Tíminn - 27.06.1961, Síða 8
8
T í MI N N, þriðjudaginn 27. júní 1961.
Stúlka hætt komin í Eyvindar-
fjarðará á Ströndum
Féll af hesfi og barst meS straumi, en samferSa-
manni tókst að bjarga henni. /
Bæ, Árneshreppi, 22. júní.
S.l. föstudag lá nærri að ung
stúlka drukknaði í Eyvindar-
fjarðará á Ströndum, en fyrir
harðfylgi samferðamanna
hennar tókst að bjarga henni.
Sú saga er á þessa leið:
Upp úr hádegi sl. föstudags
(16.6.) hvessti hér skyndilega á
norðan og varS versta veður með
mikilli úrkomu þegar á daginn
leið. — Fýrirhugað var að halda
17. júnímót með íþróttum og balli
á eftir á vegum Ungmennafélags-
ins Leifur heppni, að Ámesi. —
Til þess að ná á þessa skemmtun
lögðu fjórir ungir menn og ein
ung stúlka af stað frá Dröngum
(sem er nyrzti bærinn í Árnes-
hreppi) seinni hluta^ föstudagsins
og ætluðu að ná að Ófeigsstað um
kvöldið eðá nóttina. Það er all
löng leið, vondur vegur og stórar
ár yfir að fara, allar óbrúaðar
nema Hvolá. Var þetta fólk á
hestum.
Þegar hópurinn kom að Eyvind
arfjarðará, sem er um miðja vega
milli Dranga og Ófeigsfjarðar, var
kominn allmikill vöxtur í ána, en
þó fær á hestum. Vöð eru slæm
á ánni. Rennur hún þarna í streng j
milli kletta og er straumhörð og
óhreint undir. Samt lagði hópur-
inn ótrauður í ána. Þegar komið
var út í miðja ána, hnaut hestur-
inn undir stúlkunni svo hún féll
af honum í ána. Missti hún af
hestinum og barst með straumn- j
um niður eftir ánni. Stúlkan er vel
synd, en straumurinn var svo,
þungur, að það kom henni ekki að
gagni. Varð það henni og til traf
ala að hún var með pokaskjatta
bundinn á bakið. Barst hún hjálp'
arvana niður ána, niður undir
hyldýpi og straumiðu. Fylgdar-
sveinarnir gerðu allt sem _ þeir
gátu að koma til hjálpar. Á síð-
ustu stundu, áður en stúlkan barst
niður í dýpið, tókst einum þeirra,
sem hlaupið hafði niður með
ánni, að vaða úti í hana svo langt,
að hann náði til stúlkunnar og gat
bjargað henni til lands. Ef það
hefði ekki tekizt að ná henni
þarna, telja þau víst að björgun
hefði ekki komið til greina.
Stúlkan var nokkuð þrekuð og1
illa til reika eftir þetta kalda bað.
Hresstist hún þó brátt. Hélt svo
ferðafólkið áfram ferð sinni og
kom til Ófeigsfjarðar um nóttina.
Fékk það þar hinar beztu við-
tökur. • Ekki varð stúlkunni meint
af þessu volki, enda hraust og
tápmikil.
Stúlkan heitir Selma Samúels-
dóttir og er heimasæta á Dröng-
um. Ferðafélagar hennar voru
bræður hennar tveir Jón og
Sveinn Kristinssynir og Guðmund
ar tveir. Er annar þeirra, sá, sem
bjargaði stúlkunni, sonur Jakobs
Kristjánssonar bónda í Reykjar-
íirði nyrðra, nú búsettur á ísa-
firði, en hinn einhvers staðar að
vestan. Voru þeir staddir'^Reykj-
arfirði ásamt öðru fólki að nytja
reka og hlunnindi eyðijarðanna á
Ströndum, en skruppu þetta sér
til skemmtunar.
SKEMMTUN FÉLL NIÐUR
Veður var slæmt á laugardaginn
og féll skemmtun niður þann dag
af þeim sökum. Á sunnudag var
komið gott veður. Fór þá sú
skemmtun fram, sem frestað var
á laugardag. Var þá keppt í ýms-
um íþróttagreinum og siðan dans
að af miklu fjöri frameftir nóttu.
Þar voru ferðafélagarnir frá
Dröngum mættir ásamt Selmu.
Sem geta má nærri fögnuðu pilt
arnir í sveitinni vel heimasætunni
frá Dröngum og þóttust hafa
heimt hana úr helju. Því að hér
skall hurð vissulega nærri hælum.
Hvolsvelli, 13. júní 1961.
Aðalfundur Kaupfélags Rangæ-
inga var haldinn í félagheimilinu
Hvoli 10. júní sl. Mættir voru 34
fulltrúar auk allmargra annarra
félagsmanna.
