Tíminn - 06.04.1960, Blaðsíða 4
4
T f MIN N, mifivikudaginn 6, apríl 1960.
Þorpsbúar snerust allir til varnar
þeim, sem lögreglan grunaði
Aftaka án dóms og laga á
sér ekki aðeins stað í Suður-
ríkjum Bandaríkjanna. Það
kemur einnig fyrir að grand-
varir borgarar Nýja Englands
taka lögin í sínar hendur.
Bandaríkjamenn kippa sér
ekki upp við það, þótt slíkt
komi fyrir í Suðurríkjunum,
en allt landið varð skelfingu
lostið, þegar það kom fyrir, að
hópur virðulegra borgara í
smábæ í Vermont myrtu einn
samborgarara sinna, Orville
Gibson í blindu hatri.
Hvötin sem lá að baki ódæðis-
verkinu var öfund. Gibson hafði
lagt hart að sér. Hann þrælaði eins
og hestur.
Lögreglan í Vermont vinnur að
því sem stendur að láta alla borg-
ara bæjarins ganga undir lyga-
mælispróf.
Gibson-málið er orðið lögregl-
unni í Vermont metnaðarmál eftir
að hún hefur unnið að því í tvö ár
árangurslaust áð koma að minnsta
kosti einum hinna grunuðu morð-
ingja bak við lás og slá.
Gerðist solumaður
Gibson yax fæddur árið 1910 og
hafði búið í Newbury allt sitt líf.
Foreldrar hans voru fátækir, og
hann vandist fljótt mikilii vinnu.
Hann seldi blöð og vann á
bóndabæjum til að afla peninga til
að komast í menntaskóla bæjarins.
Hann tók ágætt próf.
Kreppa geisaði í Bandaríkjun-
um, og Gibson gerðist sölumaður
hjá Sodavatnsfyrirtæki. Kaup-
menn báru virðingu fyrir honum.
Hann var ekki einn þeirrar mann-
gerðar, sem hristi brandara af sér
í tíma og þtíma. Það þótti þeim
sýna, að hægt væri að treysta hon-
um.
Árið 1943 keypti hann lítinn
bóndabæ og vann ásamt konu
sir.ni að þvi að bæta bújörðina.
Honum græddist fé á bænum og
þegar tækiíærið kom árið 1949
hafði hann það mikil fjárráð, að
hann gat keypt 500 ekra bóndabæ.
Margir nágranna hans voru óðir
og uppvægir. Þeir höfðu sjálfir
haft augastað á Bonnie Acres, og
þeir höfðu ekki reiknað með því,
að Gibson œyndi kaupa jörðina.
Bonnie Acres var eitt stærsta
bóndabýli í Vermont. Gibson og
kona hans unnu sjálf mikið á
bóndabýlinu og höfðu aðeins
einn vinnumann í sinni þjónustu.
Hann hét Eri Martin, og það
var hann, sem gaf Newburymorð-
ingjunum afsökun fyrir því að
ryðja Gibson úr vegi.
Þetta hófst á jóladag 1957. Mart-
in mætti drukkinn í vinnuna, en
bjálpaði Gibson eins og hann gat.
Þeim Gibson lenti saman, og
Gibson sló hann niður.
Fram að þessu liafði enginn í
Newbury haft neina samúð með
Martin. Hann var þekkt fyllibytta,
en það var vitað, að í Bonnie
Acres leið honum betur en hann
átti skilið. Ilann átti eigið hús og
hafði góð 3aun.
En skyndriega varð hann píslar-
vottur þorpsins. Hann mætti alls
staðar samúð. Gibson hafði slegið
Martin niður á hinn hrottalegasta
^h|tt, þannig að Martin varð að
tíveljast maiga daga á spítala.
Þannig var sagan sögð og einn
af nágrönnum Gibsons. Walter
Kenfrew, iýsti því yfir opinber-
lega, að rett væri að velta Gibson
upp úr tjöru og fiðri.
KirkjuráðsmaSurinn
skrökvar
Hinn 30. desember 1957 var
veizla haldin á tveimur stöðum í
Newbury, hjá Gaylord Hosmer og
Charles Kalberg. Drukkið var
whisky, og þar komust menn að
þeirri niðurstöðu, að „Martin lægi
fyrir dauðanum eftir hina hrotta-
legu árás Gibsons."
