Tíminn - 05.11.1960, Page 7

Tíminn - 05.11.1960, Page 7
TÍMINN, laugardagmn 5. nóvember 1960. 7 INCi Me5 samningum við Breta verður þjóð- areiningin í landhelgismálinu rofin Hér fer á eftir meginkafl- inn úr ræðu þeirri er Páll Þorsteinsson flutíi á Alþingi í gær um landhelgismálið: Herra forseti. Þjóðaratkvæða- greiðslan, sem fram fór dagana 20—23 maí 1944 sýndi, að „þegar býður þjóarsómi“, getur íslenzka þjóðin verið einhuga. Með lýð- veldisstofnuninni var náð loka- takmarki eftir langa baráttu. Þjóðin fagnaði frelsinu og hafði fyrir augum þá reynslu, að með auknu stjórnfrelsi hefur velmeg un þjóðarinnar sí og æ farið vax andi. Samhengið milli þessa tvenns er hægt að rekja stig af stig • Þegar litið er ásögu landhelgis málsins, verður ljóst. að þróun þess um aldarskeið hefur orðið í öfugu hlutfalli við þróun sjálf- stæðisbaráttunnar. Um langan aldur, að ég ætla frá 1682 til 1859, hafði íslenzka þjóðin 16 sjómilna landhelgi, en átta ár- um eftir að þjóðfundurinn var haldin og fimm árum eftir að síðustu bönd hinnar illræmdu einokunarverzlunar voru leyst, var kreppt að íslenzku landhelg- inni þannig að landhelgisgæzlan var ekki látin taka til nema fjög urra sjómilna, og þessi ákvörðun var tekinn af erlendu valdi. þann ig að dönsk stjórnarvöld ákváðu að gæzlan skyldi þá og eftirleið is aðeins látin taka til fjögurra sjómílna, þótt fyrir lægju áskor- anir Alþingis um að landhelgis- gæzlan yrði látin ná til sextán sjómílna eins og verið hafði um langan aldur. Um síðustu aldamót var mikill vorhugur með íslenzku þjóðinni. Kynslóðin, sem þá hóf störf, gekk vissulega til verka með þeim á- setningi að vinna að framför- um í landinu, vinna að þjóðend- urfæðing. Rétt eftir aldamóti var og náö nýjum áfanga í frels- isbaráttunni, en um svipað leyti eða rétt eftir aldamótin, þá er enn kreppt að íslenzku þjóðinni í landhelgismálinu með því að af hálfu erlends valds fyrir hönd íslenzku þjóðarinnar var gerður samningur til 50 ára um þriggja sjómílna landhelgi- Það var því að vonum, að íslenzka þjóðin fagnaði, þegar sá tími var kom- inni, að þessi landhelgissamnings tími rann út, og þjóðin hefur vissulega fagnað hverjum áfanga sem náðst hefur í landhelgis- málinu til útfærslu landhelginn ar og öruggari gæzlu hennar. Þessi einhugur þjóðarinnar í landhelgismálinu hefur ekki breytzt, þótt stjórnarskipti hafi orðið. Ávallt þegar nýjum áfanga hefur verið náð í landhelgismál inu, hefur þjóðin staðið einhuga á bak við þær ráðstafanir. Þessi einhugur þjóðarinnar í landhelg ismálinu stafar vitanlega af því að hún veit og skilur til fulls, að hér er um lífshagsmunamál henn ar að ræða. Vísindin leggja okk ur upp í hendur rök fyrir því, en jafnframt er landhelgismál- ið þáttur af sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar, endurheimt fornra landréttinda, sem þjóðin missti úr höndum sér vegna ráðstafana erlends valds. Alþingi hefur haft forustu í landhelgismálinu, og að hálfu stjórnmálaflokkanna hefur það komið fram, að þeir hafa viljað vinna að málinu i samræmi við þá þjóðareiningu, sem um það hefur skapazt og reynt að sam- Ræða Páls Þorstemssonar á Alþingi í gær um landhelgismálið eina sjónarmið flokkanna um leiðir að markinu. Þessi viðleitni stjórnmálaflokkanna bar þann árangur, að með ályktuninni 5. maí 1959, náðist algert samkomu lag milli flokkanna um orðalag