Framkvæmdastjóri las upp reikn
inga félagsins fyrir sl. ár og
skýrði þá ýtarlega. Sala aðkeyptra
vara nam 30.4 milljónum króna
geta þvegið og gengið frá þvotti
í fullkomnum og fljótvirkum vél-
um ,en sams konar þvottahús hef
ur verið rekið hjá Kaupfélaginu
á Hvolsvelli um nokkurra ára
skeið við miklar vinsældir. Einn-
ig var lokið við gagngerðar endur-
bætur á vörugeymsluhúsi á Hvols
velli og komið þar fyrir trésmíða
vélum. Hefur nú trésmíðaverk-
Aðalfundur Kaupfélags Rangæinga
Vélar og húsnæöi tré-
smíðaverkst. stórbætt
Heildarvelta félagsins nam 37,1 milljón kr. —
endurgreiðsla 218 þúsund krónur
og jókst um 940 þúsund frá næsta
ári á undan. Heildarvelta félags-
ins nam 37.1 milljón króna og
jókst um 2.3 milljónir.
Samþykkt var að endurgreiða
félagsmönnum 218.000 kr. í stofn-
sjóð þeirra eða 1% af viðskiptun
um. — Lokig var á árinu við bygg
ingu starfsmannahúss að Rauða-
læk og komið fyrir þvottavélum,
þar sem konur á félagssvæðinu
Kann ég þá sögu ekki lengri,
en af slíkum atburðum hefur oft
skapazt nokkur rómantík. G.P.V.
stæðið fengið mjög bætta aðstöðu
hvag snertir vélakost og vinnu-
pláss. Áður var það í sama húsi
og bifreiðaverkstæðið, en húsnæð-
ið, sem losnaði, er nú notað fyrir
vélaverkstæði.
Úr stjórn fél. áttu að ganga: Séra
Sveinbjöm Högnason, Breiðaból-
stað, Ólafur Sveinsson, Stóru-
Mörk, og Guðmundur Þorleifs-
son, Þverlæk og voru þeir allir
endurkjörnir.
Fulltrúar á aðalíundi SÍS voru
kjörnir, formaður félagsins, Björn
Björnsson, alþingismaður og Magn
ús Kristjánsson, kaupfélagsstjóri.
P.E.
y.V,,.WAVAV.V.V.V.,.V.V.V.V.V.,.V/.,.W.V.l.W.V.VAV.,.VV.V/.,.V.,.,.,.V.V.V.V.V.V.V.V.,,.,.V.V.,.V.,.V.V.V.V.,.,.,.VA%VW.V.,AVAW.Ví
Stúdentar Menntaskólahs á Akureyri
Þetta eru stúdentarnir frá Menntaskólanum á Akureyri. Myndin var tekin daginn, sem skólanum var sagt upp — myndarlegur og lífsglaður hópur.
Fremsta röð frá vinstri: Sigfús Guðmundsson, Pétur Einarsson, Ámi Sigurbjörnsson, Hjálmar Jóelsson, Davíð Gíslason, Eysteinn Björnsson, Karl H. Proppé, Páll Helga-
son, Magni Steinsson, Snorri Þorgeirsson, Birgir Vigfússon, Jón Sæmundur Signrjónsson, Magnús H. Ólafsson, Reynir Vilhjálmsson. Önnur röð' frá vinstri: Guðmundur Sig-
urðsson, Valgarður Egilsson, Rannveig Sigurðardóttir, Jón Þórir Jónsson, Berta Sigtryggsdóttir, Hjálmar Hjálmarsson, Hallfríður Kolbeinsdóttir, Steinunn Karlsdóttir,
Ólafur Ragnars, Engilráð Sigurðardóttir, Guðmundur Karl Jónsson, Ketill Oddsson, Karl Grönvold, Skúli Johnsen, Stefán Jónasson, Valgerður Franklín, Anna G. Jónas-
dóttir, Steinarr Höskuldsson, Aðalbjörg Jónsdóttir, Hörð'ur Ólafsson, Hákon Ólafsson, —Þriðja röð frá vinstri: Atli Dagbjartsson, Baldvin J. Bjarnason, Jóhannes G. Sig-
valdason, Ingunn Stefánsdóttir, Hanna Dóra Pétursdóttir, Guðrún Eggertsdóttir, Elías Elíasson, Einar G. Pétursson, Hjörtur Pálsson, Gísli G. Kolbeinsson, Óttar Ein-
arsson, Þorvaldur G. Einarsson, Laufey Vilhjálmsdóttir, Valgerður Jónsdóttir, Garðar Gíslason, Ema Jakobsdóttir, Einar Aðalsteinsson. — Fjórða röð frá vinstri: Björg-
vin Jónsson, Leifur Símonarson, Jón Erlendsson, Sigurðúr L. Viggósson, Guðni Óskarsson, Þorsteinn Geirsson, Kristinn Arnþórsson, Sigurður Eymundsson, Sigurður Sig-
urðsson, Hjalti Þórðarson, Auðunn Sveinbjörnsson, Ketill Hannesson, Óskar Óskarsson, Sighvatur Björgvinsson, Vigfús Aðalsteinsson, Kristinn Ziemsen, Þorbjörn A. Frið-
riksson. — Myndin er tekin í lystigarðinum á Akureyri að morgni þjóðhátíðardagsins hinn 17-júní. (Ljósmynd: E. D.).
:AV.,.VA,.,.V.VV.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V,.".V.,.V.V.,.V.V
I ■ ■ ■ ■ ■ ■ I