Tíminn - 17.09.1961, Qupperneq 14

Tíminn - 17.09.1961, Qupperneq 14
14 T í MIN N, sunnudaginn 17. september. 1961. mín, trúðu mér einu sinni.! Trúðu mér. — Hvaða gestir eru hér í kaupstaðnum í dag. Einhverj, ir fleiri en þið feðgar? — Ertu nú að leita ein-| hvers eða fá samtalinu lokið? ' — Eg er að leita. — Þá skal ég svara eftir beztu getu. — Og engan skilja eftir, sagði Hallfríður. — Eg mun hafa komið hingað til þín klukkan þrjú, og þá hafði ég, síðan ég kom hingað í dag, orðið var viö þessa aðkomumenn á stræt- um og í verzlunum." Svo taldi hann upp heilan hóp. — Fleiri sá ég ekki. Það má vera, að einhverjir hafi verið inni á heimilum kaupstaðarbúa, helzt kvenfólk, býst ég við. En þeir eru taldir, sem ég sá. — Ertu viss um, að enginn prestur hafi verið hér á staðn um í dag?, spurði Hallfríður. — Já, ég þori að fullyrða það. —Nú skal ég gera við þig samning. Ef þú getur náð í prest. til þess að gefa okkur saman fyrir klukkan tólf í kvöld, nú er hún rúmlega hálf fimm, þá skal ég giftast þér. Náirðu ekki í prestinn, lof- arðu mér að hafa drenginn þinn hjá mér, annaðhvort hér eða heima hjá þér, svo lengi sem ég get. Og hann þarfnast mín, og þá biður þú mig ekki framar að gift- ast þér. Hins vegar skal ég lofa því að láta þig vita undir eins, ef ég sé mér þaö fært að eiga þig. Viltu ganga að þeim? — Já, Hallfríður. Eg geng; að þessu. Vertu tilbúin, þegar, ég kem. Eg trúi ekki öðru en að þetta takist. Vertu blessuð á meðan og þakka þér fyrir lausnarorðið. En á þröskuldinum vatt hann sér við. — Hallfríður. Þú hefur opið hér til klukk- an tólf. Hafi ég ekki náð í prestinn fyrir þann tíma, stend ég hér á slaginu tólf og afhendi þér drenginn minn,, ímynd mína, mundu það, tilj ævarandi eignar og geng; sjálfur guði á vald, nema þúj réttir fram höndina á síðustu' stundu. Svo hvarf hann út úr dyrun um. Og hún heyrði, að hann raulaði lagstúf. Þegar drengurinn vaknaði, sagði Hallfríður: — Hvernig líður þér, væni minn? — Vel, en hefur ekki pabbi komið? — Jú. Og nú fer ég heim' með ykkur. — Eg vissi það, sagði dreng- urinn. — Ertu þá glaður? — Já, sagði hann og réttij fram armana. — Elsku drengurinn minn, sagði Hallfríður. — Guð fyrir gefi mér, ef ég geri rangt. Eg læt hann ekki farast. Eg rétti fram höndina, hvað sem afi því hlýzt. Kvöldið leið fram hægt og' silalega. Tíminn, sem flesta sért töframaður, sagði hún. — Hefur þú ekki vitað það fyrir löngu? sagði hann. — En hvað þú ert falleg, Hall- fríður mín. Fötin eru reglu- legt brúðarskart. Og svo ertu búin að klSsða Palla, svona líka vel. Lofaðu mér að sjá þig, Palli minn. Hver lét þig fá svona falleg föt? — Hallfríður. — Hvar fékkstu þessi föt að láni?, spurði hann og vék sér að Hallfríði. — Þetta eru jólafötin hans. 18 daga hverfur, fyrr en mann varir, getur haft það til að mjakast áfram óumræðilega hægt eins og vatn í lygnum hyl. Hallfríður varð oft litið á klukkuna þetta kvöld. Þegar hún hafði tekið ákvörðun, vildi hún helzt, að lokaþátt- urinn hæfist. Páll litli var hins vegar hress og sæll. Aftur og aftur lét hann Hallfríði lofa því að koma meö sér heim. Eftir kvöldmat fór hún að láta hann skipta um föt, þó honum