Tíminn - 01.11.1960, Blaðsíða 6
6
T í M I N N, þriðjudaginn 1. nóvember 1960.
75 ÁRA í DAG:
Ólafur Sigurðsson
bóndi, Hellulandi í Skagafirði
í dag hefur óðalsbóndinn
á Hellufandi lifað og starfað
þrjá aldafjórðunga. Eg get
ekki annað en sent þessum
þrautreynda vini mínum og
■starfsfélaga þakkir og árnað-
aróskir. Þakkir fyrir allt frá
hans hendi og hans heimili,
er mig og mitt fólk snertir,
en einnig þakkir til Ólafs fyr
ir allt, er hann hefur gert
fyrir þjóð okkar og land. Ól-
afur á Hellulandi hefur um
sinn aldur verið einn bezti
og athafnamesti bóndi þjóðar
innar.
Ólafur Sigurðsson, bóndi á
Hellulandi, er af göfugu bergi
brotinn. Það eru sterkir og
merkir, skagfirzkir ættstuðl-
ar, er að honum standa í allar
áttir. Faðir hans var Sigurð-
ur Ólafsson, er bjó allan sinn
aldur á Hellulandi og gerði
þann garð frægan. Stórvel gef
inn maður, þó einkum á sviði
nýjunga og var víða þekktur
vegna uppfinningagáfu sinn-*
ar. Sigurður á Hellulandi var
sonur Ólafs alþingismanns og
dannebrogsmanns í Ási, er var
einhver merkasti skagfirzki
bóndi um sína daga. Móðir
Ólafs var Anna Jónsdóttir, pró
fasts, Þorvarðarsonar í Reyk-
holti. Mikilhæf kona og prýði
lega gefin. Það er því ekki of
mælt, að ágætlega gefið og
merkilegt fólk hafi að Ólafi á
Hellulandi staðið og það þótt
litið væri um ættgarð hans
miklu víðar en hér hefur verið
gert.
Ólafur á Hellulandi er um
margt sérstæður og merkileg-
ur maður. Hann hefur fjöl-
hæfar gáfur svo að af ber. —
Hann er mjög hugkvæmur.
Hefur hann erft hina sér-
stæðu athugunargáfu föður
síns. Ólafur er smiður góður
og hefur þá dottið margt nýtt
í hug, sem hann hefur komið
í framkvæmd. Ólafur er fræði
maður á þjóðlegan fróðleik,
hefur hann sinnt honum því
meir er á æfi hans hefur liðið.
Helluland er falleg jörð og
góð, en þarf þó mikillar um-
hirðu við, því að ekki liggja
kostir hennar á lausu Rækt-
unarframkvæmdir eru að
ýmsu leyti erfiðar, mýrarsund
rnilli óþjálla klapparholta. En
Ólafur hefur gert Helluland
að stórbýli með mikilli og vel
gerðri ræktun. Þá hefur hann
ræktað þar bæði æðardún og
lax. Hefur Ólafur sérstaklega
kynnt sér ræktun og meðferð
þessara hlunninda og það að
ýmsu leyti á vísindalegan hátt.
Ólafur hefur oftar en einu
sinni farið til útlanda, til þess
að kynnast því, er snertir þess
ar nytjar.
Ólafur hefur um langt skeið
æfi sinnar verið ráðunautur
hjá Búnaðarfélagi íslands, til
þess að leiðbeina um ræktun
hlunninda og meðferð þeirra.
Hann hefur því kynnzt land-
inu og fólki því, er það byggir,
betur en flestir aðrir og notað
sér þá þekkingu, er hann á
þann hátt hefur aflað sér,
bæði sér og öðrum til gagns.
Öll hús hefur Ólafur reist
um sína daga, jafnt íbúðarhús
sem faðir hans reisti úr
steini, eitt hið fyrsta í Skaga-
firði, og útihús. Um þessar
mundir er hann að reisa nýtt
veglegt íbúðarhús. Svo að
Helluland er nú orðið eitt
bezt hýsta býli landsins og hús
bændum þar til stórsóma.
Eg hef hér með örfáum orð-
um minnzt starfs bóndans á
Hellulandi, sem er bæði mikið
og veglegt og mun halda nafni
hans lengi á lofti sem fyrir-
myndarmanns í bændastétt.
En ofraun hefur verið einum
Starf forstöðukonu
bæjarins við vóggustofu Reykjavíkurbæjar að
Hlíðarenda er laust til umsóknar og verður veitt
frá 1. febrúar n.k
Laun skv. 9. flokki samþykktar um laun fastra
starfsmanna Reykjavíkurbæjar.
Umsóknum ásamt upplýsingum um menntun og
fyrri störf skal skilað í skrifstofu borgarstjóra
eigi síðar en 30. nóv. n. k.
Skrifstofa borgarstjórans í Reykjavík,
31. október 1960.
manni að afkasta starfinu á
Hellulandi.
Ólafur er kvæntur Ragn- *
heiði Konráðsdóttur frá Ytri-
Brekkum í Akrahreppi. Ragn-
heiður er fágæt kona að mann
kostum og myndarskap. Hús-
freyja með afbrigðum, svo að
almannamál allra, er tii
þekkja, er, að fáar íslenzkar
húsfreyjur standi henni á
sporði í þeim efnum. Ragn-
heiður er vitur kona, sjálf-
stæð í skoðunum, en hrein og
bein í skapgerð, góðgjörn og
vill öllum vel. Gestrisni og
höfðinglegar viðtökur þeirra
Hellulandshjóna er rómuð og
vel þekkt um allt land. Mun
slík gestanauð hvergi þekkjast
á einkabýlum annars staðar.
