Tíminn - 24.08.1961, Blaðsíða 4
4
TÍMINN, fimmtudaginn 24. ágúst 1961.
SEXTUGUR:
Jósep H. Jónsson
Snemma sumars, ár eitt, laust
eftir aldamótin síðustu, var ferða-
fólk statt í kauptúninu á Vopna-
firði. Þetta voru hjónin í Skógum,
Jón Jónsson, skaftfellskur að ætt
og uppruna, og Sigríður Jóseps-
dóttir, ásamt þremur ungum börn-
um þeirra. Þau biðu nú skips,
albúin að flytja til Vesturheims.
Þau höfðu undanfarna daga kvatt
frændfólk og vini í sveitinni, selt
búfé sitt allt og búslóð, utan það,
sem barnafjölskylda hlaut að
taka með sér í langt og erfitt
ferðalag yfir úthöfin,' með þeirra
tíma farkostum og þeim farareyri,
sem fátækt sveitafólk hafði yfir
að ráða. En hvort sem biðin varð
löng eða skömm, gerðist það, að
yngsta barnið, Jósep Hjálmar, tók
lasleika nokkurn. Og með því að
móðirin má vel hafa vitað, hve
ferðin vestur var erfið ungum
börnum, þar sem margir sveitung
ar og þeirra á meðal skyldfólk og
venzlafólk hennar, höfðu flutzt til
Vesturheims á undanförnum árum
og vafalaust haft bréfaskipti við
hana, mun lasleiki drengsins hafa!
ráð'ið úrslitum. Víst er um það, að
Vesturheimsferðin fðrst fyrir, og
aftur var snúið heim í Skóga. En
Skógar eru æskuheimili Sigríðar;
og þar hafði hún hafið búskap
með manni sínum fáum árum fyrr.
Það er ekki ætlun mín að rekja J
feril Jóseps H. Jónssonar í Skóg-
um, sem varð sextugur 15. ágúst
s.I., allt frá því er hann, óafvit-
andi, sneri fólki sínu heim frá
Vopnafjarðarkauptúni, og til þessa
dags.
Þar mun óhætt að byrja, að
hann varð snemma liðtækur á
búi foreidra sinna og sjáanlega
rakið búmannsefni. Ekki naut
Jósep skólagöngu umfram barna-
fræðslu. Hins vegar lærði hann
söðlasmíði hjá föðurfrændum sín-
um í Skaftafellssýslu og hefur
alla tíð stundað söðlasmíði í hjá-
verkum. Einkennist sú smíði hans
af traustleik og smekkvísi. Um
hitt veit víst enginn, hvar eða
hvernig hann hefur. öðlazt ótrú-
lega leikni í járn- og trésmíði.
Að sjálfsögðu er þó búrekstur-
inn og umbæturnar í Skógum hið
eiginlega ævistarf Jóseps. Það var
rétt um sama leyti, að Jósép tók
við búsforráðum í Skógum og
ræktunaraldan, sem hófst með
setningu jarðræktarlaganna, náði
til Austurlands. Jósep var líka
með þeim fyrstu hér í sveit, sem
fengu sér hestaverkfæri til jarð-
vinnslu og lét þau ekki ó-notuð.
Nýjar sáðsléttur í túni eða utan
töldust brátt til árlegra verka.
Seinna, þegar dráttarvélar komu
til sögunnar, var færzt meira í
fang. Jarðvinnsla er þó fremur
erfið í Skógum, þar sem túnið
liggur í allmiklum halla, skorið
giljum. En vegna þess er það líka
svo óbrigðult til uppskeru, að næst
um má segja, að misjafns árferð-
is gæti ekki þar. Þá hefur Jósep
húsað jörð sína myndarlega og
verið þar bæði trésmiður og múr-
ari. Umbætur Jóseps í Skógum
eru svo miklar í sniðum og vel af
hendi leystar, að hann má vel vita,
nú þegar hann litur til baka, úr
'þessum áfangastað, að hann hefur
reist sér varanlegan minnisvarða.
Svipuð saga hefur, sem betur
fer, gerzt á fjölmörgum íslenzk-
um sveitabýlum á seinustu árum.
