Tíminn - 28.02.1961, Blaðsíða 3
s
Rafmagnsofn kveíkti í eimnum frá dúkalíminu
Stórbruni í Bankastræti á
sunnudagsmorguninn
Kl. rúmlega hálfnfu á sunnu
dagsmorguninn kom upp eld-
r f húsi Lárusar G. Lúð-
víkssonar í Bankastræti. Þar
voru iðnaðarmenn að leggja
gólfdúk með mjög eldfimu
lími, og er talið, að kviknað
hafi í eimnum af því út frá
rafmagnsofni. Eldurinn
breiddist út á svipstundu, svo
að þeir, sem voru þama að
vinnu, komust með naumind
um út og gátu engu bjargað
nema sjálfum sér.
Á annarri hæð í liúsi Lár-
usar G. Lúðvíkssonar var
Hinn nýstofnaði Verzlunar-
banki íslands að innrétta sér
húsnæði, og átti það að vera
tilbúið mjög bráðlega, svo að
mikið lá á að fullgera það.
Þess vegna var verið að leggja
dúkinn í býtið á sunnudags-
morguninn.
Púsningin ekki þornuð.
Gólfið var nýpússað, og var
pússningin ekki fyllilega þorn
|uð úti við dyr. Til þess að
þurrka þann blett sem skjót-
ast settu dúklagningamenn-
irnir rafmagnsofn hjá blett-
inum og kveiktu á honum. Síð
an sneru þeir sér að dúklagn
ingunnú i. . ...... ....
Nýr dúkur og nýtt lím
Sá dúkur, sem þarna
var
lagður, var af nýrri gerð,
svampgólfdúkur, franskur að
uppruna, og var notað nýtt
franskt lím til þess að festa
hann niður. Utan á dósinni,
sem þetta lím var í, stóð út
þrykkilega á frönsku, að lím
ið væri bráðeldfimt. En lím
af þessari gerð hefur ekki ver
ið notað hér áður, og þeir,
sem að þessu unnu, eru lítt
lesnir á franska tungu.
Upp á næstu hæð.
Þegar dúkleggjararnir voru
svo sem 5—6 metra frá ofn-
inum að smyrja líminu á gólf
ið og dúkinn, læstist allt í
einu eldur um allt, svo skjótt
sem hendi væri veifað. Það
var með naumindum, að
mennirnir gátu bjargað sér
út, og einn þeirra fór upp á
næstu hæð fyrir ofan og þar
út á vinnupall. Boðum um
brunann rigndi yfir slökkvi-
stöðina úr öllum áttum, og
fór allt liðið á vettvang. Þvi
tókst fljótlega að slökkva eld
inn, en miklar skemmdir
urðu á hæðinni og næstu hæð
fyrir ofan urðu einnig miklar
skemmdir af sóti og hita.x
Það er talið fullvíst, að ekk
ert annað en rafmagnsofn-
inn hafi getað valdið þessum
bruna. — Verkið var vátryggt.
Myndin sýnir hús skóverzlunar Lárusar G. Lúðvikssonar í Bankastræti, er slökkviliðið hefur reist við það stiga
sinn og brotizt inn. í hornið er felid mynd af brúsa msð hinu franska dúkalími. Ljósmynd: TÍMINN —■ GE.
Handritamálið enn til
umræðu í Kaupmannahöf n
Einkaskeyti frá Kaupmanna-
höfn, 27. febr. — Berlingske
Tidende skýrir frá því á
sunnudaginn, aff Ólafur Thors
hefði ekki átt neinar viffræff-
ur við dönsk stjórnarvöld um
afhendingu handritanna,
nema hvaff þetta mál ber af
tilviljun á góma í fundarhléi
á ráðstefnu Norffurlandaráðs
ins í samtali á milli hans og
Jörgens Jörgensens, mennta-
málaráðherra Dana.
Oröaskiptin voru á þessa
leið:
Ólafur Thors: Mér virðist
eiginlega, að nú sé svo komið,
að hér í Danmörku sé mjög
hagstætt andrúmsloft til þess
að leysa handritamálið.
Jörgen Jörgensen: Þar held
ég, að yður skjátlist ekki til
muna.
