Tíminn - 24.08.1961, Blaðsíða 2

Tíminn - 24.08.1961, Blaðsíða 2
T-ÍMiNíí, fimmtudaginn 24. ágúst 1961. Flugdagur á Reykja- víkurflugvelli 27. þ.m. Minnzt aldarfjóríungsafmæíis Flugmálafélagsins Á sunnudaginn kemur verður í sjöunda sinn efnt til flugdags hér á landi. Það er Flugmálafé- lagið, sem gengst fyrir þessu, og mun það að þessu sinni jafnframt minnast 25 ára afmælis síns. — Fyrsti flugdagurinn var haldinn á Sandskeiði 1936. Svifflugfélagið á einnig aldarfjórðungsafmæli um þessar mundir. Flugdagurinn verður nú að sjálfsögðu haldinn á Reykjavíkur- velli, sem flugmálastjórnin lánar Flugmálafélaginu í þessu skyni. Verður þar flugsýning mikil, sem margar flugvélar munu taka þátt í. íslenzkir flugmenn og flugvélar munu að sjálfsögðu bera uppi sýn- inguna, en auk þeirra munu taka þátt í flugsýningunni nokkrar gerðir h’rflugvéla af Keflavíkur- flugvelli, ásamt kopta. Mót að Jaðri TjaldbúfJasvætSitJ flócSlýst Samband íslenzkra ung templara verður með 3. árs þing sitt að Jaðri n. k. föstu dag og laugardag, en á laug- ardag hefst hið árlega mót samtakanna þar og mun það standa iil sunnudagskvölds. ÁrsþingiS verður sett kl. 8,30 á föstudagskvöld með ávarpi for- manns íslenzkra ungtemplara, séra Árelíusar Níelssonar. Á þing- inu mun Ólafur Þ. Kristjánsson, skólastjóri flytja erindi um skóla- æskuna og áfengið. Ráðgert er að þinginu ljúki seinnihluta laugar- dags. Mótið verður sett seinnihluta laugardags og síðan mun verða íþróttakeppni. Um kvöldið verður ! skemmtun inni að Jaðri og mun i þá ný fimm manna hljómsveit ungra manna leika fyrir dansin- urn. Á sunnudag verður útisamkoma, ef veður leyfir, sem hefst með guðsþjónustu. Kl. 4 verða skemmti atriði, m. a. verður fyrsta íslenzka geimfaranum skotið upp frá Jaðri. Mótinu mun ljúka með kvöldvöku og dansi að Jaðri á sunnudags- kvöld. Verður þá kjörin Jaðars- drottningin úr hópi þeirra stúlkna, sem mótið sækja, og sem þykir bera af í háttvísi og góðri fram- komu í hvívetna. — Tjaldbúða- svæðið mun verða flóðlýst. Ferðir verða að Jaðri frá Gó- templarahúsinu báða dagana, sem mótið stendur. Hvaö gera Norðmenn í markaðsmálunum? Myndin er tekin í fyrrinótt viS komu Eiriks rauða. Unnur Einarsdóttir, kona SigurSar Helgasonar, varaformarms stjórnar LoftleiSa, færir Dagfinni Stefánssyni, flugstjóra, blómvönd. Einnig sjást á myndinni, auk áhafnar hinnar nýju flugvéiar, AlfreS Elíasson, framkvæmdastjór! LoftleiSa og kona hans. NTB—Osló 23. ágúst. Einar Gerhardsen forsætisráðherra staðfesti í dag á blaðamanna- fundi, að norska stjórnin myndi ekki taka afstöðu tjl markaðsbandalagsmálsins fyrr en eftir kosningarnar. Ákvörðun um það, hvort Noreg- ur skuli sækja um upptöku í sam- markað ríkjanna 6, sem Bretar og Misjafnir há- setahlutir ísafirði, 21. ágúst. — Bátarnir héð an úr Djúpinu eru nú flestir að hætta síldveiðum, og margir eru komnir til heimahafna sinna, Hásetahlutir á bátunum eru mjög misjafnir, en margir munu þeir vera milli 30—40 þúsund krónur Sæfarinn frá Tálknafirði kom hingað með nótina fyrir skömmu, og sögðu skipverjar á honum, að hásetahlutur væri um 75.000 kr. Hásetahlutirnir á Dofra frá Pat- reksfirði, Einari Hálfdáns og Heið rúnu frá Bolungavík, munu vera svipaðir, sömuleiðis á Guðbjörgu frá ísafirði. G.S. Danir hafa nú sótt um upptöku í, væri svo mikilvæg, að þjóðin yrði að standa eins sameinuð um hana og mögulegt væri. Tíminn fram að kosningum sagði forsætisráðherrann, að yrði notaður til þess að afla sem gleggstra upplýsinga um markaðs- bandalagsmálin, og fram að þeim tíma, er þingkosningarnar færu fram, væri varla til hagsbóta að efna til kappræðna um málið. Gerhardsen sagði enn fremur, að yfirlýsing Erlanders um, að Svíar myndu okki ganga í mark- aðsbandalagið, hefði komið á ó- vart. Norðmenn hefðu búizt til að hafa nánari samráð við Svía um þessi mál. Það liti út fyrir, að j Svíar legðu meira upp úr stjórn- j málahliðinni á ráðagerðum um ; framtíð sammarkaðsins en Norð- menn. SAS tapar (Framhald ai 1 siðu.i að á sumum. Reynt verður að nýta flugvélakost SAS betur. Við sparnaðaraðgerðirnar reikn ar forstjórinn með, að um 45 millj. kr sparist á ári. Þegar orðið var frjálst eftir ræðu Nicolins, dundi á honum haglél nærgöngulla spurninga blaðamannanna um fjármál félags ins. Eiríkur