vel og vandlega, greiddi hár hans og klæddi hann í jólafötin nýju: bux- urnar og blússuna. — Þú verð ur að vera hreinn og fínn, þegar pabbi kemur sagði hún. Og þegar hann beið albúinn, fór honum líka að leiðast eftir pabba sínum. Nú tók Hallfríður að skipta um föt og bjó sig upp á. Svo biðu þau, ræddust við og rauluðu hugljúf lög. Og tíminn leið. Loks kom Jóakim. Þá var klukkan að verða hálfellefu. — Allt er tilbúið, sagði hann. — séra Jóhannes bíð- ur okkar á veitingahúsinu. Hann kom í kvöld. Alveg eins og það átti að vera. — Eg fer að halda, að þú Hann á þau. Eg hef saumaö þau nýlega. — Ertu búinn að þakka Hallfríði fyrir fötin? sagði Jóakim við drenginn. Það hafði gleymzt, og fékk húr/ nú kossinn vel úti lát- inn. — Þú átt eftir að borða, sagði Hallfríður. . — Búinn, svaraði hann. — Þá skiptirðu um föt, sagði hún. Eg hef ekkert til skiptanna, blessuð vertu. Eg fór í hreint í gærmorgun og þó mér hátt og lágt, það verður að nægja. — Hér hef ég buxur og skyrtu, sagði Hallfríður, og tók hvort tveggja fram. — Eg sé á þessu, að þú hefur búizt við brúðkaupi okkar í kvöld, sagði hann. — Nei, ekki gerði ég það. Þetta átti aö vera jólagjafir frá mér til ykkar feðga. Jóakim fór nú að skipta um föt, en Hallfríður fór fram með jakkann hans til þess að draga á hann. Er hún kom inn aftur, bað hún Jóakim að segja sér, hvernig hefði tek- izt að ná í prestinn. — Þú sagðir áðan, að ég væri töframaður. Það er svarið. Svo þiggur þú þetta af mér, og þá erum við til. Hann dró upp úr frakkavas- anum litla öskju og lauk henni upp. Þar voru tveir gló- fagrir hringar. Dró hann ann an á hönd Hallfríðar og setti hinn upp. Svo tók hann upp aðra öskju nokkru stærri og rétti Hallfríði. Var þar slifsis- næla úr silfri, forkunnarfög- ur. — Þetta er festargjöf mín, sagði hann. Hallfríður tók við nælunnij og kyssti hann. — Blessaður var hann, fyrsti kossinn, sagði hann. 1 Meðan hún festi á sig næl-! una, spurði hún, hvar þau yrðu gefin saman. — í veitingahúsinu, þar bíður séra Jóhannes. — Nú er ég til, sagði Hall- fríður. En eftir á að hyggja.' Eg ætla að biðja hana Guö- rúnu að vera við vígsluna. Það var ekkjan, sem hún leigði hjá. — Hallfríður, sagði Jóakim. — Farðu ekki undir eins. Eg ætla að gera játningu. Eg fór til séra Jóhannesar í fyrra dag og fékk hann til að koma hingað í kvöld, svo að hann gæti gefið okkur saman, ef þú gæfir til þess samþykki. Eg hef tvisvar áður kvatt hann hingað sömu erinda. Hann sagði líka núna, bless- UTVARPIÐ Sunnudagur 17. september: 8.30 Létt morgunlög. — 9.00 Fréttir. 9.10 Morguntónleikar: a) „Flugeldasvítan" eftir Hánd el (Hljómsveit óperunnar í Monte Carlo leikur; Louis Fremaux stj.). b) Hollenzki karlakórinn „Mas treechter Staar" syngur. Stjórnandi: Martin Koekel- koren. e) Píanókonsert í a-moll op. 54 eftir Schumann (Friedrich Gulda og Fílharmoníusveit Vínarborgar leika; Volkmar Andreae stjórnar). , 11.00 Messa í Dómkirkjunni (Prest- ur: Séra Guðmundur Guð- mundsson á Útskálum. Org- anl.: Dr. Páll ísólfsson). 12.15 Hádegisútvarp. 