Tíminn - 12.05.1960, Blaðsíða 4

Tíminn - 12.05.1960, Blaðsíða 4
/ 4 TÍMINN, finuntudaginn 12. maí 1960. Morðingi Trotskys laus úr fangelsi og farinn til Cubu Eínn d»larfyíisti morðingi veraldarsögunnar er laus. Mexíkönsk stjórnarvöld hafa nokkrum mánuðum áður en búizt var við, sleppt manni þeim úr haldi, sem myrti rúss- neska byltingarleiðtogann Le- on Trotsky. Morðinginn, sem er nú 55 ára að aldri, er farinn til Cubu ásamt tveimur tékk- neskum ríkisborgurum. Vann að endurminningum sinum Það var 24. ágúst árið 1940, að Marnard, en svo nefnist morð- ínginn, keyrði ísexi í höfuð Trotskys. Nokkrum árum áður hafði verið kveðinn upp dauða- dómur yfir Trotsky í Moskvu „in sbsentia" og maðurinn, sem skipu- lagði rauða herinrn og flotann og var aðalaðstoðarmaður Lenins varð að flýja um hálfan hnöttinn. Trotsky bjó, þegar hann var myrtur í húsi fyrir utan Mexico C.ity. En nokkrum mánuðum áður liafði verið reynt að myrða hann. Tilræðismennimir höfðu reynt að komast inn í hús hans dulbúnir sem mexíkanskir lögreglumenn, en þeim hafði ekki tekizt að kom- ast inn. Trots'ky vissi, að hættan bjó á næsta leiti við bann og hann tók þess vegna ekki á móti neinu fólki, en vann að endurminningum sinum. Morðingi Trotskys. Vel vopnum búinn Mornard hafði verið kynntux fyrir hontim nokkrum mánuðum áður af Sylviu nokkurri Ageloff, sem var meðlimur trotskysinnaðs félagsskapar í New York. Mornard hafði hún kynnzt nokkrum mánuð- i:m áður í Paris, en þar hafði hann kynnt sig sem sannan fylgismann Trotskys. Er Mornard fór inn til Trotskys til að myrða hann, hvíldi hinn landflótta byltingamaður sig eftir hádegismatinn. Morðinginn tefldi ekki í neina tvísýnu. Hann hafði skammbyssu í rassvasanum, ríting i frakkaerminni og ísexina í hend- inni. Kunnugur aðferðum Það var athyglisvert, að Morn- ard veitti enga mótspyrnu, er nienn Trotskys köstuðu sér yfir hann. Hann stóð sem þrumu lost- inn og gat aðeins stamað: Þeir neyddu mig til þess. Þeir halda móður minni. , Áður en Trotsky dó, gat hann sagt: Skjótið hann ekki, látið hann Pfa og fáið hann til að tala. Á næstu árum varð Mornard hinn dularfulli fangi í klefa nr. 27 í mecikanska Juarez-fangelsinu. Hann átti þess kost að vera látinn laus árið 1953, en hann bað um leyfi til að fá að vera áfram í fangelsinu. Morðingi Trotskys var hræddur, hann vissi of mikið og liann þekkti aðferðir kommúnista. Dauðinn eitir hann eins ng skuggi Hann sneri sér að því verkefni að skipuleggja garð fangelsisins. Kona hans heimsótti hann reglu- lega — hann kvæntist í fangelsinu. Hverjir vilja drepa Momard? Þeir, sem viija hefna Trotskys ðea þeir sem senuu hann til Mexico? Að minnsta kosti er það álitið að dauðinn elti Mornard eins og skuggi, þgear hann er nú laus á nýjan leik. Á hinn bóginn getur verið, að hin skyndilega lausn hans úr fangelsinu stafi af samn- ingi við rússnesku leynilögregluna um að lofa honum að lifa í friði. Mjólkursamsalan í Reykjavík Siml 10700 Fjölbreyttari mjólkurafuröir. Mjólkursamlögin sunnan og norðanlands hefja nú fram- leiðslu á rjómals i Mjólkurstöðinnií Reykjavík undir vöru- heitjnu Emmess ís. Rjómafs er mjófkurmatur, sem aetti að vera