Tíminn - 19.02.1961, Blaðsíða 3

Tíminn - 19.02.1961, Blaðsíða 3
I TjMINN, snnnudaginn 19. febrúar 1961. 3 Sársamningar útvegsmanna og sjómanna á Vestfjöröum ÞaS er f kvöld, kl. 9, sem GuSrún Tómasdóttlr syngur f Landakotskirkju. Hér er söngkonan á , lelkara sínum, Ragnarl Björnssynl. jflngu meS undlr Snjór aðeins í giljunum Það horfir ekki vænlegar fyrir skíðamönnum um þessa helgi en verzð hefur, þrátt fyr ir snjógusuna sem kom fyrri- part vikunnar. Tíminn hringdi upp í Skíðaskála í gærmorg- un og spurðíst fyrir um snjó- inn og útlit helgarinnar. Það var heldur dauft hljóðið í forráðamönnum Skíðaskál- ans. Snjórinn, sem lá svo hvít ur og fallegur yfir öllu fyrri hluta vikunnar er að mestu farinn, er aðeins eftir í giljum og drögum. Þó er það fagn- aðarefni fyrir skíðaunnendur að hitinn er kominn niður í frostmark, svo útlit er fyrir að skaflarnir haldist enn í dag. Þrátt fyrir það voru flest herbergi skálans pöntuð yfir helgina. Reykj avíkurmótið í svigi á að fara fram í dag í Hamragili við Kolviðarhól, og þar mun vera sæmilegur snjór, — en heldur ekki meira. Athugasemd Eggert Gíslason skipstjórz birtir í gær í Morgunblaðinu athugasemd við blaðaviðtal, sem Tíminn átti við hann 26. janúar sl. Ber hann sig upp undan því að ummæli hans hafi verið rangfærð og „notuð til árása“ á þá sem halda um stjórnartaumana í síldarút- vegsmálum. í upphafi þessa viðtals kvart aði Eggert sáran undan því að hann hefði aldrei átt viðtal við blaðamann svo að það væri ekki allt úr lagi fært, sem hann sagði. Reyndi ég því aðskrifa sem nákvæmlegast upp eftir Eggerti jafnóðum. Gerir hann ekki athugasemd nema við tvö atriði af þeim' fjölmörgu sem eftir honum voru höfð í Tímanum. Kalla ég það vel sloppið, þótt hitt hefði verið ákjósanlegt að við talið hefði verið gallalaust með öllu. En blaðamenn eiga við ýmislegt annað að stríða en eigin skilningsskort, stund um ber það við að óljós'fram AÐALFUNDUR MIÐSTJÓRNAR FRAMSÓKNARFLOKKSINS verSur settur í Framsóknarhúslnu uppl n.k. föstudag kl. 1.30. Fundurinn hefs't me5 yfirlltsræöu formanns Framsóknarflokks- ins, Hermanns Jónassonar. Þelr mlöstjórnarmenn, sem ekki geta mætt á aðalfundlnum, eru vinsamlega beðnir að tilkynna það flokksskrlfstofunni f Eddu- húslnu, sfmi: 16066. ÁRSHÁTÍÐ FRAMSÓKNARMANNA í Reykjavík verður í Framsóknarhúsinu sunnudaginn 26. febr. n..k. að afloknum aðalfundi miðstjórnar Framsóknarflokksins. Dagskrá samkomunnar verður auglýst í þriðjudagsblaðinu, Byrjað verður að taka á móti aðgöngumlðapöntunum strax á morgun í skrifstofu fulltrúaráðs Framsóknarfélaganna í Framsóknarhúsinu, sími: 15554 og 12942. FRAMSÓKNARFÉLAG REYKJAVÍKUR heldur fund í Framsóknarhúsinu, miðvikudaglnn 22.. þ.m. klukkan 8.30 siðdegis. Jón S. Pétursson, vélstjóri, flytur framsöguerindi er hann nefnir: Kjarabarátta launasamtakanna. Er hægt að koma í veg fyrlr að launafólk þurfl að sækja rétt sinn með dýrkeyptu ofbeldi? Félagar fjölmennið og taki með ykkur gesti. Stjórnin. ! FRÁ FÉLAGI FRAMSÓKNARKVENNA Saumaklúbburinn kemur saman f Framsóknarhúsinu, þriðjudaginn 21. febr., kl. 8,30 e.h. setning heimildanna glepur sýn. Eggert segir einnig að ég hafi ekki haft eftir honum nema „hálfsagða sögu“. Tæplega er hann að kvarta undan því að ég sleppti öllum þeim blóts- yrðum, sem hann lét falla í garð síldarútvegsnefndar. Þá veit Eggert eins vel og undirritaður að ég hringdi til hans á þeim tíma er hann hafði sjálfur tilgreint í því skyni að bera undir hann við talið, lét liggja fyrir honum skilaboð úr því hann var ekki heima en aldrei bólaði á Egg erti. Því sá ég ekki ástæðu til að bíða lengur með birtingu viðtalsins. Eggert hafði samband við mig mörgum dögum eftir að viðtalið var birt og varð það að samkomulagi hjá okkur að hann ritað; í Tímann svar við ásökunum síldarútvegánefnd ar í hans garð og þá yrði um leið leiðrétt það, sem mis- hermt var í fyrrgreindu við- tali. Hitt er svo einkamál skip stjórans hvers vegna hann kaus að birta þetta í Morgun- blaðinu./Það vill stundum til að síldin stingur sér og kemur upp annars staðar. Jökull Jakobsson. Eyskens fallinn í dag hélt Gaston Eyskens ráðuneytísfund í Brússel. Á fund þennan