14.00 Miðdegistónleikar: a) Frá tónlistarhátíðinni í Chimay í Belgíu- í júli sl.. Fimm píanóþættir op. 118 nr. 1, 2, og 6, og op. 119 nr. 3 og 4 eftir Brahms (Ventsislav Yankaff leikur). b) Frá tónlistarhátíðinni í Salz burg í. júlí s.l. (Fílharmoníu- sveit Vínar leikur. Stjórnandi: Wolfgang Sawallisch. Ein- söngvari: Dietrich Fischer- Dieskau): 1. Þrír „Faust“- söngvar eftir Schumann. 2. Sinfónía nr. 7 i C-dúr eftir' Sciiubert. 15.30 Sunnudagslögin. — 16.30 Veð- urfregnir). 17.30 Barnatími (Skeggi Ásbjarnar- "ison kennari): a) „Afrískir skóladrengir segja frá“; síðari hluti (Guðrún Guðjónsdóttir þýðir og les). b)Stefán Sigurðsson kennari l'es ævintýrið „Gamla skósmiðinn" eftir Leo Tolstoj. c) Ólöf Jónsdóttir flytur frum samda frásöguþætti. d) Kafli úr bókinni „Eitt er það land“ eftir Halldóru B. Björnsson. 18.30 Miðaftanstónl.: Ilollywood Bowl hljómsveitin leikur; Carmen Dragon stjórnar. 19.00 Tiikynningar. — 19.20 Veður- fregnir. 19.30 Fréttir. 20.00 „Annes og eyjar": Stefán Jóns son og Jón Sigurbjörnsson á þingaferð um Breiðafjörð með sýslumanni Barðstrendinga; síðari þáttur. 21.00 Hljómplöturabb: Þorsteinn Hannesson óperusöngvari kynnir ljóðasöngvara. 21.40 Fuglar himins: Agnar Ingólfs- son dýrafræðingur tal'ar um máva. 22.00 Fréttir og veðurfregnir. 22.05 Danslög. 23.30 Dagskrárlok. Mánudagur 18. septehber: 8.00 Morgunútvarp (Bæn: Séra Jakob Jónsson. — 8.05 Tón- leikar. — 8.30 Fréttir. — 8.35 Tónleikar — 10.10 Veðurfr.). 12.00 Hádegisútvarp (Tónleikar. — 12.25 Fréttir og tilk.). 12.55 „Við vinnuna": Tónleikar. 15.00 Miðdegisútvarp (Fréttir. — 115.05 Tónleikar. — 16.00 Fréttir og tilk. — 16.05 Tón- leikar. — 16.30 Veðurfr.). 18.30 Tónleikar: Lög úr kvikmynd- um. 18.55 Tilkynningar. — 19.20 Veður- frégnir. 19.30 Fréttir. 20.00 Um daginn og veginn (Páll Kolka læknir). 20.20 Einsöngur: Gunnar Pálsson og Sigurður Markan syngja. 20.40 Ítalíubréf frá Eggerti Stefáns- syni (Andrés Björnsson les). 21.00 Tónleikar: Tónlist við brúðu- kvikmyndina „Bayaya prins" eftir Vaclav Trojan (Sinfóníu- hljómsveit leikur; Otakar Par- ik stjórnar). 21.30 Útvarpssagan: „Gyöjan og ux. inn“ eftir Kristmann Guð- mundsson; XII. (Höfundur les). 22.00 Fréttir og veðurfregnir. 22.10 Búnaðarþáttur: Sigurður Björnsson kjötmatsmaður tal- ar um meðferð fjársins við réttir og slátrun. 22.25 Kammertónleikar: Frá Sibeliusar-vikunni í Hel- sinki í júní s.l. -4Voees Inti- mae‘ op. 56 eftir Sibelius (Par- renin-kvartettinn leikur). 23.05. Dagskrárlok. EIRÍKUR VÍÐFFÖRLI Úlfurinn og Fálkinn 48 — Skýlið ykkur, hrópaði Eiríkur, og þeir þutu allir þrír um rúst- irnar í leit að felustað. í ruglingn- um missti Eiríkur sjónar á þeim. Á síðustu stundu, með þrjá úlfa á hælunum, heppnaðist honum að finna glufu, sem hann ruddist í gegnum án þess að hugsa frekara út í það. Honum var fljótlega Ijóst, að hann var í kjallara kast- alans', og komst ekki út. Eftá1 lan.ga stund var hann orðinn leið- ur á dvölinni þarna og reyndi að klifra upp. Úlfarnir störðu sultar- lega niður til hans, en hann end- urgalt augnaráð þeirra , minnugur þess, að þetta var hans einasta von. Þá heyrði hann allt í einu dragandi fótatak nálgast, og hann stirðnaði, þegar hann sá veruna, sem nálgaðist hann.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.