Tíminn - 16.08.1960, Blaðsíða 4

Tíminn - 16.08.1960, Blaðsíða 4
t T í M I N N, þriðjudaginn 16. ágúst 1&60. AIVWV.,AVMVftViWW.WMVJft,MWWiW.ViV.,^AW.VW.V.V.V.V.V.,.V.V.V.,.V.,.,.,.V.ViV,V.,.,.,.ViV.V.V.W>WA,.V.V.VAW,j!i Blaðinu barst í gærmorg- un ágæt lýsing á þeim at- burSi, er ungfrú Sigríður Geirsdóttir — Siggry — eins og blöðin vestra kalla hana gjarnan, hlaut heið- urstitilinn „Miss Photogen- ic" eða bezta fyrirsætan. Er greinin rituð af íslenzk- um manni, Þórði Kárasyni, sem viðstaddur var keppn- ina, og er ræðuhöldum fegurðardísanna einkar skemmtilega lýst í grein- inni, sem hér fer á eftir: „Los Angeles 11, ág. 1960. Þag er ánægjulegt að vera íslendingur, sagði Spegillinn forðum. Þau orð áttu sannarlega við í gær kvöldi, 10. ágúst, er fulltrúi íslands ungfrú Sigríöur Geirsdóttir, Reykjavík tók bæði aðalverðlaunin fyrir beztu ræðuna og framkomu í sínum flokki þar sem y3 keppenda kom fram j þjóð búningum og jafnframt hlaut hún aðalverðlaunin sem bezta fyrirsæta fyrir ljósmyndara og blaðamenn. Daginn áður hafði hún orð ið sigurvegari þar sem y3 hluti keppenda kom fram í tennisfötum (playsuit). Baðfatakeppnin er ekki lengur i tízku, og margt er breytt frá fyrri árum. Nú fer áðalkeppnin frám á 3 kvöldum þar sem til- högun er alltaf eins, þann ig að y3 keppenda kemur fram í tennisfötum, y3 í kvöldkjólum og y3 í þjóð búningum. Þrjú aðalverð- launin eru veitt á hverju kvöldi, ein í hverjum flokki og er Sigríður þegar búin að sigra i tveimur þeirra. Er það ekki aðeins íslenzkt met, heldur óvanalegt hér og sýnir að nú hafa íslend ingar verið sérlega heppn- ir með fulltrúa sinn að hin um fyrri fulltrúum ólöstuð um. Hinn 3000 manna salur í Hinicipal Auditorium var þéttskipaður þetta kvöld og a Sigríðar Geirsdótt- nr þótti hin skörulegasta öll dagskráin, sem stóð yfir rúma 3 tima fór fram með hraða og öryggi. Eftir að stjórnandinn, Byron Palm- er, þekktur sjónvarpsmað ur og söngvari, hafði kynnt dómarana, sem allt voru fræg nöfn frá mörgum lönd um, stormuðu fegurðardís irnar fram í salinn og tritl uðu fram og aftur eftir langborðum meðan hljóm sveitin lék lög úr Carmen. Allar voru þær í kvöld- kiólum í þetta sinn. Sig- ríður vakti greinilega .mikla hrifningu enda orðin þekkt meðal áhorfenda og frétta manna, vegna fyrstu verð launanna daginn áður. Næst var hver einstakur flokkur sýndur 16 — 18 stúlkur í sams konar klæðn aði voru þó kvöldkjólarnir mjög mismunandi. Kepp- endur gengu sams konar leið og spöruðu vitanlega ekki að doka vel við fyrir framan dómarana og er þetta allt með líku sniði og vant er. Milli flokka- sýninganna voru ýmisleg skemmtiatriði og er þessu öllu sjónvarpað eins og kunnugt er. AðalnúmeriíS og síðast, var sá flokkurinn sem kom í þóðbúningunvm og var hjörð- Sigríður var sú eina sem var í bláum klæðnaði. Var hann vissulega falleg ur og áberandi álikur hin um; einfaldur, látlaus og smekkegur. Margir þjóð- búningamir voru fallegir en sumir herfilegir, þannig minntu sumar arabaþjóða dísirnar mest á galdranorn úr Hans og Grétu. Búning arnir úr