Tíminn - 10.05.1960, Qupperneq 13
13
10. maí 1960.
Meistaramöt'íslands í badminton:
"wS^9'W,’tVffom • ” w'<':s3BSppj
Reykvíkingar sigruöu í öllum
úrslitaleikjum meistaraflokks
láeistaramót íslands í bad-
minton var háð í íþróttahúsi
KR um helgina. Þátttakendur
voru tæplega 50 frá þremur
félögum Mótið í heild var
mjög skemmtilegt og spenn-
andi úrslitakeppni í nokkrum
ílokkum — svo spennandi að
slíks munu ekki dæmi á ís-
landsmóti hér áður. Þá var
einnig greinilegt, að bad-
mintoníþróttin er í mikilli
framför hér, og má hiklaust
þakka það hinum frábæru
dönsku badmintonleikurum,
sem komu hingað til keppni í
vetur, en kunnátta þeirra og
leikni varð mörgum hvatning
til meiri afreka.
Úrs'lital’eikirnir á imótinu fóru
fram á sunnudag, og verður þeirra
getið ihér iítillega á eftir, en sök-
um rúmleysis er nú ekki hægt að
b;rta úrslit í öllum leikjum móts-
ins — en það verður gert síðar
hér á síðunni.
Einliðaleikur karla
I einiiðaleik karla í meistara-
flokki, voru keppendur 11. í úrslit
komust Ósfcar Guðmundsson, TBR,
og Ágúst Bjartimari, Stykkishólmi,
sem varð ísiandsmeistari í fyrra.
Búizt var við harðri keppni milii
þeirraj en það fór á annan veg,
því Oskar vann yfirburðasigur.
Hann náði í upphafi forustunni í
leiknum og virtist það koma
Ágústi úr jafnvægi, svo hann náði
sér aldrei verulega á strik. Fyrra
geimið vann Óskar með 15—7, en
hið síðara með 15—1.
Óskar Guðmundsson
— sigurvegari í einliðaleik
í einhliðaleik kvenna í meistara-
flokki voru aðeins tveir keppendur
■■■■■ ....
: •■ • ■
Lovísa Sigurðardóttir.
Þorvaldur Ásgeirsson
Jónína Nietjohniusardóttir og
Lovísa Sigurðardóttir, báðar úr
Reykjavík. Reppnin milli þeirra
varð skemmtileg. Lovísa kom nokk
uð á óvart með að vinna fyrsta
geirnið 11—6, en í því næsta
breyttust tölurnar alveg, og þurfti
því þriðja geknið til úrslita. Það
\ann Jónína örugglega 11—4.
Tvíliðaleikur í
meistaraflokki
í kvenr.akeppnina voru fjögur
pör skráð, en eitt mætti ekki. Til
úrslita léku Jónína og Sigríður
Guðmundsdóttir gegn Huidu Guð-
mundsdóttur og Rannveigu Magn-
úsdóttur. Keppni var tvísýn
fyrna geiiminu, sem þær Jónína og
Sigríður unnu með 15—12, en í
hinu síðara höfðu þær yfirburði
og unnu 15—6 og þar með leik-
inn. Þar með var Jónína orðin
tvöfaidur fslandsmeistari.
f karlakeppninni voru níu pör
og þar var keppni oft mjög
skemmtileg og úrslitaleikurinn
milli Lárusar Guðmundssonar og
Ragnars Thorsteinsson annars
vegar og Óskars Guðmundssonar
og Einars Jónssonar hins vegar,
einn skemmtilegasti badminton-
leikur, sem hér hefur sézt. Lárus
og Ragnar unnu fyrsta geimið
með 15—11 og virtust á góðri
leið með að tryggja sér það síð-
ara, þá stóð 8—4 fyrir þá, þegar
allt rann út í sandinn hjá þeim,
og unnu Óskar og Einar það með
15—8. Þriðja geimið þurfti því
til að útkljá leikinn og var þar
barizt á báða bóga af mikilli fimi.
Geiminu var framlengt í 17, og
unnu Lárus og Ragnar að lokum
næð 17—16 — ágæt lok á
skemmtilegri keppni, enda var
þeim fagnað mjög af áborfend-
um.