ályktunarinnar, og hún var sam þykkt hér á hv. Alþingi að ég ætla einróma. í þessum umr. hefur það verið rakið, að í utanrmn. hafi verið unnið mikið starf í sambandi við landhelgismálið og að sú samstaða, sem varð í málinu með ályktuninni frá 5. maí 1959, hafi byggzt á langri athugun í utan- ríkismn. Eg hef ekki átt sæti í þeirri nefnd, er ekki kunnugur því, hvað þar hefur farið fram og skal ekki gera það að umræðu efni. En mér þykir hlýða að minnast hér á sumt af því, sem fram hefur komið í sambandi við landhelgismálið hér á hv. Alþingi, hvað birt hefur verið þingmönnum og þjóðinni af hálfu stjórnarvaldanna og þá einkum af hálfu núv. ríkisstjórn ar. Yfirlýsingar ríkisstjórnarinnar Þegar núv. ríkisstj. gerði Al- þingi grein fyrir stefnu sinni 21. nóvember 1959, þ. e. fyrir tæpu ári, þá gaf hún við það tækifæri ári, þá gaf hún við það tækifæri svohljóðandi yfirlýsingu, með leyfi hæstv. forseta: ,,Þá þykir ríkisstjórn rétt að taka fram, að stefna hennar í landhelgismál- inu er óbreytt eins og hún kem ur fram í samþykkt Alþingis hinn 5. maí 1959.“ Og til áherzlu, þegar þessi yfirlýsing er birt í aðalmálgagni ríkisstj órnarinnar, Morgunblaðinu, þá er henni val in stór fyrirsögn þannig: „Ó- breytt stefna í landhelgismál- inu.“ Meðan Genfar-ráðstefna stóð yfir, þar sem fjallað var um rétt þjóða til útfærslu landhelgi, urðu nokkrar umræður um þessi mál hér á hv. Alþingi. Þá var af hálfu núv. ríkisstjórnar gefin yfirlýsing um stefnu hennar í málinu. Sú yfirlýsing er birt í Morgunblaðinu undir stórfyrir- sögn „Undansláttarlaus krafa um 12 míina fiskveiðilögsögu. Og yfirlýsingin hljóðar þannig: „Utanríkismálanefnd Alþingis hélt fund síðdegis í gær (þ.e. 8. apríl. Sátu ráðherrar jafnframt fundinn. Var þar rætt um við- horfið í landhelgismálinu eftir síðustu fregnir af ráðstefnunni í Genf. Settur utanríkisráðherra, Emil Jónsson, gaf fundinum eft- irfarandi yfirlýsingu fyrir hönd ríkisstjórnarinnar: Rikisstjórnin er ö!l sammála um, að halda beri fast á þeirri stefnu, sem mörkuð hefur verið af fulltrú- um Islands í Genf, þ.e. undan- dráttarlausri kröfu um 12 mílna fiskveiðilögsögu og ennfremur, að möguleikum verði haldið opn um um frekari stækkun fisk- veiðilögsögunnar. Að öðru leyti verði fulltrúum islands á ráð- stefnunni falið að taka ákvörð un um afstöðu til einstakra til- lagna og bera sjálfir fram til- lögur eftir þvi sem þeir meta, að gagni bezt hagsmunum ís- lands og ofangreindu aðalsjón- armiði. ‘ Á meðan Genfar-ráöstefnan PÁLL ÞORSTEINSSON stóð yfir, var rætt um landhelg ismálið hér á hv. Alþingi oftar heldur en það skipti, sem sú yfirlýsing var gefin, sem ég var að greina frá. Hinn 25 april s.l. höfðu borizt hingað fréttir af Genfar-ráðstefnunni, og þá kom fram það sjónarmið flokk anna, m.a. núv. stjórnarflokk- ar, sem túlkað er í Morgunblað inu 26. apríl, þar se msegir: „íslendingar semja ekki við Breta um takmörkun sögulegra réttinda/ Og í umr. sem fóru fram hér á hv. Alþingi þennan dag, komst hæstv. forsr.h. (Ó.Th. þannig að orði, með leyfi hæstv. forseta: „Ég hef ekkert umboð frá netnum í þessu þjóðfélagi til þess að afsala tslandi 12 mílna fiskveiðilandhelgi. Bara af því að einhver önnur þjóð fær ekki tólf mílna landhelgi. Annað er fátæka mannsins einasta lamb, það er okkar fiskur, hitt er hápólitískt og hernaðarlegt mál“ Og þegar úrslit um atkvæða- greiðslu í Genf urðu kunn, þá túlkar aðalmálgagn ríkisstjórn arinnar afstöðu íslands og við- horf ríkisstj. í landhelgismálinu meö stórfyrirsögn þannig: „Féll á atkvæði Islands. Hinum sögu lega órétti bægt frá.