gamla testament inu eru óhugnanlegir fyrir Norðurlandabúa. Þ6r(5ur Kárason.. sem viðstaddur var keppnina á Langasandi segir trá atbur'ðum. Forseti Blaðamannafélags Los Angeies afhendir ungfrú Sigríði verð- launabikarinn í keppninni um titilinn JAiss Photogenic. Þá hófst ræöuflutningur inn og var hann eins mis- jafn og búningarnir. Yfir- leitt gekk þeim ekki vel og var ensk’an þeim erfið þó ræðan væri löngu samin of æfð. Sumar töluðu sitt eigið mál að mestu og sluppu þær sýnu betur, en stjórnandinn las enskutext ann á eftir. Ræðan var 3 —6 mínútur hjá flestum. Miss Holland var mjög ó- heppin. Ræðan var lang- dregin og illa flutt en hún vildi ekki gefast upp. Áður en hún var hálfnuð var hún búin að missa tökin á á- heyrendum. Hún var brjóst umkennanleg, þar sem hún stóð á tréklossunum og ætl aði aldrei að hætta. Sumar misstu málið alveg og urðu að segja amen á undan efn inu. Sigriður var 4. í röðinni og var ræðan vel samin og flutningurinn prýðilegur. Hún kom mönnum strax í gott skap með því að segja að þó íslendi'ngar hefðu eins góð eldhús og eldhús- tæki og í U.S.A. væru karl menn i U.S.A. natnir viö húsverk að því er sér virt ist og e.t.v. liprari við þau störf en karlmenn á ís- landi. Var þá hlegið hjart anlega og hélt hún þeirri stemningu úr því. Sigríður gerði glögga grein fyrir sögu þjóðar sinnar, minnt ist á elzta þing veraldar, handritin o. sv. frv. Pékk hún að launum mikið lófa klapp, og meira en aðrar, að verðleikum. Sú sem var líklegust til að veita Sig- ríði harða keppni, var Miss Israel, sem talaði óaðfinn anlega, en Miss Noregur var sæmileg en vantaði reisnina. Hana hafði Sig- ríður og gerði það gæfumun inn. Það kom því áhorfend um ekki á óvart þegar úr- slitin voru tilkynnt við mik il fagnaðarlæti. Skoðun dómara og áhorfenda fór greinilega saman. Ungfrú ísland þakkaði heiðurinn með fáum velvöldum orð um, þar með hlaut hún þriðja verðlaunagripinn i keppninni og gat vissulega með sanni sagt: — Allt er þegar þrennt er. Áður um kvöldið hafði forseti blaðamannafélags Los Angeles, James C. Mc Namara afhent Sigríði ljós myndaraverðlaunin við mik il fagnaðarlæti. Var það um 3 feta hár gullsleginn bikar. Ljósmyndarar vildu (Framh á 15 síðu.) !■■■■■■■■■ VAV.V.V.W.V.V.V.V.V.V.V.VaV.V.V.V.V.V.VJ I, . INNBUSG Hvaðer verðmæti hiutanna úr almennu innbúi, sem eru nú í sýningargiugga Máiarans í Bankastræti. Getraun þessi á að vekja sérstaka athygli á, að verðmæti allra hluta hafa stórhækkað í verði síðustu mánuði Hún á líka að minna á, að brunatryggingarupphæðin þarf að vera í sam- ræmi við verðmæti innbúsins. Margt fólk hefur misst eigur sínar í eldsvoða og hafið innkaup á ný íyrir tryggingarupp- hæðina. VERÐLAUN K R. 5.000,— •& Sá þátttakandi, sem getur upp á réttu verðmæti fær í verðlaun kr. 5.000 — Ef fleiri en einn senda rétt svar verður dregið milli þeirra um verðlaunin. •& Komi ekkert rétt svar fær sá verðlaunin,sem verður næst réttu svari. ýV Úrslit getraunarinnar verða auglýst í dagblöðum bæjarins.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.