Tíminn - 10.05.1960, Page 2
2
TÍMINN, þriöjudaginn l». PWjí MeO.
Brýn þörf umbóta
á Olafsfjarðarhöfn
Ólafsfirði, 7. maí.
Ennþá róa bátar héðan á
Grímseyjarmið en afli er nú
Iregari en áður. Tregfiski er
einnig hér á heimamiðum en
þó kemur fyrir að trillur fá
1500—2000 pund. Hins vegar
má heita að togveiðibátarnir
fiski ekkert. T. d. var mótor-
báturinn Sigurður að koma
inn eftir rúmlega viku útivist
og hafði sáralítið.
VeSráttan er yfirleitt hagstæð.
í fyrradag mátti heita vellandi
'hiti. Snjór er mikið til horfinn í
byggð en er töluverður til fjalla,
enda hafa aldrei komið neinar
verulegar hlákur. Byrjað er að
moka Lágheiði O'g vonir standa
til að hún verði bíifaer í næstu
viku.
Fóikið að koma heim
Vertíðarfólkið er að byrja að
koma heirn. Atvinna er ekki mikil
sem stendur en vonandi rætist úr
því. Við væntum þess að mikið
verði unnið við höfnina, enda
brýn nauðsyn að lagfæra a. m. k.
þær stórfeHdu skemmdir, sem á
hafnargarðinum urðu í vetur, en
þá brotnuðu í hann veruleg skörð.
Það, sem mest ríður á í bili er
að keyra grjóti norðan við garð-
inn og að steypa upp í skörðin.
Þess utan þarf að stækka viðlegu-
plássið, því að von er á tveimur
nýjum bátum í suimar og munu
þeir vera 140 tonn. Eigendur
þeirra eru hraðfrystihúsið og bær
inn.
Hafnarmélastjóri kom hér í gær
og leit á skemmdirnar. Er búizt
við að viðgerð á þeim muni kosta
miilljónir. B.S.—m—
Danskur teiknari
sýnir í Mokka
Danskur teiknari, Sven
Erik Jensen, sýnir um 20
vatnslitamyndir og teikning-
ar í Mokkakaffi við Skóla-
vörðustíg um þessar mundir.
Myndirnar eru til sölu.
Sven Erik Jensen er fædd-
ur 13/8 1919 í Álaborg o,g er
skreyti^gamálari. Hann hefur
skreytt kaffihús og skemmti
staði í Hróarskeldu, og hef-
ur stundað nám í 2 vetur í
blaðateikningum í „Akademi
for fri og merkantil Kunst“
í Köln. Hann hefur verið tvö
sumur í Grænlandi og hefur
meðal annars teiknað sér-
stakt skrautbréf, sem gefið
hefur verið út í stóru upp-
lagi til manna, sem dvalið
hafa í Grænlahdi. Hann hef
ur tekið þátt í þrem sýning-
um í Danmörku.
AUSTAN I
Kalin tré
Dýrafirði, 5 maí. *— Hér hef-
ur verið þrálát kuldatíð und
anfarið, norðaustan strekking
ur og hraglandi á fjöllum en
úrkomulaust í byggð. Trén
voru byrjuð að litka í góðu
tíðinni í vetur, en hafa farið
af.tur og kalið. Jörð er ekki
enn orðin klakalaus. Fé er
þvi allt enn í húsi og á gjöf.
J.D.
Byrjaíir me’ð færi
Bolungarvik, 7. maí. — Vetr-
arvertíðinni er að ljúka og
hafa aflabrögð stærri bát-
anna verið fremur léleg nú
undir lokin. Á hinn bóginn
eru nokkrir smábátar byrj
aðir með færi og afla þeir
vel þegar vel gefur með veð
ur. Annars hefur vertíðin í
heild verið ein sú bezta hér
um slóðir nú í nokkur ár. —
Hugsað er til hafnarfram-
kvæmda hér í sumar. Er
dýpkunarskipið Grettir vænt
anlegt hingað í því sambandi.
Hvað mikið verður úr fram-
kvæmdum fer þó að sjálf-
sögðu eftir því fjármagni,
sem úr verður að sptla en
upphæð þess mun óráðin enn
þá. Hér hefur lengst af verið
fremur kalt það sem af er
vorinu og í nótt snjóaði J;.d.
niður í mið fjöll. i
Þ.H.
Allgóí vertíí
ísafirði, 7. maí. — Hér hefur
verið heldur kalt undanfarna
daga en nú er aftur hlýrra!
í veðri. Snjólaust er og heið
arnar opnar og jafnvel að
byrja að gróa. — Bátarnir
eru flestir að hætta veiðum
eða alveg hættir. Útkoman á
vertíðinni má heita all góð.
Flestir bátamir með 600—
800 lestir. G.S.
Vegir þurrir
Dýrafirði, 5. maí. — Vegir
í byggð eru þurrir og færir
og leiðir akfærar, nema
Breiðadalsheiði, sem var
mokuð rétt fyrir norðan-
kastið og fennti strax í geil
arnar. Aftur var hún mokuð
um þessi mánaðamót, en hrið
arveður verið á fjallinu síðan,
en vonandi er nú í rénun, því
að í dag er hægviðri og smá
rigning og mun þá gróður
taka við sér fljótt, ef áfram
hald verður. — Færabátar
voru byrjaðir róðra og fisk-
uðu sæmilega, en gæftir litl
ar og ekki getað róið síðustu
daga.