hluti af daglegri fœðu okkar. ísinn er öllum hollur, grönnum og gildvöxnum, ungum og gömlum. Rjomats er Ijúffengasti mjólkurrétlurinn. Hann er alltaf tilbúinn til neyzlu og má framleiða á ótal vegu: i sneiðum á smá- diskum, ef vil| méð ávöxtum, ávaxta- eða súkkuláði- sósum, eða skreyta hann i heilu lagi sem tertu. Yinsaell isréttur er vaen issneið i glas af gosdrykk eða köldu súkkulaðL Fyrst I stað verður á boðstólum vanilluis, nougalis og jarðaberjais I pappaöskjum, sem laka 1/1 lilra, 1/2 litra og 1/4 litra. Einnig verða framleiddir súkkulaðiispinnar með nougat. Rjómaís gerir hverja máltið að veizlu. 50 þúsund dollara á sér Er Mornard va i'handtekinn hafði hamn engin skjöl á sér. Hins vegar var vegabréf hans gefið út á kanadiska ríkisborgarann Tom Babich, sem féll í spænsku borg- arastyrjöldinni. Morðinginn sagð- ist sjálfur heita Vandendresch og vera fæddur í Teheran, sonur belgísks sendisveitarstarfsmanns. Rannsóknir leidu t ljós, að þetta var ekki rétt. Umfangsmiklar rann- sóknir leiddu í Ijós, að Mornard hét réttu nafni Ramon del Rio Mercador og að móðir hans var spönsk og sanntrúaður kommún- isti. Sjálfur tók hann þátt í spænsku borgarastyrjöldinni og særðist þá á ' hægri handlegg. Áliitið er, að Caridad Mercador, móðir hans, hafi andazt í Sovét- ríkjunum. . Mornard er í dag vélefnaður maður. Hann var sérfræðimgur í útvarpsviðgeiðum og hann skipu- lagði radioverkstæði fangelsisins. Reiknað er með, að hann hafi haft að minnsta kosti 50 þúsund doll- ara á sér, ei hann yfirgaf Mexico um daginn Mornard hélt til Cuba. Tveir menn fylgdu honum. Ferðaðist hann áf frjálsum vilja eða var hans gætt? MELAVÖLLUR Bæjakeppni í knattspyrnu í kvöld kl. 8,30. Akranes - Reykjavík Dómari: Haukur Óskarsson. Línuverðir: Einar H. Hjartarson og Baldur Þórðar- son. Mótanefndin. Tilkynning Frá og með 12. maí verða fargjöld með strætis- vögnum Kópavogs sem hér segir: Einstakt fargjald Kópavogur—Reykjavík kr. 3,75. Ef keyptir eru 17 farmiðar kosta þeir samtals kr. 50.00. Innanbæjar í Kópavogi kr. 2 00. Fargiöld barna: Einstakt fargjald Kópavogur—Reykjavík kr. 2.00. Ef keyptir eru 6 farmiðar kosta þeir kr. 10.00. Innanbæjar kr. 1.00 eða 8 farmiðar kr. 5.00. Strætisvagnar Kópavogs. PAKKARAVO Ég þakka af alhug öllum þeim er heiðruðu mig og glöddu á áttræðisafmæli mínu hinn 28 apríl s. 1. Þórlaug Bjarnadóttir, Eyrarvegi 10. Selfossi Hugheilar þakkir færi ég ættmgjum og vinum er heiðruðu mig og glöddu með heimsóknum, gjöfum og skeytum á 70 ára afmæli minu, 30. apríl s. 1. Einnig þakka ég þann heiður er Múrarafélag Reykjavíkur sýndi mér. Þorfinnur Guðbrandsson. Systir okkar, Kristfn Pétursdóttir, andaðist í Landsspítalanum aðfaranótt 11. maí. Hólmfríður Pétursdóttir, Vilborg Pétursdóttir, Guðjón Pétursson. Útför móður okkar, Ólafíu Ásbjarnardöttur, fer fram laugard. 14. maí og hefst með bæn á heimili hennar Garð- húsum í Grindavík kl. 1.30 e. h. Ferð verður frá B. S. f., Reykjavík, kl. 11.30 f. h. Börnln. . Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu við andlát og jarðarför Jóhönnu Valborgar Jónsdóttur, EfraLangholti. Vandamenn.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.