Tíminn - 18.01.1961, Page 9

Tíminn - 18.01.1961, Page 9
TÍMINN, miðvikudagiim 18. janóar 1961. 9 Samdrátiurinn í framförum ísl. landbúnaðar er geigvænlegur Þótt nokkrir dagar séu liðnir frá áramótum, vil ég ekki láta hjá líða að bjóða öllum landsmönnum Gleðilegt nýár og þakka jafn- framt fyrir gamla ár'ið og óska þess heilhuga að það feti í fótspor hins liðna árs. Verði jafn gott og gjöfult og það hefur verið. Eitt allra bjartasta og bezta ár, sem komið hefur á okkar landi urn marga ár’atugi. í nafni Búnaðar- félags íslands þakka ég gamla árið og bið Guð vors lands að blessa það. Eg óska þess, að hið nýja ár verði öllum, er jörðina erja, öilum er að landbúnaði starfa, sem blíðast og bezt. Vér, sem störfum hér hjá Búnaðarfélagi ís- lands, þökkum öllum, sem við höf- um starfað með, ágæta og Ijúfa samvinnu. Við erum starfsfólk bændastéttarinnar — vrnnufólk hennar — viljum vinna fyrir bændur og búalið eins og orkan leyfir, þótt misjafnlega kunni til af* takast hjá veikum og ófullkomn um manneskjum. Jú, árið hefur verið gott um veðurfar, gróður og annað, er nátt úran hefur í té látið. Er það gleðilegt og gerir flestum léttara fyrir fæti. Þó er það nú svo, að ýmiss konar erfiðleikar hafa mætt bændum og gert þeim á \ ýmsan hátt margs konar vandræði, svo að mörgum bóndanum verður meiri fjötur um fót en búast, hefði mátt við, sé miðað við það ágæta tíðárfar er verið hefur. 15% minni skurðgröftur Eg vil fara nokkrum orðum um þetta mál, sem að mínum dómi er mjög mikilvægt. Eg spyr, hvernig hafa framkvæmdir land- búnaðarins orðið hið liðna ár? Hefur þar verið um vaxandi og helibrigða s'tarfsemi að ræða, e;ns og vér höfum yfirleitt getað glaðzt yfir undanfarin ár? Því miður eru allmargir skuggar og sumir dimmir í byrjun hins nýja árs, skuggar, sem vér óttumst að hamli enn frekar eðlilegum fram- tcvæmdum á þessu nýbyrjaða ári, Ávarp Steingríms Steinþórssonar, búnaðar- málastjóra, flutt í útvarpið 9. jan. s. 1. Steingrímur Steinþórsson búnaðairmálastjóri en þó urðu á hinu síðasta. Vér skulum láta tölurnar tala og benda á hvers megi vænta eftir líkum að dæma nú. Skurðgröftur með vélskóflum hefur verið fram- kvæmdur í 19 ár og ár frá ári farið stórlega vaxandi. Það var í fyrsta sinni á síðasta ári, að ekki voiti næg verkefni fyrir allar skurðgröfur vélasjóðs og annarra þeiirra aðila, er að skurðgreftri hafa starfað. Nákvæmar tölur um þurrkun lands síðast liðið ár eru enn ekki til, en þó má segja, að fullar upplýsingar liggi fyrir, sem engum verulegum breytingum niunu taka og eru þær þessar: Árið 1959 voru grafnir um 3,9 millj. teningsm. af þuri'kskurðum en árið 1960 um 3,3 teningsm. Nemur sú lækkun fullum 15% af rúmmáli skurðanna. Nýrækt 25% minni Athuganir þær, sem gerðar hafa verið á nýræktarframkvæmdum s.l. ár benda ákveðið til þess, að þær séu um 25% minni árið 1960 er. þær voru árið 1959. Árleg ný- rækt nær hámarki árið 1959 og er þá 4444 ha, en mun árið 1960 hafa numið 3000 til 3500 ha. Útlit er fyrir, að á yfirstandandi ári rnuni verða um enn frekari sam- drátt að ræða en hér er áætlað, því að vitað er, að tiltölulega lítið land hefur verið brotið til rækt- unar s.l. ár og undirbúið til