Tvenndarkeppnin
í tvenndarkeppninni voru sex
/— -------------------------\
Þetta er
ekki gott
f leik Fram og Víkings kom
fyrir eftirfarandi atvik: Knett-
inum var spjrnt á Víkings-
markið, og lenti í andliti mark-
mannsins, Jóhanns Gíslasonar,
sem harkaði þó fljótt af sér og
náði knettinum. Leikmcnn
lilupu til Jóhanns — og dómar-
inn stöðvaði leikinn, en eftir
nokkrar sekúndur var Jóhann
risinn upp, alheill að. sjá. En
dómarinn dæmdi dómarakast
inn í vítateig Víkings!!! Hér
varð dómaranum, Grétari Norð-
fjörð, á mikil skyssa. Hann
stöðvaði leikinn án þess að at-
huga hvort markmaðurinn væri
alvarlega meiddur — og var
svo tilneyddur að gefa dónir
arakast. Sem bctur fór fyrir
liann skoraði Fram ekki, en
svona mistök eiga ekki að
henda vana dómara. Hann átti
að gefa markmanninum þær
sekúndur, sem hann þurfti til
að jafna sig, svo hann gæti
spyrnt frá marki. Dómaraköst
innan vítateigs eru heldur
kjánaleg.
■yjJ^////’ VL f j
■
f ; t,v
' * ** .'
---‘'Á
Sigríður Guðmundsdóttir og Jónína Nieljohníusardóttir.
Ljósm.: Guðjón Einarsson.
pör. Til úrslita léku Halldóra
Thoroddsen og Þórir Jónsson gegn
Lovísu Sigurðardóttur og Þorvaldi
Ásgeirssyni. Þar þurfti einnig þrjú
géim til að utkljá leikinn. Hall-
dóra og Þórir unnu það fyrsta ör-
ugglega 15—7, en eftir það náðu
þau ekki eins góðum tökum á
leiknum. Tvö síðustu geimin unnu
Lovísa og Þorvaldur með 15—12
og 15—13. Leikur Þorvaldar vakti
athygli, en hann var mjög „takt-
iskur“'.
Keppni í 1. flokki
í einliðaleik karla voru kepp
endur 13, og í úrslit komust
Garðar Alfonsson, Reykjavík, og
Jón Ilöskuldsson, Stykkishólmi.
Þessi leikur er .einn hinn
! skemmtilegasti, sem hér hefur
sézt, og var á engan hátt hægt að
greina að þar væru 1. flokks
rnenn á ferð, svo vel léku þeir.
Fyrsta geimið vann Jón eftir að
liækkað hafði verið upp í 18 með
18—16, en í því næsta náði Garð-
ar sér vel á strik og sigraði með
15—7. Hið síðasta var mikil bar-
átta jafnra keppenda. Einnig þar
varð að hækka í 18 ^— og Garðar
sigraði með 18—17!! Báðir léku
mjög góðan badminton, einkum
vöktu þó „bakslög" Jóns athygli,
en hann virtist skorta úthald.
I öðrum leíkjum í 1. flökki urðu
úrslit þessi: í tvíliðaleik karla
sigruðu Walter Hjaltested og
Magnús Elíasson, Reykjavík, þá
Gunnar Ólafsson og Jón Höskulds-
son, Stykkishólmi, með 15—12, 15
—9. í einliðaleik kvenna sigraði
Bmma Jónsdóttir, Stykkishólmi,
Jngibjörgu Þorsteinsdóttur Reykja
vík með 11—7. 11—7. í tvenndar-
keppni sigruðu Emma Jónsdóttir
og Jón Höskuldsson, Stykkis-
hólmi, Ingibjörgu Þorsteins-
dóttur og Walter Hjalte-
sted, Reykjavík, með 15—
14, 10—15 og 15—9. Voru þetta
því einu sigrar ,,Hólmara“ á móti
þessu, en í öHum öðrum flokkum
sigruðu félagar úr TBR og var
mótið því mikill sigur fyrir það
félag. Framkvæmd mótsins var öll
hin bezta. —hsím.
i m
■
GarSar Alfonsson og Jón Höskuldsson — léku eins og meistarar —