Tíminn - 29.09.1960, Side 9
T í MIN N, funmtudaginn 29.. september 1960.
9
Matthíasarsafn
í húsi skálds-
ins á Sigurhæðum á Akureyri
Matthíasarfélagið vantar enn nokkra nmni
í búsló'ð skáldsins. Safnið opnað 11 nóv-
ember næstkomandi.
í litlum, friSsælum hvammi
á brekkubrúninni skammt fyr-
ir ofan TortunefiS á Akureyri
stendur hvítmálaS timburhús
meS rauSu þaki. Þetta er hús
skáldsins, SigurhæSir Matthí-
asar Jochumssonar, sem átti
heima á Akureyri síSustu þrjá
áratugi æví sinnar og reisti
þetta hús er hann þjónaSi Ak-
jreyrarprestakalli.
ir aðilar þar gott starf, m. a.
frú Laufey Pálsdóttir á Ak-
ureyri, Steindór Steindórsson
menntaskólakennari og Hauk
ur Snorrason ritstjóri. Það
var þó ekki fyrr en árið 1958
að verulegur skriður komst á
málið og var það fyrst og
fremst fyrir forgöngu Mar-
teins Sigurðssonar, fyrrver.
framfærslufulltrúa á Akur-
eyri.
Ekki verður annað sagt en
að Akureyringar hafi kunnað
að meta Sr. Matthías og
sýndu þeir það á margan
hátt. Á 85 ára afmælinu var
hann kjörinn heiðursborgari
Akureyrar á aukafundi bæjar
stjórnar 9. nóv. 1920, en
nokkrum árum áður var skáld
inu reistur veglegur minnis-
varði í Lystigarði bæjarins og
var það fátítt að mönnum
hlotnaðist slíkur heiður í lif-
anda lífi.
Nokkru eftir lát Sr. Matt-
híasar fóru ýmsir menn að
vekja máls á því, að bærinn
eignaðist hús skáldsins og
kæmi þar upp safni til minn-
ingar um hið ástsæla þjóð-
skáld. M. a. hreyfði Jónas
Jónsson frá Hriflu oftlega
þessu máli og lagði hann einn
ig til, að hin fagra kirkja
skammt frá Sigurhæðum væri
heitin eftir honum og nefnd
Matthíasarkirkja.
Munum safnað
Fyrir nokkrum árum var
hafizt handa um söfnun
muna, sem höfðu verið í eigu
Sr. Matthíasar og unnu marg
Félagið stotnað
Þann 5. maí 1958 komu
nokkrir áhugamenn saman í
kirkjukapellunni á Akureyri
og stofnuðu félag, sem nefnt
RITHÖND SR. MATTHÍASAR
— nokkur handrit hans hafa verið
ljósprentuð og verða geymd
á Sigurhæðum.
var Matthíasarfélagið, en tak
mark þess var að heiðra minn
ingu Sr. Matthíasar með því
að festa kaup á öðru hvoru
þeirra húsa er Sr. Matthías
bjó í á Akureyri og geyma
þar sem flesta muni hans er
minntu á starf hans og rit-
verk. Formaður Matthíasar-
félagsins var kjörinn Mar-
teinn Sigurðsson og gaf hann
fréttamanrú blaðsins eftirfar
andi upplýsingar er hann
ræddi við hann á Akureyri
fyrir skömmu:
Fljótt kom j ljós, að áhuga-
menn um mál þetta töldu
Sigurhæðir á allan hátt heppi
legri og glæsilegri minnis-
varða um skáldð heldur en
litla húsið við Aðalstræti 50
og það varð úr, að félagið festi
kaup á aðalhæð hússins. Við
kaup þessi hefur félagið not
ið góðrar aðstoðar ríkis og
bæjar, Kaupfélags Eyfirðinga
og fjölmargra einstaklinga
heima og erlendis.
Opnað í nóvember
Söfnun ýmissa muna hefur
síðan félagið var stofnað, ver
ið í fullum gangi og eru en^
að berast munir. Málið er þvl
nú komið á þann rekspöl, að
áætlað er að opna safnið 11.
nóvember n.k. á 125 ára af-
mæli skáldsins. Ætlun for-
ráðamanna félagsins er að
reyna að gera safnið þannig
úr garði, að Sigurhæðir líkist
sem mest því sem var á dög
um skáldsins og hefur m.a.
tekizt að ná í skrifborð Sr.