rauði (Framhald af 1. síðu.) Hver áhöfn er skipuð 4 körlum og 3 konum og flugliðar Loftleiða verða því 140 talsins. Eru það ein- göngu íslendingar. Kostakjör Félagið mun fjölga ferðum um 2 á viku frá því, sem var í fyrra- vetur — fljúga í vetur 2 ferðir á viku til Lúxemborgar'. Loftleiðir hafa í hyggju að bjóða mjög lág og hagstæð fargjöld á leiðinni Lúx emborg—Reykjavík—Lúxemborg, og hefur félagið sótt um það til flugráðs og beðið um, að það afl- aði leyfis ioftferðayfirvalda í Lúx- emborg. Telja forráðamenn Loft- leiða, að það mál verði auðsótt. Með hinum nýju og hagstæðu kjör- um mun flugfarið til Lúxemboig- ar ekki kosta nema 2.882 krónur aðra leiðina og 5.188 krónur fram og til baka. Er það mun lægra far- gjald en með skipi til Hamborg- ar t. d., en það kostar fram og j til baka 6.970 krónur. Til saman- i burðar og frekari glöggvunar má benda á, að flugfarið til Kaup- mannahafnar aðra leiðina kostar j nú 4.372 krónur. Hér er því um óvenjuleg kostakjör að ræða. I 50 þús. farþegar Þessar upplýsingar veittu þeir Sigurður Magnússon, fulltrúi, og Martin Petersen, deildarstjóri Loft leiða, á fundi með blaðamönnum í gærdag. Þeir skýrðu enn fremur frá því, að sætanýting Loftleiða væri óvenjugóð um þetta leyti árs, vélarnar væru fullsetnar farþeg- um jafnt austur sem vestur um hafið, en undanfarin ár hefur far- þegastraumurinn um þetta leyti aðallega verið vestur á bóginn. Farþegafiutningarnir aukast jafnt og þétt, og er það bezti mælikvarð inn á vinsældir Loftleiða erlendis, því að msgnið af farþegum Loft- leiða eru erlendir menn. 1959 fluttu vélar Loftleiða 34 þúsund farþega landa á milli Á síðasta ári komst farþegaiaian yfir 40 þús- und og í ár mun '”'m komast tölu- vert yfir 50 þúsund. Loftleiðir hyggjasi nú taka upp það nýmæh að veita. námsmönn- um afslátt af fargjöldum á leíð- inni Reykjavik—.New York— Reykjavík. Hafa þeir sótt um leyfi til flugráðs og beðið um fyrir- greiðslu þess við öflun leyfis vestra. Afsláttur þessi mun nema 25% á fargjaldi fram og til baka, j og gildir fyrir þá, sem stunda nám 1 Fjögur héraðsmót Framsókn- armanna um næstu helgi V-Húnavatnssýsla Aðalfundir og sumarhátíð Framsóknarmanna í V.-Húna- vatnssýslu verða að Laugarbakka n. k. sunnudag. Fundirnir hefjast kl. 3 e. h. Eysteinn Jónsson, form. þingflokks Fram- sóknarmanna ræðir þar um stjórnmálaviðhorfið. — Almenn skemmtisamkoma kl. 8 síðdegis. — Smárakvartettinn á Akur- eyri syngur. Síðan verður dansað. Dalasýsla Framsóknarmenn í Dalasýslu halda héraðsmót sitt að Kirkju bóli í Saurbæ n. k. laugardagskvöld kl. 8,30. Ræður flytja Gunnar Guðbjartsson, bóndi, Hjarðarfelli, og Jón Skaftason, alþm. Árni Jónsson, óperusöngvari, sýngur með undirleik Skúla Halldórssonar, tónskálds, og Ómar Ragnarsson fer með gaman- vísur. — Fimm manna hljómsveit leikur fyrir dansinum. S-Þingeyjarsýsla Héraðsmótið að Laugum hefst kl. 8,30 n. k. laugardag. — Mótið setur og stjórnar Karl Kristjánsson, alþm. Ræður Her- mann Jónasson form. Framsóknarflokksins og Ingvar Gíslason alþingismaður. Gamanþættin Gestur Þorgrímsson, gamanleikari. Söngur: Jóhann Konráðsson og Kristinn Þorsteinsson. Undirleikari Ás- kell Jónsson. Kóralhljómsveit Mývetninga leikur fyrir dansi. Borgarfjarðarsýsla Stjórnmálafundur Framsóknarmenn í Borgarfjarðarsýslu halda almennan stjórn málafund að Brún í Bæjarsveit n. k. sunnudag og hefst hann kl. 3 e. h. Frummælendur á fundinum verða Þórarinn Þórarinsson alþm og þingmenn flokksins í Vesturlandskjördæmi. Jafnframt verður haldinn aðalfundur Framsóknarfélags Borgarfjarðar- sýslu. HéraSsmót kl. 9 Um kvöldið kl 9 hefst svo héraðsmót Framsóknarmanna og verður það einmg að Brún. Ræður flytja Þórarinn Þórarinsson og Daníel Ágústínusson. Arm Jónsson, óperusöngvari. syngur með undirleik Skúla Hall- dórssonar, tónskálds. Ómar Ragnarsson fer með gamanvísur, og að lokum verður dansað. Hljómsveit Sigvalda Fjeldset leikur fyrir dansi (5 manna hljóm- sveit). — Ferðir verða frá Þ.Þ.Þ. i skólum i Bandaríkjunum 6 mán- uði eða meira og einnig eigin- konur námsmanna og börn. Þessi afsláttur mun verða veittur bæði Islendingum, sem stunda nám vestra, og Bandarikjamönnum, er sækja íslenzka skóla, en það fær- ist nú í vöxt.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.