Tíminn - 24.03.1960, Qupperneq 16
Endurgalt funda-
höld á Héraði
Bó'ndi austan aí landi hélt aimennan fund um
efnahagsmálin í Reykjavík
Það er engin nýlunda þótt
stjórnmálaforingjar geysist
um landið með fundahöldum
og lúðraþyt, hitt er öllu sjald-
gæfara og allt að því einsdæmi
sð einn almennur kjósandi af
fjarlægu landshorni komi til
höfuðstaðarins til að halda
stjórnmálafund upp á eigin
spýtur, einn og óstuddur.
Það vakti þó nokkra athygli
þegar auglýst var í blöðum og út-
varpi að Einar Björnsson bóndi
frá Mýnesi í Eiðahreppi ætlaði að
halda almennan umræðufund um
efnahagsmálin og viðhorfið í þjóð
málum, Almenningur var þvi
vanur að nafntogaðir stjómmála-
garpar boðuðu til fundar nokkiir
í hóp, hitt vakti forvitni að ó-
þekktur bóndi austan af Héraði
leigði eitt stærsta samkomuhús
Reykjavíkur til að koma skoðun-
um sínum á framfæri og fá sam-
borgarana til að ræða málin.
Óvenjulegf erindi
Það var ekki laust við að ýms-
um fyndist karl sá furðu djarfur
og einhver hafði við orð að nú
væri Don Quixote íslands risinn
úr öskustónni og kominn albrynj-
aður til að berjast við vindmyllur
stjórnmálaiífsins. „Það er kominn
bóndi austan af landi í bæinn og
ætlar að frelsa lýðinn“, sagði ann
ar þegar hann var spurður al-
mæltra tíðinda.
Almenningur var semsagt dá-
lítið á báðum áttum, svo vanur
scm hann var orðinn að haldið
væri um taumana ofan að.
Hógvær maSur
Okkur lék forvitni á að hitta að
máli þennan 47 ára gamla bónda
sem hafði tekið sig upp frá búi
og börnum og farið gagngert lang-
an veg til höfuðstaðarins til að
gera grein fyrir sínum málefnum
í áheyrn alþjóðar. — Við hittum
hann fyrir, hispurslausan og hressi
legan í tali. Einár er alls ólíkur
þeim manngerðum sem hvarvetna
vilja tróna á pöllum og trana sér
fram, þvert á móti er hann hlé-
drægur og hógvær. Sýnilega er
það brennandi sannfæringin ein
sem hefur ráðið ferðum hans, en
ékki löngunin til að láta á sér
bera.
Endurgeldur heimsókn
„Ýmsum kann að finnast þetta
skrítið uppátæki hjá mér“, segir
Einar og kímir, „en þeir komu
austur á Hérað með fundahöldum
og ræðumennsku, höfðingjarnir
úr Reykjavík fyrir kosningar og
ég er bara að endurgjalda þeim
heimsóknina. Ég býst ekki við
miklu, en mín hugmynd er sú að
konrn af stað dálitlu þrukki neðan
frá. Ég vil fá forystumenn vinstri
afianna til að koma á sterkum
samtökum sín á milli. Vinstri
menn eru í meirihluta í landinu,
ef þeir aðeins bera gæfu til að
vinna saman.
Hlöðufundur
Er langt síðan þú fékkst áhuga
á stjórnmálum? — Það hefur
sennilega verið fyrst þegar þeir
fóru um landið, Jónas Jónsson,
Haraldur Guðmundsson og Magn-
ús heitinn Jónsson. Þá héldu þeir
fund í hlöðunni hjá Sveini á Eg-
islstöðum og þar kviknaði eitthvað
í mér. Þá var ég um fermingii.
Ég hef oftast fylgt sósíalistum að
n,álum, stutt flokkinn sem sjálf-
boðaliði, jAnnars fara stjórnmála-
(Framhald á 15. síðu)
EiNAR BJÖRNSSON
Bílaárekstrar fara árlega í vöxt hér í Reykjavík. Veldur þar miklu um, að fjölgunin í umferðinni hefur verlð gíf-'
urleg að undanförnu vegna mikils innflutnings á bílum. í kjölfar þessarar fjölgunar fylgir svo, að mikið af
óvönu fólki situr nú undir stýri. Allt hjálpast því að við að gera umferðina erfiða og auka hættuna á tjóni á
farartækjunum. Vísir menn segja að eitt ráðið til að draga úr vandræðum sé að koma á fót sérstökum ökuskóla,
og einnig að fella fólk frá bílprófi, sem nú mun vera næsta sjaldgæft fyrirbrigði. Þá er nauðsyniegt að herða
að mun eftirlit með umferðinni.
Heyrði ekki hundinn
gelta og var dæmdur
Síðast liðinn laugardag 19.
marz var kveðinn upp af Þórði
Björnssyni í sakadómi Reykja
víkur dómur í máli, sem höfð-
að var af ákæruvaldsins hálfu
gegn Guðjóni Atla Árnasyni,
Suðurlandsbraut 7, hér í bæ
en nú fanga á Litla Hrauni,
fyrir tilraun til nauðgunar.