Matthíasar, skatthol sem sótt
var til Kaupmannahafnar,
tvö sófasett, borðstofuhús-
gögn, stól og púlt skáldsins,
sem áður var í eigu Baldvins
Einarssonar. Mikið af þessum
munum hefur félagið fengið
að gjöf frá ættingjum skálds
ins, sem stutt hafa það með
ráðum og dáð. Útilokað er
þó að ná í allt innbú skálds-
ins frá þeim tíma og verður
ýmsu bætt inn í, t.d. ljósatækj i
um eins og þau tíðkuðust á
þeim tíma.
Handrit Ijósprentuð
Ennfremur hefur verið safn
að öllu því sem hægt hefur
verið að ná í af bókum skálds 1
ins. Félagið hefur einnig lát |
ið ljósprenta nokkur bréf Sr.
Matthíasar og sum handrit
hans, m.a. af þjóðsöngnum.
180 manns, aðallega á Ak-
ureyri og í Reykjavík, eru nú
félagar í Matthiasarfélaginu,
en stjórn þess skipa: Mar-
teinn Sigurðsson, Steindór
Steindórsson, Kristján Rögn
valdsson, Hannes J. Magnús-
son og Eyþór Tómasson. Vara
stjórn skipa Kristján Róberts
son, Guðmundur Guðlaugsson
og Jónas G. Rafnar.
Formaður félagsins bað
blaðið fyrir þau tilmæli til
allra þeirra er eitthvað vissu
um muni úr eigu Matthíasar
Jochumssonar, að þeir láti
forráðamenn félagsins vita.
Kemur blaðið þessum tilmæl-
um hér á framfæri. Matthí-
asarfélagið hefur þegar unn
ið mjög gott starf — og von-
andi láta þeir sem enn geta
lagt málinu lið ekki sitt eftir
liggja. h.h.
NORÐAN I
Minni byggingarfram-
kvæmdir en í fyrra
Byrjaíf á 19 íbúbarhúsum nú en 50 í fyrra
„Frá byrjun ársins 1960 till
15. sept. er hafin bygging 19 |
íbúðarhúsa á Akureyri. í þess:
um húsum eru alls 28 íbúðir.
Auk þess eru enn, frá fyrra
ári, 84 íbúðarhús í smíðum
með samtals 118 íbúðum.
Hús þau, sem byrjað var
á fyrir s.l. áramót, voru mjög
mislangt á veg komin, er úti-
vinna við byggingar hófst á
þessu ári, þannig að búast má
við að íbúðarhús með 52 íbúð
um verði gerð fokheld fyrir,
veturinn, þar eru 26 hús með
í 37 íbúðum, sem byrjað var á
fyrir s.l. áramót.
Breytingar og viðbygging-
ar við eldri hús eru 7.
Þann 15. sept. s.l. voru því
í byggingu hér á Akureyri
samtals 103 íbúðarhús með
146 íbúðum.
Auk framangreindra íbúð-
arhúsa er unnið við byggingu
allmargra annarra húsa, og
ber nú mun meira á byggingu
stærri húsa, en gert hefur
undanfarin ár. Má t.d. nefna
að hafin er bygging elliheim
ilis ofan Þórunnarstrætis,
norðan . Golfvallarins. Við
Glerárgötu norðanverða eru
í byggingu hús fyrir Valbjörk
h.f., Tómas Björnsson h.f. og
Byggingarvöruverzlun Akur-
eyrar h.f., Kaupfélag Eyfirð
inga reisir útibú í Glerár-
hverfi og Niðursuðuverksm.
K. Jónsson & Co. hefur byggt
nýja niðursuðuverksmðiju og
. endurbætt eldra húsnæði
j verksmiðjunnar.
Unnið er jafnframt við
Flugstöðvarbygginguna, ris-
hæð á Slökkvistöð bæjarins
er í smíðum, Amaro h.f. bygg
(Fra.niiaid á 13. sí&a).
I