En um eitt er þó uppbygging
Jóseps í Skógum frábrugðin því,
sem almennast er. Hann mun
aldrei hafa tekið lán til nokkurra
framkvæmda. Hér skal, að vísu,
enginn dómur á það lagður, hvort
telja beri dyggð eða ódyggð að
taka lán til framkvæmda. Miklu
nær er að segja, að skilvís lántak
andi og sparifjáreigandi séu jafn-
nauðsynlegir því, sem kallað er
eðlileg þróun peningamála. Hitt
er annað mál, að bóndamaður
hlýtur að staldra við og undrast
þá yfirgripsmiklu fyrirhyggju, sem
til þess þarf, að framkvæma um-
bætur á borð við Jóseps : Skóg-
um án minnstu lántöku.
Það, sem orðið hefur Jósep far
sælast til búmennsku, eru áreiðan
lega frábærir verkstjórnarhæfi-
leikar hans. Ekki svo að skilja,
að hann hafi haft hópi manna á
að skipa og haldið sjálfum sér frá
vinnu. Þvert á móti hefur hann,
eins og flestir bændur, mátt við
það una, að segja aðeins sjálfum
sér fyrir verkum. Stundum einum
eðá tveimur til viðbótar, en ævin-
lega unnið lengst og afkastað
mestu sjálfur. Ég hef löngum átt
leið hjá garði Jóseps, með og án
viðkomu, á öllum árstíðum. Þar
af leiðandi hef ég ekki komizt hjá
að taka eftir því, sem einkenndi
staðinn öðru fremur og vitnaði
um húsbóndann.
Eitt er það, hve mér virðist
vorverkum vera jafnan snemma
lokið í Skógum, og þar með er;
eins og sumarið komi þar fyrr en
annars staðar. Þá minnist ég þess
ekki, að hafa nokkum tíma séð
hey hrekjast verulega á túni í
Skógum. Jafnvel ekki sumarið
1950. Ég hef heldur aldrei séð þar
rusl eða óreiðu, utanhúss eða inn-
an. Þvert á móti eru þar allir hlut-
ir á sínum stað. Allt í röð og
reglu, sem auðsjáanlega stafar af
góðri umgengni daglega, fremur
en umbrotamiklum tiltektum öðru
hvoru. Allt þetta, og raunar margt
fleira, sem hér er ekki talið, tel
ég hiklaust ávöxt frábærra verk-
stjórnarhæfileika húsbóndans.
Eins og að líkum lætur um jafn
inikinn ræktunarmann, hefur
Jósep jafnan átt velmeðfarið og
afburðagott búfé, svo að í fremstu
röð er.
Svo sem aðrir bændur á þessu
aldursskeiði hefur Jósep lifað þær
gagngerustu breytingar, sem orð-
ið hafa í sögu íslenzks landbúnað-
ar Þeir hafa oft orðið að velja
eða hafna, án verulegs stuðnings
frá tilrauna- eða leiðbeiningastarf
semi búnaðarsamtákanna. Mála
sannast mun það, að Jósep hafi
staðið sig vel á því prófi. Kannske
hefur hann manna bezt kunnað að
sameina gamlan og nýjan tíma.
Oft verið fljótur að notfæra sér
þær nýjungar, sem reyndust til;
frambúðár. en hafnað öðrum, sem |
minna varðaði. '
Áreiðanlega nær umbótaþrá
þessa athafnasama manns út fyrir,
hans eigin garð. Þannig hefur |
han-n reynzt hin mesta hjálpar-
hella. þeim, sem voru að koma
af stað byggingum og hefur þá pft
klipið af naumum tíma sínum til
að leysa af hendi það vandasam- ]
asta í byggingarframkvæmd grann
ans. ef ekki var til þess lfunnátta
eða geta heima fyrir. Mér er ekki
grunlaust að meta megi þessa |
hjálpsemi hans að hálfu til greiða,
semi og að hálfu til skemmtunar
honum sjálfum, sem er svo ríku-
lega búinn þeim hæfileika að hafa
nautn af uppbyggjandi starfi.
