Tíminn - 25.08.1961, Qupperneq 1
Fundinn nýr fjallvegur
- ór Álftaveri vestur í Fljótshlíð
Nú í vikunni var farið í
fyrsta sinn á' bílum nýjan fjall
veg. Tíu manns fóru á tveim-
ur jeppum Fjallabaksleið úr
Álftaveri vestur í Fljótshlíð
meðfram Mýrdalsjökli.
Fimm Rangæingar og fimm Álft-
veringar fóru þessa ferð. Höfðu
þeir upphaflega ætlað að fara
Syðri-Fjallabaksleið, en Álftvering
arnir höfðu grun um, að hægt
væri að fara aðra leið beint norður
úr Álftaveri, án þess að fara yfir
Hólmsá, og varð það að ráði.
Þeir félagar’ lögðu af stað frá
Herjólfsstöðum klukkan tólf á há-
degi mánudagsins síðast liðins áj
tveimur Rússajeppum. Fóru þeiri
inn Álftaversafrétti og yfir Jökul-
kvíslar, en héldu sig alltaf vestanl
Hólmsár. Leiðin lá milli jökuls og1
Mælifells og komu þeir á Syðri-
(Framhald á 2. síðu.)
Merkur dagur í
sögu flugsins
f dag er fjórlieilagt í flugmál-
um íslands, því að í dag á Flug-
málafélag fslands 25 ára afmæli,
flugturninn nýi á Reykjavíkur/lug-
velli verður tckinn í notkun, og
um leið verður haldið hátíðlegt
25 ára afmæli Svifflugfélags fs-
lands oig þess minnzt ,að hinn 6.
ágúst s.I. voru liðin 25 ár síðan
ISnaðarsýning samvinnumanna — þar getur að líta margar nýjungar. — (Ljósmynd: Þorvaldur Ágústsson).
Iðnstefna samvinnumanna sett
Samningar hafa veri'ð gerför um sölu á íslenzk-
um ullarvarningi úr landi fyrir 12 milljónir kr.
hið opinbera lióf afskipti af flug-
málum á íslandi.
Forráðamenn Flugmálafélags
íslands kölluðu blaðamen-n á sinn
fund á Hótel Borg í gær til þess
að skýra lítillega frá liðnum ár-
um félagsins, en félagið 'var ein-
mitt stofnað á Hótel Borg hinn
25. ágúst 1936.
Stofnendur voru 95, allt áhuga-
menn um flugmál, en aðaltilgang-
ur félagsins var að efla áhuga á
þeim málum með fræðslustarf-
semi og stuðla að því, að flug-
vélar yrðu teknar hér í notkun
sem samgöngutæki.
Helztu starfskraftar
Ur röðum þessai’a stofnenda,
og seinna annarra félaga Flugmála
félagsins hafa komið margir
helztu starfskraftar í hinum ýmsu
| greinum flugsins ,og má þar t.d.
nefna Agnar Kofoed-Hansen, flug-
j málastjóra, fyrsta forseta félags-
1 ins og Björn Pálsson, flugmann,
sem verið hefur varaforseti fé-
I lagsins um mörg ár.
Þá má einnig geta þess, að
fyrsta skrifstofa Flugfélags ís-
lands hafði aðsetur á skrifstofu
! Flugmálafélagsins, og fyrstu flug
menn okkar tveggja stóru flug-
félaga eru einnig úr röðum félags
1 manna Flugmálalféagsins.
Meðlimir í FA
Flugmálafélagið er meðlimur í
„Federation Aeronautique Inter-
noticnale“, eða alþjóðafélagsskap
flugáhugamanna.
Það stendur fyrir svifflugmót-
um og tók þátt í alþjóðasvifflug-
móti við Köln s.l. sumar. Flug-
málafélagig stóð fyrir því, að reist
ur var minnisvarði við Fossvogs-
kaphellu fyrir þá sem týnst hafa
í flugslysum. Þá hefur félagið gef
ið út blaðið Flug.
Fyrsta stjórn félagsins var
j þannig skipuð: Agnar Kofoed-
! Hansen, forseti; Pálmi Hannesson,
varaforseti; Jón Eyþórsson, ritari;
Sigurður Jónsson, gjaldkeri og
Valgeir Björnsson, meðstjórnandi.
Stjórnin
Núverandi stjórn er þannig
skipuð: Baldvin Jónsson, forseti;
Björn Pálsson, varaforseti; Ás-
björn Magnússon, bréfritari; Haf-
steinn Guðmundsson, gjaldkeri og
(Framhald á 2. síðu.)
Iðnstefna S.Í.S. og kaupfé-
laganna var sett í samkomu-
salnum í Gefjunni á Akureyri
í gær. Harry Frederiksen,
framkvæmdastjóri iðnaðar-;
deildar S.Í.S. flutti setningar-j
ræðuna, en síðan tók til máls
Erlendur Einarsson, forstjóri
S.Í.S. Síðan hófst kaupstefna,'
og lýkur henni í kvöld. Mikill
fjöldi manna sótti iðnstefnuna
í gær og skoðaði hinn fjöl-
breytta varning, sem þar var |
til sýnis.
Það eru fimmtán verksmiðjur
samvinnumanna, sem sýna fram-
leiðsluvörur sínar á iðnstefnunni
— tíu á Akureyri, þrjár í Reykja-
vík, ein á Selfossi og ein á Húsa-
vík. Iðnstefnur samvinnumanna
hafa nokkur undanfarin ár verið
haldnar á Akureyri, og er það
eðlilegt, því að iðnvæðing sam-
vinnumánna er mest þar.
Það hefur verið stefna samvinnu
félaganna að byggja iðnað sinn
fyrst og fremst upp til að vinna
úr íslenzkum hráefnum. Gefjun
notar með hverju árinu sem líður,
meira af ullarframleiðslu lands-
(Framhald á 3. síðu).
Stofnun til undirstöðurannsókna
á sviði raunvísinda
Tillaga nefndar háskólapréfessora
Höfuðverkefni þings raunvísindal
manna, sem hefst eftir helgina, er
að fjalla um nauðsyn raunvísinda-
rannsókna í nútímaþjóðfélagi og
skipulag slíkrar starfsemi hér á
landi. Verða þar teknar til með-j
ferðlar þrjár tillögur — álit at-l
vinnumálanefndar ríkisins um al-
mennar náttúrurannsóknir og nátt-
úrufræðistofnun hér á landi, álit
meirihluta sömu nefndar um skipu
lag rannsókna í þágu atvinnuveg-
anna og tillögur háskólans um
skipulag og eflingu undirstöðu-
rannsókna á sviði raunvísinda.
Rektor háskólans skipaði í vet-
ur prófessorana Leif Ásgeirsson,
Magnús Magnússon, Steingrím
Baldursson, Trausta Einarsson og
Þorbjörn Sigurgeirsson, ásamt dr.
Gunnari Böðvarssyni, í nefnd til
þess að gera tillögur um undir-
stöðu rannsóknir á sviði efnafræði,
eðlisfræði, jarðeðlisfræði og stærð
fræði.
Tillaga þeirra er, að vísindasjóð
(Framhald á 2. síðu.)