Það var einn af virðulegustu
borgurum bæjarins og meðlimur
kirkjuráðsins, sem skýrði frá
þessu. Seinna viðurkenndi hann
fyrir rétti, að hann hefði mætt
Martin aðains einum tíma fyrir
veizluna við beztu heilsu.
Gibson og kona hans gengu til
náða þetta kvöld um níuleytið að
venju, því að þau hófu vinnu um
fjögur leytio á hverjum morgni.
Þegar frú Gibson fór út 1 hlöðu
um sjö leytið til að kalla á mann
sinn í morgunkaffi, fann hún að-
eins mjólkurfötu, sem hafði verið
velt um koil. Gibson var horfinn.
Utan við sig af hræðsiu hringdi
hún á lögregluna.
Það voru engin blóðspor í hlöð-
unni, ekkert sem benti til þess að
átök hefðu átt sér stað.
Óvinir Gibsons höfðu bersýni-
lega legið i leyni bak við hlöðu-
dyrnar og slegið hann niður aftan
frá. En hvar var Gibson? Hann
hefur áreiðanlega verið lokaður
inni í sumarbústað eða bundinn
við tré, sagði fólkið í Newbury. En
lögreglan óttaðist morð. Hún gaf
gætur að Connecticutfljótinu, sem
rennur í gegnum Newbury. Á
brúnni yfir fljótið fannst hey.
Rannsóknir í rannsóknarstofu
sýndu, að hey þetta var úr hlöðu
Gibsons.
En fljófið lagði brátt. f þrjá
mánuði fylgdist fólk í Newbury
áhyggjufullt með fljótinu.
Sumir vissu, að einhvern tíma
um vorið myndi lík Gibsons reka
að landi einhvers staðar lengra
niður með fljótinu.
Reipi Róberts
Lögreglan fann hann hinn 26.
marz 1958. Hann var bundinn eins
og kálfur, sem er leiddur til slátr-
ara. Dánarorsökin var ekki
drukknun. Til þess var of lítið
vatn í lungunum. Það voru merki
eftir högg aftan á hnakkanum, en
er.gin för eftir skammbyssukúlu
eða hnífsstungu.
Reipið, sem Gibson var bundinn
með, var eign Roberts nokkurs
„Ozzie“ Welch. Hann var skóla-
bróðir þeirra Gibsons og konu
hans og fólK í Newbury neitaði að
trúa því að Roberts væri meðsekur
um morðið
En lögreglan hafði haft hann
grunaðan um nokkurn tíma. Lækn-
ir nokkur hafði hinn 31 desember
1957 séð bíi stanza 100 metra frá
hlöðu Gibsons. Klukkan var fjög-
ur Læknirinn þekkti einn mann-
anna, sem komu út úr bílnum. Það
var Ozzie. Lögreglan rannsakaði
dagbók iæknisins og athugaði
ferðir hans þennan dag.
Hún komst að því, að hann hlyti
að hafa farið fram hjá hlöðunni á
þessum tíma. Læknirinn hafði
einnig séð óvenjulegan, tvílitan
bíl aka upp að annarri hlið hlöð-
ur.nar. Hann var eign Frank Carp-
enter, en hann og bræður hans
þrír höfðu verið í veizlunni með
Ozzie.
Maðurinn viðurkenndi, að reip-
ið, sem Gibson var bundinn með
væri hans eign, en frám yfir það
hafði hann ekki mikið að segja.
Hann kom fiam með fimm útskýr-
ingar á ferðum sínum aðfaranótt
?.]. desember.
Og þegar lögreglan reyndi að
yfirheyra borgara bæjarins heyrði
hún aldrei annað en lofsyrði um
Ozzie.
Það var áreiðanlega frú Gibson
og mágur hennar, sem höfðu myrt
Orville Gibson, sagði fólk í bæn-
um.
Já, þetta vissu allir, að frú Gib-
son hafði verið trúlofuð máginum
áður en hún giftist Gibson.
Gibson var jarðsettur Prestur-
mn fór að ósk bæjarbúa og ráð-
lagði frú Gibson að láta jarðarför-
ira fara fram í kyrrþei.
Bæjarbúar tóku málsfað morð-
íngjans og að undanskOdum lækni
bæjarins var allt gert, sem hægt
var til að bregða fæti fyrir lög-
reglumennina.
Ozzie var látinn ganga undir
lygamælispróf. En það var árang-
urslaust, því að Ozzie hafði áður
tekið inn svefntöflur, þannig að
hann sofnaði í miðjum réttarhöld-
urium. Lögreglan gat sannað, að
hann hafði keypt töflurnar daginn
áður.
