Tíminn - 17.09.1961, Page 1
Leyndarclómar
erfðafræðirmar,
bls. 9.
Áskriffarsími Tímans er
Sunnuadgur 17. september 1961,
Helga frá Hornafirði hvolfdi
í hvirfilbyl og sjóróti - 7 saknað
Tveimur bjargað um
borð í skozkt skip
BJARNI RUNÓLFSSON
ÓLAFUR RUNÓLFSSON
BJÖRN JÓHANNSSON
Það hörmulega slys vildi til á hádegi í fyrradag
á Færeyjagrunni, að vélskipinu Helga frá Horna-
firði hvolfdi skyndilega með níu manna áhöfn
innanborðs. Sjö skipverja er saknað og benda
allar líkur til, að þeir hafi farizt. Tveimur mann-
anna var bjargað um borð í skozkan línuveiðara,
sem sigldi með þá til Færeyja. Talið er, að skipið
hafi fengið á sig snarpan hvirfilbyl og brotsjó.
Þrír þeirra, sem saknað er af Helga
Forsetinn á slóð-,
* /
um Islendinga
frestað
Afhjúpun styttunnar af Ing
ólfi Arnarsyni, sem er gjöf ís-
lenzku þjóðarinnar til Norð-
manna, hefur verið frestað til
klukkan 2 á mánudaginn.
Athöfn þessi átti sem kunnugt
er að fara fram f Rivedal í dag,
en hefur nú verið frestað, sem
fyrr segir.
'Ástæðan er sú, að Hekla, sem
flytur íslenzku gestina utan,
hreppti hið versta veður í hafi, og
hefur skipinu seinkað af þeim sök- :
um. Um sexleytið á föstudag varj
skipið statt hér um bil miðja vegu j
milli fslands og Færeyja, og var
þá veðurhæð mikil og þungurj
sjór. Um kvöldið var veður nokkru
skárra, en veðurhæð þó enn mikil þeirra, enda enn til á þessum j
Winnipeg, fréftaskeyti. —
Forsetinn dvelst nú í þeim
byggðarlögum Kanada, þar
sem menn af íslenzkum ættum
eru fjölmennastir.— í Winni-
peg og á Nýja-íslandi. Hefur
hann setið boð, þar sem margt
var af fólki af íslenzku kyni,
og hefur sumt komið langa
vegu vegna þessa atburðar.
í þessum boðum hefur forsetinn j
ávarpað veizlugesti á tungu feðra
slóðum talsvert af fólki, sem skil-
ur íslenzku vel. Hefur hann þá
jöfnum höndum minnzt atvika úr
sögu heimalandsins og viðburða í
lífi Vestur-íslendinga.
í gærkvöldi sat forsetinn veizlu
Þjóðræknísfélags Vestur-íslend-
inga, og í dag mun hann halda
að Gimli, þar sem hann mun koma
fram á útisamkomu í almennings-
garðinum og heimsækja elliheim-
ilið Betel. Síðari hluta dags fer
hann aftur til Winnipeg, vqrður
þar við íslenzka messu, situr fund
hjá Þjóðræknisfélaginu og ávarp-
ar Vestur-íslendinga í útvarp.
í gærmorgun tilkynnti skozki
togarinn Verbena, loftskeytastöð-
inni í Færeyjum, að hann væri á
leið til Færeyja með tvo skipbrots
menn af vélskipinu Helga og að
þeir hefðu fundið þá um morgun
iný. Hefði skipig þá verið statt á
60 gráðum og 45 mínútum norð-
lægrar breiddar og 9 gráðum vest
lægrar lengdarl
Af fréttinni mátti ráða, að skip-
ið hefði farizt á hádegi í fyrradag
og hefðu þeir tveir, er björguð-
ust, verið einu mennirnir, sem
voru uppi við, þegar ólagið
skall á.
Talsambandslaust var við Fær-
eyjar í gær vegna slæmra hlust-
unarskilyrða og var því ekki hægt
að fá nánari fregnir af atburði
þessum, en skozki línuveiðarinn
mun nú vera kominn í höfn. Þeir,
sem af komust eru Helgi Símonar
son, matsveinn og Gunnar Ásgeirs
son háseti, báðir frá Höfn í Horna
firði.
Þeir, sem saknað er, eru þessir:
Bjarni Runólfsson, skipstjórinn
á Helga. Bjarni er kvæntur Rögnu
Guðmundsdóttur. Þau eiga fjögur
börn, hið elzta fjögurra ára. —
Heimili þeirra er í Reykjavik.
Bjarni er fertugur að aldri, fædd
ur 11. maí 1921. Hann var elzti
maður um borðl.
Ólafur Runólfsson, stýrimaður,
bróðir Bjarna. Ólafur er kvæntur
Ingibjörgu Sigurjónsdóttur. Þau
eiga fjögur börn og eru búsett
í Höfn í Hornafirði. Ólafur er 28
ára að aldri.
Olgeir Eyjólfsson. Hann er 32
ára að aldri, kvæntur Steinunni
Runólfsdóttur, systur þeirra
Bjarna og Ólafs. Þau eiga þrjú
böm og eru búsett í Höfn.
Trausti Valdemarsson. Hann er
22 ára gamall, ^ bróðursonur
þeirra Bjarna og Ólafs. Hann er
ókvasntur.
Einar Pálsson, 1. vélstjóri. Hann
er 28 ára að aldri, ókvæntur og
býr í Höfn.
Bragi Gunnarsson. Hann er 19
ára, búsettur í Höfn.
Bjöm Jóhanhsson, stýrimaður
er 25 ára gamall, ókvæntur og á
heima á Brunnum í Suðursveit.
Þetta eru allt ungir menn og
efnilegir. Sérstaklega er slysið á-
takanlegt, þar sem fjórir þeirra,
(Framhald á 2. síðu.)
Bretar sigruðu
1:0
Öðrum landsleik Islendinga og Breta í knatt-
spyrnu lauk þannig, aft Bretar báru sigur af
hólmi 1 : 0. Fyrri landsleikinn, sem leikinn var
1956, unnu Bretar meS 3 : 2.
Frystir fálkar í vörzlu
Iðgreglunnar í Eyjum
Blaðið hefur fregnað, að
nokkrir frystir fálkar séu nú í
vörzlu lögreglunnar í Vest-
mannaeyjum, og að verið sé
að rannsaka, hvort fleiri sjald-
gæfir fuglar hafi verið settir
í geymslu í frystihús þar.
Nokkrir menn í Vestmannaeyj-
um hafa verið að skjóta þar sjald-
gæfa fugla, að öllum líkindrum
með leyfi viðkomandi yfirvalda, í
þeim tilgangi að selja þá á söfn
erlendis.
Fálkar sjást öðru hvoru í Vest-
mannaeyjum, en ekki er vitað,
hvort þeir, sem nú eru í vörzlu
lögreglunnar, hafa verið skotnir
þar eða hvort fyrri handhafar
þeirra hafa fengið þá í skiptum
fyrir aðra fugla.
Krafa frá yfirvöldunum hér í
Reykajvík, um að fálkunum yrði
skilað, mun hafa borizt til Vest-
mannaeyja, en líkur bénda til, að
þar séu ekki öll kurl komin til
grafar.
Blaðinu tókst ekki í gær að ná
sambandi við dr. Finn Guðmunds-
son, fuglafræðing, til að fá um
sögn hans um þetta kynlega mál.