Tíminn - 05.11.1960, Qupperneq 4

Tíminn - 05.11.1960, Qupperneq 4
4 T f MIN N, laugardaginn 5. nóvember 1960. 10 ár frá stofnun Mannréttinda- dómstólsins Þann 4 nóvember voru lið- in 10 ár, frá því að Evrópu- ráðssamningurinn um vernd- un mannréttinda og mann- frelsis var undirritaður í Rómaborg. í inngangi sáttmálans segir, að ríkisstiórnirnar, sem að honum standa, lýsí óbifanlegri trú sinni á þau meginréttmdi til frelsis, sem eru undirstaða réttlætis og friðar í heiminum og bezt eru tryggð annars veg- ar með raunhæfu stjórnarfars- legu lýðræði og hins vegar með almenrium skilningi og varðveizlu þeirra mannrétt- inda, sem eru grundvöllur trelsisins. Þá skuldbinda samningsaðilar sig til að tryggja hverjum þeim, sem innan yfirráðasvæðis þeirra dvelst, réttindi og frelsi, sem nán- ar eru skilgreind í sáttmálanum. Meðal þeirra réttinda, sem þar er um að ræða, er rétturinn til lífs, bann við pyndingum, þræl- dómi og nauðungarvinnu og réttur til frelsis og mannhelgi. Þá er handteknum mönnum áskilinn réttur til að fá vitnezkju um ástæð ur handtökunnar og til að vera án tafar færðir til dómara. Ákær'ð- um mönnum er áskilin sýkn nema sök sé sönnuð af ákæruvaldinu, og réttindi þeirra fyrir dómi eru tryggð með ýmsum hætti. Þá eru í sáttmálanum ákvæði um friðhelgi einkalífs, fjölskyldu, heimilis og bréfaskipta og um, að allir séu frjálsir hugsana sinna, sannfæring ar og trúar. Þá er mönnum áskilið fundafrelsi, tjáningarfrelsi^ og einnig réttur til að ganga í hjú- skap. í viðbótarsamningi, sem gerður var í París 1952, segir m. a.: að menn eigi rétt á að njóta eigna sinna í friði, en tekið er fram, að ríki geti fullnægt lögum um eftir- lit á þessu sviði og lögun skatta. Þá segir í viðbótarsammngnum, að engum skuli synjað um rétt til menntunar og að samningsaðilar skuldbindi sig til að halda frjálsar kosningar með hæfilegu millibili. — Hefur hér aðeins verið drepið lauslega á nokkur meginatriði varð andi mannréttindi þau, sem mælt er fyrir um í Evrópusáttmálanum. Þá eru í sáttmálanum ýtarleg ákvæði um ráðstafanir, sem gera má, ef talið er, að gegn ákvæðum um mannréttindi hafi verið brotið og leiðrétting hefur ekki fengizt í því ríki, sem hlut á að máli. Ríki þau, sem eru samningsaðilar, svo og einstaklingar og félagssamtök þeirra geta kært til Mannréttinda- nefndar Evrópu út af brotum þess- um. Nefndin athugar kæruna og reynir að koma á sáttum. Þá getur og komið til afskipta ráðherra- nefndar Evrópuráðsins. Ef ekki takast sættir, geta aðildarríkin svo og mannréttindanefndin skotið málunum til Mannréttindadómstóls Evrópu, en hann hefur nú nýlega hafið störf. Evrópuráðssamningurinn um verndun mannréttinda og _mann- frelsis var undirritaður af íslands hálfu þegar hinn 4. nóvember 1950 og staðfestur af forseta íslands 19. júní 1953. Var staðfestingin fyrir- varalaus, en heimilt er að hafa vissan