Jósep hefur lengi átt sæti í
stjórn búnaðarfélags og síðar rækt
unarfélags sveitarinnar. Og for-
maður fóðurbirgðafélagsins hefur
hann verið lengur en nokkur ann
ar, að ég hygg Enda mun flest-
u.m finnast. að það komi í rétt
an stað niður, því að aldrei mun
honum hafa orðið fóðurs vant í
sínum búskap, hvernig sem áraði. |
Jósep er ókvæntur og hefur Sig
ríður systir hans staðið fyrir búi1
hans alla hai\s búskapartíð og ’
stýrt því af miklum myndarskap.
Hjá þeim hefur alizt upp systur-1
sonur þeirra, Jón Þorgeirsson, og,
hefur hann nú fyrir nokkrum ár-1
REYKJAVÍKURKYNNING 1961
Kl. 14.00
— 20.00
— 20.30
— 21.00
— 22.00
Sýningarsvæðið opnað.
Lúðrasveit leikur.
Tónleikar í Neskirkju.
1. Orgelleikur: Páll Kr. Pálsson og Árni Arinbjarnarson
2. Einsöngur: Árni Jónsson.
Kvikmyndasýning í Melaskóla. Reykjavíkurmyndir.
Kórsöngur í Hagaskóla. Karlakór Reykjavíkur.
Stjórnandi: Sigurður Þórðarson.
Ver8 aðgöngumiða: Fullorðnir kl. 14—18 kr. 10,00
... Fullorðnir kl. 18—22.30 kr. 20.00
-IfíÖK 'íírfþhqm;) Börn 10—14 ára greiða hálft gjald.
Börn undir 10 ára þurfa ekki að
greiða aðgangseyri.
Kynnisferðir.
Kl. 17.00
— 20.15
— 15.30
Ferð um Gamla bæinn. Lýst upphafi hans og þróun.
Verð kr. 30.00.
Ferð um Gamla bæinn, Nýja bæinn og Árbæjarsafn skoðað.
Verð kr. 30 00.
Ferðin um Gamla bæinn endurtekin.
Ferðirnar, sem taka Yh—2 klukkustundir, eru farnar undir
leíðsögn þaulkunnugra fararstjóra.
Skoðaðar skrifstofúr bæjarins í Skúlatúni 2, Laugardalsvöllur-
inn, Rafstöðin gamla við Elliðaár og Laxaklakið við Elliðaár.
Verð kr. 10.00.
Brottför frá bílastæði við Hagaskóla (Dunhagamegin).
'V.*W«V*VV*V«V*W»V*V*V'VV>V*V’V*
um hafið búskap á hluta jarðar-
iíinar.
Það er alveg sérstök ástæða fyr-
ir okkur sveitunga Jóseps, að sam
gleðjast honum á þessum tíma-
mótum, því að við þykjumst hafa
heimt hann úr nokkurri hættu.
Fyrir tæpum tveimur árum slgs-1
aðist hann alvarlega, er hann féll
af hestbaki í fjallskilaferð og
horfði lengi illa um bata hans. En
nú er batinn kominn það áleiðis,
að hann getur gengið til flestra
starfa sinna. Varla þó án þess að
beita sjálfan sig hörðu. |
Það reynir ekkert verulega á
ímyndunarafl þess, sem er kunn-,
ugur Jósep í Skógum, að hugsa
sér hann framarlega í hópi hinna
dugmiklu, íslenzku landnema í
Vesturheimi. En hér þarf ekki á
ímyndunarafli að halda. Sú stað-
reynd blasir við, að fyrir þá til-
viljun, að aftur var snúið með
hann heim í Skóga, er Austur-
land í dag einu fögru og myndar
legu býli ríkara. H.Þ.
ORÐSENDING FRÁ
HÓLASKÓLA
Bændaskólinn á Hólum verður starfræktur á vetri
komandi með eldri deild og bændadeild. Náms-
tíminn verður frá 15. iktóber til 15. maí. Nem-
endur, sem ekki hafa lokið landmælingum, mæti
10. október.
Enn er hægt að bæta við 4—5 nemendum.
Auk bóknáms verða vikulegar verkæfingar 1 vél-
fræði, búfjárhirðingu, smíðum og tamning hesta
eftir nýjár.
Nemendur og umsækjendur, sem óska eftir frek-
ari skýringum á námstilhögun hafi samband við
skólastjóra eða kennara.
Skólastjónnn