rækt- unar á þessu ári. Vélvæðing landbúnaðarins hef- ur til muna dregizt saman og að- allega vegna þess, að bændur hefur vantað reksti'arfé í stórum stfl til þess að geta aukið við og bætt vélakost sinn. Gengisfelling sú, er framkvæmd var snemma á árinu 1960, varð bændum yfirleitt afar þung í skauti í þessum efn- um. Verðhækkun á stórvirkum vélum, svo sem traktorum og jarðýtum, hefur orðið svo gríðar- leg, að jarðræktarsamböndum og öðrum hliðstæðum félagsskap hef ur reynzt fjárhagslega um megn að endurnýja vélakost sinn, hvað þá að bæta eldri skörð, nema til komi stórfellcur stuðningur ríkis- valdsins. Hækkun á varahlutum veldur og miklu um þessa erfið- leika. 43% færri vélar Það þarf stóraukinn og bættan vélakost. Fjölbreyttari tæki og vaxandi tækni er það eina, er getur hindrað samdrátt og stöðv- un landbúnaðarframleiðslu og gert bændum kleift að auka bú sín eins og vaxandi mannfjöldi krefst í borgum og öðru þéttbýli. | Tvímælalaust mun ungt fólk j flykkjast frá landbúnaði og til annarra atvimnuvega, verði ekki seð fyrir því, að sveitafólk fái eðlilega aðstöðu til vélvæðingar og hæfilega aðstoð til þess að, nota þau tæki réttilega og geti síðan reist bú með sjálfsagðri að- stoð ríkisvaldsins. Þá má og á það minnast, að á síðasta ári hafa byggimgai'fram- kvæmdir í sveitum stórdregizt saman, jafnt íbúðarhús og penmgs hús. Framkvæmdir í ár eru víða mestar þær að ljúka áður ófull- gerðum byggingum, því að bygg- ingar í sveitum standa oft yfir í fieiri ár. Það er því mikil hætta á, að enn sigi á ógæfuhlið á yfir- standandi ári um minnkandi bygg ingaframkvæmdir og þó einkum, ef ekki verður veruleg vaxtalækk- un nú í byrjun ársins. Eg hef nefnt hér nokkur atriði í byrjun hins nýja árs, sem mér virðast á margan hátt uggvænleg og það á þann hátt, að bændur athugi vel iivert og hvernig stefnir og hvað eigi að gera. Go'tt tíðar- far er ágætt og ómetanlegt, en eitt dugar það ekki, til þess að (Framhald á 13. síðu.) Arið 1959 voru fluttar til lands Sns 367 heimiHsdráttairvélar, en árið 1960 aðeins 208 og þar af 76 gamlar. Þefta er lækkun um 43%", sem bitnar einkum á fátæk- ustu bændunum, er engar eða mjög ófullkomnar vélar hafa get- a? útvegað sér áður og standa því nú uppi í hinum mestu vandræð um, vélvana eða því nær svo. Á.rið 1960 voru aðeins tvær jarð- j ýtur fluttar til landsins á vegum ræktunarsambandanna. Að vísu bjargaði þa í svip, að það hafði Þannig hafa mikilvlrkar skurðgröfur unnið mörg undanfarin ár, þurrkað allvel V^rið búið að innflutningi landið og skilað því undir plóginn fil túnræktar. Afköst þessara véla hafa orðið meiri með hverju ári, ætíð meiri en næsta ár á undan, þangað til á árinu 1960 að þróunin snerist við. Þá varð ekki nægiiegt verkefnl fyrir þessara fækja næstu ár á undan, er.da er það hin mesta nauðsyn. að ræktunarframkvæmdir jarð-1' ræktarsambandanna dragist ekki! framræslutækin, og mun enn minnka a þessu ari, ef fram heldur sem saman, heldur vaxi enn og þróist. I horfir. — Þar er „viðreisnin" að verki. efni þeirra og matur. En allt vatn á jörðu hefur sennilega einhvem tírria verið snjór. Að minnsta kosti er mikið af drykkjarvatmi okkar þannig til komið. Mest