Tíminn - 24.03.1960, Qupperneq 7

Tíminn - 24.03.1960, Qupperneq 7
TIMIN N, fimmtudaginn 24. marz 1960. 7 1 T m Steinsteypt Reykjanesbraut verði fullgerð á næstu 5 árum Þeir Jón Skaftason og Geir Gunnarsson flytja frumvarp til laga um að leggja nýjan veg frá Álftanesvegamótum um Keflavík og Garð og til Sandgerðis. Vegagerð þessa skal miða vi*ð þa'ð, að samgöngur milli Reykja víkur og Sandgerðis verði sem hagkvæmastar og öruggastar og henni haigað sérstaklega með til- iiti til framtíðamota íslendinga af Keflavíkurflugvelli fyrir milli landa- og innahlandsflug. Veginn skal fullgera mefð slit- lagi úr steinsteypu og skal miða friamkvæmdir við það, að vegur- inn verði fullgerður á næstu fimm árum. Til framkvæmdanna skal ríkis- stjóminni heimilt að taka allt að 85 milljón króna lán. í greinargerg með frumvarpmu segir: Á þingi 1958—1959 flutti Ólaf- ur Thors, þáverandi þingmaður Gull'bringu og Kjósarsýslu, tilögu til þingsályktunar um steinsteypt an veg frá Hafnarfirði til Sand- Þingveizluvísa Ekið aftur á bak Býr í öllum einhver þrá, um það vitnar saga. Ólafur vill ólmur fá aftur gamla daga. Emil heyrði hersis kvak hann í sæti styður, við að aka aftur á bak — aftur á bak og niður. Békamarkaður Hinn þjóðkunni bókamaður og safnari, Helgi Tryggvason, opnar bókamarkað að Laugavegi 7 n. k. föstudag, og verða þar á boðstól- um gamlar bækur, fjöldi tíma- rita og blaða. Verður þar áreiðan lega um auðugan garð að gresja fyrir bókmenn og safnara. Bóka- markaður þessi mun standa aðeins fáa daga og er því ráðlegst fyrir bókamenn að líta þar inn sem fyrst. Fékk 6200 fiska Vestmannaeyjum, 23. marz. — Margir Eyjabátar fengu dágóðan afla í gær. Austan hvassviðri var, og nokkrir bátanna sneru við í gærmorgun. En sumir þeirra, sem róa langt vestur eftir, fóru alla leið og drógu net sín, og fengu góðan afla. Hæstur var Bergur frá Bestmannaeyjum, og fékk hann 6200 fiska. Nokkrir aðrir voru með um 4000 fiska. Þetta var langt vestur frá, sem fyrr segir, en samt vona menn að fiskurinn sé að koma. SK Jón Skaftason og Geir Gunnarsson flytja frumvarp til laga gerðis. Tillögunni var vísað til fjiárveitmganefndar sameinaðs þings. Nefndin skilaði ekki áliti um þngsályktunartillögu þessa, en að samkomulagi varð í nefndinni að leggja til vig Alþingi, að til- laga þessi, ásamt með tillögu frá 1. þm. Rangæinga, Ingólfi Jóns- syni, um vegagerð úr steinsteypu, yrðu afgreiddar með samþykkt svofelldrar þingsályktunartillögu: „Alþingi ályktar að fela ríkis- stjóminni að láta í samráði við vegamálastjóra, útbúa fyrir næsta þing framkvæmdaáætlun um að steypia fjölfömustu þjóð- vegi á næstu ámm. Verði jafn- framt gerðar tillögur um fjár- öflun til framkvæmdanna og stefnt að því, að vegagerð með þessum hætti geti hafizt á næsta ári.