“ Stefnubreyting. Ég ætla, að þessi dæmi, sem ég hef tekið af því, sem fram hefur komið í málinu af hálfu hæstv. ríkisstj. hér á hv. Al- þingi, séu nægilega mörg til þess að sýna, að þjóöin hefur vænzt þess af hæstv. ríkisstj., að stefna hennar væri í sam- ræmi við þann einhug þjóðarinn ar, sem skapazt hefur, stefna hennar væri undansláttarlaus krafa um 12 mílna fiskveiðilög- sögu. Það er því eðlilegt, að þjóð in hafi hrokkið ónotalega við þær síöustu fregnir, sem borizt hafa af aðgeröum í landhelgis- málinu, enda sýna hinar fjöl- mörgu ályktanir, sem berast hvaðanæva utan af lancfsbyggð inni, að svo er. Það er staðreynd, sem bæði þm. oð þjóðinni er kunnugt um, að það hafa farið fram viðræður milli íslenzkra fulltrúa og brezkra fulltrúa um landhelgismálið, en í yfirlýsingu sem hæstv. fors.r.h. gaf, þegar Alþingi var sett nú í haust, kom það fram, að það ættu sér að- eins stað viðræður, þar sem báð ir aðilar skýrðu sjónarmið sín. En af ræðu þeirri, sem hæstv. dómsmálaráðherra flutti hér í þessu máli, verður ekki annað séð heldur en að beinlínis sé stefnt að þvi af hálfu hæstv. ríkisstj. að vinna að samningum og ganga til samninga við Breta um meiri eða minni undanslátt á 12 mílna fiskveiðilögsögu ís- lands- Hæstv. dómsmrh. segir í ræðu sinni orðrétt m.a. þetta: „Verið er að kanna, hvort hægt sé að semja um miklu skemmri tíma með þvi að tryggja Is- lendingum fiskveiðar á þeim tíma jafnvel eða betur en gert er með 12 milna' lögsögunni. Þetta er viðfangsefnið." — „Þetta er viöfangsefnið" orð- rétt eftir hæstv. dómsmrh., að verið er að kanna að semja við Breta um málið. Það er ennfremur staðreynd, að í brezkum blöðum hefur ver ið skýrt frá því, að brezka stjórnin hafi fengið í hendur ákveðnar íslenzkar tillögur í land helgismálinu. Hafi brezka stjórn in afhent þessar tillögur full- trúum brezkra útgerðarmanna. Út af þessu leyfi ég mér að bera fram þá fsp. til hæstv. ríkis- stjórnar: Hefur ríkisstj. gert á- kveðnar tillögur í sambandi við samninga við Breta um landí helgismálið? Og ef svo er: Hvert er efni þeirra tillagna? Röksemdarfærsla ráðherranna missa marks. I ræðu þeirri, sem hæstv. utan ríkisráðh. hélt um þetta mál, lagði hann áherzlu á það, að íslenzku þjóðinni og ísllenzkum stjórnvöldum bæri að stuðla að friði og góðri sambúð þjóða. — Þetta er ekki nýtt. Þetta hefur vitanlega alltaf verið og á að vera stefna íslands i alþjóðamál um, en þetta lá einnig fyrir 1958, þegar ákveðið var að færa fiski veiðilögsöguna út um 12 mílur, og íslenzkum stjórnavröldum var það ekki ókunnugt þá og ekki þingflokkunum, sem sameinuð- ust um málið, að a.m.k. Bretar höfðu gefið það í skyn, að þeirri ráöstöfun yrði ekki mætt með velvilja af þeirra hálfu. En hæst virtur utanrh. virtist gleyma því, að áhrif þjóðarinnar að þessu leyti um að stuðla að friði og góðri sambúð þjóða er komin undir þvi, að þjóðin standi saman og að þeir, sem forustu hafa í málum hennar, hagi þannig störfum í hinum þýðingarmestu þjóðmál- um eins og landhelgismálinu, að þjóðin geti staðið einhuga með þeim. Þá lagði hæstv. utanríkisráðh. áherzlu á það, að ríkisstj. ætti að haga svo störfum og