Tíminn - 29.09.1961, Blaðsíða 1

Tíminn - 29.09.1961, Blaðsíða 1
MA-55EY ' IIiSííi;::;® llllfpif Öttazt um mann í Vestm.eyjum Sláttuþreskjarinn slær og þreskir. Skilar korninu mynd var tekln austur á Stórólfsvelli í fyrradag stóran geyml, en gubbar hálminum aftur úr sér. - sjá nánar á baksíðu blaðsins. Vestmannaeyjum, 28. sept. Óttazt er um aldraðan mann, Vilhjálm Guðmundsson á Sæbergi í VestmannaeyjumJ sem hvarf að heiman frá sér í gærdag, og hefur ekkert frétzt til hans síðan. Harrn fór a5 heiman frá sér um hádegisbilið. Leit var hafin að manninum í gærkvöldi, er hans var saknað, en hún bar engan árangur. í dag var aftur gerg mikil leit undir forystu skláta og fleiri manna. Var meðal annars leitað vandlega á svæðinu í grennd við höfnina. Froskmaður leitaði í höfninni í hálfan annan klukku tíma. Allt varð þetta árangurs- laust. Vilhjálmur er á sjötugsaldri og hefur unnið við veiðarfæri hjá Hraðfrystistöðinni síðari árin. þessi Hann er alheill á geði, og var ; hress í bragði og heilbrigður, _ er hann fór að heiman frá sér. Ótt- azt er, að hann hafi dottið í höfn ina, en þar er erfitt að leita og verður seint fullleitað. Talað er um að fá annan froskmann til leit- arinnar þar. S.K. 3 lestir af korni af ha. Egilsstöðum 28. sept. Á HéraSi hamast menn við að hirða og þurrka kornið þessa dag ana. Marglr hafa lagt inn tais- vert af þessari góðu vöru hjá Kaupfélagi Héraðsbúa. Yfirleitt virðist uppskeran vera góð. Mesta uppskeran, sem frétzt hefur um, er hjá Jóhanni Magnússyni, bónda á Breiðavaði í Eiðaþinghá. Hann sáði í 4 hekt- ara og fékk 120 tunnur af full- þurrkuðu korni. Metuppskera hann stóð við leg- eins og 1953 stað leifs heppna " * I 'T. , *-•’ T7" • f • e •. r n . , ( irjk' Kaupriiannahöfn, 28. sept. Jörgen Jörgensen, fyrrverandi menntamáiaráðherra Dana, og kona hans fara til íslands í næstu viku, þar sem þau verða gestir ríkisstjórnarinnar. Jörgen- sen mun, ásamt fieiri kunnum Dönum, taka þátt í afmællshá- tíð háskólans. Kjörnir verða heiðursdoktorar fimm prófessorar, búsettir í Dan- mörku, — íslenzki iæknirinn Lár- us Einarsson í Árósum, færeyski málfræðingurinn Chr. Matras, heilasérfræðingurinn Busch, lög- fræðingurinn Borum og guðfræð ingurinn Regin Prenter. Margir fieiri danskir prófessorar fara á háskólahátíðina. Þykkvabæ, 28. sept. Langt er nú komið að taka upp kartöflurnar þetta "____ ið. Uppskeran er ágæt, yfir- leitt ekki minna en ■_ Muna menn ekki þvíiíka upp- skeru síðari árin nema 1953, en þá var metár. En þá eyði- lagðist reyndar mikið af upp- skerunni vegna kartöflu- myglu. í Þykkvabænum eru rúmir 100 hektarar lauds undir kartöfluökr um. Sumir eru búnir að ná öllu upp, aðrir eru á eftir eins og gengur, en búast má við, að lok ið verði upptökunni næstu dag- ana. Uppskeran er svo jöfn í ár, að menn minnast ekki annars eins. Allar geymslur yfirfullar Allar geymslur eru löngu yfir- fullar, því að menn eru ekki bún ir við því að taka á móti svo miklu úr jörðinni. Enginn á geymslu, sem komast í 10 þúsund sekkir, en það sér ekki högg á vatni, og þarf hér meiri muna við. Kartöflurnar hafa til bráða- birgða verið settar inn í alls kon ar hús, sem ekki eru frostheld og er uppskeran þannig í hættu um leið og kólnar að ráði í veðri S.G. Kirkja og grafreitur í Brattahlíð frá fyrstu árum grænlenzkrar kristni Fornleifafræðingar telja efalaust, að rústir Þjóðhildarkirkju í Brattahlíð á Grænlandi séu fundnar, ásamt grafreit, þar sem jörðuð hefur verið hin fyrsta kynslóð kristinna manna í byggðarlaginu. Vafalaust geymir hann bein Þjóðhildar, konu Eiríks rauða, og mjög er lík- legt, að þar hafi verið Leifur heppni greftraður og jafnvel Eiríkur sjálfur. Þjóðhildarkirkja er 250 metra frá hinum fornu bæjarrústum — „eigi allnærri húsun- um“, eins og sagan segir. Hún hefur verið svipuð að stærð og bænhúsið á Núpstað og hefur snúið timburstafni í vestur. Þessi fundur er líklegur til þess að vekja hina mestu eftirtekt, svo að fáir fundir forn- leifa frá tímum norrænna manna á Grænlandi hafi slíka vakið. Maður, sem annaðist bráðabirgðarannsókn á kirkjunni og grafreitnum, Jörgen Meldegaard, magister frá Kaupmannahöfn, staldraði. við fá- eina klukkutíma í Reykjavík í fyrrinótt, og átti hlaðamaður frá Tímanum tal við hann. Við birtum viðtalið á blaðsíðu 8 og 9 í dag.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.