eftir að hafa barið að dyr-
um og beðið góða stund úti l
kuldanum og myrkrinu, birtist
roskinn maður 1 dyrunum. Ekki
fannst okkur hann neitt „ung-
hjónalegur", þar sem hámarks-
aldur er 35 ár. En fljótlega kom
umst við að því að þetta var
sjálfur hreppstjóri Garða-
hrepps og var hann þar til að
gæta húsa sinna. Hann bað okk
ur um félagsskírteini, en við
sögðumst ekki vera meðlimir
og þar að auki ógiftir, en það
stæði vonandi til bóta. Eftir að
hafa sagt honum hvers vegna
við værum eiginlega komnir
þarna, bað hann okkur að bíða
andartak. Að vörmu spori kom
hann aftur í fylgd með for-
manni klúbbsins, Jóni Gunn-
laugssyni.
Matur er mannsins megin
Jón bauð okkur að ganga í
salinn og þar inni sátu um 150
manns að þorrasnæðingi, auð-
vitað voru þetta eintóm ung-
hjón. Á borðum voru dýrðlegir
réttir, sem tilreiddir voru af
kvenfélagskonum hreppsins.
Greinilegt var að margur hafði
tekið vel til matar síns.
Skömmu seinna hóf danshljóm-
sveitin leik sinn og hvert ein-
asta par var komið á gólfið áð-
ur en við gátum talið upp að
þrem. Það vakti athygli okkar
hvað fólkið var staðráðið í að
skemmta sér og skemmta sér
vel.
Margt til gamans gert
Engin aðkeypt skemmtiatriði
voru þarna, heldur önnuðust
meðlimir þau sjálfir, enda hef-
ur klúbburinn á að skipa góðu
fólki í þeim efnum. Sérlega
vakti athygli okkar hinn gamal
kunni munnhðrpusnaiingur
Ingþór Haraldsson. Ýmis önn-
ur skemmtiatriði hafa eflaust
komið á eftir en nú var komið
miðnætti og Þorri á enda, en
viðtekin Góa og þar með var
heimsókn okkar lokið á þetta
ágæta Þorrablót. Áður en við
kvöddum þetta glaðværa fólk
urðum við að lofa því hátíðlega
að gera það sem í okkar valdi
stæði til að fullnægja inntöku-
skilyrðum í Unghjónaklúbbinn
sem fyrst.
Góður félagsskapur
Eins og fyrr getur er Ung-
hjónaklúbburinn stofnaður á
s. 1. hausti og eru meðlimir
hans nú komnir nokkuð yfir
annað hundraðið. Stjórn skipa
þeir Jón Gunnlaugsson, form.,
Jónas Jónasson varaform., Jón
H. Björnsson, Vilhjálmur Ein-
arsson og Magnús Marteinsson.
Félagið hefur þegar haldið
nokkrar skemmtanir og er
starfsemin í fullum blóma.
— jhm.
Tilkynning
Athygli innflytjenda og smásöluverzlana er hér
með vakin á tilkynningu um ný verðlagsákvæði,
sem birt verður í Lögbirtingarblaðinu í dag.
Reykjavík, 25. febrúar 1960.
Verðlagsstjórinrt
Öllum þeim mörgu, sem glöddu mið með heim-
sóknum, gjöfum og kveðiusendingum á sjötugs-
afmæli mínu, flyt ég mínar alúðarfyllstu þakkri.
Bjarni Björnsson,
Vesturgötu 9.
Fermingaföt
Margir litir.
Drengjajakkaföt. frá 6—14 ára
Matrósföt, 3—8 ára, rauð og blá
Drengjabuxur, Drengjapeysur
Drengjabuxnaefni, tækifærisvcrð
Æðardúnssængur — Hálfdúnn
Ullarsportsokkar.
Karlmaunasokkar, ull
Sendum í póstkröfu.
NONNI
Vesturgötu 12 — Sími 13570
Blaðburður
Tímann vantar ungling til blaðburðar um Skóla-
vörðustíg.
AFGREIÐSLA TÍMANS
Geymsluhúsnæði
óskast til leigu. — Upplýsingar í Sjávar-
afurðadeild
Sambands íslenzkra samvinnufélaga