“ Þann 30. jan. s.l. sendi vega- málastjóri fjárveitinganefnd um- sögn sína um tillögu þessa. Kostnaður Þar segir, að kostnaður við nauðsynlegar umbætur og steypt slitlag á Reykjanesbraut muni nema samtals 68,1 millj. kr., og sundurliðist hann þannig: Endurbygging á 35 km. vegar- kafla kostar 21,3 mlilj. kr., og steypt slitlag á 40 km. vegarkafla kostar 46,8 millj. kr. Sfðan þessi áætlun var gerð, hafa nokkrar’ verðhækkanir orðið af völdum efnahagsráðstafana ríkisstjórnarinnar, sem raska þess um útreikningi. Erfitt er að á- ætla, hversu þær hækkanir nema miklu, en senniiegast aldrei minna en 25%. Reykjanesbmut hefur sér- stöðu umfram þjóðvegi laudsins. Bæði ér umferðin á þeim vegi sú mesta, sem þekkist hérlendis, þar sem um hann fara daglega a.m.k. 1000 bifreiðar, og svo er hitt atriðið, sem ræður hér mestu um, og það er, að aug- ljóst er, ag innan nokkurra ára verður Keflavíkurflugvöllur aðal flugvöllur landsmanna, a.m.k. fyrir millilandaflugið og senni- legast innanlandsflugið líka. — Mjög er nú rætt um að Ieiggja niður Reykjavíkurflugvöll, og yfirgnæfandi líkur eru til þess, að svo verði á næstu árum. Þá er ekki í önnur hús a'ð veinli en til Keflavíkurflugvallar fyrir flugfélögin íslenzku, enda ekki í kot vísað, þar sem ágætis að staða er fyrir hendi á allan hátt. Þá er ekki ósennilegt að Kefla- víkurflugvöllur verði alþjóðleg lendingar- og skiptistöð á al- þjóðaflugleiðum, og er þá margra hluta vegna nau'ðsyn- legt, að greiðfær og góður veg- ur tengi hann við höfuðborg- ina. Af framansögðu er ljóst, að Reykjanesbrau t hefur algera sérstöðu meðal þjóðvega lands- ins og því sérstök nauðsyn á að hraða vegagerð þar. Það er vitað, að hér' er um all- dýra framkvæmd að ræða, en ekki er til lítils ag vinna. Auk þess, sem ag framan er sagt, má telja þetta: Á árinu 1957 nam viðhaldskostn aður á Reykjavíkurbraut 1,5 milij. kr., og hækkar sá kostnaður nú stórlega.. Viðhaldskostnaður á steyptum vegi er að sjálfsögðu mun lægri, 1000 daglega Daglega aka a.m.k. 1000 bif- reiðar ,um Reykjanesbraut 40000 km. á dag.- Væri vegur þessi steyptur, er áætlaður sparnaður uvíst hvað áburöur o ir verður greiddur mikið niður r * Fyrirspurn Asgeirs Bjarnasonar „svarað“ í gær Ásgeir Bjarnason beindi þeirri fynrspurn til landbún- aðarráðherra í Sameinuðu þingi í gær, hvað ríkisstjórn- in ætlaði að greiða mikið nið- ur fóðurbæti og áburð. Inn- fluttur fóðurbætir mun hækka i um 43—70% og áburður, inn-j fluttur, um 60%. Hæstv. land búnaðarráðherra hefur látið þau orð falla, að innfluttur á- burður og fóðurbætir myndi verða greiddur niður og vildi bví spyrja, hve mikið ætti að greiða niður. AUt á huldu Ingólfur sagði, að enn væri ekki endanlega ákveðið innan ríkisstjór’narinnar hve mikið ætti að greiða niður innfluttan áburð. Þrífosfat myndi hækka upp í 397 krónur vegna efnahagsaðgerðanna en myndi „sennilega“ verða greitt niður í 245 krónur; Kalí myndi sennilega verða greitt niður í 108 krónur og blandaður áburður sennilega niður í 117 krónuí. Kjarni Kjarni þarf að hækka um 100 krónur á tonnið þ.e. upp í 2400 krónur. Komið hefur til mála, ÁSGEIR BJARNASON sagði Ingólfur að hækka tonnið af kjarna í 2500 krónur og greiða 5 krónur af hverjum poka til niðurgreiðslna af innfluttum á- burði. Einnig hefur komið til greina að nota 2 