Málsatvik voru þau að síðla
kvölds 6. apríl f.á. réðist ákærði
á 15 ára gamla telpu í Kringlu-
mýri, hér í bæ, og kvað telpan
hann hafa reynt að taka hana
nauðuga þar en það hefði ekki
tekizt vegna mótsþyrnu hennar.
Ákærði neitaði þessum ásökunum
og kvað þau aðeins hafa farið að
stríða hvoiu öðru og af því til-
efni hefði komið til smávægilegra
áfloga milli þeirra.
í rannsókn málsins kom fram
að eftir átök telpunnar og ákærða
var hún illa til reika, blóðug, bólg-
in og marin og föt hennar rifin
Hringdi oft
til London
Eins og Tíminn skýrði frá s.l.
föstudag, kom togarinn Little
Ouse, eign grísku svilanna og
skipakónganna Onassis og Livan-
os, til Vestmannaeyja, til þess að
kaupa fisk. Togarinn hefur verið
í eyjum síðan, og hálfgert reiði-
leysi á áhöfninni, sem er mest-
megnis grísk og belgísk, m.a. hefur
skipstjórinn oftlega hr'ingt til
London. Eitthvað hafa skipsmenn
af Little Ouse verið að leita fyrir
sér um fiskkaup, en þótt verðið
of hátt. Um hádegi í gær var hann
kominn með troll um borð, og
talið að hann myndi nú ætla sjálf
ur á veiðar, svo sem betur sæmir
togara en snapa fisk upp úr öðr-
um skipum.
og tætt. Þa benti athugun á vett-
vangi einnig eindregið til þess að
komið hefði til alvarlegra átaka
þar. Orð og athafnir ákærða bæði
fyrir átökin og eftir þau, er lög-
reglan hafði handtekið hann,
st.yrktu enn fremur framburð telp
unnar. Þess má og geta að gelt-
andi hundur kom á staðinn, er á-
tökin stóðu yfir, og hlaut ákærði
að verða hundsins var en því neit-
aði hann og var með því uppvís
að ósannsögli.
Sekur fundinn
Niðurstaða sakadóms varð sú að
hann taldi að framburður telpunn-
ar væri studdur þeim rökum að
leggja yrði hann til grundvallar
í málinu. Væri lögfull sönnun
fengin fyrir því að ákærði hefði
reynt að þröngva telpunni til sam
fara með ofbeldi og þannig gerzt
brotlegur gegn 194. gr. 1. mgr.
sbr. 20. gr. 1. mgr. almennra hegn
ingarlaga nr. 19, 1940.
Tvö ár og fébætur
Var ákærði dæmdur í fangelsi
í 2 ár og sviptur kosningarétti og
körgengi til opinberra starfa og
annarra almennra kosninga.
Þá var hann dæmdur til að
greiða bætur til telpunnar samtals
kr. 12.000,00.
Loks var ákærða gert að greiða
allan kostnað sakarinnar, þar með
talin málfiutningslaun skipaðs
sækjanda og verjanda í málinu,
Loga Einarssonar, hdl. og Egils
Sigurgeirssonar, hrl., kr. 3.000,00
til hvors.
Við ákvörðun refsingar ákærða
var tekið sérstakt tillit til afbrota-
ferils hans en síðan á árinu 1944
hefur hann hlotið 8 refsidóma og
verið dæmdur til fangelsisvistar í
samtals 9 ár og 4 mánuði.
Ákærði hefur óskað eftir því,
að dóminum verði skotið til hæsta-
réttar.
(Frá sakadómara.)
t-----------------------------
Á skotspónum
ic Heyrzt hefur að Júlíus
Havsteen, fyrrum sýslumaður,
sé farinn eða á förum til Genf-
ar á kostnað ríkisins sem full-
trúi á hafréttarráðstefnuna.
it it ic Líkur eru fyrir því, að
Theódór Lindal, prófessor í
iagadeild, hljóti dómaraembætt
ið í Hæstarétti. Þór Vilhjálms-
son, ektamaki Ragnheiðar
Helgadóttur, er aukakennari
við lagadeildina, og er það hald
manna að hann verði gerður að
prófessor þegar búið er að losa
sæti Theódórs.
ic ic ic Ekki er búið að veita
embætti yfirlæknis á Kleppi,
þót tvö ár séu liðin frá láti
Hclga yfirlæknis Tómassonar.
En úti í Bandaríkjunum er
er Tómas Helgason við að ljúka
prófi í geðlækningum. Og er
þess þá að vænta að embættið
verði bráðlega veitt.
k.---------------------------J
Kaldi
í dag er gert rá3 fyrir su8-
austan kalda eöa stinn-
ingskalda, rigningu við og
við. Það er sem sagt ekk-
ert lát á þíðviðrinu, og
er ekki nema gott um það
að segja.
i I i í L tú A • •1