Ólafur Thors: Ég get þá
, Jitið þessa skoðun mína í ljós,
þegar ég kem heim til íslands.
Jörgen Jörgensen: Já — ég
held, að það sé ekki neitt við
jþað að athuga.
| Síðan skýrir blaðið frá því,
jað það muni koma í ljós á
jnæstu mánuðum við samn-
ingaumleitanir milli Dana og
íslendinga, hvort tímabært sé
að íslendingar beri opinber-
lega fram tilmæli um afhend-
ingu handritanna. „Það yrðu
síðustu tilmælin af mörgum,
sem borin hafa verið fram
síðan 1918,“ segir blaðið.
Að lokum getur það um
ýms vandkvæði, sem eru á af-
hendingu handritanna, eink-
um hvort danska ríkið getur
látið af hendi eign Kaup-
mannahafnarháskóla, án
þess að samþykki hans komi
til. — Affils.
Ágætur fundur
Framsóknarfélags
Reykjavíkur
I fyrra kvöld hélt Fram-
sóknarfélag Reykjavíkur fund
í Framsóknarhúsinu. Formað-
ur félagsins, Einar Ágústsson,
lögfræðingur, setti fundinn
og stjórnaði honum, Jón Pét-
ursson, vélstjóri, flutti fróð-
legt og skemmtilegt framsögu-
erindi um kjarabaráttu laun-
I þega.
Að framsöguræðu lokinni hófust
l.iörugar umræður og tóku eftir-
greindir menn til máls: Einar
Ágústsson, Kristján Friðriksson,
Þórarinn Þórarinsson, Jóhann Ein-
Múhameð Marokkó
konungur látinn
Múhameð V. konungur í
Marokkó, andaðist s.l. sunnu
dag, 51 árs að aldri. Konung
ur þjáðist af nefstíflu og
gekkst undir uppskurð þess
vegna. Hanrt þoldi hins vegar
ekki uppskurðinn og lézt á
skurðarborðinu. Banamein
konungs var hjartabilun.
Múhameð konungur var
vinsæll meðal þegna sinna.
Hann hóf afskipti af stjórn-
málum meðan Marokkó laut
Frökkum og barðist hatram
lega fyrir sjálfstæði lands-
ins. Var hann um langt skeið
illa séður af Frökkum. Mú-
hameð konungur barðist fyrir
samstöðu Afrikuríkja og er
skemmst að minnast ráð-
stefnu Afríkuþjóða i Casa-
blanca, en konungur var upp
hafsmaður hennar. Tilkynnt
hefur verið, að elzti sonur
konugs taki við völdum eftir
arsson, Sveinn Gamalíelsson, Páll
Þorgeirsson, Hörður Gunnarsson,
Jón D. Guðmundsson, Kristinn
Finnbogason, Jónas Jósteinsson,
Hannes Pálsson frá Undirfelli og
E;nar Eysteinsson.
Mikil grózka er nú í Framsókn-
arfélagi Reykjavíkur og starfar
það af atorku undir stjóni þeirra
áhugasömu manna, sem þar fara
íyrir liði.
hann. Sá er talinn hliðholl-
ur Frökkum og fremur óvin-
sæll í Marokkó. Hins vegar
hefur hinn nýi konungur
herinn á sínu bandi og öfl-
ugur hervörður er við allar
opinberar byggingar í land-
inu og aðra mikilvæga staði.
Útför Múhameðs konungs
j verður gerð á morgun og
mun margt stórmenni verða
viðstatt hana, svo sem Bres
nev, forseti Sovétríkjanna;
Hussein Jórdaníukonungur;
Búrgíba, forseti Túnis og
Ferrhat Abbas, forsætisráð-
herra útlagastjórnar Serkja.
Jafnframt hefur Kennedy,
jforseti Bandaríkjanna, til-
: kynnt, að Averell Harriman,
jsem nú dvelst í Lundúnum,
J muni fara til Marokkó til þess
|að vera viðstaddur útförina.
Ekki Magnús
í Pfaff
Magnús Þorgeirsson, for-
stjóri í Pfaff, lætur þess get-
ið, að hann er ekki höíundur
greina, sem birzt hafa í Tím-
anum um landhelgismál og
fleira, heldur alnafni hans.