Tíminn - 05.11.1960, Page 2

Tíminn - 05.11.1960, Page 2
2 T f MIN N, laugardaginn 5. nóvember 1960. ( dag verður opnuð sýnlng á verkum Jóns Þorleifssonar, listmálara, I Boga- sal Þjóðmlnjasafnsins. Sýnir Jón þar 28 nýleg olíumálverk. Sýningin verður opin daglega kl. 13—22 e.H. til 16. nóvember. Myndin er að ofan frá Horna- firði, fæðingarsveit llstamannsins, og nefnist Meðalfell. (Ljsm.: Tíminn, KM) Tjarnarcafé fyrir veizlur og fundi Páll Þorsteinsson (Framh. af L. síðu). herra eftirfarandi yfirlýsingu fyrir hönd ríkisstjórnarinnar: „Ríkisstiórnin er öll sam- mála um að halda beri fast á þeirri stefnu, sem mörkuð hefur verið af fulltrúum ís- lands í Genf, þ.e. undanslátt- arlausri kröfu um 12 mílna fiskveiðilögsögu og enn frem- ur, að möguleikum verði hald- ið opnum um frekari stækkun fiskveiðilögsögunnar." ir 3) Ólafur Thors forsætis- ráðherra sagði í ræðu á Al- þingi 25. apríl í vor: „Ég hef ekkert umboð frá neinum í þessu þjóðfélagi til þess að afsala íslandi 12 mílna fiskveiðilandhelgi, bara af því að einhver önnur þjóð fær ekki 12 mílna landhelgi. Ann- að er fátæka mannsins ein- asta lamb, þ.e. okkar fiskur — hitt er hápólitískt og hern- aðarlegt mál." 'k 4) Þegar úrslit voru kunn á hafréttarráðstefnunni í Genf sagði Morgunblaðið með stór- fyrirsögn frá úrslitum á þenn- an hátt: Féll á atkvæði íslar.ds. — Hinum sögulega órétti bægt frá. Ræða Páls Þorsteinssonar er á þingsíðu blaðsins — bls. 7. Um þessar mundir eru nokkrar breytingar að verða á rekstri Tjarnarcafé; Egill Benediktsson, sem rekið hefur veitingahúsið um margra ára skeið, lætur nú af störfum þar, en í hans stað kemur Kristján Gíslason veitingamað ur, sem verið hefur veitinga- maður í Selfossbíói. Þær breytingar helztar verða nú á rekstrinum, að hætt mun verða að reka restauration í húsinu, en þess í stað mun það verða leigt Ut fyrir veizlur og fundahöld. Það hefur sem sé sýnt sig, að rest- auration í Tjarnarcafé hefur gefið slæma raun upp á síðkastið. Ekki hefur verið ákveðið, hvort miklar breytingar verða gerðar á húsinu, en til tals hefur komið að færa eitthvað til hljómsveitar- pallinn í salnum niðri, og e.t.v. niála hann upp á nýtt. Ekki er á- kveðið, hvort breytingar verða á síarfsliði, að öðru leyti en því, að ný hljómsveit mun taka þar til siarfa. Einnig er fyrirhugað að hafa kaffi og matarsölu um helgar a. m. k. og leggja þá áherzlu á kalt borð. Hin nýja hljómsveit húss- ins mun þá leika létta músík með- an á kaffi- eða matartíma stendur. HLn nýja hljómsveit hússins er sKipuð fjórum mönnum, og veitir aose M. Riba henni forstöðu. Aðrir meðlimir hljómsveitarinnar eru Ctuðjón Pálsson, Vestmannaeyjum, Reynir Sigurðsson og Sverrir Garðarsson. Til gamans má geta þess, að R'ba er gamall kunningi Tjarnar- caíé, því þar hóf hann að leika ei hann kom fyrst til iandsins, arið 1933, os — þá Kynntist hann konu sinni, einmitt i Tjarnarcafé. Stórtap hjá SAS Höfn 4/11 (Einkaskeyti til Tím- ans). Norska blaðið Verdens Gang greinir frá því í dag, að SAS flug- félagið hafi gert miklar skekkjur í fjár’hagsáætlun sinni með þeirri afleiðingu, að félagið leitar nú til stjórna Danmerkur, Noregs