Tíminn - 17.09.1961, Qupperneq 3

Tíminn - 17.09.1961, Qupperneq 3
IN N> sunnudaginn 17. september 1961. V, Barizt af mikilli heift í Katanga NTB—Elísabethville og Lond- on, 16. sept. — Herstjórn Sam einuSu þjóðanna í Kongó hef- ur nú lýst yfir hernaðarástandi í öllu Katangahéraði, og hefur enginn leyfi til að ferðast um götur Elísabethville eða ann- arra borga, þar sem ófriður geisar. Sameinuðu þjóðirnar eru í óðaönn að flytja herlið, búið þungavopnum til Kat- anga til þess að ná á ný tök- um á rás viðburðanna. Frégnir þær, sem í gær voru eftir útvarpsstöð, sem kallaði sig Frjálsa Katanga, um að 150 írskir Gromyko farinn vestur NTB—Moskva, 16. sept. — Andrei Gromyko, utanrikisráð- herra Sovétríkjanna fór í dag flug leiðis til New York. Hann verður formaður sovézku sendinefndar- innar á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna, að því er Tassfréttastof- an hermir. hermenn í Jadotville hefðu verið bornir ofurliði og handteknir af Katangaher, eftir að um 50 voru fallnir. munu vera rangar. — Hið rétta mun vera, að þessar hersveitir eru nú algerlega einangraðar í Jadotville, en þó ekki á valdi óvinanna. Mikið mann fall varð í liði íranna í gær, er innfæddar hersveitir undir stjórn liðsforingja af evrópskum æsttum gerðu sitt ítrasta til að yfirbuga þá. í dag voru indvérskar her- sveitir á leið frá Elisabethville til Jadotville, sem er 18 mílna leið, til þess að losa írana, sem eftir lifa, úr herkvínni. Voru taldar lík- ur á, að það myndi takast í kvöld. Forsætisráðherra íra lýsti yf- ir því í morgun, að írska þjóðin væri liarmi lostin vegna atburð- anna í Jadotville. írsku hersveit- irnar hefðu aðeins verið sendar til Kongó á vegum S. þ. ttt þess að hjálpa til að koma á friði og rcglu í landinu, ekki til þess að berajst upp á líf og dauða. Sagði hann, að utanríkisráðherra ír- lands færi nú þegar í stað til Kongó til þess að krefjast skýr- inga á atburðunum. Hvað viil Hammarskjöld Eftir að S. þ. hafa lýst yfir S. þ. lýsa yfir hernaðarástandi. Þjóðarsorg í írlandi. Fellibylur Adenauer um allar J ap sýnt bana ““W tilræði í gær var gerð tilraun til þess að ráða Adenauer, kanzl- ara V-Þýzkalands, af dögum. Var honum sendur böggull, sem hafði að geyma sprengju, og var böggullinn póstlagður í Miinchen. — Kanzlarann sakaði ekki, og ekki varð slys á mönnum vegna þessa bana- tilræðis, þar eð sú regla er höfð, að allur póstur til Ad- enauers er rannsakaður í ör- yggisskyni, áður en hann berst í hendur kanzlarans. Fellibylurinn Nancy herj- aði í gær á suðurhluta Japans- eyja og olli gífurlegu tjóni. Hann var á norðurleið, og var búizt við, að hann myndi geisa um allan eyjaklasann. I gær náði hann borgunum Os- aka og Nagoya og olli miklu mann- tjóni og eigna. Hann hafði um miðjan dag orðið um 50 manns að bana, en margra var saknað. | Hundruð þúsunda manna ■ flýðu heimili sín í borgunum. Talið var, að 3000 íbúðarhús hefðu gereyði- lagzt, en 37 þúsund skemmzt veru- lega. Veðurfræð'ingar töldu, að heldur færi nú að draga úr ofsan- um, en þó var talið víst, að bylur-, inn myndi valda erfiðleikum eða tjóni í höfuðborginni Tókíó og annars staðar á Honshu, sem er( hin stærsta af Japanseyjum. hernaðarástandi