af úrkomunni myndast sem ís nálar eða snjóstjömur uppi í loftinu, þó að oft bráðni snjórinn, áður en hann nær til jarðar. Það köllum við rigningu. Og úr úrfellinu fá jurtir á þurru landi allt sitt vatn. Kolsýran er hins veg- ar eitt af þeim efnum, sem eru í vindinum, það er að segja andrúmsloftinu. Að vísu er hún líka uppleyst í sjónum, en hún er í stöð- ugri hægri hringrás milli hafs og lofts, og má því með allgóðri vissu segja, að einnig kolsýran í sjónum hafi einhvem tíma borizt með vindinum. Allar plönt- ur, hvort sem er á landi eða í sió. eru því að verulegu leyti byggðar upp úr efnum sem einhvern “tíma hafa' verið vindur og snjór. Ekki er þó allt talið með þessu. Köfnunarefni er eitt af þeim efnum, sem jurtir geta sízt án verið. Oftast fá þær það úr rotnandi jurta og dýraleifum. Það hafði Omar Khajam hugmynd um, þegar hann orti erindið sem Magnús Ásgeirsson þýddi svo: Og 6tráin grænu, er standa ung og þyrst á straumsins bakka, er nú við höfum gist — hvíl létt á þeim! Þau vaxa máski af vör, sem var í sinni æsku mjúk — og kysst. En til eru líka jurtir, sem vinna - köfnunarefni sitt beint úr loftinu, og er smár- inn einn þeirra. Auk þess hafa menn svo komizt upp á lag með að búa til áburð úr köfnunarefni loftsins. — Þetta gerir til dæmis áburð- arverksmiðjan okkar í Gufu nesi. Og þar sem meginforði köfnunarefnis er í loftinu, verðum við að telja, að nær allt köfnunarefni jurtanna hafi einhvem tíma borizt um geiminn með vindunum. Hér ber allt að sama brnnni. Meginefni jurtanna eru unn in úr vindi og snjó. Það, sem á vantar, er aðeins dálítið af steinefnum, sem koma úr berglögum jarðar. Það eru þau, sem mynda öskuna, sem kemur fram, þegar brennt er líkömum dýra eða jurtum, en eins og kunnugt er er hún lítil og léttvæg, ef vel er brennt. Það kemur þá í ljós, að „undirstöðufæða" okkar 'er ekki annaö en vindur, snjór og grjót. Þannig eru þá til komnar allar þær krásir, sem skreyta matborð okkar. Steikti fiskurinn á tilveru sína að þakka kolsýrunni, sem smokraðí sér úr vestan- áttinni niður í hafflötinn um dimma nótt, og að ein- hverju leyti er hann gerður úr snjónum, sem hlóð upp jökulskjöld ísaldar í fymd- inni. Kaffið er e.t.v. úr Gvendarbrunnarvatni, sem komið er úr sköflum í Hengl inum, en kaffibaunimar úr plöntu, sem sprottið ’• - - af lofti, hitabeltisregni og göml um hraunum í Brazilíu. — Hólsfjallahangikjötið á upp runa sinn í kjammiklum grösum Víðidals, en þau hafa aftur vaxið upp í fönn unum í Grímsst' vikri Dyngjufjalla og úr sunnanvindi sólheitra júlí- daga. Skyrið, rjóminn og kartöflurnar er komið úr Langjökli, gömlum jökulreir og hafgolunni i Flóanum, að ógleymdri norðanáttinni, sem lék um Gufunesverk- smiðjuna í fyrra. Þannig mætti lengi telja. Og þá er mál að víkja aftur að vísunni hans Jóns á Bægisá um þá snjöllu hug- mynd að venja fólkið við að éta vind og snjó. Sú visa hefði aldrei verið kveðin, ef hugmyndin, sem í henni felst, hefði ekki fyrir óra- löngu verið komin til fram kvæmda í vissum skilningi, þvi að efniviðurinn í höfund hennar eins og aðra menn var að mestu leyti vindur og snjór. (Tímaritið veörið.)

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.