Ozzie og Frank Carpenter voru
ákærðir fyrir morð. Þessir tveir
Newbury-borgarar voru látnir
lausir seinna gegn 40 þúsund doll-
ara tryggingu.
28 vitni
Um haustið var mál þeirra
Ozzie og Carpenter tekið fyrir.
Ozzie hafði einn dýrasta málflutn-
ingsmann Bandaríkjanna, sem
verjanda, sn lögregla fylkisins hélt
lrvd fram, að hún hefði hann í vas-
anum. Hún hafði 28 vitni.
En eftir að dómarinn hafði
heyrt framburð vitnanna, vísaði
hann málinu frá sér. Það vantaði
sönnunargögn, sagði hann Dómar-
ar hafa heimild til að vísa máli
frá rétti í Bandaríkjunum, en það
hefur aldrei komið fyrir áður í
rnorðmáli. Lögreglan átti einskis
úrkosta. Hún varð að láta Ozzie
lausan, og samkvæmt bandarísk-
um Iögum, er ekki hægt að ákæra
hann aftur.
Ozzie andaðist úr krabbameini
síðasta dag desembermánaðar, og
litlu áður hafði Gene Carpenter,
bróðir Franks einnig andazt. Þeir
tóku leyndarmál sín með sér í
gröfina.
Ozzie fékk virðulega útför. Flest
ailir bæjarbúar fylgdu honum til
grafar, og presturinn ræddi mikið
um það, hvílíkur ágætismaður
Ozzie hefði verið, hann hefði alltaf
eytt einum tíma í viku hverri til
að kenna skólabörnum að leika
handbolta.
Frú Gibson hefur selt Bonnie
Aeres. Hún gat ekki séð um býlið
ein. Hún hugsar sér að flytja frá
Newbury. Hún veit, að lögreglan
grunar 12—13 menn um morðið.
Nokkrir hinna grunuðu eru gaml-
:r kunningjar hennar. sumir eru
gamlir sKÓlafélagar, aðrir ná-
gannar.
(Framhald á 13. síðu).
Kennsla
í þýzku. ensku frðnsku.
sænsku dönsku bókfærslu
og reikningi.
Harry Vilhelmsson
Kjartansgötu 5 Sími 18128
Sala er örugg Hfá okkur.
Símar 19092 og 18966
Bifreiðasalan
Ingólfsstræti 9
SigurSur Ölason
Og
Þorvaldur Lúðvíksson
IMá Lflutningsskrif stof a
Austurstræti 14.
S’rnar 15535 og 14600.
Vinsælar
fermingargjafir:
Veiðistangasett
Skíði
Ferða- og viðleguútbúnaður
Kjörgarði — Laugavegi 59
Herbergi
óskast strax sem næst mið-
bænum’. — Tilboð sendist
blaðinu merkt ,,Apríl“.
Kennsla
í þýzku, ensku, frönsku,
sænsku, dönsku, bókfærslu
og reikningi.
Alls konar karlmannafatn-
aður. — Afgreiðum föt
eftir máli eða eftir núm-
eri með stuttum fyrirvara.
Ultima 1
Hraðsuðukatlar
Element
Hulsur
Snúrur
Höldur
Pakkningar o. fl.
Munið vorprófin, — Pantið
tíma í tíma.
Harry Vilhelmssorí
Kjartansgötu 5. Sími 18128
Rafröst
Þingholtsstræti 1
Sími 10240
ÖSKJUGERÐ
PRENTSTOFA
Hverfisgötu 78. Sími 16230
Þökkum innilega auðsýnda samúð við fráfall og iarðarför föður
okkar
Björgólfs Runólfssonar
Esklflrði.
Hulda Biörgólfsdóttir, Bergur Björgólfsson.
Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andláf og
iarðarför
Þórlaugar Bjarnadóttur
Brautarholti, Hornafirði.
Gústaf Gíslason
börn fengdabörn og systkini hies láfna.
V*V*V*V*V*V‘V*V«V»V*V*V*V*V*V*V*V»V»V*V*V*V*V»V»V»V*V*V«V
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarðarför
bróður okkar
Eggerts Gilfer
Skáksambandi íslands og Taflfélag! Reykjavíkur voftast sérsfakt
þakklæti fyrir mikinn heiður við minningu hans.
Fyrir hönd systklnanna
Þórarinn Guðmundsson.