í Katanga og bannað öllum að vera á ferli úti við, er ljóst, að hersveitir S. þ. þykjast þurfa að taka á því, sem þær eiga til og berjast vægðar- laust til þess að ná tökum á á- standinu i landinu. Brezka út- varpið hafði það í dag eftir all- áreiðanlegum heimildum, að Hammarskjöld aðalframkvæmda- stjóri vildi nú flest til vinna að koma á vopnahléi í Katanga, en hins vegar vildi yfirherstjórn S. þ. í Kongó og Katanga ekki hætta við hálfnað verk heldur ná settu marki. Andsfaða Breta og Frakka Brezka stjórnin hefur sem kunn ugt er, látið í ljós andstöðu sína við aðgerðir S. þ. í Kongó, og rík- isstjórn Frakka hefur látið í ljós efa um, að hægt sé að kalla að- gerðirnar löglegar. Framkvæmda- nefnd Sameinuðu þjóðanna fyrir- skipaði aðgerðirnar í Katanga, þar sem þær væru nauðsynlegar til þess að koma í veg fyrir borgara- styrjöld í landinu, en öryggisráð S. þ. ályktaði í febrúar, að S. þ. skyldi heimilt að beita vopnavaldi í Kongó ef nauðsyn krefði til þess að hindra borgarastyrjöld. * Qttazt va^, að til átaka kæmi milli. hersveita Katangastjórnar og stjórnarinnar í Leopoldville, og tóku þá S. þ. í taumana til þess að hindra slíkt og rjúfa aðskilnað Katanga og annarra landshluta Kongó. „Heigulsleg árás" Forsætisráðherra Rhódesíusam- bandsinsbandsins, Roy Welenski, kunngerði í morgun yfirlýsingu frá Tshombe, þar sem hann segir lið sitt munu berjast til síðasta manns. Welenski fordæmdi að- gerðir S. þ. og kallaði þær „heig- ulslega árás“, að sögn brezka út- varpsins. Tshombe hefur leitað til hans um hjálp til að útvega her- sveitum sínum matvæil og lækn- ingavörur, og hét Welenski því bezta, er ríki sitt gæti látið Kat- angamönnum í té. Herstjórn Sameinuðu þjóð- anna hefur lýst yfir því, að hún muni fara drengilega með hvern fanga úr liði Katangastjómar. Áðúr hafði Tshombe heitið því, að fyrir hvern Katangahermann, sem S.þ. létu taka af lífi eða felldu, skyldu drepnir 10 fangar úr liði S. þ. Skýrt var frá því í Leopoldville i dag, af hálfu Sam- einuðu þjóðanna, að liðsflutn- ingar og hergagna til Katanga- flugvalla gcngju erfiðlega vegna þotuárása Katangahers. Hafa sumar flutningaflugvélanna neyðzt til að snúa aftur, af þess- um sökum. Zorlu og Polatkan líflátnir Vísuðu Hammar- skjöld frá NTB—Brazzaville, 16. sept. — Varaforseti Kongólýðveldis- ins, er áður var franska Kongó, hefur tilkynnt Dag Hammar- skjöld, sem staddur er í Leopoldville, að hann fái ekki að fara með flugvél frá Brazzaville til New York, eins og framkvæmda- stjórinn hafði ætlað sér. Ástæðuna segir varaforsetinn vera, að svo mikil reiði ríki í Brazzavillc vegna aðgerða Sameinuðu þjóanna í Katanga, að stjórnin þar geti ekki ábyrgzt öryggi Hammarskjölds þar. Hann sagði, að Fulbert Yulou, forseti Kongólýðveldisins, væri einkavinur Tshombe, og aðgerðir S. Þ. hefðu Ieitt af sér róstur, borgarastríð og eyðileggingu í Katanga. NTB — ISTANBUL, 16. sept. — Fatin Zorlu, fyrrum utanríkis ráðhcrra, og Hassan Polatkan, fyrrum fjármálaráðherra í Tyrk- landi, voru í morgun teknir af lífl með hengingu. Samtiims átti cinnig að taka Menderes, fyrr- um forsætisráðherra, af lífi, en aftaka hans bíður þess, að hann hressist eftir að hafa tekið inn of stóran