Tíminn - 06.04.1960, Qupperneq 1
I
TÍMINN flyfur daglega
meira af innlendum frétt-
um en önnur blöð. Fylgizt
með og kaupið TÍMANN.
44. árgangur. — 79. tbl-
TlMINN er sextán * síð> "!
daglega og flytur f|l
breytt og skemmtllegt efn.
sem er við allra hæfi.
J
Miðvikudagur 6. apríl 1960.
Þessi mynd var tekin á Vatnajökli eftir Geysisslysið og sýnir áhöfn Geysis á leið til byggða.
MálamiöSunartillaga
lögð fram í vikulok
Fulltrúar Kanada, Bretlands og Bandaríkjanna á hafréttarráðstefnunni
í Genf hafa verið á einkafundum síöustu daga. — Atkvæöagreiöslur
í nefnd veröa sennilega ekki fyrr en eftir helgi V
KVIKMYND UM
GEYSISSLYSIÐ
KvikmyndafélagiÖ Nordisk Film er aÖ hefja töku
myndar um GeysisslysiÖ og aÖdragandá aÖ stofn-
un LoftleiÖa —
Einkaskeyti frá fréttaritara
Tímans í Khöfn, 5 apríl.
Nordiske filmskompagni
greinir svo frá, að nú sé á
döfinni hjá félaginu undirbún
ingur að kvikmynd, sem mun
byggjast á hinum áhrifa-
mikla atburði, sem öðru frem-
ur varð til þess, að flugfélagið
Loftleiðir var stofnað, þ.e. á
hinu fræga Geysis-slysi, sem
flestir- ísiendingar kannast
við. Frásögn um Geysis-slysið,
sem fengið hefur á sig blæ
hinna íslenzku þjóðsagna, um
karlmennsku og áræði, birtist
fvrir skömmu í danska viku-
blaðinu Famelie Journal undir
titlinum: „Mysteriet Geysir.“
Sterkar líkur virðast benda
til, að niðurstaða hafréttarráð-
stefnunnar í Genf verði sú,
að samþykkt verði einhver
málamiðlunartillaga milli kan
adísku tillögunnar um 6 mílna
landhelgi og 6 mílna belti þar
fyrir utan, þar sem strandríki
eitt hafi rétt til veiða, og til-
lögu Bandaríkjanna um 6+6,
þar sem erlent ríki fái leyfi
til fiskveiða á ytra 6 mílna
beltinu, samkvæmt hinum
svonefndu „sögulegu réttind-
um“, þ.e. ef það hefur stund-
að veiðar á svæðinu síðan í
órsbyrjun 1953. — Fulltrúar
Breta, Kanadamanna og
Bandaríkjamanna hafa setið á
einkafundum, þar sem hugsan
leg málamiðlun hefur verið
rædd, en talið er, að málið
verði fyrst látið ganga til at-
kvæðagreiðslu í nefnd, en
hún mun naumast verða fyrir
helgi.
Enn er fjöldi fulltrúa á mæl-
endaskrá, og því talið öruggt, að
ráðstefnunni ljúki ekki fyrir páska.
í gær fluttu margir fulltúar ræð-
ur, en fátt nýtt kom fram, en af
ræðum þeirra má ráða, að vaxandi
fylgi er með einhvers konar mála-
miðlunrtillögu milli tillagna Kan-
ada og Bandaríkjanna. Talið er að
Bandaríkin standi að baki þessari
málamiðlun, þar sem séð er fram
á að bandaríska tillagan mun ekki
hljóta nægjanlegt fylgi, því að
flest þau ríki, sem studdu tillöguj
USA á síðustu ráðstefnu, mæla nú
með málamiðlun milli tillagna Kan
ada og USA.
Fulltrúar ísraels, Nýja Sjálands
og Ceylon urðu sammála um það
í ræðum sínum í gær, að landhelgi
skyldi ekki vera stærri en 6 mílur.
ísraelski fulltrúinn vék að kanad-
ísku tillögunni um einkarétt
strandríkis til fiskveiða á 12 mílna
belti frá strandlengju og sagðist
ekki fallast á hana, því virða þæri
hinn „sögulega rétt“ erlendra ríkja
um fiskveiðar á ytra 6 mílna belt-
ipu. Fulltrúi Nýja-Sjálands sgðist
taka tiMögu USA fram yfir fram-
komnar i lögur Kanada, Mexíkó
og Sovétríkjanna, en þó vildi hann,
að „sögulegi rétturinn
markaður. Fulltrúi Ceylon studdi
hins vegar eindegið bandarísku til-
löguna og sagðist vera á móti tíma
takmörkun á „sögulega réttinum".