fyrirvara. í mannréttinda- nefndinni og mannréttindadóm- stólnum eiga sæti ílenzkir menn. Hermann Jónasson, fyrrverandi forætisráðherra, tók sæti í nefnd- inni í upphafi, en síðar tók Frið- jón Skarphéðinsson, fyrrverandi dómsmálaráðherra, sæti hans. Ein ar Arnalds borgardómari er meðal dómara í mannréttindadómstóln- um. (Fréttatilkynning frá upplýs- ingadeild Evrópuráðsins 3. nóv- ember 1960). Útgerðarmenn og aðrir ísnotendur AfgreiSum með stuttum fyrirvara ,,INvSTANT“ ís- framleiðsluvélar. Afkastamöguleikar frá 350 kíló til 3000 kíló yfir sólarhring. ísframleiðsluvélar þessar eru mjög ódýrar í rekstri miðað við framleiðsluafköst. Leitið upplýsinga og tilboða. . . Einkaumboð fyrir ísland: SIG. SVEINBJÖRNSSON H.F , Reykjavík. Auglýsing frá Bæjarsíma Reykjavíkur Verkamenn vantar nú þegar við jaiusímagröft. Ákvæðisvinna. Nánari upplýsingar gefa verkstjórar Bæjarsímans Sölvhólsgötu 11, kl. 13—15 daglega, símar 11000 og 16541. Menningartengsl íslands og Ráðstjórnarríkjanna HLJÓMLEIKAR SOVÉTLISTMANNA í Þjóðleik- húsinu sunnudag 6. nóvember 1960 kl. 15.00. Einleikur á fiðlu: Rafaíl Sobolevskí Einsöngur: Valentína Klepatskaja og Mark Reshetín frá Bolsjoj-óperunni í Moskvu. Undirleikari: Évgenía Kalinkovitskaja. Hljómleikarnir verða ekki endurteknir. Aðgöngumiðar í Þjóðleikhúsinu frá kl. 13,00 á laugardag og sunnudag. 7. nóvember fagnaður Sníðið og saumið að Hótel Borg mánudag 7. nóvember kl. 21.00 Ræða: Halldór Kiljan Laxness — Alexandroff, ambassador Sovétríkjanna. Einleikur á píanó: Rögnvaldur Sigurjónsson. Ávarp: V. I. Smirnoff, prófessor. Ræða: Magnús Kjartansson. Einsöngur: Þuríður Pálsdóttir við undirleik dr. Páls ísólfss. Einleikur á fiðlu: Rafaíl Sobolevskí. Einsöngur: Mark Reshetín bassi. Dans: Björn R. Einarsson og hljómsveit. Aðgöngumiðar í Bókabúðum Kron, Bankastræti — Máls Þingholtsstræti 27. og Menningar, Skólavörðustíg, og MÍR-salnum, Mll? sjálfar eftir Frímerkjasafnarar Fyrir 50 stk. af notuðum, ógölluðum íslenzkum frí- merkjum, sendum við ykk- ur 100 teg. af erlendum merkjum. Merkin þurfa helzt að vera á umslaga- pappíruu.m Erum fluttir að SKIP- HOLTI 35. Höfum fyrir- liggjandi óprentaða plast- poka í öllurr. stærðum Afgreið- um áprentaða plastpoka í einum eða fleiri litum með stuttum fyrirvara. PLASPRENT S.F. Skipholti 35. — Sími 14160. J. Agnars Fnmerkjaverzlun s/f, Bo* 356 Reykjavík. Bremsu- viðgerðir og stillmgar a bremsum. Fljót og góð vinna. — lök- um á móti pöntunum Tilkynning Vér viljum hér með vekja athygli hetðraðra við- skiptavina vorra á því að vörur sem liggja í vöru- geymsluhúsum orum eru ekki tryggðar af oss gegn bruna, frostum eða öðrum skemmdum og liggja því þar á ábyrgð vörueigenda. STILLING HF Skiphoitt 35 — Sími 14340 H. F. EIMSKIPAFÉLAG ÍSLANDS .»V»V»V«V' .»v«v«v»> ‘V»V«V«V»V*V*V*V»V*V«V»V»V*V*V*V*V«

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.