stefnu sinni í landhelgismálinu, að komið yrði í veg fyrir tjón gegnvart íslenzk um þegnum. Ekki er þetta heldur nýr vísdómur. Þetta hefur vitan- lega átt að vera markmið allra ríkisstj., en ef við hefðum átt að leggja aðaláherzlu á þetta í sam bandi við landhelgismálið, þá hefði afstaða Islands i Genf sjálf sagt orðið með öðrfum hætti held ur en þar varð, hefði þaö Sjónar- mið að friðmælast við Breta, átt að ráða afstöðu okkar og aðgerð um í landhelgismálinu. Það var þó kunnugt, að árekstrar höfðu orðið allt frá því að ákvæði reglu gerðarinnar komu í gildi og þang að til Genfar-ráðstefnan var háð, þannig að það lá fyrir þá, hver afstaða Breta og aðgerðir þeirra voru. Þá sagði hæstv. utanríkisráðh. í ræðu sinni, að hér væri ekki um neina hættu að ræða í sam- bandi við þetta mál, vegna þess að hæstv. ríkisstj. mundi ekki gera samninga um afslátt á 12 mílna fiskveiðilögsögunni, nema að fyrir lægi afdráttarlaus viður kenning Breta um rétt Islend- inga til 12 mílna fiskveiðiiögsögu um leið og gengið yrði frá samn- ingum. Út af þessu vil ég spyrja: Var ekki till., sem fjallað var um í Genf um undanþágu til fisk- veiða innan 12 mílna i 10 ár, með því skilyrði, að allar þjóðir við- urkenndu afdráttarlaust 12 milna fiskveiðilandhelgina að þeim tíma liðnum? Var ekki þeirri tillögu bægt frá með at- kvæði íslands, þrátt fyrir þetta skilyrði? Þessi röksemdafærsla hæstv. ut anríkisháðh. missir gersamlega marks til að réttlæta þær fyrir- ætlanir, sem rikisstj. virðist nú hafa í landhelgismálinu. Hver er réttargrundvöllurinn? En þegar hér er komið máli, er eðlilegt að spyrja: Á hvaða réttar grundvelli eiga þeir samningar að gerast, sem nú er verið að undirbúa eða fjalla um í sam- bandi við landhelgismálið? Það vakti eftirtekt mína og sennilega fleiri, sem hlýtt hafa á þessar umr. um þetta frv., að í málflutn ingi þeirra tveggja hæstv. ráðh. sem um málið hafa talað, er al- ger eyða að þessu leyti. Hæstv- dómsmálarh. greindi í ræðu sinni þrjú stig hins sögulega rétt ar. Hann talaði um eilífa kvöð til undanþágu til fiskveiða inn- an 12 mílna markanna. Hann talaöi um slíkar udanþágur á 10 ára tímabili og hann ympraði einnig á slíkum undanþágum um skemmri tíma t.d. um 5 ár. í Genf, þegar gengið var til úr- slita um þær till., sem þar lágu fyrir, þá var ekki tekizt á um hina eilífu sögulegu kvöð, sem hæstv. dómsmálarh. vék að. Það sem tekizt var á um þar, var undanþága í 10 ár og það var þetta stig hins sögulega réttar, undanþága í 10 ár, sem aðalmál- gagn hæstv. ríkisstj. kallaði hinn sögulega órétt, sem bægt hafði verið frá með atkvæði Is- lands. Það sem er óréttur, verð- ur ekki réttmæt regla við það eitt, að tíminn styttist. Á því | er ekki eðlismunur heldur aðeins stigmunur á áhrifum ráðstafan- anna. Og var hinum sögulega ó- rétti bægt frá í Genf með atkvæð um íslands til þess eins að sex mánuðum síðar yrði hann hafð ur að grundvelli í samninga- makki um afslátt á 12 mílna fisk veiöilandhelgi Islands? En ef réttargrundvölurinn, sem samningarnir eiga að byggjast á, er hinn sögulegi réttur þ.e. eitt- hvert stig hans, hvernig verður þá viðhorf annarra þjóða, sem eiga hinn sögulega rétt? Geta þær þá ekki gert kröfu um sams konar aðstöðu eins og Bretum yrði veitt? E.t-v. ætlar hæstv. ríkisstj. að Framhald á 13. síðu.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.