og Sví- þjóðar um að greiða halla, sem I orðið hefur á rekstrinum. SAS áætlar halla þennan um 140 milljónir norskr'a króna, en Verdens Gang telur að hann muni vera all miklu meiri en gefið er Krústjoff (Framh. af 1. síðu). Ambassador Sovétríkjanna í Vínarborg mótmælti þessum orðrómi þegar í stað en blöð- in í borginni höfðu birt grein ar um þetta. Sömuleiðis hafa ambassadorar Sovétríkj anna í Lundúnum og Haag mótmælt þessu harðlega og sagt hina argvítugustu lygi. Hins vegar hefur þessu ekki enn verið formlega mótmælt frá Moskvu en Tassfréttastofan í Moskvu talaði í kvöld um Krustjoff sem forsætisráðherra Sovét- ríkj anna. Sérfræðingar Breta, Banda- ríkjamanna og Frakka í utan- ríkismálum, hafa allir sagt, að þeir leggi lítinn trúnð á þenn an orðróm og erlendir blaða- menn í Moskvu segjast ekki hafa orðið varir við tneina breytingu á æðstu stjórn Sovét ríkjanna. Yfirleitt hefur orð- rómur þessi hvergi fengið byr nema í Austurríki, en þar segja menn þetta haft eftir öruggum heimildum. upp. Blaðið átelur mjög harðlega þennan gang mála hjá félaginu. (Aðlis). Stjómmálafundir á morgun á Suðurlandi Kjördæmasamband Framsóknarmanna í SuSurlandskjör- dæmi gengst fyrir fjórum almennum stjérnmálafund- um á Suðurlandi á morgun. Verða fundir þessir á Vatnsleysu í Biskupstungum, Stokkseyri, Gunnarshólma og Vík í Mýrdal. Hefjast allir fundirnir kl. 3 e.h. Kapphlaupið um tunglið til íslands (Framh. af l. síðu). Athuganir hér Til þess að kynnast staðháttum og jarðmyndun tunglsins, hefur bandaríski jarðfræðingurinn dr. Jack Green gert sér ferð til ís- lands og farið hér um öll eld- fjallasvæði. Dr. Green er starfs- maður Missile Division (geim- flaugadeild) stofnunarinnar North American Aviation, en sú stofn- un framkvæmir rannsóknir sínar í þágu Bandaríkjastjórnar. Dr. Green dvaldist hér á íslandi um nokkurra vikna skeið og ferðað- ist þá víða eins og áður er sagt. Fylgdarmaður hans í ýmsum ferðum var Tómas Tryggvason jarðfr’æðingur, og hefur Tíminn leitað til hans um upplýsiingar um rannsóknir dr. Greens. LiSur í kapphlaupinu Rannsóknir dr. Greens eru liður í kapphlaupi stórveldanna um himingeiminn, sagði Tómas, Bandarikjamenn vita að Rússar rannsaka tunglið af miklu kappi og þeir vilja ekki láta sinn hlut eftir liggja. Innan tíðar má reikna með að menn heimsæki tunglið, og þá koma upp ýmis vandamál sem krefjast úrlausnar. í því skyni að kynnast yfirborði tungls- ins, hafa menn rannsakað gaum- gæfilega eldfjallasvæði jarðar, sem líkust eru tunglinu og þar er ísland heppilegast. Eldgos? Svæðin, sem dr. Green rann- sakaði hér á landi, var hálendið bak Heklu, Landmannalaugar og svæðið kringum Öskju. Ennfrem- ur fór hann um Kaldadal. Leið- sögumaður hans norðanlands var Jón Sigurgeirsson frá Helluvaði, aikunnur fjallamaður. Eitt af því sem fyrir dr. Green vakti, var að fá úr því skorið hvort landslag á tunglinu væri myndað af eldgos- um eða loftsteinum, og hallaðist hann heldur að þeirri kenningu að eldgos hefðu markað yfirborð mánans. Þá munu rannsóknir dr. Greens einkum hafa beinzt að því, að rannsaka þann möguleika hvort unnt væri að vinna vatn úr þeim bergtegundum, sem