Fulltrúar Asíu og Afríku hafa
iýst því yfir, að þeir muni ekki!
taka afstöðu með neinni tillögu, ’
sem ríkjasamstæður bera fram og
býðir þetta, að tillaga Bandaríkj-
anna getur ekki hlotið meirihluta
á ráðstefnunni.
Reiknað er með, að málamiðl
unartillaga milli tillögu Kanada
og USA verði lögð fram á ráð-
stefnunni í lok þessarar viku, en
fulltrúar beggja aðila hafa setið
á rökstólum síðustu 8—10 dag-
ana. Álitið er, að eitt af nýju
ríkjunum, sem skammt eru á
veg komin í fiskiðnaði verði
látið bera tillöguna fram.
Höfuðdrættir hennar verða 6
mílna landhelgi og 6 mílna fisk-
veiðilögsaga, þar sem erlent ríki
hafi fiskveiðirétt á ytra 6 mflna
beltinu næstu 10—15 árin, sam-
kvæmt „sögulega réttinum“. Á
þessi frestur að vera til þess að
gefa ríkjum, sem sótt hafa fjar-
læg mið, tækifæri til að breyta |
veiðifyrirkomulagi sínu.
Á morgun tala fulltrúar Kóreu, , , f .
írans, Guineu og Ethiopíu. jstar sins.
Þar var brugðið upp nokkuð
þjóðsagnakenndri, en áhrifamik-
illi mynd a£ slysinu, og sýnt hvern-
ig atburðurinn gagntók hugi heill
ar þjóðar og fékk hana til að taka
þátt í allri framvindu björgunar-
Strax eftir að Nordisk Film
hafði gefið yfirlýsingu um þenn-
?r, undirbuning, tryggði félagið
sér einkarétt á kvikmynduninni.
Upp frá því hafa bæði þýzkir,
brezkir og amerískir kvikmynda-
framleiðendur gengið fast á félag-
ið um að fá leyfi til að nota þetta
efni tii kvikmyndagerðar.
Heima á íslandi er mikill áhugi
fyrir því, að danskt kvikmynda-
félag taki þetta verk að sér, og
þegar er hafin dönsk-íslenzk sam-
vinna til að koma þessu erfiða, en
mikilsverða verkefni í fram-
kvæmd. Taka og öll framleiðsla
myndarinnar verður miklum erf-
iðleikum háð og án efa kostnaðar-
söm, svo þörf er á góðu samstarfi.
Enn hef.rr hlutverkaskipun ekki
verið ákveðin, en er í athugun
sem stendur.
Eins og sakir standa er einnig
verið að athuga, hvernig töku
myndarinnar verði hagað og hverj
ir skuli standa að upptökunn, en
líklegast er talið. að kvkmynd-
in verði tekin í International ver-
sion með hugsanlegu samstarfi
þeirra þjóða, sem áhuga hafa á
kvikmyndatökunni.
— Aðils
HRAPADI 309 METRA
í gær fór Gunnfaxi Flugfé-
lags íslands í sjúkraflug til
_ Meistaravíkur á Grænlandi að
yrðif ^:! sækja þangað slasaðan mann.
Ferðin gekk að óskum þrátt
fyrir ruddaveður og var Dan-
inn samstundis fluttur á
Landsspítalann þegar flugvél-
in lenti í Reykjavík. Sambands
laust var við Gunnfaxa' allt
frá því hann fór héðan þar til
hann var kominn yfir Horn á
Vestfjörðum á heimleið.
Tíminn átti í gær tal við Ingi-
muæd Þorsteinss'on flugstjóra, en
hann stjórnaði Gunnfaxa í þessari
ferð.
300 metra hrap
Sagði hann að lagt hefði verið
af stað kl. 18,33 í gær og var dr.
Friðrik Einarsson yfirlæknir með
i förinni. Hafði borizt skeyti um
að Daninn væri hættulega slasað-
(Framhald á 3. síðu).
Myndin er tekin á Reykjavíkurflugvelli ! gærkveldi, er verið er að flytja
þann danska í sjúkrabflinn. — (Ljósm.: Tímlnn, K.M.).
HSSBBKBBBBmKQISaBBBRBBBB2K3BR3EnBl
Metvertíð í Vestmannaeyjum - bls. 3