milljónir frá Áburðarverksmiðjunni í þessu skyni. ' Loðin svör Svör ráðherra við því, hvað greiða ætfi fóðurtíæti mikið nið ur voru svo loðin að ekki var hægt að henda reiður á það, hver raunverulegt verð íóðurbætis yrði eða, hvort þær viðbótarhækk anir, sem enn væru ekki komnar fram myndu hækka verðið eða hvort þær yrðu greiddar niður, en ráðherr’a taldi að fóðurbætir- inn myndi hækka um 14—19% þegar. Umræðum frestað Ásgeir Bjai-nason æsk’ti skýrari svara um það, hvað greiða ætti fóðurbæti mikið niður, en bað um að umræðum um áburðinn yrði frestað, þar til ríkisstjómin hefði tekið fullnaðarákvörðun um mál- ið. Þá óskaði Ásgeir einnig upp- lýsinga um það, hvort-aukning sú á niðurgreiðslum, 38 milljónir, ■sem tilgr’eindar væru í fjárlögum , að fara ættu til niðurgreiðslna á vörum, sem voru áður undir 130% yfirfærslugjaldi, næðu einn i ig til niður’greiðslna á áburði og fóðurbæti. Ingólfur fékksl ekki til að gefa skýrari svör um fóðurbætinn. 5 þingmenn höfðu nú hvatt sér hljóðs um málið, en forseti (Sig. Ágústsson) frestaði málinu flest- um á óvart, og taldi það gert að beiðni fyrirpyrjanda, en Ásgeir neitaði því eindregið, kvaðst að- eins hafa óskað eftir því að ann- ar liðurinn. áburðurinn, yrði tek in af dagskrá, enda hafði hann beðið u'rn orðið. JON SKAFTASON umferðarinnar heilt ár talinn 5.840.000 kr., og fer sú tala hækk I andi með auknum bifreiðafjölda og hærri r’ekstrarkostnaði bif- reiða. Það er því ljóst, að fjárhags- lega yrði mjög arðvamlegt að i steypa veg þennan, enda er fyrir því erlend reynsla að það borgi sig vel að setja varanlegt slitlag j á vegi, þegar umferð á þeim hef I ur náð 200—300 bifreiðum á dag. I Reykjanesbraut hefur af orð- snjöllum mönnum verið nefnd „Ódáðahraun íslenzkra vega“. — 1 Lýsir sú nafnagif) betur en mörg orð fá gert, ásta ídi þessa fjöl- fainasta þjóðvegar landsins. Við ■svo búið má ekki lengur standa. Framkvæmd þessa lagafrumvarps er að vísu dýr, og eðlilegt verður að telja, að ríkisstjórnin fái heim ild til þess ag taka lán til þessara framkvæmda, jafnframt því að fé sé veitt á fjárlögum til hennar. Að endingu vil ég leyfa mér að benda á hugmynd, sem fram kom í greinargerð Ólafs Thors, hæstv. forsætisráðh.. fyrir þáltill. hans um fjáröflun til þessarar vegagerðar. en þar segir svo: „Vaxi mönnum í augum kostn aður við framkvæmd þessa, er eng in fjarstæða að taka til at’hugun- ar, hvort rétt þætti að leggja skatt, er næmi örfáum krónum. á hverja bifreið. sem um veginn fer. Mundi með því móti auðið án tilfinnanlegra útgjalda fyrir fer'ðamenn að afla rikissjóði tekna, er nægðu til vaxtagreiðslu af stofnkostnaði og jafnvel að ein hverju leyti til afborgana, sem þó ríkissjóður að eðlilegum hætti gæti staðið undir vegna sparn aðar á vegaviðhaldinu. Telji menn rétt ag leggja inn á þessa braut, mun að sjálfsögðu af því leiða, að sams konar gjöla verður að leggja á þá, sem ferð ast um aðra steinsteypa vegi, sem í framtíðinni hljóta ag verða lagð ir hé>- á landi

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.