eru á tungl- inu. En aðstæður til slíkra rann- sókna eru mjög hagstæðar hér á landi sakir þess að jarðmyndun íslands og tunglsins eru á svip- uðu stigi. Húsnæðisvandamál á tunglinu Annað veigamikið atriði sem dr. Green rannsakar, er „húsnæðis- vnndamál" þeirra jarðarbúa sem fljúga til tunglsins. Þar verður rcönnum ekki til sængur vísað né neitt til rétta veitt er beir koma þangað í fyrsta sinn í vatnsleysið og loftleysið og þar að auki er hætt við að ólíft verði sökum hins geysi lega mismunar hita og kulda á degi og nóttu. Mununnn er hvorki næiri né minni en 300 stig! — En á vissu dýpi í jarðveginum ríkir jafnt hitastig vetur, sumar, dag og nótt og því hefur mönnum komið til hugar að unnt væri að leysa úr húsnæðisvandanum með því að gera neðanjarðarbyrgi. Ella þyrfti ærið góða einangrun til að verjast næturkuldanum. Austur-þýzkur prófessor Annar jarðfræðingur sem rann- sakaði staðhæíti á íslamdi með tunglför fyrir augum var austur- þýzkur prófessor, dr. phil. Kurd von Biilow, forstjóri jarðfræðirann sóknarstofnunar háskólans í Rost- ock. Hann hefur þegar ritað nokkr ar ritgerðir um rannsóknir sínar hér í sumar og kemst þar svo að orði að hvergi á jörðu sé ákjós- anlegra að rannsaka landslagið á tonglinu en á íslandi. Innri skurninn sést á íslandi Innri skurn jarðar sé löngu hulin svo þykku lagi jarðvegs að ógerlegt sé að sjá hvernig jörðin htfi áður litið út. Veðurfar, hring- rás vatns o. fl. hafi hulið hina fvrri ásjónu jarðar með hverju jarðlaginu á fætur öðru og vindar hafa öldum saman sorfið fjöllin og jafnað þau við jörðu. Því sé ofugt faríð um tunglið, því að þar skortir gufuhvolf og því er þar ekkert „veður“, allan jarðveg skortir. ísland er hins vegar ungt lsnd frá jarðfræðilegu siónarmiði og hér má enn sjá hina innri skurn, sem mjög svipar til lands- 1-igs á tunglinu. Ýtarlegar rann- sóknir á jarðlögum og jarðfræði ívands munu því færa mönnum ómetanlega þekkingu á bví, hvern- :g muni bezt að haga sér á tungl- inu þegar hinn fyrsti maður stíg- IU fæti sínum á þennan kalda og dnuða hnött. Jökull Vatnsleysu Á fundinum á Vatnsleysu verða frummælendur alþingis- mennirnir Eysteinn Jónsson og Ágúst Þorvaldsson. Stokkseyri Frummælendur á fundinum á Stokkseyri verða þeir Björn Pálsson, alþm., og Óskar Jónsson, fulltrúi. Gunnarshólma Frummælendur í Gunnarshólma verða alþm. Ásgeir Bjarnason og Björn Björnsson. Vík í Mýrdal Á fundinum í Vík verða frummælendur Páll Þorsteins- son, alþm., og Helgi Bergs, verkfr. Eins og áður segir, hefjast allir fundirnir kl. 3 n. k. sunnudag. Verður á fundum þessum rætt almennt um stjórnmálaviðhorfið. FJÁRSÖFNUNIN Þeir Akureyringar. sem fengið hafa áskorun um að leggja til fjársöfnunar innar eru vimamlegs beðnir að hafa samband við Ingvar Gíslason, Hafnarstræti 95, sími 1443. Aðalftmdur Framherja Aðalfundur Framherja verður haldinn sunrtudaginn 6. nóvember n.k. kl. 2 í Edduhúsinu. Að loknum aðal- fundarstörfum verða lagðar fram tillögur um verka- lýðs- og atvinnumál. Stjórnin AKUREYRI Framsóknarvist verðui spiluð að Hótel KEA kl. 8,3U í kvöld. Dans á eftir.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.