Tíminn - 06.04.1960, Síða 11
11
inn
Litli svartþrösturinn kemur
frá Trinidad til islands
HJÓLBARÐINN
Laugavegi 173. — Sími 35260.
Hjólbarðar og slöngur
fyrirliggjandi:
500 x 16
700 xl 5
650 x 20
750 x 20
825 x 20
1100x20
„Litli svartþrösturinn" er|
hún kölluð og vagga hennarl
stóð í Port of Spain á eynni
Trinidad, fyrir utan Veneiu-
elaströnd. Hún heitir fullu
nafni Lucille Mapp og byrjar
að syngja í Lidó annað kvöld
og mun skemmta gestum þar
um nokkurt skeið. Frægðar-
ferill Lucille hófst fyrir fimm
árum, á laginu „Litli svart-
þrösturinn" og síðan hefur
hún verið á hraðri uppleið á
himni frægðarinnar.
Áður fyrr var hún lögreglukona
heima á Trinidad og í frítímum
sínum söng hún og náði góðum
árangri. Einnig söng hún oft í
Meþódistakirkjunni og kom fram
í útvarpi. Eiginmaður hennar,
Randolp Curvan, var einnig í lög-
reglunni, en er nú fyrir utan eig-
inmanns'-störfin umboðsmaður
hennar. Fyrir fimm árum fóru þau
hjónin í sumarleyfi til Englands
og þar fékk hún tilboð um að
koma fram i BBC, í þættinum In
Town Tonight. Þar með var frægð
hennar tryggð. Þau hjónin búa nú
í Englandi, en sonur þeirra Ran-
dolph yngri, er heima á Trinidad
hjá afa og ömmu.
Á þessum árum hefur Lucille
sungið í útvarp, sjónvarp og á
skemmtistöðum um þvert og endi-
langt England. Einnig hefur hún
farið víða um Evrópu og nú síðast
var hún í Hollandi. Hingað hafa
horizt úrklippur úr hollenzkum
blöðum „Het Vrije Volk“ og „Al-
gemeen Dagblad“, fær hún þar
frábæra dóma og líkja blöðin
henni við Ellu Fitzgerald og Söru
Vaughan.
Lucille hefur látið þau orð
falla um karlmenn á Norðurlönd-
unum: „Þeir eru stirðari en þeir
á Trinidad, en skemmtilega
frjálsir samanborið við Bretann.“
Enskur smábíll á markaðinn
Bílafyrírtæki í Englandi,
Peerless Cars Ltd. mun innan
skamms hefja framleiðslu á
„stórum smábílum" og eiga
þeir að keppa við amerísku
bílana Falron, Corvair og Vali-
ant. Enn sem komið er, er
þessi bíll aðeins til á teikni-
borðinu, en mun koma á göt-
una innan skamms.
Peerless-bíllinn er teiknaður af
ítölum, véun verður frá Banda-
ríkjunum, cn framleiddur í Eng-
landi. Þanmg að segja má að hann
sé í raun og veru ensk-ítölsk-amer-
ísk framleiðsla. Vélin verður sú
sama og er í Chevrolet Corvette-
sportbílnum og er V 8. Englend-
ingar gera sér góðar vonir um að
hsnn geti keppt við amerísku smá-
Lílana á heimsmarkaðinum. Um
amerísku smábílana er það að
segja að þeir hafa ekki náð þeim
vinsældum sem framleiðendur
gerðu sér vonir um bæði á heima
og heimsmirkaðinum. Þeir eru of
eyðslusamir, segir almenningur.
Enski Peerless-bíllinn kemur
einnig til með að verða eyðslu-
frekur í meira lagi, en Englend-
ingar ætla að selja hann vegna
þess að hann er með ítölskum
línum, sem allir eru hrifnir af,
dollaragríns lúxus og vélarorku
og enskri framleiðsluvöndun.“
Ef til vill eigum við eftir að sjá
þennan bíl hér á götum bæjarins
áður en langt um líður Ekki er
blaðinu kunnugt um hverjir
hafa umboðið fyrir hann hér á
landi.
Hér svaf
Áðaifundyr
Krustjoff
Þetta gamaldags rúm er
frægt m. a. fyrir það að í
því svaf Krúsi meðan á
heimsókn hans stóð í París
nú á dögunum Auðsýni-
lega er rúmið gamalt mjög,
en fallegt engu að síður og
eflaust mjög notalegt að
sofa í því. Skyldi Krústjoff
eiga ;vona fallegt rúm í
Moskvu..... ???
Flugfélags íslands h.f. verður haldinn í Kaupþings-
salnum, Pósthússtræti 2, Reykjavík, föstudaginn
6. maí n.k. kl. 14,00.
DAGSKRÁ:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir hlut-
höfum á skrifstoíu félagsins Lækjargctu 4 dag-
ana 4. og 5. maí n.k.
Stjórnin
Byggingarsamvinnufélag startsmanna
Reykjavíkurbæjar
Einbýlishús ti! sölu
íbúðarhúsið Sogavegur 84 er til sölu á vegum fé-
lagsins. Þeir félagsmenn sem óska að neyta for-
kaupsréttar félagsins, tilkynm það stjórninni
fyrir 15. þ.m.
Stjórn BFSR
j