J.D.
Hínn nýi sendiherra Japans á ísiandi, herra Akira Matsui, sem aösetur hefur í Stokkhólmi, afhenti í dag for-
seta íslands trúnaSarbréf sitt á BessastöSum, aS viSstöddum Emil Jónssyni ráSherra, sem hefur fariS meS
utanríkismál í fjarveru utanríkisráSherra. AS athöfninni lokinni höfSu forsetahjónin boS inni fyrír sendi-
herrann og frú hans.
Bera vott um hróp>
legt skilningsleysi
Aðalfundur Kaupfélags Þingeyinga
samþykkir harðorð mótmæli gegn
veltuútsvarinu og brottflutningi spari-
f jár úr héraði
Á aðalfundi Kaupfélags
Þingeyinga, Húsavík, sem!
naldinn var í s. i. viku kom
fram eftirfarandi tillaga frá,
félagsstjórn. og var samþ. J
samhljóða:
„Aðalfundur K. Þ„ haldinn í
Húsavík 5.—6. maí 1960, lýsir
yfir eftirfarandi út af stjórnar-
frumvarpi sem liggur fyrir Al-
þingi, til breytingar á lögum um
útsvör.
Veltuútsvar er mjöj var-
hugavert álöguform, af þtí að
það miðast hvorki við eignir né
afrakstur. En jafnvel þó að ekki
kunni að þykja hægt að komast
hjá því, eins og sakir standa, að
leyfa veltuútsvar í sumum grein-
um, réttlætir það á engan hátt
þá fjarstæðu og rangsleitni, sem
í frumvarpinu felst, að lögbjóða
að leggja skuli veltuútsvar á heild
arsölu hvers konar vöru, — eng-
ar íslenzkar framleiðsluvörur
undanskyldar né nokkur sölu-
stig, — svo og á vinnu og þjón-
ustu „jafnt hjá félagsrr.önnum og
utanfélagsmönnum, ef um sam-
/innufélög eða önnur félög er að
ræða“.
Bera þau ákvæði og fleiri í
frumvarpinu vott um hróplegt
skilningsleysi á aðstöðu sumrar
framleiðslu og samvinnusamtök-
um almennings í verzlun og við-
skiptum.
Skorar fundurinn á alla þá al-
þingismenn er telja sig samvinnu
menn, að koma í veg fyrir, að
þessi og þvílík ákvæði verði lög-
leidd“.
/
Eftirfarandi tillaga kom fram á
aðalfundi Kaupfélags Þingeyinga
frá félagsstjórn og var samþykkt
sr. 'jóða:
„Aðalfundur K. Þ„ haldinn í
Húsavík dagana 5.—6. maí 1960,
mótmælir sem freklegri frelsis-
skerðingu og þjóðhagslegri villu
þeirrí ákvörðun Seðlabankans er
I hann hefur bréflega tilkynnt
K. Þ., að innlánsdeild félagsins
skuli skila bankanum til bind-
ingar hluta af því fé, er félags-
menn'irnir afhenda um stundar-
sakir innlánsdeildinni og þar
með sínu eigin félagi til reksturs
þarfa, meðan þeir geta komízt
af án þess vegna annarra nauð-
synja sinna.
Valdboðið, er fram kemur í
nefndri tilkynningu frá Seðla-
bankanum, telur fundurinn jaðra
við brot á friðhelgi eígnarréttar-
ins, þó að það hafi stoð í van-
hugsaðri heimildarlöggjöf, og
flutning fjárins frá landsbyggð-
inni til höfuðhorgarinnar, þó í
ríkisbankann sé, telur hann öfug
streymi fyrir jafnvægi í byggð
landsins.
Skorar fundurinn því á stjórn
Seðlabankans að endurskoða af-
stöðu sína í þessum efnum“.
Landanir Reykja-
víkurtogara
i ReyJcjavík:
B/v Ingólfur Arnarson land
aSi 7. maí 63 tonn af ísfiski
og 87 tonn af saltfiski, sam-
tals 150 tonnum. Við mat
skiptist saltfiskurinn þann-
ig: 1. fl.: 62,50%; II. fl.:
21,43%; III. fl.: 16,07%. Tog-
arinn fer nú í slipp, því að
fyrir dyrum stendur 12 ára
flokkunarviðgerð.
B/v Skúli Magnússon land-
aði 7.—8. maí 310 tonnum
af isfiski, er aflazt hafði við
Vesturgrænland. Skipið mun
halda áfram að veiða í ís.
B/v Þorsteinn Ingólfsson
landaði 4.—5. maí 48 tonn-
um af ísfiski og 68 tonnum
af saltfiski, samtals 116 tonn
um. Við mat skiptist saltfisk
urinn þannig: 1. fi.: 80,00%
II. fl.: 15,71%; III. fl.; 4,29%,
og þykir þetta einstæður
árangur. Togarinn fór síðan
á saltfiskveiðar við Græn-
land.
Erlendis:
B/v. Hallveig Fróðadóttir
seldi í Grímsby 168 tonn fyrir
£10,521. — B/v Þorkell Máni
seldi í Grímsbý 2.-3. maí
241 tonn fyrir £14,222. Hann
er nú til viðgerðar í Bremer-
haven.
Ryðfrítt stál
Smíðum lista úr ryðfríu stáli á hurðir o. <sk-
ulda.
BLIKKSMIÐJAN GRETTIR
Brautarholti 24.