Viðtökur eru svo íslenzkar og
glaðar, að af ber. Um hitt er
þó meira vert, en sem allir
munu viðurkenna, er reynt
hafa, hve gestum líður vel í
nágrenni þeirra hjóna. Hafa
þau sérstaka hæfileika til þess
að veita gestum sínum gleði
og unun. Það má segja, að nú
um fleiri áratugi hafi Hellu-
landshjónin reist bæ sinn nm
þjóðbraut þvera og að öllum,
er að garði bera, sé þar heim-
ill hvers konar beini, sem á-
vallt er veittur með sömu vin
semd og nærgætni, svo að gest
um finnist þeir þar ætíð vera
á bezta heimili. Húsbóndinn
á Hellulandi er oft utan heim
ilis í margvislegum erindum,
bæði fyrir sjálfan sig og aðra.
En þá bætir húsfreyjan störf- ;
um hans á sig. Enginn veit af
því, að Ragnheiður á Hellu-
landi eigi nokkru sinni ann-
ríkt.
Ólafur á Hellulandi er enn,
þótt hálfáttræður sé, léttur í
spori og beinn í baki, fullur
bjartsýnis og nýrra hugmynda
svo að unun er við hann að
ræða. Framfaramaður og
frjálslyndur hefur Ólafur ver
ið, einlægur samvinnumaður,
í lífi, skoðun og starfi.
Eg vil vona, að Ólafur á
Hellulandi eigi enn drjúgan
spöl ófarinn af sinni athafna
sömu og merku æfi. Eg óska
þess, að starfsgleði hans og at
hafnaþrá fylgi honum, sem við
vinir hans metum svo mikils.
Eg og mitt heimili þökkum
Hellulandshjónunum fyrir vin
áttu þeirra, margvíslega hjálp
og aðstoð, sem við höfum á-
vallt mætt þar. Blessuð sólin
vermi ykkur og heimili ykk-
ar.
Steingr. Steinþórsson.
JarSarför föður okkar,
Eyjólfs Guðmundssonar,
fyrrv. bónda að Hömrum í Grímsnesi,
fer fram frá Mosfellskirkju fimmtudaginn 3. þ. m„ kl. 13,00. (Bif-
eið fer frá Bifreiðastöð íslands.
Börn hins látna.
Húseigendur
Geri við og stiiii olíukynd-'
ingartæki Viðgerðir á alls
konar neimilisiækjum Ný-
smíði. Látið fagmann ann-
ast verkið. Símar 24912 og
50988.
Vön vélritunarstúlka éskast
Umsóknir ásamt upplýsíngum um fvrri störf og
meðmælum senuist skrifstofu vorri fvrir 8 þ.m.
Tryggingastofnun ríkisins
Laugaveg'; 114
Auglýsing
frá Bólsturgerðinni
Sófasett tvær nýjar gerðir. Lagt verð.
Greiðsla við móttöku aðeins kr, 1200,00.
BóBsturgerðÍRi h.f.
Skipholti 19, Nóatúnsmegin, simi 10388.
GARÐYRKJUFÉLAG ÍSLANDS heldur
uppskeruhátíð
að Hlégarði í Mosfellssveit, laugardagskvöidið 5.
nóv. kl. 7,30 síðd. — Aðgöngumiðar fást í Blóm
og ávextir, Blóm og grænmsti og í Blóminu.
Stjórnin
Styrktarfélag vangefinna
AUGLÝSIR
drætti í happdrætti styrktarfélagsins er frestað
til 6. jan. 1961.
Nr. 26/1960
Tilkynning
Verðlagsnefnd hefur í dag ákveðið eftirfarandi há-
marksverð í heildsölu og smásölu á innlendum niður-
suðuvörum:
Fiskbollur, 1/1 dós kr. 11.80 kr. 15.20
Fiskbollur, ý2 dós — 8.20 — 10.55
Fiskbúðingur, 1/1 dós — 14.25 — 18.35
Fiskbúðingur, ý2 dós — 8.60 — 11.05
Murta, i/2 dós — 11.65 — 15.90
Sjólax, y4 dós — 8.55 — 11.00
Gaffalbitar, y4 dós — 7.20 — 9.25
Kryddsíldarflök, 5 lbs — 59.95 — 77.20
Kryddsíldarflök, y2 lbs — 15.25 — 19.65
Saltsíldarflök, 5 lbs — 54.20 — 69.80
Sardínur, y4 dós — 6.75 — 8.70
Rækjur, y4 dós ... .* — 9.40 — 12.10
Rækjur, i/2 dós — 30.15 — 38.80
Grænar baunir, 1/1 dós — 10.00 — 12.90
Grænar baunir, i/2 dós — 6.50 — 8.35
Gulrætur og grænar baunir, i/2 d. — 7.60 — 9.80
Gulrætur og gr. baunir, 1/1 d. — 13.35 — 17.20
Gulrætur, 1/1 dós — 14.00 — 18.05
Gulrætur, i/2 dós — 8.75 — 11.25
Blandað grænmeti, 1/1 dós .... — 13.90 — 17.90
Blandað grænmeti, i/2 dós — 8.20 — 10.55
Rauðrófur, 1/1 dós — 18.55 — 23.90
Rauðrófur, ý2 dós — 10.60 — 13.65
Söluskattur er innifalinn í verðinu.
Reykjavík, 31. okt. 1960
V erðlagsst j órinn.