skammt af svefnpill- um í fyrradag. Þjóðlega einingarnefndin breytti ákvörðuninni um dauðadóm yfir 15 manns, í ævilangt fangelsi fyrir 12 þeirra, en aðeins þrír skyldu teknir af lífi, sem fyrr voru nefndir. Bayar forseti fékk ævi-j langan fangel-isdóm vegna aldurs síns. í þessum miklu réttarhöld- um, sem nú er lokið eftir nær 11 j mánuði, voru um 400 manns j dæmdir í fangelsi, en aðeins umj 100 voru sýknaðir af ákærum. Kennedy kippir að sér hendinni NTB—Washington, Stórblaðið New York Times skýrir frá því, að Bandaríkja- stjórn hafi ákveðið að leggja síðustu beiðni Póllands um efnahagsaðstoð frá Bandaríkj- unum í salt fyrst um sinn. Blaðið segir, að Kennedy forseti hafi tekið þessa ákvörðun vegna hinnar stifu stefnu pólsku stjórn- arinnar og hins spennta ástands í alþjóðamálum. í sömu frétt segir, að efnahagsaðstoðin til Júgóslavíu verði heldur ekki úti látin í þeim mæli, sem ákveðið hafði verið, og að ráðagerðir Bandaríkastjórnar um að bjóða Tító forseta heim muni nú rykfalla í skrifborðsskúff- unni. BenKhedda vill semja Forsætisráðherra alsírsku upp reisnarstjórnarinnar, Ben Kliedda, sagði í gær, í fyrstu útvarpsræðu sinni til Alsír- manna, að grundvöllur væri fyr- ir hendi til þess að semja um frið við Frakka eftir síðustu um- AKSEL MILTHERS REKTOR Þekktur bú- vísindamaður gistir ísland Hingað til lands er væntan- legur Aksel Milthers, rektor við Konunglega Landbúnaðar- og Dýralæknaháskólann í i Kaupmannahöfn. Milthers rektor er búvísinda- maður að menntun, en hefur auk 'þess lagt stund á hagfræði og á að baki mjög langan feril, sem starfsmaður á sviði félagsmála við samtök danska landbúnaðarins, en lengstan þó við þá stofnun, sem hann er nú rektor fyrir, en þar ,hefur hann starfað um meira en 'þrjá tugi ára, sem bókavörður, að- stoðarmaður við kennslu, dósent og loks sem prófessor á annan ára- tug. Verksvið hans hefur verið á | vettvangi búnaðarsögu, búnaðar- landafræði og viðskiptafræði land- búnaðarins, en auk þess hefur hann gegnt forfallakennslu og verið aðstoðarkennari í almennri búnaðarhagfræði. Hann dvelst hér eina viku. mæli de Gaulles forseta um framtíð Sahara. „Við erum sann færðir um, að mcð heiðarlegum og dyggilcgum samningaviðræð- um í þeim tilgangi að veita þjóð vorri rétt til sjálfstjórnar og til stjórnar Sahara, einnig rétt til sjálfstæðis innan landamæra sinna, hlýtur að vera hægt að’ binda endi á ófriðinn og opna leiðina til árangursríks sam- starfs Alsírmanna og Frakka“, sagði Ben Khedda. Snarráðar telp- ur heiðraðar Tvær telpur, Sig^rún Hilm- arsdóttir í Saltnesi í Hrísey, 13 ára, og Svanlaug Árnadótt- ir, Unnarstíg 2 í Reykjavík, 12 ára, er björguðu tveggja ára dreng, er féll í brunn í Hrísey í sumar, voru heiðrað- ar og verðlaunaðar af Rauða krossi íslands í fyrradag fyrir frammistöðu sína. Hlutu þær að gjöf Orðabók Sigfúsar Blöndals með áletraðri viður- kenningu. Drengurinn, sem þær björguðu, var meðvitundarlaus, þegar þær fundu hann og náðu honum upp úr brunninum. Tóku þær þegar að blása i vit honum, unz hann kom til sjálfs sín, og er talið, að þær hafi með snarræði sínu borið giftu til þess að bjarga lífi barns- ins.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.