mættu aðeins ráðherrar katólskra, en eins og sagt var frá í fréttum I gær klofnaði stjórn Belgíu í fyrra dag vegna framkvvæmdar víðreisnarinnar í landinu. Hafa ráðherrar frjálslyndira sagt sig úr stjórnznm. Þessi samsteypa hefur verið við völd í Belgíu sl. tvö ár. Eftir ráðuneytisfundinn í gærmorgun gekk Gaston Eys- kens á fund Baldvins konungs og lagði formlega fram lausn arbeiðni sína. Ekki er búizt við, að konungur feli honum stjórnarmyndun að nýju. Kosningar verða í Belgíu í næsta mánuði. ísafirði, 17. febrúar. Síðastliðinn miðvikudag lauk samningum milli Bjó- manna og útvegsmanna á Vest fjörðum með samkomulagi, sem lagt verður fyrir fund fé laganna I dag. Samningar þess ir hljóða upp á 29,5% háseta- hlut af brúttó-verðmæti í afla skipa. En auk þess halda hásetar þeim hlunnindum, sem fólust í heildarsamning- unum í Reykjavik. Samkvæmt sérsamningum milli útvegsmanna og sjó- manna á Vestfjörðum fá há- setar, sem á sjó fara á línu- veiðar, auk þessa, 1000 króna aukaþóknun. Þá hafa útvegs menn skuldbundið sig til að kaupa ábyrgðartryggingar að upphæð kr. 1 milljón og 250 þúsund, vegna hvers einstaks tjóns, eða fyrir einstakling- allt að 500 þúsund krónur. Nokkurt þref hefur orðið í máli þessu og samningar tafizt vegna þess, að nokkrir útvegsmenn á ísafirði og í Hnífsdal gáfu LÍÚ rangar upp lýsingar. Af þessu tilefni hafa þeir, sem sæti áttu í samninga- nefnd útvegsmanna og sjó- manna á Vestfjörðum gefið svohljóðandi yfirlýsingu: Að gefnu tilefni viljum við undirritaðir taka fram fftir- farandi: í landssamningum, sem fram fóru í Reykjavík, í desember og janúar sl. var, samkv. upplýsingum útvegs- manna, gengið út frá hlut- fallstölu er nam 31,6% á há- setahlut úr brúttóverðmæti afla nokkurra báta frá Hnífs- dal og ísafirði. Við endurskoðun A.S.V. ann arsvegar og útvegsmanna á Vestfjörðum hins vegax, sem fór fram á ísafirði dagana 12. og 13. febrúar 1961, kom hins vegar I Ijóst, að skv. tölum er þá voru lágðár til grundvallar Útreikningum LÍÚ og ASÍ, reyndist hlutfallstalan fyrir framangreinda 1 staði, og að auki Bolungarvík, Suðureyri og Súðavík, vera 27,983%. Undir þessa yfirlýsingu rita f.h. sjómanna, Sigurður Kristj ánsson, form. sjómannafélags ísafjarðar, Karvel Pálmason á Bolungarvík og Jens Hjörleifs són frá Hnífsdal. Af hálfu útvegsmanna rita undir þeir Haraldur Baldvins son, lögfræðingur, Ágúst Flyg ering úr Hafnarfirði og Bene- dikt Bjarnason, forstj í Bol- ungarvík. G.S. Stærsta gervitungl Bandaríkjanna á ioft I gær skutu Bandaríkja- menn á loft gerfihnettí af Discoverergerð. Er þetta stærsti gervihnöttur, sem Bandaríkin hafa skotið á.loft til þessa og er hann búinn margvíslegum vísindatækjum en ekki hefur veið látið uppi, hvort dýr séu innanborðs. Eftir fjóra daga verður hylk ið sent til jarðar ,frá gerfi- hnettinum og munu skip og flugvélar reyna að ná því ó- sködduðu. Eftir þennan tíma hefur hnötturinn farið 65 sinnum umhverfis jörðu og vænta bandariskir vísinda- menn mikilvævgra upplýsinga frá honum. Málamiðlun samþykkt í Öryggisráði Sþ? FELAGSMALASKOLINN Á m'orgun, (mánudagskv.) kl. 8.30 flytur Ólafur Jóhann esson alþm. erindi um ut- anrikismál. Allir Fram- sóknarmenn eldri sem yngri velkomnir. Aðalfundur Dagsbrunar VerkamaunafélagiÖ Dagsbrún lieldur aðalfund sinn i Iðnó ann- að kvöld, mánudag, kl. 8,30. Þar fara fram venjuleg aðalfundar- störf, en einnig verður rætt uni kjaramálin. Svo virðist nú, sem Sovét- ríkm standi ein að tillögu Kongó. Líbería, Ceylon og Ara biska sambandslýðveldið hafa lagt fram í ráðinu málamiðl- unartillögu, þar sem lagt er til, að Hammarskjöld fái auk ið vald til aðgerða í Kongó. í tillögu þessara þriggja rikja er krafist rannsóknar á morðinu á Lúmúmba, og að allur erlendur hervörður verði á burt frá Kongó, sé hann ekki þar á vegum Sþ. Reynt verði að koma á vopnahléi milli kong óskra herja og mynduð stjórn á breiðum grundvvelli í land inu. Er jafnvel vænzt, að hægt verði að kalla stjórnmálaleið toga Kongó vestur um haf til skrafs og ráðagerða. Öryggis- ráðið hélt áfram fundi'sínum í gær og búizt var við, að til- laga þessi yrði samþykkt.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.